Cross My Heart |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með stuttum umferðum, röndum og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-1 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í Delight, 2 umf garðaprjón úr Alpaca *, endurtakið frá *-*. ATH: Passið að þræðirnir séu alltaf röngu megin við stykkið. BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Til þess að litaskiptin með Delight verði fallega þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 7, 13, 19, 25, 31 og 37 cm. STÆRÐ M: 10, 16, 22, 28, 34 og 40 cm. STÆRÐ L: 7, 14, 21, 28, 35 og 42 cm. STÆRÐ XL: 10, 16, 22, 28, 34, 40 og 46 cm. STÆRÐ XXL: 7, 14, 21, 28, 35, 42 og 49 cm. STÆRÐ XXXL: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 4 hlutum, vinstra og hægra bakstykki eru saumuð saman við miðju að aftan í lokin. VINSTRA BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 44-48-52-56-64-68 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Stykki er prjónað í RENDUR – sjá skýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7-7-7-8-7-8 cm er haldið áfram með rendur (stillið af að síðasta umf er frá röngu og að næsta rönd er með Alpaca) JAFNFRAMT er prjónað áfram þannig: Kafli 5 STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 l á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Kafli 6 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS UMFERÐ 1: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 2 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 3: Lyftið fyrstu lykkjum 2 af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 4 lykkjur, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á vinstra prjóni. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í lok hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Ekki fækka lykkjum yfir fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð S og XXL eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman í síðustu röndinni með stuttum umferðum þannig að það verða 2 lykkjur eftir á prjóni og í stærð L er lykkjum ekki fækkað í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman þar til 36-40-44-46-52-56 l eru eftir á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l færri). Kafli 7 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS Fyrstu 34-38-42-44-50-54 l sitja á hægra prjóni. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l. UMFERÐ 3: Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni, prjónið yfir 4 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 4 l. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar búið er að taka allar l yfir á sama prjón og prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir allar lykkjur. ÚTAUKNING: Aukið er út í lok hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Aukið er út alveg eins og lykkjum var fækkað. Ekki er aukið út í fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð L er ekki aukið út í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 l í síðustu l þar til 44-48-52-56-64-68 l eru á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l fleiri). Kafli 8 UMFERÐ 1: Prjónið yfir fyrstu 2 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 l, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 4 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við. Prjónið nú áfram 2 l fleiri í hverri umf – endurtakið þar til prjónaðar hafa verið 2 umf með garðaprjóni yfir allar l. Prjónið nú áfram rendur yfir allar lykkjur að loka máli. Prjónið nú þar til stykkið mælist 34-36-38-41-44-47 cm. Aukið síðan út fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Aukið út um 1 l 0-1-2-3-3-1 sinnum, síðan 2 l 5-4-3-2-0-0 sinnum. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 5-4-3-2-0-0 l = 59-61-63-65-67-69 l á prjóni. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Þegar stykkið mælist 48-51-54-58-62-66 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á fyrstu umf frá réttu á hægri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 17-17-18-18-19-19 l = 42-44-45-47-48-50 l eftir á prjóni, síðan í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. Fellið nú af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm. HÆGRA BAKSTYKKI: LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI – að ofan. Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema gagnstætt. Aukið er út fyrir ermi í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Fellt er af fyrir hálsmáli á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu). Stuttar umferðir eru prjónaðar þannig: Kafli 1 UMFERÐ 1: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 2 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 3: Lyftið fyrstu 2 lykkjum af hægri prjóni, leggið þráðinn aftan við þessar 2 lykkjur, prjónið yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir síðustu 4 lykkjur, snúið við. Haldið svona áfram með 2 lykkjur færri í annarri hverri umf þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir síðustu l. Klippið frá. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l með 1. umf = rétta. Kafli 2 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar 2 l eru eftir til hægri. ÚRTAKA: Fellið af í byrjun hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Fækkið ekki lykkjum yfir fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð S og XXL eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman í síðustu röndinni með stuttum umferðum þannig að það verða 2 l eftir á prjóni og í stærð L er lykkjum ekki fækkað í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman þar til 36-40-44-46-52-56 l eru eftir á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l færri). Kafli 3 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS UMFERÐ 1: Prjónið yfir fyrstu 2 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 4 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 lykkjur, snúið við. Prjónið nú áfram 2 l fleiri í hverri umf – endurtakið þar til prjónaðar hafa verið 2 umf í garðaprjóni yfir allar l. ÚTAUKNING: Aukið er út í byrjun hverrar umf frá réttu með Delight (ATH: Aukið er út alveg eins og lykkjum var fækkað. Ekki er aukið út í fyrstu rönd með Delight í öllum stærðum. Í stærð L er ekki aukið út í síðustu rönd með Delight) með því að prjóna 2 lykkjur í síðustu l þar til 44-48-52-56-64-68 l eru á prjóni (= 8-8-8-10-12-12 l fleiri). Klippið frá. Kafli 4 Fyrstu 34-38-42-44-50-54 l sitja á hægra prjóni. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l. UMFERÐ 3: Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni, prjónið 4 lykkjur, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 4 l. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar búið er að taka allar l yfir á sama prjón og prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir allar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra bakstykki. Þegar stykkið mælist 38-41-43-47-50-54 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 7 l 1 sinni, síðan 2 l 3 sinnum, síðan 1 l 5-5-6-6-7-7 sinnum = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermi á sama hátt og á hægra bakstykki. Fellið af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, en fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 38-41-43-47-50-54 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) þannig: Fellið af 7 l 1 sinni, síðan 2 l 3 sinnum, síðan 1 l 5-5-6-6-7-7 sinnum = 41-43-44-46-47-49 l eftir á prjóni. JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermi á sama hátt og vinstra bakstykki. Fellið af þegar stykkið mælist 50-53-56-60-64-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið hægra bakstykki saman við vinstra bakstykki. Saumið axla- og hliðarsauma. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (359)
Anette M.Christensen wrote:
Opskrift fra nettet hø.rygstyk afsnit 2:indtagning:der tages ind i starten osv..Prøv lige at tjekke.Det bør skrives om.Ligeledes afsnit 4.Vh Anette
11.08.2014 - 09:21Ulla wrote:
Längst ner på sidan, ganska otydligt, gäller hela vägen upp till ärmarna.
