DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Beverly

Prjónuð tvíhneppt peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 160-9
DROPS Design: Mynstur nr vs-002
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
650-700-750-850-900-1000 gr litur nr 21, ljós beige
Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
650-700-750-850-900-1000 gr litur nr 03, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 28 l og 30 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA bogalaga (hvít), NR 521: 12-12-12-14-14-14 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Kanturinn að framan er prjónaður til skiptis í garðaprjóni og sléttprjóni þannig:
* Prjónið 4 umf garðaprjón yfir kantlykkjur að framan, prjónið 2 umf sléttprjón með 2 síðustu l í garðaprjóni við miðju að framan *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Peysan er tvíhneppt og fellt er af fyrir 2 hnappagötum á breiddina þannig:
1. Hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti.
2. Hnappagat = prjónið þar til 5 l eru eftir á kanti að framan, fellið af 2 næstu l og prjónið síðustu l á kanti að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af á kanti að framan.
Fellið af fyrir 2 hnappagötum í kanti að framan þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 9, 17, 25, 33, 41 og 49 cm.
STÆRÐ M: 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm.
STÆRÐ L: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm.
STÆRÐ XL: 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 54 cm.
STÆRÐ XXL: 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm.
STÆRÐ XXXL: 15, 22, 29, 36, 43, 50 og 57 cm.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Byrjið á 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 274-290-322-348-380-404 l (meðtaldar 24-24-24-28-28-28 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 24-24-24-28-28-28 l KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 18 l), prjónið 2 l sl, 2 l br yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l (byrjið og endið á 2 l sl), prjónið A.1 (= 18 l), A.2 (= 30-30-30-40-40-40 l), A.1 (= 18 l), prjónið 2 l sl, 2 l br yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l (byrjið og endið á 2 l sl), prjónið A.1 (= 18 l) og endið á 24-24-24-28-28-28 l. KANTUR AÐ FRAMAN. Haldið áfram með stroff svona þar til síðasta umf í A.1/A.2 er eftir. Síðasta umf er prjónuð frá réttu: 24-24-24-28-28-28 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið síðustu umf í A.1, sléttprjón yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18-18-22-22 l jafnt yfir þessar l, prjónið síðustu umf í A.1, A.2 og A.1, sléttprjón yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18-18-22-22 l jafnt yfir þessar l, prjónið síðustu umf í A.1 og endið á 24-24-24-28-28-28 kantlykkjum eins og áður = 232-248-272-296-320-344 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið nú þannig (1. umf = rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.5 (= 16 l), 48-56-68-72-84-96 l sléttprjón, A.3 (= 16 l), A.4 (= 24-24-24-32-32-32 l), A.5 (= 16 l), 48-56-68-72-84-96 l sléttprjón, A.3 (= 16 l) og endið á kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 8 cm eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir A.5 á hægra framstykki, 2. prjónamerki er sett á undan A.3 á bakstykki, 3. prjónamerki er sett á eftir A.5 á bakstykki og 4. prjónamerki er sett á undan A.3 á vinstra framstykki. Nú er fækkað um 1 l utan við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 2½-2½-2½-2½-4-4 cm millibili alls 6-6-6-6-4-4 sinnum = 208-224-248-272-304-328 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l utan við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4 sinnum = 224-240-264-288-320-344 l.

Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er næsta umf prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið 59-63-68-74-81-87 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 94-102-112-124-138-150 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið síðustu 59-63-68-74-81-87 l eins og áður (= vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 94-102-112-124-138-150 l. Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l 0-1-2-2-4-4 sinnum og 1 l 1-3-4-3-6-7 sinnum = 92-92-96-104-104-108 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið nú af miðju 44-44-44-52-52-52 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 23-23-25-25-25-27 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 59-63-68-74-81-87 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm – stillið af að prjónaðar séu 1-2 umf eftir síðasta hnappagat í kanti að framan, setjið síðustu 23-23-23-27-27-27 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l alls 6 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 23-23-25-25-25-27 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-60-60-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 8-10-8-10-12-10 l jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-8-10-6-8 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-15-16-18-19-22 sinnum = 72-80-84-90-94-102 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 6-6-8-8-10-10 l mitt undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-3-4-4-5 sinnum og 1 l 2-4-5-5-7-8 sinnum. Fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-56-56-56-57-57 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt .

