DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 157-41
DROPS Design: Mynstur nr cm-014
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
500-550-600-700-750 gr litur nr 02, svartur

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
500-550-550-650-700 gr litur nr 08, svartur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir heklaðan kant.
DROPS SKELJATALA, NR 526: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
(1. umf = ranga): * = 1 umf sl frá röngu, 1 umf sl frá réttu, 1 umf br frá röngu og 1 umf sl frá réttu *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um kraga):
Aukið út með því að prjóna 2 l í næst síðustu l.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 5 kantlykkjur að framan + útauknar lykkjur fyrir kraga. Fækkið lykkjum á undan l í garðaprjóni þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 ls l, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 21, 28 og 35 cm.
STÆRÐ M: 22, 29 og 36 cm.
STÆRÐ L: 23, 30 og 37 cm.
STÆRÐ XL: 24, 31 og 38 cm.
STÆRÐ XXL: 25, 32 og 39 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-98-106-116-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið með 4 cm millibili 4 sinnum = 82-90-98-108-118 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 90-98-106-116-126 l. Jafnframt þegar stykkið mælist 35 cm er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l til loka. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 4 l 1 sinni, 3 l 0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-1-2-2-4 sinnum og 1 l 2-2-3-4-3 sinnum = 74-76-78-80-84 l. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 22 l fyrir hálsmáli. Fellið nú af í hvorri hlið fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 1 l 2 sinnum = 24-25-26-27-29 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 50-54-58-63-68 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 10 umf garðaprjón, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Samtímis þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9 cm fækkið lykkjum og aukið út í hlið eins og á bakstykki = 50-54-58-63-68 l.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 35 cm er prjónað mynstur yfir allar l (nema kantur að framan sem er áfram prjónaður í garðaprjóni) til loka.
KRAGI: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39 cm er aukið út um 2 l innan við fyrstu kantlykkju við miðju að framan. Í næstu umf eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7 l við miðju að framan (hinar l á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið nú yfir allar l – jafnframt er aukið út um 1 l innan við síðustu kantlykkju að framan – sjá ÚTAUKNING: 10 sinnum í annarri hverri umf og síðan 4 sinnum í 4. hverri umf = 16 l útauknar fyrir kraga – útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni.
HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43 cm ef fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA: 1 l í annarri hverri umf 18 sinnum.
HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45 cm er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. Eftir alla affellingu/úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 40-41-42-43-45 l á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68 cm. Fellið nú af 24-25-26-27-29 l á öxl = 16 garðaprjóns kraga-l eftir á prjóni.
KRAGI: Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir kraga þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 10 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7 cm lengst inn (það eru þá ca 14 cm lengst út). Setjið l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki en fellið af fyrir handvegi og hálsmáli í gagnstæðri hlið. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í kanti að framan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 47-47-49-53-53 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjónar nr 4 með Cotton Merino.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið garðaprjón í 7 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt á eftir garðaprjóni er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 3,5-3-2,5-2,5-2 cm millibili alls 12-14-15-15-17 sinnum = 71-75-79-83-87 l. Jafnframt þegar ermin mælist 38-36-34-32-30 cm prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – til loka. Þegar ermin mælist 49-48-46-44-43 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf : 4 l 1 sinni, 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-4-6-7-11 sinnum, fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm, að lokum er fækkað um 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið kraga saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið kragann niður við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra kant að framan.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant með 2 þráðum Cotton Merino með heklunál nr 5 meðfram vinstri kanti að framan, í kringum kraga og niður meðfram hægri kanti að framan. Heklið krabbahekl, þ.e.a.s. heklaðar eru fl frá vinstri til hægri.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Dani wrote:

Hello Drops team. I have a question on the collar increases: I understand that the row directly after the first 2 stitch increase is a short row where we knit the band stitches only, and then 1 increase is made for the collar every other row 10 times and then every 4th row 4 times giving 16 increased sts. All good. But is there only one short row at the start or do we make a short row before each increase on the collar? Thank you for your lovely patterns and website.

29.06.2023 - 15:22

DROPS Design answered:

Dear Dani, yes there is only one short row (2 rows over the outermost 7 stitches towards mid front), that will not be repeated again - the next short rows will only be worked for the collar section after you have cast off shoulder stitches. Working these short rows will let the neckline lie nicely. Happy knitting!

29.06.2023 - 15:39

country flag Ellen wrote:

You start with 5 STS in garter st for the trim, then you add 16sts gradually, should have 21sts Why is it that in the end you cast off 16 sts

19.11.2022 - 03:41

DROPS Design answered:

Dear Ellen, the 16 stitches are the neck stitches. When we are finishing the shoulders, we cast off all stitches except the 16 stitches, which are for the neck and we continue working later on. Happy knitting!

