DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 161-17
DROPS Design: Mynstur nr ks-102
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-175 gr litur nr 08, gráblár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (blá), NR 621: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikning A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn,
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 6, 13, 20, 27 og 34 cm.
STÆRÐ M: 7, 14, 21, 28 og 36 cm.
STÆRÐ L: 8, 16, 23, 31 og 38 cm.
STÆRÐ XL: 9, 16, 24, 31 og 39 cm.
STÆRÐ XXL: 9, 17, 25, 33 og 41 cm.
STÆRÐ XXXL: 9, 18, 26, 35 og 43 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 163-195-195-227-227-259 l með Kid-Silk (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú MYNSTUR frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, A.1 (= 16 l í 1. umf) 10-12-12-14-14-16 sinnum á breiddina, 1 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 103-123-123-143-143-163 l. Haldið áfram með mynstur en nú er A.2 prjónað yfir A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, fitjið upp nýjar l fyrir ermar í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 2 sinnum, 4 l 1 sinni, 6 l 3 sinnum og 28-18-23-13-18-8 l 1 sinni = 211-211-221-221-231-231 l. Nýjar útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar l eru fyrir nýja mynstureiningu A.2 á breiddina. Haldið nú áfram með mynstur frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, A.3 0-0-1-1-0-0 sinnum á breiddina, A.2 20-20-20-20-22-22 sinnum á breiddina, A.4 0-0-1-1-0-0 sinnum á breiddina, 1-1-0-0-1-1 l sléttprjón, 5 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, fellið af fyrir hálsmáli JAFNFRAMT er prjónað axlastykki:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið fyrstu 88-88-93-93-98-98 l, fellið af næstu 35 l fyrir hálsmáli, prjónið næstu 88-88-93-93-98-98 l. Prjónið síðan vinstri öxl þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður, með 1 kantlykkju í garðaprjóni inn við hálsmál. ATH: Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman = 87-87-92-92-97-97 l. JAFNFRAMT er prjónað yfir miðju l þar til 1 mynstureining er eftir á undan 5 l garðaprjón yst á ermi, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram að prjóna yfir 1 mynstureiningu færri við ermi í hverri umf frá réttu. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu – prjónið 2 umf yfir allar l. Fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 87-103-103-119-119-135 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni á hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni) með Kid-Silk á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka. Í næstu umf er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 2 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 57-67-67-77-77-87 l í umf. Nú er haldið áfram með mynstur alveg eins, en nú er prjónað A.2 yfir A.1. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu og bakstykki, fitjið upp nýjar l fyrir ermi þannig: 2 l 2 sinnum, 4 l 1 sinni, 6 l 3 sinnum og 28-18-23-13-18-8 l 1 sinni = 111-111-116-116-121-121 l. – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón þar til nægilega margar l eru komnar í nýja mynstureiningu A.2 á breiddina. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A..2 10-10-10-10-11-11 sinnum á breiddina, 1-1-0-0-1-1 l sléttprjón, A.4 0-0-1-1-0-0 sinnum á breiddina, 5 l garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 35-37-39-40-42-44 cm prjónið fyrstu 20 l í öllum stærðum áður en l eru settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður en l við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni, JAFNFRAMT fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 2 l 2 sinnum = 87-87-92-92-97-97 l. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina og bakstykki, prjónið yfir 1 mynstureiningu færri í hverri umf við ermi á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu og bakstykki, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. 1. umferð með mynstri er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 6 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir A.1. Þegar fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi eru fitjaðar upp l í lok umf frá röngu = 111-111-116-116-121-121 l. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3 0-0-1-1-0-0 sinnum, A.2 þar til 6 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið síðan áfram eins og á hægra framstykki og prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Takið upp frá réttu ca 120-130 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka og fellið laust af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Jan Steele wrote:

When your materials state the amounts below eg 100-125-... does that mean yards or metres, many thanks Materials: DROPS KID-SILK from Garnstudio 100-125-125-150-150-175 color no 08, gray blue

05.09.2021 - 12:57

DROPS Design answered:

Dear Jan, we always state the amount of each yarn for each size in gr. This is also approximate, since we take into account full balls of yarns (for example, from 100 to 125, which would be 1 more ball of 25gr, but you may not need to use the full ball),

05.09.2021 - 16:27

country flag Linda Briere wrote:

Je veux faire ce modèle mais je ne comprends pas combien de balle de kid silk il me faut pour la grandeur xxxl merci de m'aider!

04.03.2021 - 22:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Briere, en taille XXXL, il faut 175 g DROPS Kid-Silk /25 g la pelote = 7 pelotes DROPS Kid-Silk. Bon tricot!

