DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Day After Day Cardigan

Prjónuð peysa í perluprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr 1 þræði DROPS Cloud eða DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-26
DROPS Design: Mynstur nr co-006
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 04, milligrár

Eða notið
DROPS SNOW frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 gr litur nr 46, milligrár

Eða notið:
DROPS AIR fra Garnstudio
450-450-500-550-600-650 gr litur nr 04, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 lykkjur og 15 umferðir með perluprjóni með 1 þræði Cloud eða Snow eða 2 þráðum Air verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 9 – fyrir kant með garðaprjóni.

DROPS STÁLTALA, NR 542: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi annars verður flíkin of löng.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskarönd. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l í perluprjóni: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l kantlykkja í garðaprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 2, 10 og 18 cm.
STÆRÐ M: 2, 11 og 20 cm.
STÆRÐ L: 2, 11 og 20 cm.
STÆRÐ XL: 2, 12 og 22 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 12 og 22 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 12 og 22 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið) á hringprjóna nr 10 með 1 þræði Cloud eða Snow eða 2 þráðum Air.
1. umferð (= rétta) er prjónað þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, slétt yfir næstu 44-48-52-56-60-64 l, JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir, endið á 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 62-66-70-74-78-82 l. Prjónið 1 umf til baka.
Síðan eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-10-11-12-13-14 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið prjónamerki (= framstykki), A.1 (= 4 l), 1 l sl, A.1, setjið prjónamerki (= ermi), 18-20-22-24-26-28 l perluprjón, setjið prjónamerki (= bakstykki), A.1, 1 l sl, A.1, setjið prjónamerki (= ermi), 9-10-11-12-13-14 l perluprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki).
Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umf 2-3-4-5-6-8 sinnum, í 4. hverri umf 1-1-1-2-2-3 sinnum og í 6. hverri umf 4-4-4-3-3-2 sinnum. Nú eru 32-36-40-44-48-54 l á bakstykki og 20-22-24-26-28-31 l í hvoru framstykki.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út í annarri hverri umf 12-13-14-16-17-18 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-1-1-1 sinnum. Nú eru 37-39-41-43-45-47 l á hvorri ermi.

Þegar útaukningu er lokið eru 146-158-170-182-194-210 l á prjóni. Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 20-22-24-26-28-31 l (= framstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið yfir næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 20-22-24-26-28-31 m (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 86-94-102-110-118-130 l fyrir fram- og bakstykki.
Nýju l undir ermum eru prjónaðar í perluprjóni, en miðju l er prjónuð br (séð frá réttu). Setjið prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 7 cm – LESIÐ MÆLING, aukið út um 1 l hvoru megin við br l með prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm = 94-102-110-118-126-138 l. Þegar stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Setjið til baka 37-39-41-43-45-47 l af þræði á hringprjóna nr 10. Haldið nú áfram í perluprjóni yfir allar l. Fitjið upp 4 nýjar l í lok á 2 næstu umf = 45-47-49-51-53-55 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar inn í perluprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið! Í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-43-45 l. Fækkið nú lykkjum með 4½-3½-3½-3-3-3 cm millibili 6-7-7-8-9-9 sinnum = 23-23-25-25-25-27 l. Þegar ermin mælist 39-38-38-38-38-37 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum – Munið eftir MÆLING – skiptið yfir á hringprjóna nr 9. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu og takið upp 52-56-60-64-68-72 l (= 1 l í hverja l í uppfitjunarkanti) í kringum hálsmál á hringprjóna nr 9 með 1 þræði Cloud eða Snow eða 2 þráðum Air. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 52-56-58-60-60-62 l. Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Haldið síðan áfram með næstu 4 umf í garðaprjóni. Fellið af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Lotte Poulsen wrote:

RAGLAN RYG & FORSTK: Tag ud på hver 2.p 2-3-4-5-6-8 gange, på hver 4.p 1-1-1-2-2-3 gange og på hver 6.p 4-4-4-3-3-2 gange. Der er nu 32-36-40-44-48-54 m på rygstk og 20-22-24-26-28-31 m på hvert forstk. Strikker i str. xxl når jeg har taget ud som beskrevet har jeg 68 m og ikke 54 som der står i opskriften. Hvad gør jeg forkert? Vh Lotte

01.06.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Hej Lotte, du har 78 masker, (17m forstykke, 9m ærme, 26 ryg) tager ud 1m ud på hvert forstykke 6+2+ 3 gange =28 m. Rygstykket tager du i hver side så 26 + (2 x 11) = 48 m God fornøjelse!

