DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Eir

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með norrænu mynstri og berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 156-12
DROPS Design: Mynstur nr ne-153
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

MÆLING:
Vegna þyngdar á stykkinu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi annars kemur peysan til með að vera of löng.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið þessa l slétt.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 2 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 102-102-108-108-114-114 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós grágrænn.
Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) yfir allar l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-16-16 cm prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 26-22-24-20-22-18 l jafnt yfir = 76-80-84-88-92-96 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan upphækkun fram og til baka við hnakka frá miðju að aftan þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 9-10-11-12-13-14 l sl, snúið við og prjónið 18-20-22-24-26-28 l br til baka. Snúið við, prjónið 27-29-31-33-35-37 l sl, snúið við og prjónið 36-38-40-42-44-46 l br til baka. Snúið við og prjónið 45-47-49-51-53-55 l sl, snúið við og prjónið 54-56-58-60-62-64 l br til baka. Snúið við og prjónið til baka yfir allar l að prjónamerki.
Nú er stykkið prjónað í hring. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 34-41-48-55-62-80 l jafnt yfir = 110-121-132-143-154-176 l. Prjónið nú og aukið út eftir A.1 – veljið mynstur eftir stærð. Mynstrið byrjar nú við ör í mynstri fyrir rétta stærð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 220-242-264-286-308-352 l á prjóni. Stykkið mælist nú ca 23-24-25-26-27-28 cm – sjá MÆLING. Prjónið 1 umf með litnum ljós grágrænn JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-10-16-0 l jafnt yfir = 228-252-272-296-324-352 l. Prjónið yfir fyrstu 32-36-40-44-49-54 l (= hálft bakstykki), setjið eftirfarandi 51-55-57-61-65-69 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir þessum l, prjónið yfir næstu 63-71-79-87-97-107 l (= framstykki), setjið næstu 51-55-57-61-65-69 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir þessum l, prjónið yfir næstu 31-35-39-43-49-53 m = 142-158-174-190-210-230 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 2-4-0-2-0-4 l jafnt yfir = 144-162-174-192-210-234 l. Prjónið A.2 (= 6 l) JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 2-4-0-2-0-4 l jafnt yfir = 142-158-174-190-210-230 l.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram með litnum ljós grágrænn. Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 15-16-17-17-18-20 l, setjið 1. prjónamerki, prjónið 21-24-27-31-35-38 l, setjið 2. prjónamerki (merkir hlið), prjónið 21-24-27-31-35-38 l, setjið 3. prjónamerki, prjónið 29-31-33-33-35-39 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið 21-24-27-31-35-38 l, setjið 5. prjónamerki (merkir hlið), prjónið 21-24-27-31-35-38 l, setjið 6. prjónamerki, prjónið yfir næstu 14-15-16-16-17-19 l. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Fellið síðan af þannig: Fellið af eftir 3. og 6. prjónamerki og á undan 1. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1-1-1,5-1,5-3,5-3,5 cm millibili alls 4-4-4-3-2-2 sinnum = 126-142-158-178-202-222 l á prjóni.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm aukið út eftir 3. og 6. prjónamerki og á undan 4. og 1. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4½ cm millibili alls 5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm aukið út um 1 l hvoru megin við 2. og 5. prjónamerki (= hliðar). Endurtakið útaukningu í hliðum með 6 -9-9-9-9-6 cm millibili alls 4-3-3-3-3-4 sinnum. Eftir alla útaukningu eru = 162-174-190-210-234-258 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 42-45-50-66-78-90 l jafnt yfir = 204-219-240-276-312-348 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 5 (= 51-55-57-61-65-69 l). Fitjið upp 8 l við miðju undir ermi = 59-63-65-69-73-77 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið A.2 – ATH: Stillið mynstur eftir miðju, ör í mynstri merkir miðju l ofan á ermi.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki byrjar úrtaka – Munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-1½-1½-1½-1½-1 cm millibili 8-10-11-10-12-14 sinnum til viðbótar = 41-41-41-47-47-47 l eftir. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 4 l jafnt yfir = 45-45-45-51-51-51 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = ljós grágrænn
symbols = natur
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Becker, Dorothee wrote:

Hallo stricke Gr. M, allerdings geht der Rapport in der 8. Musterreihe nicht auf. Mal habe ich 5 Maschen und wenn ich dann den Umschlag mache, habe ich dann 6 Maschen wobei dann das Muster nicht mehr aufgeht. Habe ich einen Denkfehler?? Bin eigentlich recht strickerfahren auch mit Norweger Muster, aber diesen habe ich schon 3 mal aufgemacht und scheitere immer wieder an der selben stelle.

09.02.2016 - 15:49

DROPS Design answered:

Sie müssen 2 Umschläge in dieser R machen. Den 1. Umschlag nach der ersten M des Rapports und den 2. Umschlag nach der letzten M des Rapports. In der nächsten Rd haben Sie ja 2 M mehr pro Rapport. Die Lücke in den ersten 3 Rd bei Größe M ist ja nur eine Art der Darstellung, Sie stricken das Muster ohne Beachtung dieser Lücke. Sie haben also in der ersten Muster-Rd 11 M, in der 3. Muster-Rd nehmen Sie 2 M zu und in der 8. ebenfalls wieder 2 M.

