DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-1012
DROPS Design: Mynstur ne-146
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 – dömu - herra
Höfuðmál: 50/52 - 53/54 - 55/56 - 56/58 - 59/60 cm

Efni: DROPS Nepal frá Garnstudio
50-50-50-50-50 g litur nr 0100 natur (öll lönd)
50 g í allar stærðir í eftirfarandi litum:
Litur nr 3620 rauður (Noregur, Tékkland, Danmörk, Þýskaland, Bretland, Eistland, Spánn, Frakkland, Ísland, Ítalía, Ungverjaland, Holland, Pólland, Portúgal)
Litur nr 6790 kóngablár (Noregur, Tékkland, Danmörk, Þýskaland, Bretland, Eistland, USA, Frakkland, Ísland, Ungverjaland, Finnland, Svíþjóð)
Litur nr 2923 skærgulur (Þýskaland, Spánn, Svíþjóð)
Litur nr 8903 svartur (Þýskaland)
Litur nr 7238 ólífu (Ítalía, Ungverjaland, Portúgal)

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 eða þá stærð sem þarf til að 16 fl á breidd og 18 umf á hæð verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR 1:
Fyrsta fl í byrjun umf er skipt út fyrir 1 ll.

HEKLLEIÐBEININGAR 2:
Við litaskipti: Þegar síðasta l er hekluð með ákveðnum lit , bíðið með að draga þráðinn í gegn og dragið bandið í gegn með næsta lit sem á að nota.

HEKLLEIÐBEININGAR 3:
Til þess að sleppa við að hafa marga þræði sem þarf að festa í lokin, heklið í kringum þráðinn sem ekki á að nota lengur til þess að hann komi réttu megin á stykkinu.

HEKLLEIÐBEININGAR 4:
Snúið nýja litnum í kringum þann gamla, þannig að þráðurinn fylgi með upp meðfram hlið á stykkinu þar til nota á hann aftur.

HEKLLEIÐBEININGAR (einungis fyrir Portúgal):
Til þess að fá fallega skiptingu í byrjun á hverri umf með 1 ll. Hver umf endar á 1 kl í fyrstu fl.

RENDUR (einungis USA):
3/5 - 6/9 ára: * Heklið 2 umf fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum.
10/12 ára: * Heklið 2 fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum og heklið 2 umf fl með natur.
Dömu - herra: * Heklið 2 umf fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum.

FRANSKUR HNÚTUR (USA):
Notið nál til þess að stinga í gegnum stykkið neðan frá og upp. Leggið nálina flata við stykkið, snúið þræðinum sem er neðst við stykkið fast í kringum nálina 2 sinnum. Dragið síðan nálina með þræðinum í gegnum þráðinn sem snúið var í kringum nálina, nú myndast lítill hnútur. Stingið niður nálinni í stykkið með smá bili frá því þar sem nálin kom upp, haldið síðan áfram að gera hnúta alveg eins.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND (öll nema USA):
Heklið 13-13-16-19-19 ll (inniheldur 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Heklið 1 fl í aðra ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja ll = 12-12-15-18-18 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1 – þar til stykkið mælist ca 22-22-23-24-24 cm og nú er 1 l eftir í umf. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 og sjá FÁNI neðan við mynstur og fánalitinn þinn.

FÁNI:

NOREGUR/ÍSLAND:
Heklið 3 umf fl með litnum rauður (Noregur) / kóngablár (Ísland) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 3 og 4 – í fyrstu umf með litnum rauður (Noregur / kóngablár (Ísland) heklið í kringum natur litaða þráðinn þannig að hann fylgi með á hina hliðina. Skiptið yfir í litinn natur (Noregur/Ísland og heklið 2 umf fl (í fyrstu umf með litnum natur er heklað í kring með litnum rauður/kóngablár þráður þannig að það fylgi með á hina hliðina). Skiptið yfir í litinn kóngablár (Noregur/ rauður (Ísland) og heklið 1 umf fl, heklið í kringum natur litinn þannig að hann fylgi með á hina hliðina, skiptið yfir í litinn natur (Noregur/Ísland) og heklið 2 umf fl, skiptið yfir í litinn rauður (Noregur) / kóngablár (Ísland) og heklið 3 umf fl (í fyrstu umf með rauður/kóngablár er heklað í kringum natur þráðinn þannig að það fylgi með á hina hliðina) = 11 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