02.06.2022 - 11:15

country flag Elaine Hébert wrote:

Lorsque l’on augmente de chaque côté de la maille envers pour le dos et devants est-ce à tout les 7 cm et ce jusqu’à la fin du dos et devants ?

05.10.2020 - 15:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hébert, sous DOS & DEVANTS, on augmente 2 fois au total, la 1ère fois à 7 cm après la division et la 2ème fois quand l'ouvrage mesure 22-23-24-25-26-27 cm après la division. Bon tricot!

05.10.2020 - 16:20

country flag Mia wrote:

Hvordan strikker jeg 4 stolpe- m rille ?

25.03.2020 - 12:33

DROPS Design answered:

Hej Mia, når du strikker riller frem og tilbage, så strikker du ret på hver pind. God fornøjelse!

25.03.2020 - 13:27

country flag Mia wrote:

Hvordan strikker du 4 stolper med rille ?

25.03.2020 - 12:32

country flag Yvonne Vest wrote:

Hej igen. Nej jeg er vant til at strikke raglan og strikker rigtigt meget, synes opskriften er dårligt forklaret. Jeg er netop færdig med at strikke den i eskimo, og den har, faktisk meget nøjagtig de rigtige mål, men hvordan kan det lade sig gøre at man skal bruge 7 NØGLER MERE, end der står i opskriften, det forstår jeg ikke. Så alt i alt, en dårlig oplevelse at strikke efter den har opskrift, men flot resultat.

14.10.2019 - 12:39

country flag Yvonne Vest wrote:

Kunne i måske forklare mig mere præcist, hvordan man strikker det raglan, har strikket ret meget med raglan, men, undskyld jeg skriver det, men den her opskrift er virkelig dårlig forklaret. Ikke engang den forklaring der er skrevet til en anden, er tydelig, måske, pga sproget og mangel på mellemrum. MVH

04.10.2019 - 17:58

DROPS Design answered:

Hei Yvonne. Litt usikker på hva du har problemer med. Er du vant med å strikke raglan der det økes likt på bol (ryg&forstk) og erme kan det kanskje være litt uvant å strikke raglan med ulike økninger, ettersom det i denne oppskriften økes forskjellige på bol (ryg&forstk) og erme. Dette gjøres for at det skal økes flere masker til ermene enn til bolen (ryg&forstk) = bedre passform. Bruk gjerne maskemarkører slik at men lettere kan se hvor ofte man har økt på de ulike stedene. God Fornøyelse!

07.10.2019 - 09:05

country flag Monique wrote:

Als ik bij dit model zowel voor als na de markeerdet moet meerderen dan krijg ik twee omslagen naast elkaar klopt dat? Meerderen op het voor/achterpand, en op de mouw

27.09.2019 - 15:57

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Telpatroon A.1 brei je over de raglan en je meerdert steeds aan elke kant van A.1, dus er zitten steeds 4 steken tussen de omslagen. Bij de eerste meerdering zit er op de mouw 1 steek tussen, maar dit worden er, door het meerderen, steeds meer.

29.09.2019 - 18:15

country flag Veronika wrote:

Kann ich die Ärmel auch in der Runde im Nadelspiel oder auf einer Rundnadel stricken wie man das bei Raglanpullovern sonst macht?

09.09.2019 - 00:39

DROPS Design answered:

Liebe Veronika, wahrscheinlich können Sie auch die Ärmel in Runden stricken, dann sollen Sie die Anleitung so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

09.09.2019 - 11:27

country flag Elsu wrote:

Helmineuletta, mutta neulo näiden silmukoiden keskimmäinen s nurin (oikealta puolelta katsottuna). Kiinnitä 1 merkki tähän nurjaan s:aan. Neulotaanko toi keskimmäinen nurja silmukka koko ajan nurin ( oikealta puolelta katsottuna)

06.07.2019 - 20:29

DROPS Design answered:

Kyllä, tällä silmukalla neulotaan sileää nurjaa neuletta.

09.07.2019 - 17:57

country flag Fragezeichen wrote:

Hallo, ich möchte diese Jacke gerne mit Drops air stricken. Brauche ich bei der Größe M 450g Garn oder das doppelte, also 900g, damit ich den Faden doppelt nehmen kann?

05.04.2019 - 20:49

DROPS Design answered:

Liebe Fragzeichen, wenn Sie die Jacke mit 2 Fäden Air stricken, brauchen Sie 450 g bei der Größe S - prüfen Sie mal mit unserem Garnumrechner. Viel Spaß beim stricken!

08.04.2019 - 10:39