Cheer |
|
|
|
Hekluð fánahúfa og fánaeyrnaband – húfa / eyrnaband úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Extra 0-1080 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. RENDUR (á við um húfu): UMFERÐ 1-2: Sinnep. UMFERÐ 3: Rauður. UMFERÐ 4-5: Svartur Síðan er heklað með litnum rauður. RENDUR (á við um eyrnaband): UMFERÐ 1-2: Natur. UMFERÐ 3-4: Sjávarblár. UMFERÐ 5-6: Natur. Síðan er heklað með litnum rauður. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkja hekluð í umferð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram næstu umferð með nýja litnum. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Umferðin endar með 1 keðjulykju í loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður rétthyrningur fram og til baka frá horni að horni, síðan er heklað efra stykki í hring. HÚFA: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum rauður DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í síðustu loftlykkju = 3 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. Endurtakið umferð 3 og 4 þar til stykkið mælist 19-21-23-(21-23) cm meðfram hvorri skammhlið – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram með úrtöku og útaukningu þannig: UMFERÐ 1: (= ranga) Heklið 1 loftlykkju, 2 FASTALYKKJUR SAMAN – lesið útskýringu að ofan (= 1 úrtaka), 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju (= 1 útaukning). Snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju (= 1 útaukning), 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 1 úrtaka). Snúið. Endurtakið síðan umferð 1 og 2 – JAFNFRAMT þegar heklað hefur verið alls 8 umferðir frá þar sem úrtaka byrjaði eru heklaðar rendur (1.umferð með rönd = ranga) – lesið RENDUR og SKIPT UM ÞRÁÐ. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49 cm mælt meðfram útaukningshlið. Nú er heklað áfram með úrtöku í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann frá röngu / í aftari lykkjubogann frá réttu á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman. Snúið. Endurtakið umferð 1 þar til 1 fastalykkja er eftir. Klippið þráðinn – skiljið eftir ca 40 cm langan þráð fyrir frágang. Saumið skammhliðar saman. Nú er heklað í kringum efri hlutann á húfunni (byrjun á 1. rönd = ofan á húfu) þannig: UMFERÐ 1: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð. Héðan er nú heklað í aftari lykkjubogann á fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið * 1 fastalykkju hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina (þegar fjöldi lykkja gengur ekki jafnt upp í umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju í lok umferðar). UMFERÐ 3, 4, 6, 7 og 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 8: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 10: Heklið * 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 11: Heklið * 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. Klippið þráðinn og saumið saman efst uppi, festið þráðinn. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá horni að horni. EYRNABAND: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum rauður DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í síðustu loftlykkju = 3 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. Endurtakið umferð 3 og 4 þar til stykkið mælist ca 8 cm meðfram hvorri skammhlið – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram með úrtöku og útaukningu þannig: UMFERÐ 1: (= ranga) Heklið 1 loftlykkju, 2 FASTALYKKJUR SAMAN – lesið útskýringu að ofan (= 1 úrtaka), 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju (= 1 útaukning). Snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju (= 1 útaukning), 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 1 úrtaka). Snúið. Endurtakið síðan umferð 1 og 2 – JAFNFRAMT þegar heklað hefur verið alls 10 umferðir frá þar sem úrtaka byrjaði eru heklaðar rendur (1.umferð með rönd = ranga) – lesið RENDUR og SKIPT UM ÞRÁÐ. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-(50-53) cm mælt meðfram útaukningshlið. Nú er heklað áfram með úrtöku í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann frá röngu / í aftari lykkjubogann frá réttu á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman. Snúið. Endurtakið umferð 1 þar til 1 fastalykkja er eftir. Klippið þráðinn – skiljið eftir ca 30 cm langan þráð fyrir frágang. Saumið skammhliðar saman. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í meðfram bæði opin með byrjun frá miðju að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu umferð, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð, * 1 fastalykkja í næstu umferð, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð *, endurtakið frá *-* út umferðina, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Antonia wrote:
Gracias me ayudan mucho sigan haci
15.02.2015 - 11:31