SVÍÞJÓÐ / DANMÖRK / FINNLAND:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 4. Heklið 4 umf með litnum kóngablár (Svíþjóð) / rauður (Danmörk) / kóngablár (Finnland), skiptið yfir í litinn skærgulur (Svíþjóð) / natur (Danmörk) / natur (Finnland) og heklið 2 umf fl, skiptið yfir í litinn kóngablár (Svíþjóð) / rauður (Danmörk) / kóngablár (Finnland) og heklið 4 umf fl = 10 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

ÞÝSKALAND / HOLLAND / EISTLAND / UNGVERJALAND:
Heklið nú með fleiri litum í sömu umf: Heklið 4-4-5-6-6 fl með litnum svartur (Þýskaland) / rauður (Holland) / kóngablár (Eistland) / rauður (Ungverjaland), skiptið lit – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, í rauður (Þýskaland) / natur (Holland) /svartur (Eistland) / natur (Ungverjaland) og heklið 4-4-5-6-6 fl, skiptið umf lit yfir í litinn skærgulur (Þýskaland) / kóngablár (Holland) / natur (Eistland) / grænn (Ungverjaland) og heklið út umf, snúið við og heklið fl í umf með alveg eins litum yfir hvern annan alls 12 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

SPÁNN:
Heklið nú með fleiri litum í sömu umf.
Heklið 3-3-4-5-5 fl með litnum rauður og skiptið yfir í litinn skærgulur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 og 3 og heklið 6-6-7-8-8 fl, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 3-3-4-5-5 fl, snúið við og heklið fl umf með alveg eins litum yfir hvern annan þar til heklað hefur verið yfir alls 12 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

FRAKKLAND / ÍTALÍA:
Heklið 4 umf fl með litnum kóngablár (Frakkland) / ólífa (Ítalía), skiptið yfir í litinn natur (Frakkland /Ítalía) og heklið 4 umf fl, skiptið yfir í rauður (Frakkland) / rauður (Ítalía) og heklið 4 umf fl = 12 umf. Skiptið yfir í natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

PÓLLAND:
Heklið 6-6-7-9-9 fl með litnum natur, - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, skiptið yfir í litinn rauður (látið endann vera ca 30 cm langan í byrjun) og heklið 6-6-8-9-9 fl, snúið við og heklið fl umf með alveg eins lit yfir hvern annan í alls 12 umf. Látið rauða endann einnig vera ca 30 cm langan áður en klippt er frá. Þegar eyrnabandið er lokið er saumað með smáu spori með endunum meðfram natur lita einingunni til þess að ramma fánann inn. Haldið síðan áfram með litnum natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

PORTÚGAL:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR 4 (látið natur litinn fylgja með öllum kantinum þar til hann er notaður aftur). Skiptið yfir í litinn ólífa, heklið 5 umf fl, klippið frá, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 7 umf fl. Klippið frá og skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.
Heklið hring sem saumaður er síðan á fánann í lokin þannig:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið síðan 6 fl um hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl. – Lesið HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn skærgulur og heklið * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl = 18 l. Klippið frá og festið enda. Saumið hringinn niður á fánann rétt yfir litaskiptin fyrir miðju á fánanum.

TÉKKLAND:
Heklið 1 umf með fl með litnum kóngablár, snúið við og heklið 11-11-14-17-17 fl, skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, snúið við og heklið 2 fl, skiptið yfir í litinn kóngablár, heklið þar til 2 fl eru eftir í umf, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2 fl, snúið við og heklið 3 fl, skiptið yfir í litinn kóngablár (passið uppá að leggja þræðina á sömu hlið), heklið þar til 3 l eru eftir og skiptið yfir í litinn natur. Heklið út umf. Haldið áfram að hekla fl umf með 1 fl fleiri af rauður og natur þar til rauður og natur mætast fyrir miðju. Klippið frá litinn kóngablár. Haldið áfram að hekla fl umf með litnum rauður og natur með alveg eins litum yfir hvern annan þar til heklað hefur verið alls 12 umf. Látið rauða þráðinn vera ca 30 cm lanan áður en klippt er frá. Þegar eyrnabandið er lokið eru saumuð lítil spor með endunum sem liggja meðfram natur lituðu einingunni til þess að ramma inn fánann. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan.

