DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Cross My Heart

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með stuttum umferðum, röndum og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 155-1
DROPS Design: Mynstur nr de-117
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 17, fjólublár/grænn
Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf með garðaprjónum verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í Delight, 2 umf garðaprjón úr Alpaca *, endurtakið frá *-*. ATH: Passið að þræðirnir séu alltaf röngu megin við stykkið.

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Til þess að litaskiptin með Delight verði fallega þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 7, 13, 19, 25, 31 og 37 cm.
STÆRÐ M: 10, 16, 22, 28, 34 og 40 cm.
STÆRÐ L: 7, 14, 21, 28, 35 og 42 cm.
STÆRÐ XL: 10, 16, 22, 28, 34, 40 og 46 cm.
STÆRÐ XXL: 7, 14, 21, 28, 35, 42 og 49 cm.
STÆRÐ XXXL: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 4 hlutum, vinstra og hægra bakstykki eru saumuð saman við miðju að aftan í lokin.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 44-48-52-56-64-68 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Stykki er prjónað í RENDUR – sjá skýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7-7-7-8-7-8 cm er haldið áfram með rendur (stillið af að síðasta umf er frá röngu og að næsta rönd er með Alpaca) JAFNFRAMT er prjónað áfram þannig:

Kafli 5
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 l á prjóni.
Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l.

Kafli 6
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS
UMFERÐ 1: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 2 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 3: Lyftið fyrstu lykkjum 2 af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 4 lykkjur, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á vinstra prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í lok hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Ekki fækka lykkjum yfir fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð S og XXL eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman í síðustu röndinni með stuttum umferðum þannig að það verða 2 lykkjur eftir á prjóni og í stærð L er lykkjum ekki fækkað í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman þar til 36-40-44-46-52-56 l eru eftir á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l færri).

Kafli 7
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS
Fyrstu 34-38-42-44-50-54 l sitja á hægra prjóni. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 2 l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l.
UMFERÐ 3: Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni, prjónið yfir 4 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 4 l.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar búið er að taka allar l yfir á sama prjón og prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir allar lykkjur.

ÚTAUKNING:
Aukið er út í lok hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Aukið er út alveg eins og lykkjum var fækkað. Ekki er aukið út í fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð L er ekki aukið út í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 l í síðustu l þar til 44-48-52-56-64-68 l eru á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l fleiri).

Kafli 8
UMFERÐ 1: Prjónið yfir fyrstu 2 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 4 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við.

Prjónið nú áfram 2 l fleiri í hverri umf – endurtakið þar til prjónaðar hafa verið 2 umf með garðaprjóni yfir allar l.

Prjónið nú áfram rendur yfir allar lykkjur að loka máli.

Prjónið nú þar til stykkið mælist 34-36-38-41-44-47 cm. Aukið síðan út fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Aukið út um 1 l 0-1-2-3-3-1 sinnum, síðan 2 l 5-4-3-2-0-0 sinnum. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 5-4-3-2-0-0 l = 59-61-63-65-67-69 l á prjóni. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Þegar stykkið mælist 48-51-54-58-62-66 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á fyrstu umf frá réttu á hægri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 17-17-18-18-19-19 l = 42-44-45-47-48-50 l eftir á prjóni, síðan í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. Fellið nú af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm.

HÆGRA BAKSTYKKI:
LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI – að ofan.
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema gagnstætt. Aukið er út fyrir ermi í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Fellt er af fyrir hálsmáli á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu). Stuttar umferðir eru prjónaðar þannig:

Kafli 1
UMFERÐ 1: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 2 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 3: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 4 lykkjur, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 lykkjur færri í annarri hverri umf þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir síðustu l. Klippið frá. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l með 1. umf = rétta.

Kafli 2
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar 2 l eru eftir til hægri.

ÚRTAKA:
Fellið af í byrjun hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Fækkið ekki lykkjum yfir fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð S og XXL eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman í síðustu röndinni með stuttum umferðum þannig að það verða 2 l eftir á prjóni og í stærð L er lykkjum ekki fækkað í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman þar til 36-40-44-46-52-56 l eru eftir á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l færri).

Kafli 3
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS
UMFERÐ 1: Prjónið yfir fyrstu 2 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 4 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 lykkjur, snúið við.

Prjónið nú áfram 2 l fleiri í hverri umf – endurtakið þar til prjónaðar hafa verið 2 umf í garðaprjóni yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Aukið er út í byrjun hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Aukið er út alveg eins og lykkjum var fækkað. Ekki er aukið út í fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð L er ekki aukið út í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 lykkjur í síðustu l þar til 44-48-52-56-64-68 l eru á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l fleiri). Klippið frá.

