DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Stag

Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki og hreindýramynstri, prjónið ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-23
DROPS Design: Mynstur nr u-739
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
500-550-600-650-700-800 gr litur nr 21, milligrár
100-150-150-150-150-200 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við hliðar og ermar):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l sl þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Aukið út alls 4 l á prjóninn.
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár.
Prjónið stroff þannig (2 l br, 2 l sl) þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-8-20-24-28 l jafnt yfir = 88-96-104-120-128-136 l. Prjónið nú þannig: A.1 (= 8 l) 11-12-13-15-16-17 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 264-288-312-360-384-408 l í umf. Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón með litnum milligrár. ATH: Í stærð S, L, XL, XXXL er endað á 24 l (= 1 mynstureining) áður en síðasta umf er prjónuð til loka! Þetta er nú byrjun á umf! Mynstrið verður nú staðsett strax á eftir l skiptast fyrir ermar og fram- og bakstykki.
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 37-40-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 74-80-92-104-116-128 l (= framstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 37-40-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-180-204-228-252-276 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið nú A.2 (= 12 l) yfir allar l í umf. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með litnum milligrár. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku annan hvern cm 2 sinum til viðbótar = 156-168-192-216-240-264 l. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 cm hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 2 sinnum til viðbótar = 168-180-204-228-252-276 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og aukið út um 20-24-24-28-28-32 l jafnt yfir = 188-204-228-256-280-308. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar prjónaðir hafa verið 4 cm með stroffi er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Prjónið fyrst mynstur, síðan heldur ermin áfram með litnum milligrár.
Setjið til baka l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4. Nú eru 58-64-64-76-76-76 l fyrir ermi. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fitjið síðan upp 10 l undir ermum = 68-74-74-86-86-86 l. Setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. Prjónið síðan ermina hringinn. Prjónið nú A.2. ATH: Passið uppá að 2 miðju-l í mynstri (sjá ör) eru 2 miðju-l á ermi! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.3. ATH: Stillið mynstur af þannig að miðju l í mynstri (sjá ör) er ein af 2 miðju-l á ermi, JAFNFRAMT byrjar úrtaka undir ermi – Munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 9-12-12-12-12-12 sinnum til viðbótar = 48-48-48-60-60-60 l. Þegar ermin mælist 38 cm er A.4 prjónað. ATH: Stillið mynstrið af þannig að miðju-l í mynstri (sjá ör) er ein af 2 miðju l á ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og aukið út um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 52-56-56-60-64-64 l. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2016
BERUSTYKKI: Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón með milligráum. ATH: Í stærð S, L, XL, XXXL er endað á 24 l (= 1 mynstureining) áður en síðasta umf er prjónuð til loka! Þetta er nú byrjun á umf! Mynstrið verður nú staðsett strax á eftir l skiptast í ermar og fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = milligrár
symbols = natur
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Silver Stag

Gillian Johnstone, Cyprus

The Norwegian

Andrea Karminrot, Germany

The Great Xmas Jumper KAL 2017

Nicci, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (89)

country flag Nora wrote:

Hola me puede decir que tiendas hay en USA donde vendan estambres drops

21.01.2024 - 18:33

country flag Raffaella wrote:

Bellissimo! Ho finito i due motivi (renne fiocchi di neve) ora dovrei sagomare con diminuzioni e aumenti il tronco. Vorrei evitarlo perché lo preferisco più morbido. Si può o verrebbe male? Grazie! Raffaella

05.12.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Buonasera Raffaella, può apportare le modifiche che desidera al modello. Buon lavoro!

11.12.2022 - 22:04

country flag Terresa Scott wrote:

I cannot understand the directions for the sleeves. Pattern says "first work pattern, then continue sleeve in medium gray." The pattern requires a multiple of 12, but 64 stitches (size medium) is not divisible by 12. I found a similar situation with the ribbing at the bottom of the sweater body.

06.11.2022 - 22:41

DROPS Design answered:

Dear Terresa, the repeats don't need to fully fit the sleeve. Sometimes, you may have an interrupted motif under the arm. The important thing is that the 2 middle sts in the diagram (marked with an arrow) are the 2 middle sts in the sleeve. The rib at the bottom of the body is 204 sts with a 4-stitch pattern (k2,p2) so you can fully fit the pattern: 204/4 = 51. Happy knitting!