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 110 til 130 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Suzanne-Jocelyne Roy wrote:

Bien le bonjour, lorsque je fais mes torsades elles sont toutes parfaites sauf pour la 2ième A5 celle située entre les 2 séries de 48m jersey nonobstant le fait que je positionne l'aiguille auxiliaire sur le dos de mon travail. Je vois la torsade mais elle monte en serpentin. C'est la 2 ième fois que je recommance mon tricot et le résultat est le même. Pourriez-vous m'aider à élucider le tout ou m'apporter assistance? Merci à l'avance chères tricoteuses.

08.01.2021 - 19:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, tricotez-vous bien cette torsade de A.5 dès le 3ème rang et tous les 5 rangs? si vous avez décidé d'inverser la 2ème torsade de A.5, vous devez la tricoter comme A.3, elle devrait donc ressembler à celle de A.3. Montrez votre ouvrage à votre magasin (même par mail si besoin), il sera ainsi plus facile pour eux de vous aider. Vous pouvez également montrer votre photo sur le groupe DROPS Workshop où d'autres tricoteuses pourront probablement vous aider. Bon tricot!

11.01.2021 - 07:33

country flag Petra wrote:

Wenn ich der Anleitung folge oder auch dem Schnitt, bekomme ich einen viel zu engen Hals-Ausschnitt - gar nicht wie auf dem Foto!???

14.09.2018 - 18:43

DROPS Design answered:

Liebe Petra, stimmt Ihre Maschenprobe? Wenn Sie eine größere Hals-Ausschnitt möchten, können Sie gerne die Anleitung anpassen, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden damit helfen - auch per Mail oder telefonisch. Viel Spaß beim stricken!

17.09.2018 - 08:00

country flag Silvia wrote:

Hallo, ik brei het vest in maat m, 290 steken opgezet en ik moet bij de 70 rechte tricot steken 2 keer 14 steken minderen, dan hou ik 262 steken over. In het patroon staat 248, wat zie ik over het hoofd?

27.07.2015 - 00:57

DROPS Design answered:

Hoi Silvia. Ìn de laatste naald van A.1 en A.2 heb je geminderd (zie de telpatronen) tegelijkertijd met de 2 keer 14 st minderen. Je breit A1 4 keer en A.2 1 keer = 8 en 6 st minder = 42 st in totaal en 248 st over.

28.07.2015 - 15:41

country flag Marie Magnusson wrote:

Jag vill veta om koftan på Er modell är stickad i Cotton Light eller Belle. Vilken färg? Vill ju att mitt resultat ska bli så likt som möjligt som på bilden. Tacksam för svar Marie

17.05.2015 - 10:19

DROPS Design answered:

Hej, Modellen är stickad i DROPS Cotton Light, men du får samma fina resultat i DROPS Belle. Välj den färg som passar dig och kom ihåg att färgen kan se lite annorlunda ut på skärmen. Lycka till!

18.05.2015 - 09:24

country flag GA wrote:

Bonjour J'ai une question sur ce modèle. Je prends la taille L pour exemple. Il faut pour la taille L monter 322 mailles puis ensuite, à la fin des côtes et du premier motif, il faut faire 2x18 diminutions. Cela devrait mener à 286 mailles. Or il est indiqué qu'il reste 272 mailles. Y-a-t-il plus de diminutions ou dois-je continuer avec 286 mailles ? Merci de votre aide Sincères salutations

10.04.2015 - 13:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme GA, on diminue effectivement 2 x 18 m dans les côtes 2/2, mais au dernier rang de A.1 et de A.2, on doit également diminuer: 2 m dans chaque A.1 (soit 2 m x 4 = 8m) et 6 m dans A.2, on a 322 m - 36 m diminuées dans les côtes - 14 m diminuées dans les diagrammes = 272 m. Bon tricot!

10.04.2015 - 14:13

country flag Inger wrote:

Drops Belle?? Hittar inte det i ert sortiment?

12.02.2015 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Inger. Den er helt ny. Glaed dig, der kommer snart en side til den :-)

12.02.2015 - 16:46

country flag Silvia Colombo wrote:

Lo devo fare ...

10.02.2015 - 20:02

country flag Lotte Thomsen wrote:

Super flot og elegant :)

02.02.2015 - 10:31

country flag Pattyalba wrote:

è molto chic!!!

23.01.2015 - 15:13

country flag Pattyalba wrote:

è molto chic!!!

23.01.2015 - 15:11