15.02.2016 - 10:59

country flag Anni wrote:

Hvordan tages der ind på ærmerne? Der står bare at indtagningen starter, og hvor ofte, men ikke hvordan.

06.01.2016 - 22:40

DROPS Design answered:

Hej Anni. Se INDTAGNINGSTIPS i begyndelsen af mönstret.

07.01.2016 - 14:22

country flag Anna Marie Pedersen wrote:

Mangler svar. skrev til jer den 21/11 at der er fejl i mønster i str xxxxl kan ikke få det til at passe.

24.11.2015 - 09:48

country flag Anna Marie Pedersen wrote:

Godaften vil lige fortælle at der er problemer med mønsteret i den store str. selv min veninne der er erfaren strikker kan ikke få det til at passe.

21.11.2015 - 19:16

country flag Christiane wrote:

Hallo, ich verstehe leider die ersten 5Reihen des Diagramms nicht. Was bedeutet es, dass nach den ersten 5 Maschen eine Lücke ist, dann die nächsten 6 Maschen kommen?

29.05.2015 - 17:50

DROPS Design answered:

Die Lücke ignorieren Sie einfach, sie dient nur der graphischen Darstellung. Sie sehen ja, dass ab der R mit den Umschlägen die M-Zahl steigt und da einer der Umschläge in der Mitte des Musters erfolgt, ist vorher an der Stelle eine Lücke, damit in der R danach dargestellt werden kann, dass dort die Zunahme platziert ist. Tun Sie also an den Stellen einfach so, als sei sie nicht da und stricken einfach weiter. Gutes Gelingen!

30.05.2015 - 11:15

country flag Wischnack wrote:

Hallo, eigentlich habe ich einige Erfahrung im Islandmusterstricken... Ich komme aber nicht klar mit dem Strickmuster ab Reihe 10 für S/M/L. Im Raport sind abwechselnd fünf und drei Maschen in der Grundfarbe angegeben. Mit der Zunahme habe ich dann aber sieben und fünf Maschen. Ich habe nun schon zweimal aufgeribbelt.der Fehler liegt wohl schon in Reihe 8... Mir ist nicht so klar, wie weit der Rapport gehtLaut rapport müssten ab und zu drei Maschen in der Musterfarbe auftauchen Hilfe?

30.03.2015 - 15:41

DROPS Design answered:

Ich kann im Diagramm keinen Fehler entdecken. Das Diagramm zeigt ja alle R, Sie stricken ja keine Zwischenrunden. Die Zunahmen von Rd 10 auf Rd 11 passen ins Muster. Sie nehmen ja mit 1 Umschlag zu, der Umschlag wird also erst in Rd 11 gemustert, wie gezeigt. Der Rapport ist vollständig abgebildet, Sie stricken also pro Rapport immer alle M, die Sie sehen (Rd 10: 14 M, Rd 11: 16 M).

31.03.2015 - 11:41

country flag Annie Bradbery wrote:

I like this pattern and want to buy the wool but can't find the measurements of the different sizes to work out which size I need to make and how much wool to buy

27.02.2015 - 23:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bradbery, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measures for each size taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Happy knitting!

28.02.2015 - 09:00

country flag De Gonneville wrote:

Pour le modéle 156-12 ,lorsque j'arrive à :glisser les mailles .(51 )sur un arrêt , ajouter 8 m tricoter les 31 mailles dois je commencer la suite avec des pelotes nouvelles ???? à chaque arrêt ?

17.02.2015 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme De Gonneville, vous tricotez ce tour avec la même pelote : les 32 mailles du dos, les 8 m à monter pour le dessous de la manche, les 63 m du devant, les 8 m à monter de la 2ème manche et les 31 m restantes du dos. Cliquez ici pour voir une vidéo qui montre la technique du pull tricoté de haut en bas pour vous aider à visualiser comment faire. Bon tricot!

17.02.2015 - 15:21

country flag Tanja Schnöckelborg wrote:

Ich interessiere mich sehr für diesen Pullover und wollte mich erkundigen, wieviel Wollknäule ich benötige, wenn ich ihn in Größe S oder M stricke. Mit freundlichen Grüßen

08.02.2015 - 18:54

DROPS Design answered:

Die Mengenangaben finden Sie oben im Kopf neben dem Foto. Sie sind, wie die anderen Zahlenangaben in der Anleitung auch, nach Größen sortiert, so, wie sie oben angegeben sind, also S-M-L-XL-XXL-XXXL. Wenn Sie Größe S stricken wollen, wählen Sie also immer die erste Angabe, bei Größe M immer die zweite.

08.02.2015 - 22:03

country flag Birgit Truelsen wrote:

HJÆLP !!!!!! Kan ikke få mønstret til at passe i starten ved str. xl. første pind hvor mønster er 1 natur, 1 lys grågrøn, 3 natur, 1 lys grågrøn, 3 natur, 1 lys grågrøn, 3 natur og til sidst 1 lys grågrøn. Jeg syntes der mangles 2 masker i grågrøn for at det går op. Hvad gør jeg forkert. Antal masker passer.

23.01.2015 - 20:32

DROPS Design answered:

Jo mønsteret stemmer, hver 2. spids i trekanten går bare lidt længere ned, se billedet øverst i halsen. God fornøjelse!

02.02.2015 - 14:34