24.07.2014 - 13:03Vibe wrote:
Kan ikke noget sted finde overvidder til de forskellige str?
23.07.2014 - 22:27DROPS Design answered:
Hej Vibe. Se nederst på mønstret. Her er målskitsen med alle mål i cm til de forskellige str.
24.07.2014 - 14:24Ragnfrid Stellander wrote:
Jeg har nettopp startet på denne modellen, og jeg lurer på om sju cm er for lite da jeg har 8 hvite striper, mens jeg teller ca 16 striper hvitt på bildet? Så lurer jeg på vendingene om jeg skal strikke første maske eller ta den av.
17.07.2014 - 09:49DROPS Design answered:
Du skal følge målene i den størrelse du strikker, det kan være en anden størrelse på billedet. Uanset hvad du vælge, så skal du stramme masken du vender med så der ikke bliver hul. Se gerne vor video med vendepinde! God fornøjelse!
04.09.2014 - 15:54Rufflé wrote:
Bonjour pourquoi sur l'étiquette de la laine c'est mis 2.5 et vous la tricotez en 4. est elle doublée ? cordialement
11.07.2014 - 15:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rufflé, on tricote ici volontairement en déjaugé pour obtenir la souplesse souhaitée. Pensez à bien vérifier votre échantillon pour avoir 21 m x 40 rangs au point mousse = 10 x 10 cm. Bon tricot!
11.07.2014 - 16:36Bente Gramkow wrote:
Forstår ikke afsnit 7.
20.06.2014 - 22:40Hanneke wrote:
Dank je wel, ik heb een proeflapje gemaakt met 4 en de maten kloppen!!
18.06.2014 - 08:03Ella Laursen wrote:
Jeg er i gang med denne drops mode, og jeg må sige at opskriften er mangelfuld, når man kommer til venstre rygstykke står der at den bare skal strikkes modsat, men det er ikke så enkelt, vi er ret mange der har trevlet op mange gange og flere der helst har opgivet, det må kunne beskrives ordenlig, den er også stribet, så der er enret og vrangside på arbejdet. mvh Ella
13.06.2014 - 08:08DROPS Design answered:
Hej Ella. Det er i bogen ja, men i denne online version har vi lavet en mere udvidet version til det venstre rygstykke (se under rettelser 25/4). Printer du dette mönster, saa har du hele beskrivelsen.
16.06.2014 - 17:03Hanneke wrote:
In het patroon staat breinaald 4, maar op de wilkkel van delight staat 2,5. Dat is wel een groot verschil. Welke naalddikte moet ik nemen??
12.06.2014 - 14:43DROPS Design answered:
Hoi Hanneke. Je moet de breinaald nemen voor de juiste stekenverhouding aangegeven in het patroon. Wij raden hier naald 4 aan maar brei ALTIJD eerst een proeflapje om te controleren. Naald 2,5 is de standaard, maar het kan natuurlijk altijd variëren ivm patroon, structuur en motieven.
12.06.2014 - 19:01Mathilda wrote:
Jag är i avsnitt 8: öka 1 m 0-1-2-3-3-1 ggr, sedan 2 m 5-4-3-2-0-0 ggr. Hur ökar jag 1 maska till 3 m. eller ska jag öka 1 på rätsidan och en på avigsidan?
04.06.2014 - 10:25DROPS Design answered:
Hej Mathilda. Du skal öka for enden af varje v från rätsidan. Du kan göre det saadan her:
04.06.2014 - 11:57