Beverly |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð tvíhneppt peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 160-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. KANTUR AÐ FRAMAN: Kanturinn að framan er prjónaður til skiptis í garðaprjóni og sléttprjóni þannig: * Prjónið 4 umf garðaprjón yfir kantlykkjur að framan, prjónið 2 umf sléttprjón með 2 síðustu l í garðaprjóni við miðju að framan *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Peysan er tvíhneppt og fellt er af fyrir 2 hnappagötum á breiddina þannig: 1. Hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti. 2. Hnappagat = prjónið þar til 5 l eru eftir á kanti að framan, fellið af 2 næstu l og prjónið síðustu l á kanti að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af á kanti að framan. Fellið af fyrir 2 hnappagötum í kanti að framan þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 9, 17, 25, 33, 41 og 49 cm. STÆRÐ M: 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm. STÆRÐ L: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm. STÆRÐ XL: 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 54 cm. STÆRÐ XXL: 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm. STÆRÐ XXXL: 15, 22, 29, 36, 43, 50 og 57 cm. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Byrjið á 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 274-290-322-348-380-404 l (meðtaldar 24-24-24-28-28-28 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 24-24-24-28-28-28 l KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 18 l), prjónið 2 l sl, 2 l br yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l (byrjið og endið á 2 l sl), prjónið A.1 (= 18 l), A.2 (= 30-30-30-40-40-40 l), A.1 (= 18 l), prjónið 2 l sl, 2 l br yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l (byrjið og endið á 2 l sl), prjónið A.1 (= 18 l) og endið á 24-24-24-28-28-28 l. KANTUR AÐ FRAMAN. Haldið áfram með stroff svona þar til síðasta umf í A.1/A.2 er eftir. Síðasta umf er prjónuð frá réttu: 24-24-24-28-28-28 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið síðustu umf í A.1, sléttprjón yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18-18-22-22 l jafnt yfir þessar l, prjónið síðustu umf í A.1, A.2 og A.1, sléttprjón yfir næstu 62-70-86-90-106-118 l – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18-18-22-22 l jafnt yfir þessar l, prjónið síðustu umf í A.1 og endið á 24-24-24-28-28-28 kantlykkjum eins og áður = 232-248-272-296-320-344 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið nú þannig (1. umf = rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.5 (= 16 l), 48-56-68-72-84-96 l sléttprjón, A.3 (= 16 l), A.4 (= 24-24-24-32-32-32 l), A.5 (= 16 l), 48-56-68-72-84-96 l sléttprjón, A.3 (= 16 l) og endið á kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 8 cm eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir A.5 á hægra framstykki, 2. prjónamerki er sett á undan A.3 á bakstykki, 3. prjónamerki er sett á eftir A.5 á bakstykki og 4. prjónamerki er sett á undan A.3 á vinstra framstykki. Nú er fækkað um 1 l utan við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 2½-2½-2½-2½-4-4 cm millibili alls 6-6-6-6-4-4 sinnum = 208-224-248-272-304-328 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l utan við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4 sinnum = 224-240-264-288-320-344 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er næsta umf prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið 59-63-68-74-81-87 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 94-102-112-124-138-150 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið síðustu 59-63-68-74-81-87 l eins og áður (= vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 94-102-112-124-138-150 l. Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l 0-1-2-2-4-4 sinnum og 1 l 1-3-4-3-6-7 sinnum = 92-92-96-104-104-108 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið nú af miðju 44-44-44-52-52-52 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 23-23-25-25-25-27 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 59-63-68-74-81-87 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm – stillið af að prjónaðar séu 1-2 umf eftir síðasta hnappagat í kanti að framan, setjið síðustu 23-23-23-27-27-27 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l alls 6 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 23-23-25-25-25-27 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-60-60-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 8-10-8-10-12-10 l jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-8-10-6-8 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-15-16-18-19-22 sinnum = 72-80-84-90-94-102 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 6-6-8-8-10-10 l mitt undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-3-4-4-5 sinnum og 1 l 2-4-5-5-7-8 sinnum. Fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-56-56-56-57-57 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt . FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 110 til 130 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Uschi wrote:
Super tolle Optik, werde ich sicher nacharbeiten.
14.12.2014 - 11:53Petra wrote:
It's so beautiful!
13.12.2014 - 14:09Martina wrote:
Superschön !
12.12.2014 - 21:58Sylvia Karlsson wrote:
Hoppas på denna
12.12.2014 - 13:45Sylvia Karlsson wrote:
Mönstret omgående. Jag blir såååååå sugen
12.12.2014 - 13:40Monique Ooms wrote:
Klassiek mooi!
12.12.2014 - 13:33Brigitte wrote:
Veste très raffinée.
12.12.2014 - 13:31Sylvia wrote:
Ja Ja Ja
12.12.2014 - 13:24Sylvia wrote:
Supersnygg
12.12.2014 - 13:00Mette Baccari wrote:
Lækkert detalje på ryggen. Meget flot design.
12.12.2014 - 02:04