06.11.2022 - 23:21

country flag Diane wrote:

I have a question regarding size small it says Continue with 3-5-9-5-7-11 rounds with medium gray. NOTE: In size S, L, XL, XXXL stop 24 sts (= 1 repetition) before last round is worked. This is now beg of the next rounds. So I would be knitting 3 rounds for the small size do I stop 24 stitches on the first round or do I stop 24 stitches on round 2?

27.04.2022 - 03:56

DROPS Design answered:

Hi Diane, You stop 24 stitches early on round 3 (the last round with medium grey. Happy knitting!

27.04.2022 - 06:56

country flag Knitting Well Done wrote:

Hello , I don't understand how to centered the diagram even if I follow the lesson... do you have a video that show exactly what to do to center it and make the sleeve? Thank you 👱🏻‍♀️

13.03.2022 - 11:29

country flag Vale wrote:

I'm so sorry to have to ask again but I don't understand: how can I decrease every 2,5 cm if there's a pattern? With 2 tog decrease, it will be deformed the pattern motif... I'm so confused .. I'm referring to this "When A.2 has been worked, continue with A.3. NOTE: Adjust pattern so that the middle st in diagram (see arrow) is one of the 2 middle sts on sleeve, AT THE SAME TIME beg dec under sleeve - remember DECREASE TIP" The decrease tip mean to knit just 2 stitches together?

20.02.2022 - 00:33

DROPS Design answered:

Dear Vale, if your tension is right in height, you should decrease approx. on every 7th round in size M = ca on every 2,5 cm; decrease as explained under DECREASE TIP , ie work until 3 sts remain before marker and decrease as shown in this video - the pattern will not match anymore at the transitions between rounds, that's just okay. Happy knitting!

21.02.2022 - 09:58

country flag Vale wrote:

I'm sorry to ask but: I don't understand how to decrease every 2,5 cm, if I have a pattern? If I decrease, the pattern will be deformed... also, what decrease I should do? (2 tog?) how? This is the pattern I'm referring: "When A.2 has been worked, continue with A.3. NOTE: Adjust pattern so that the middle st in diagram (see arrow) is one of the 2 middle sts on sleeve, AT THE SAME TIME beg dec under sleeve - remember DECREASE TIP" Thank you...seems difficult without a chart.

20.02.2022 - 00:29

country flag Vale wrote:

Sorry, I have problems again in the instructions " When A.2 has been worked, continue with A.3. NOTE: Adjust pattern so that the middle st in diagram (see arrow) is one of the 2 middle sts on sleeve, AT THE SAME TIME beg dec under sleeve - remember DECREASE TIP. Repeat dec every 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm / 1 1/8"-7/8"-7/8"-7/8"-7/8"-7/8" 9-12-12" etc . I don't also understand how to adjust "pattern so that the middle st in diagram is one of the 2 middle". what mean? Please..help...

19.02.2022 - 15:30

DROPS Design answered:

Dear Vale, this lesson will explain you how to center a diagram. Happy knitting!

21.02.2022 - 09:17

country flag Pattern wrote:

Sorry again but I don't understand the previously answer, in your comment says "you should increase a total of 60 sts in size L and get so 228", but I don't know what increase of 60 stitches is it exactly? Thank you again....

01.02.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Oops sorry, I mistyped, I meant you have 204 sts on the needle in size L - you now increase 24 sts evenly (this lesson explains how to increase evenly on a round), there are now 228 sts and you will repeat K2, P2 all the round - US-pattern will be edited asap. Happy knitting!

02.02.2022 - 07:34

country flag Patterns Difficult wrote:

Hello, this pattern have a mistake in the Body instructions. Yesterday I had to try and try. I have 230 stitches and it says to "Continue to work rib as follows: * K 2, P 2 *, repeat from *-* until 2 sts remain, K 2. When rib has been worked for 4 cm / 1½'', bind off with K over K and P over P." But with 230 stitches, it will end with 2Kand start with 2K so I will have 4 K between the others 2k p2 2k p2 etc. What happened? Why 230 stitches?It's not an Even number to do ribbing...Thanks..

01.02.2022 - 12:22

DROPS Design answered:

Hi, it looks like there is a mistake in the US-English pattern, you should increase a total of 60 sts in size L and get so 228 sts and work K2 P2 over these 228 sts (= 57 times (K2,P2). thanks for noticing. Happy knitting!

01.02.2022 - 16:13