Kafli 4
Fyrstu 34-38-42-44-50-54 l sitja á hægra prjóni. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l.
UMFERÐ 3: Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni, prjónið 4 lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 4 l.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar búið er að taka allar l yfir á sama prjón og prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir allar lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra bakstykki. Þegar stykkið mælist 38-41-43-47-50-54 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 7 l 1 sinni, síðan 2 l 3 sinnum, síðan 1 l 5-5-6-6-7-7 sinnum = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermi á sama hátt og á hægra bakstykki. Fellið af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, en fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 38-41-43-47-50-54 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 7 l 1 sinni, síðan 2 l 3 sinnum, síðan 1 l 5-5-6-6-7-7 sinnum = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermi á sama hátt og vinstra bakstykki. Fellið af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið hægra bakstykki saman við vinstra bakstykki. Saumið axla- og hliðarsauma. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.04.2014
Það er ENGIN villa í uppskrift í vörulistanum, en útskýring í netútgáfu hefur verið einfölduð.

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (359)

country flag Inge Chiaramonte wrote:

Hello!

26.10.2022 - 22:08

country flag Leila wrote:

Whenever I see a pattern I like the look of and then see it's a Drops design, I get a big grin on my face. You really have understood that patterns on the internet can so easily include instructional videos, images, tips, dictionary of terms, links to sources of yarn and alternatives, and so on, making your patterns so easy to follow and learn from. Thank you.

14.07.2021 - 16:35

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Aww, wie schön! In Ihrer Farbkarte sehe ich bei Fb. 17 "Himbeerkuchen" kein Rosa + (Khaki-)Grün - ist die aktuelle Farbe Nr. 17 bei Drops-Delight nun anders als bei dem Modell auf dem Foto? - Denn ich hätte gerne die gleiche Farbkombination/Farbverlauf wie bei dem gestrickten Jäckchen. - Entspricht dies nun einer anderen Farb-Nr.?

13.08.2020 - 18:23

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, die photografierte Jacke wurde mit Fb 17 gestrickt - aber beachten Sie, dass die Farben je nach Bildschirmeinstellungen unterschiedlich aussehen können ebenso können die Farben je nach Farbbad leichte Unterschiede ausweisen. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden die beste passende Farbe empfehlen. Viel Spaß beim stricken!

14.08.2020 - 07:17

country flag Britt Eide wrote:

Ser oppskriften strikkes på pinne 4,, og anbefalt er 2,5.. Syntes det blir for løst på nr 4 ,,får ikke fine riller,, Hva kan jeg gjøre ?

01.04.2020 - 08:23

DROPS Design answered:

Hei Britt Eide, Du kan prøve å strikke med en mindre pinne størrelse, men må passe på strikkefastheten så du får riktige mål på plagget. God fornøyelse!

02.04.2020 - 08:40

country flag Beata wrote:

W sekcji 4 liczba oczek na prawym drucie powinna wynosić tyle ile pozostaje po zakończeniu sekcji 3 minus 2 oczka umieszczone na lewym drucie, czyli 42-46-50-54-62-66 "pierwsze oczka są na prawym drucie".

10.04.2019 - 19:01

country flag Louise wrote:

Hej! Får tröjan ett slätstickat eller ett rätstickat utseende?

26.03.2019 - 13:56

DROPS Design answered:

Hei Louise. Det strikker i rettstrikkning / riller. God fornøyelse

02.04.2019 - 10:56

country flag Inger Holzmann wrote:

Fejlen i afsnit 7 og afsnit 4 - stadig ikke rettet! Det undrer mig, at fejlen ikke er forstået af jer? Begge steder er problemet antallet af masker. Man slutter med at have i alt 44 masker i str S I afsnit 6 og 3 skal man slutte med 2 masker tilbage på venstre pind I afsnit 7 og 4 står der, at man har 34 masker på højre pind - det passer jo simpelthen ikke. Man har 44-2=42 masker. Resten af forklaringen passer derefter fint.

26.07.2018 - 13:07

country flag Maia M. wrote:

Hallo, bei Größe L hat mir die empfohlene Menge von 150 g Alpaka nicht gereicht. Und für Delight würde ich ebenso für alle Größen 200g/ 4 Knäuel empfehlen. Ansonsten muss für das 4. Teil aus Resten von 3 Knäueln der passende Farbverlauf zusammengestückelt werden.

23.07.2018 - 22:07

country flag Berit Hansen wrote:

Jeg har meget svært ved at få farverne til at blive symmetriske i de 4 stykker. Kan det passe at farveskiftene i Delight ikke har et ens forløb selvom man bruger samme indfarvning?

28.03.2018 - 03:06

DROPS Design answered:

Hej Berit, ja det stemmer, således står der i farvekortet: DROPS Delight ser ud som den er "håndspundet" med små variationer af tynde og tykke partier, de lækre farver er skabt med teknikken “magic print”, den giver fantastiske farvekombinationer, med bløde overgange som danner helt unikke mønstre og schatteringer. Det betyder også at man i samme parti kan opleve både mørke og lysere variationer. Dette er ikke en fejl, men en del av garnets egenskaber.

12.04.2018 - 16:06

country flag Oriola wrote:

Hello. Do you have any instructions for a longer sleeves version? Thank you

27.03.2018 - 13:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Oriola, this pattern is only available with short sleeves. Happy knitting!

28.03.2018 - 15:06