BRETLAND:
Heklið 5-5-6-7-7 fl með litnum kóngablár, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2-2-3-4-4 fl, JAFNFRAMT er heklað í kring með litnum kóngablár, skiptið til baka yfir í litinn kóngablár og heklið 5-5-6-7-7 fl, snúið við. Heklið í sömu litum yfir hvern annan 3 umf til viðbótar = alls 4 umf, en látið rauða þráðinn fylgja með við kantinn fyrir síðustu umf. Heklið 2 umf með fl með litnum rauður, heklið síðan 5-5-6-7-7 fl með litnum kóngablár (látið rauða þráðinn fylgja með), skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2-2-3-4-4 fl, JAFNFRAMT er heklað í kring með litnum kóngablár, skiptið til baka yfir í litinn kóngablár og heklið 5-5-6-7-7 fl, snúið við. Heklið með sama lit yfir hvern annan í 3 umf fl til viðbótar = alls 4 umf. Skiptið yfir í litinn natur.
Fáninn er skreyttur með kl sem eru heklaðar í gegnum eyrnabandið í lokin þannig: Stingið heklunálinni í stykkið yst í l í horninu á einni af bláu einingunni, sækið rauða þráðinn neðanfrá og dragið hann upp í gegnum stykkið, hoppið frá um eina l. * Stingið heklunálinni í gegnum stykkið, sækið þráðinn neðanfrá og dragið hann upp í gegnum l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* þversum fram að rauða krossinum. Heklið svona í öll fjögur hornin og heklið alveg eins með natur til vinstri innan við rauðu kl. Klippið frá og festið enda.

HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND (Á við um öll eyrnaböndin fyrir utan USA):
Haldið áfram fram og til baka með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 42-44-46-48-50 cm eða að óskaðri lengd. Klippið frá og notið endann til þess að sauma saman eyrnabandið við miðju að aftan, saumið kant í kant til þess að saumurinn verði ekki of þykkur.

EYRNABAND USA:
Byrjið með að hekla fánann, heklið síðan afgang af eyrnabandinu.

FÁNI:
Heklið 10 ll (heklið 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum rauður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 9 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, 3 og 4, skiptið yfir í litinn natur og heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Nú hafa verið heklaðar 9-9-11-13-13 umf. Skiptið yfir í litinn kóngablár, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl – Passið uppá að hekla í kringum bæði rauða og natur þráðinn. Heklið nú með litnum natur eða rauður yfir síðustu 5 fl (stillið af að mynstrið verði alltaf 2 umf með hvorum lit á eftir hvor öðrum). Heklið svona í 4-4-6-8-8 umf til viðbótar. Nú eru 14-14-18-22-22 umf í fána. Saumið út litla FRANSKUR HNÚTUR með litnum natur – sjá útskýringu að ofan, á kóngabláu eininguna. Klippið frá og festið enda.

EYRNABAND:
Heklið 13-13-16-19-19 fl meðfram hægri hlið og heklið fram og til baka með fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1, þar til stykkið (fáni meðtalinn) mælist ca 22-22-23-24-24 cm. Takið upp 13-13-16-19-19 l í vinstri hlið og heklið fram og til baka með fl þar til allt stykkið mælist ca 42-44-46-48-50 cm eða að óskaðri lengd. Klippið frá og notið endann til þess að sauma saman eyrnabandið við miðju að aftan, saumið kant í kant til þess að saumurinn verði ekki of þykkur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1012

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Diamond Debbie wrote:

Country Pride headband or Around the World headband. I see there isn't one for Canada. :(

09.08.2017 - 01:48

country flag Barb Dowdy wrote:

How about Patriot or Patriotic Headgear?

10.05.2017 - 20:31

country flag Paola wrote:

Buongiorno devo realizzare ai ferri una sciarpa con inserto bandiera dell'Inghilterra. Mi può dare istruzioni dettagliate?

01.03.2014 - 16:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola, i modelli DROPS sono quelli che trova sul sito, non possiamo fare modelli su misura; in questo caso può prendere spunto dalla fascia e utilizzare il motivo della bandiera dell'Inghilterra per realizzare la sciarpa. Buon lavoro!!

02.03.2014 - 13:32

country flag Catlady wrote:

Not all countries are represented... :(

11.02.2014 - 16:52

country flag Judy wrote:

Do you have any knit patterns for theOlympics. I love the headbands with the flags but would like to knit them.

11.02.2014 - 01:54

DROPS Design answered:

Dear Judy, you will find here some knitted patterns that could inspire you. Happy knitting!

11.02.2014 - 09:32