21.11.2022 - 00:32

country flag Ellen wrote:

Hello Can you please tell me what the crochet detail at the end is for if you already have the band? The picture isn't clear What effect does it give and how many rows do you crochet?

16.11.2022 - 09:55

DROPS Design answered:

Dear Ellen, you will crochet an edge with reverse double crochets (UK-English)/single crochet (US-English) along the opening of the jacket: starting at the bottom of left front piece, work along the whole edge, then along the collar and down along right front piece. Happy crocheting!

16.11.2022 - 10:11

country flag Ellen wrote:

What does 5 band st in garter st mean?

10.11.2022 - 06:05

DROPS Design answered:

Hi Ellen, This means the first 5 stitches and the last 5 stitches on each row are the bands (where the buttons and buttonholes are sewn/worked. These stitches are knitted on all rows (which is the definition of garter stitch). Happy crafting!

10.11.2022 - 06:47

country flag Filiz Aslanalp wrote:

Hi, my name is Filiz and have some questions. in sizse small left front piece it says when piece measures 35 cm work pattern and inc 2 sts inside first band st towards mid front. So, should i work from WS? if yes, where can i inc 2 sts and 1 st after short rows? How can i avoid the holes after short rows? Pls pls pls explain clearly cause i've been trying to knit it since 4 days and no success! Thx.

01.08.2019 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Filiz, the increases for collar are worked from RS, so that you will increase on left front piece at the end of row from WS. To avoid holes at the transition between short rows, you can tighten the thread (see here) or use the wrap & turn method (see here from RS and here from WS. Happy knitting!

07.08.2019 - 09:27

country flag Marie Roseline Helias wrote:

Pr le devant j'ai un soucis : il me reste bien les 24m pour lepaule mais jai 21m point mousse et le modele dit 16 ! Selon moi 5 pt mousse de base + 16 augm = 21 ! C est vrai ou pas ? Merci de me corriger

15.04.2019 - 19:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Helias, en taille S vous devez avoir 19 m jersey et 21 m point mousse (= 40 m): vous aviez 45 m + 5 m point mousse et diminuez 18 m pour l'encolure + 8 m pour l'emmanchure = il reste 19 m + les 5 m de bordure devant + 2 augm + 14 augm = 21 m. Vous rabattez les 24 premières mailles pour l'épaule = il reste 16 m pour le col. Bon tricot!

23.04.2019 - 10:21

country flag Sheila Lebleu wrote:

Beste team van Dropsdesign. Ik zou graag zien hoe je de bies achteraan de hals samennaait. Is daar een video van aub? Groeten Sheila

08.02.2018 - 20:41

DROPS Design answered:

Hallo Sheila, Misschien heb je wat aan deze video waarin wordt uitgelegd hoe je een naad met ribbelsteek in elkaar naait. (In het patroon is het wel ietsje anders, omdat der ribbel van het achterpand zeg maar dwars op de bies zit.)

12.03.2018 - 09:55

country flag Jenny Van Den Hoff wrote:

Een vraag over de kraag, je hebt 5 biessteken en daar komen er 2 bij vervolgens meerder je er nog eens 16, uiteindelijk heb je dus 23 steken voor de kraag, klopt dit?

26.01.2018 - 20:30

DROPS Design answered:

Hoi Jenny, De eerste 2 steken die je meerdert zitten ook bij die 16 steken in die je totaal meerdert voor de kraag, waardoor je op een totaal komt van 21 steken.

28.01.2018 - 19:16

country flag Lise Pouliot wrote:

Comment faire l'échantillon ? Nombres de mailles,nombre de rangs pour égaler à combien de cm. Merci à l'avance

21.02.2017 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pouliot, vous trouverez toutes les informations sur l'échantillon sous l'onglet "Fournitures" et de plus amples informations sur l'échantillon ici. Bon tricot!

21.02.2017 - 17:19

country flag Diana wrote:

Ik begrijp het laatste stukje van de kraag niet. Kunt u dat duidelijker uitleggen? Hoe kan ik de ribbel over alleen 10 steken breien en de volgende naald over alle steken breien? Moet ik dan iedere keer aan en afhechten?

04.12.2016 - 16:42

DROPS Design answered:

Hoi Diana. Je hebt 16 st over voor de kraag. Je breit nu verkorte toeren, dus eerst over de eerste 10 st (dus brei 10 st, keer het werk en brei terug). Brei over alle st. Dan wordt de ene kant breder dan de andere. Zie ook deze video:

05.12.2016 - 14:37