05.03.2021 - 07:40

country flag Caro wrote:

Graag uitleg bij het achterpand bij deze zin: “ Brei TEGELIJKERTIJD over de st tot er 1 patroonherhaling over is voor de 5 st in ribbelst aan de zijkant van de mouw, keer en brei de teruggaande nld.” Wat wordt bedoeld met “tot er 1 patroonherhaling over is”? Als ik keer dan blijven er 15 st over op de naald (incl 5 st ribbelsteek?). Hoeveel steken moet ik in totaal overhouden aan de schouder?

23.02.2021 - 15:27

country flag Lisa Mortensen wrote:

Skal de masker før jeg vender, blive ved med at blive på den anden pind, så arbejdet er delt og først til sidst når arbejdet måler den færdige højde, strikkes alle masker over hele pinden?

07.03.2016 - 20:40

DROPS Design answered:

Hej Lisa, Ja du strikker de vendinger som der står i opskriften (lader de andre masker sidde på pinden) og når du er klar med vendingerne strikker du over alle masker igen. Bare følg opskriften. Se også gerne vor video med vendepinde, så du kan se effekten af vendepindene. God fornøjelse!

08.03.2016 - 08:57

country flag Lisa Mortensen wrote:

Det kan godt være jeg er lidt tungnem. Hihi. Jeg forstår det stadigvæk væk ikke 😢😢 De masker der ikke er strikket før vendingen, hvad skal der ske med dem på næste pind ? fra retsiden.?Hvornår og hvordan skal de strikkes? Og flytter det sig, så der på næste pind skal vendes når der mangler 2 rapporter og de 5 kantmasker?

07.03.2016 - 20:34

DROPS Design answered:

Se her hvordan det ser ud når du strikker vendepinde:

DROPS Knitting Tutorial: How to work short rows basic from Garnstudio Drops design on Vimeo.

08.03.2016 - 08:59

country flag Lisa Mortensen wrote:

Hej igen. Jeg har et spørgsmål mere. Når jeg har vendt og strikket vrangsiden, skal jeg så ikke strikke hele næste retpind helt ud til kanten ? Eller skal jeg vende igen når der mangler 1 rapport (6 masker) + de 5 ret masker ? Hvis det sidste, bliver det så ikke helt skævt?

06.03.2016 - 22:04

DROPS Design answered:

Hej, nej det er kun mod ærmet du hopper over en rapport, du gør det for at skulderen skal blive skrå. God fornøjelse!

07.03.2016 - 14:59

country flag Lisa Mortensen wrote:

Hej. Afsnit før du strikker videre. Hvad menes der med : strik til en rapport tilbage før de 5 m. Vend og strik? Skal jeg vende når der er de 5 masker tilbage? Og hvad menes der med : Fortsæt således og strik 1 rapport mindre mod ærmet på hver p fra retsiden? Mvh Lisa

01.03.2016 - 22:03

DROPS Design answered:

Hej Lisa, Ja du vender og strikker tilbage før de yderste 5 m retstrik, næste gang du kommer til den side, vender du før sidste rapport af diagrammet (vendepinde) og fortsætter således. Se også vor video over vendepinde.

02.03.2016 - 14:07

country flag Camilla wrote:

I've completed the A1 diagram for the back. What does it mean to "Continue pattern but now work A.2 over A.1."? Thank you.

15.08.2015 - 23:47

DROPS Design answered:

Dear Camilla, when you have worked A.1 one time in height, you have 10 sts in each repetition, now work the 10 sts in A.2 accross, ie over A.1: 1 edge st, 10-16 times (see size) A.2 in width, 1 st in st st, 1 edge st. Happy knitting!

17.08.2015 - 09:32

country flag Karin Swahn wrote:

Hur stickar man bakstycket vid halsringen? Sticka över m tills? står det i mönstret

12.02.2015 - 15:39

DROPS Design answered:

Hej Karin, Du stickar fram tills det återstår.... osv. Lycka till!

26.05.2015 - 15:53

country flag ADEL wrote:

Bonjour ou bonsoir, Voilà je suis une personne qui aime tricoter, vos modéles me plaisent énormément mais il y a un probléme, à notre niveau on n'a pas les aiguilles circulaires alors j'aurai aimé avoir si c'est possible les explications pour le tricotage aux aiguilles normales pour les ouvrages DOPS 160-18 modéle n° r-672 et DOPS 161-17 modéle n°ks-102 et merci.

27.01.2015 - 14:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Adel, certains modèles (celui-ci par ex) se tricote en allers et retours sur aig. circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez ainsi utiliser des aig. droites, vos mailles seront juste plus serrées, pensez bien à vérifier et conserver la bonne tension. Pour tricoter en allers et retours un modèle prévu en rond, répartissez le nbe de m pour chaque pièce, ajoutez les m lis et adaptez les explications si nécessaire. Vous trouverez également sous l'onglet "vidéo" à droite de la photo comment utiliser les aig. circulaires (plus simple), essayez, beaucoup les ont finalement adoptées après essai. Bon tricot!

27.01.2015 - 15:18