DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-19
DROPS Design: Mynstur nr u-064-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-150-150-150 (150-200) gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 71, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 eða 50 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út í hvorri hlið við 2 miðjulykkjur að framan og að aftan (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l).
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, (prjónamerki), lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður.

BUXUR:
Fitjið upp 100-120-124-136 (140-144) l á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige – byrjun umf = miðja að aftan.
Prjónið 1 umf stroff = 2 l sl, 2 l br, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-20-20-22 (22-22) l jafnt yfir = 84-100-104-114 (118-122) l.
Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 6-6-6-7 (7-7) l frá byrjun umf, snúið við (til þess að sleppa við göt takið 1. l óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið á þræði). Prjónið 12-12-12-14 (14-14) l til baka og snúið við. Prjónið 18-18-18-21 (21-21) l og snúið við. Prjónið 24-24-24-28 (28-28) l til baka og snúið við. Haldið svona áfram með því að prjóna 6-6-6-7 (7-7) l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við 6 sinnum til viðbótar (= alls 10 stuttar umf). Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar l.
Þegar stykkið mælist 12-13-16-17 (18-19) cm frá mitti (mælt við miðju að framan) setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 42-50-52-57 (59-61) l (merkir miðju að framan og miðju að aftan). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í hverri umf) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 100-116-120-130 (134-138) l. Þegar stykkið mælist 17-18-21-22 (23-24) cm frá mitti mælt við miðju að framan (útaukningu á nú að vera lokið), fellið af 4 l við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig. Setjið l frá annarri skálminni á þráð.

SKÁLM:
= 46-54-56-61 (63-65) l. Skiptið l á 4 sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni hringinn – setjið 1 prjónamerki við innanverða skálmina = byrjun umf. Eftir 1 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku 9-9-9-9 (7-6) sinnum til viðbótar (= alls 10-10-10-10 (8-7) úrtökur) þannig:
STÆRÐ 0/1 MÁN: Til skiptis í annarri og 3. hverri umf.
STÆRÐ 1/3 MÁN: Í 3. hverri umf.
STÆRÐ 6/9 MÁN: Í 4. hverri umf.
STÆRÐ 12/18 MÁN: Í 5. hverri umf.
STÆRÐ 2 ÁRA: Í 8. hverri umf.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: Í 12. hverri umf.
= 26-34-36-41 (47-51) l. Þegar stykkið mælist 26-30-36-40 (46-53) cm frá mitti (úrtöku á að vera lokið) skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig: * 4 umf garðaprjón með litnum natur, 2 umf garðaprjón með litnum ljós beige *, endurtakið frá *-* þar til kantur í garðaprjóni mælist ca 6 cm – endið eftir 4 umf garðaprjón með litnum natur og fellið laust af.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op í klofi.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Jessie wrote:

Hej, jeg forstår ikke når der skal strikkes forkortede pinde - ''Fortsæt således ved at strikke 6-6-6-7 (7-7) m mere for hver gang det vendes 6 gange til''. Jeg forstår ikke hvornår de 6 ekstra masker til forkortetpind skal strikkes? ind mellem de 6, 12, 18 og 24 masker eller hvad? hvis man stikker det efter får man jo en spids med de korte forkortede pinde?

26.06.2023 - 12:07

DROPS Design answered:

Hei Jessie. Omgangens begynnelse er midt bak. Sett et merke her for lettere å se midt bak. Strikk 6 masker (i den minste str.), snu arbeidet og strikk 12 masker (merket sitter midt mellom disse 12 maskene). Snu og strikk 18 masker (12 masker på den ene siden av merket og 6 masker på den andre siden). Snu og strikk 24 masker (12 masker på hver side av merket). Fortsett slik å strikke 6 mere masker for hver gang det snus og strikk det antall forkortede pinner det står i oppskriften. Sett gjerne merker hver gang du snur, da har du enda lettere å se hvor du skal snu. Se evnt hjelpevidoene til denne bukse. mvh DROPS Design

26.06.2023 - 14:02

country flag Béatrice wrote:

Bonjour et merci pour votre site. Puis je faire ce modèle à plat, car je ne sais pas comment faire pour les rangs raccourcis qui ne correspondront pas. Merci pour votre réponse.

26.11.2022 - 11:41

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous trouverez quelques pantalons réalisés en rangs qui pourront peut-être vous inspirer, ou bien n'hésitez pas à contacter votre magasin (même par mail ou téléphone) pour toute assistance individualisée. Bon tricot!

28.11.2022 - 09:06

country flag Dianne wrote:

Beautiful and timeless! Loved making the Little Darcy baby outfit for my new grand baby!

