DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Virginia Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með stroffi og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-28
DROPS Design: Mynstur nr ee-505
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
700-750-800-900-1000-1050 gr litur nr 53, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS MÁLMTALA NR 542: 7-7-7-7-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út hvoru megin við hverja mynstureiningu A.1 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 útaukningar í umf). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinniuppá prjóninn = 2 l fleiri. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá kanti neðst niðri á fram- og bakstykki):
STÆRÐ S: 5, 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ M: 5, 15, 25, 34, 43, 52 og 61 cm.
STÆRÐ L: 5, 15, 25, 35, 45, 54 og 63 cm.
STÆRÐ XL: 5, 15, 25, 35, 45, 55 og 65 cm.
STÆRÐ XXL: 5, 14, 23, 32, 41, 50, 59 og 67 cm.
STÆRÐ XXXL: 5, 15, 24, 33, 42, 51, 60 og 69 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 54-54-58-58-58-58 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið nú stroff þannig: 2 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar prjónaðir hafa verið 3 cm stroff er prjónuð 1 umf í sléttprjóni frá réttu, JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-7-7-8-8 l jafnt yfir = 62-62-65-65-66-66 l. Prjónið nú mynstur þannig: 5-5-6-6-6-6 l sléttprjón (= framstykki), A.1, 3 l sléttprjón (= ermi), A.1, 10-10-11-11-12-12 l sléttprjón (= bakstykki), A.1, 3 l sléttprjón (= ermi), A.1, 5-5-6-6-6-6 l sléttprjón (= framstykki). Nú er 1 mynstureining í A.1 í hverri laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Endurtakið útaukningu í hverri umf 0-2-5-8-10-12 sinnum, í annarri hverri umf 4-4-3-4-4-8 sinnum og í 4. hverri umf 5-5-5-4-4-2 sinnum.
ERMI:
Endurtakið útaukningu í hverri umf 6-6-7-7-10-11 sinnum, í annarri hverri umf 3-4-4-5-4-4 sinnum og í 4. hverri umf 4 sinnum í öllum stærðum.

Þegar útaukningu er lokið og stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm eru alls 150-162-177-193-210-230 l á prjóni. Haldið nú áfram í sléttprjóni þannig: Prjónið fyrstu 18-20-23-26-28-32 l, setjið næstu 39-41-43-45-49-51 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, prjónið næstu 36-40-45-51-56-64 l, setjið næstu 39-41-43-45-49-51 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa l, prjónið 18-20-23-26-28-32 l sem eftir eru. Nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 88-96-106-118-128-144 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið nú áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá nýjum lykkjum undir ermum byrjar útaukning hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 8-6½-7-7-9-9 cm millibili 3-4-4-4-3-3 sinnum til viðbótar = 104-116-126-138-144-160 l. Þegar stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm, aukið út um 2-2-4-4-2-2 l = 106-118-130-142-146-162 l. Prjónið nú stroff þannig: 2 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.
Haldið áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna. Prjónið sléttprjón yfir allar l og fitjið upp 8 l í lok umf = 47-49-51-53-57-59 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið nú áfram hringinn í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 41-43-45-47-51-53 l. Fækkið nú lykkjum með 4-3½-4-3½-3-3 cm millibili 9-10-9-10-12-11 sinnum = 23-23-27-27-27-31 l. Þegar ermin mælist 42-42-41-41-41-41 cm aukið út um 1 l í öllum stærðum = 24-24-28-28-28-32 l. Haldið síðan áfram með stroff þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Haldið áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp l á kanti að framan frá réttu þannig: Byrjið neðst niðri á hægra framstykki og takið l jafnt upp 86-90-90-94-98-102 l innan við 1 l sléttprjón. Prjónið nú stroff með byrjun frá röngu þannig: 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, 2 l br, 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp lykkjur og prjónið upp kant að framan á sama hátt og hægri kantur að framan, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið upp l frá kanti á hálsmáli efst uppi (= frá réttu). Ekki fella af fyrir hnappagötum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Jessica Metscher wrote:

Oke omdat er in sommige antwoorden die Ik vertaal wel staat dat je ook moet meerderen aan de verkeerde kant, voor de raglan. Dus ik snap het niet helemaal.

08.07.2022 - 11:30

DROPS Design answered:

Dag Jessica,

Ja, je hebt gelijk! Het is inderdaad iedere naald als er staat 'meerder elke nld'. Excuses, ik heb je verkeerd geïnformeerd. Dus eerst meerder je iedere naald 8 keer voor maat XL, dan om de naald (dus de ene naald wel en de andere naald niet) 4 keer en dan elke 4e naald 4 keer. (Dit geldt voor het lijf. Op de mouwen meerder je anders.)

17.07.2022 - 11:48

country flag Jessica Metscher wrote:

Ik brei dit vest inmaat XL. In het patroon staat meerderen voor het lijf: elke naald 8 keer. Is dat alleen de goede kant dan? Of ook de verkeerde kant meerderen? Met vriendelijke groet Jessica Metscher

03.07.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Dag Jessica,

Dit is alleen aan de goede kant, niet aan de verkeerde kant. Aan de verkeerde kant brei je de omslagen gedraaid recht om gaatjes te voorkomen.

08.07.2022 - 08:46

country flag Jessica Metscher wrote:

Goedendag, ik brei maat XL en moet nu meerderen. Meerderen voor de raglan, is dat dus tegelijk voor de mouw meerderen? En bij het meerderen voor de lijf staat boven aan: brei tot er 1 st overblijft voor de markeerden..... Maar waar moet de markeerder komen op de naald? Lees daar niks van in het patroon. Met vriendelijke groet Jessica Metscher

03.07.2022 - 20:43

DROPS Design answered:

Dag Jessica,

De raglanlijnen zitten tussen de mouwen en de panden, dus als je meerdert voor de raglan, meerder je op de mouwen en de panden. Je meerdert aan elke kant van A.1 zoals beschreven bij RAGLAN. (De tip voor het meerderen geldt voor de zijkanten van het lijf en niet voor de raglan.)

25.08.2022 - 11:52

country flag Loretta wrote:

Buongiorno volevo chiedere per il raglan faccio solo un gettato prima di A1 e uno dopo A1 per aumentare? Le maglie del davanti dietro e maniche. Quanto devono aumentare rispetto al primo giro e dove suddivido gli aumenti?grazie

01.02.2022 - 11:26

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, per gli aumenti del raglan deve seguire quanto riportato nel paragrafo "Raglan" e ripeterlo per il numero di volte indicato per gli aumenti per il davanti/dietro e maniche. Buon lavoro!

01.02.2022 - 22:21

country flag Loretta wrote:

Buona sera, per il raglan quando arrivo alla fine delle prima 10 righe del diagramma A1 devo ricominciare dall'inizio del diagramma fino ad arrivare all'altezza prevista per la mia taglia? Grazie.

25.01.2022 - 16:35

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, esatto, deve continuare a lavorare il diagramma A.1. Buon lavoro!

26.01.2022 - 22:08

country flag Loretta wrote:

Buonasera, sempre per il raglan gli aumenti il gettato li devo fare prima di una maglia e dopo una maglia dal diagramma A1 come spiega nei suggerimenti per gli aumenti?

23.01.2022 - 20:57

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, per il raglan deve aumentare prima di A.1 e dopo A.1 con 1 gettato. Buon lavoro!

24.01.2022 - 22:47

country flag Loretta wrote:

Buongiorno chiedevo se per aumentare nel raglan devo seguire i suggerimenti per gli aumenti sul davanti e sul dietro o se devo fare un gettato prima e dopo il diagramma A1? Grazie

23.01.2022 - 16:46

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, per aumentare per il raglan deve seguire quanto scritto nel paragrafo "RAGLAN". Buon lavoro!

23.01.2022 - 19:48

country flag Maryyam wrote:

Hei i’m making M size.I dont understand how to do increase on body i-e how many stitches and where ?is it before and after A.1?but my stitches are not exact as it is on pattren.can you please explain as easy as you can .thanks

17.03.2021 - 19:51

DROPS Design answered:

Dear Maryyam, increases for raglan are worked before or/and after A.1; but they will be worked on a different rythm on body and on sleeves, ie you will either increase 4 sts (for ex when inc on sleeve on every row but on body on every other row) or 8 sts(when inc on sleeve and on body). Happy knitting!

18.03.2021 - 09:24

country flag Lizeth wrote:

Dank!!! Het kwam dus doordat er staat 'herhaal zoveel keer', alsof de eerste niet meetelt, maar het was dus een 'in totaal' zoveel keer (zoals bij andere patronen vaak wel staat). Ik kan weer verder, merci

08.05.2020 - 20:55

country flag Lizeth wrote:

Goedendag, ik brei maat S en denk een foute berekening te zien bij het meerderen van de raglan, want hoe vaak ik het ook nareken op papier, ik blijf op 158 steken komen i.p.v. op 150 na alle meerderingen. Klopt dit of zie ik toch ergens 8 steken die er niet zijn? ;-) Vriendelijke groet, Lizeth

06.05.2020 - 01:22

DROPS Design answered:

Dag Lizeth,

Je meerdert op het lijf in totaal 9 keer 4 steken (om de naald 4 keer en elke 4e naald 5 keer) = 36 steken, op de mouwen in totaal 13 keer 4 steken ( elke naald 6 keer, om de naald 3 keer en elke 4e naald 4 keer) = 52 steken. 62 + 36 + 52 = 150 steken.

07.05.2020 - 10:18