27.01.2022 - 18:54

country flag Corinne wrote:

Bonjour, Vous dites : "glisser la 1ère m au début du rang suivant et serrer le fil). Tricoter 12-12-12-14 (14-14) m et tourner l'ouvrage. " ma question est la suivante: la maille glissée est-elle comprise dans le chiffre 12? ou bien au contraire je dois glisser une maille et ensuite en tricoter 12? merci par avance pour votre aide ...et tous les merveilleux patrons que vous nous proposez ;o))

02.04.2019 - 12:56

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, tout à fait, elle va compter dans le nombre de mailles à tricoter au rang suivant. cette vidéo montre comment tricoter la réhausse d'un pantalon et celle-ci la technique de base des rangs raccourcis . Bon tricot!

02.04.2019 - 15:28

country flag Edith wrote:

Eine schöne Anleitung, ich habe nur die verkürzten Reihen mit Wickelmaschen gestrickt, da ich sonst egal wie fest ich anziehe Löcher habe. Eine Frage habe ich jedoch, welche Methode würden Sie zum Schließen des Schritts empfehlen? Mein erster Versuch wurde zu wulstig und auch unflexibel. Vielen Dank

03.03.2019 - 00:29

DROPS Design answered:

Liebe Edith, dieses Video zeigt wie man die Erhöhung strickt - die verkürzten Reihe mit Umschläge stricken Sie wie in diesem Video bei den Hinreihen und wie in diesem Video bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2019 - 09:28

country flag Rosalie wrote:

Bonjour, Pourriez vous me préciser si sur le bas des jambes du pantalon il est prévu un revers, je n'arrive pas à le voir précisément sur la photo. Comme je ne veux pas de revers, je serai alors obligée de réduire la hauteur des jambes. Merci pour votre réponse

27.09.2016 - 16:25

DROPS Design answered:

Bonjour Rosalie, les jambes se terminent par une bordure point mousse, sans revers. Vous pouvez toujours ajuster la longueur des jambes souhaitée sur la base du schéma des mesures et d'un vêtement similaire. Bon tricot!

28.09.2016 - 08:29

country flag Pia wrote:

Hallo, Ich wickle meine Zwillinge mit Stoffwindeln, daher haben sie ein entsprechend größeres Windelpaket. Sind die Schnitte speziell dieser hier denn so üppig geschnitten, dass ich die Hose nach Fertigstellung über die Popos bekomme? Gibt es vielleicht Erfahrungswerte, wie und was genau geändert werden muss? Ich freue mich über jede Anregung und Hilfe, die mir ein ständiges Aufribbeln und neu Stricken ersparen.

08.09.2015 - 12:51

country flag Anna wrote:

Ik had een vraag over het volgende gedeelte van het patroon. Brei in tricotst en brei TEGELIJKERTIJD een ronding op het achterpand als volgt: brei 6-6-6-7 (7-7) st vanaf het begin van de toer, keer het werk (voorkom gaatjes, haal de eerste st af en trek als u keert de draad goed aan). Daarna komen nog 13 verkorte toeren. Ik vroeg me af of je elke keer als je het werk keert de eerste st moet afhalen? Als je het inderdaad maar 1 keer hoeft te doen wat is hier dan het voordeel van?

19.07.2015 - 10:13

DROPS Design answered:

Hoi Anna. Je haalt de eerste st r af elke keer je keert. Je doet dit om een gaatje in de overgang te voorkomen.

29.07.2015 - 14:00

country flag Erika wrote:

Hei, i denne oppskriften står det "målt fra livet", menes det da fra oppleggskanten eller fra slutten på ribbestrikken?

02.07.2015 - 23:27

DROPS Design answered:

Hej Erika, ja du måler fra oppleggskanten midt foran. God fornøjelse!

08.07.2015 - 15:36

country flag Vanessa wrote:

Ich habe eine Frage zu den verkürzten Reihen: Wenn ich das richtig verstehe werden die verkürzten Reihen am Rundenanfang auf einer Seite gestrick? Wahrscheinlich habe ich das falsch verstanden, oder? Sonst würde die Arbeit ja am Schluss nicht bündig zusammen genäht werden können..

01.07.2014 - 14:54

DROPS Design answered:

Liebe Vanessa, Sie stricken die verk. R über den Rd-Beginn hinaus. Sie starten von der Vorderseite am Rd-Beginn (= hintere Mitte), stricken die angegebenen M, wenden & stricken die angegebenen M zurück - so stricken Sie dann die gleiche Anzahl an M rechts und links neben dem Rd-Beginn. So stricken Sie weiter, d.h. beidseitig des Rd-Beginns werden immer gleich viele M gestrickt. Nach den verk. R stricken Sie wieder in Rd über alle M weiter und müssen daher oben gar nichts zusammennähen.

01.07.2014 - 16:16