DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 141-41
DROPS Design: Mynstur nr li-018
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 8465, milligrár
100-100-100-100-150-150 gr litur nr 0100, natur
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 9010, ljós grár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 4088, bleikvínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 och 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR:
Þær 4 l í hverri laskalínu eru prjónaðar með grunnlitnum sem þær eru prjónaðar með í A.2, þ.e.a.s. fyrst með litnum milligrár, síðan með litnum natur og í lokin með litnum ljós grár (sjá mynd).

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Frá réttu:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fellið af 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman og prjónið 1 l sl.
Frá röngu:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l br og 2 l br saman.
Fækkið um 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l snúnar brugðið saman og 1 l br.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast kemur laskalínan að verða of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli útröku. Ef prjónað er of laust verður að fækka lykkjum oftar en stendur í útskýringu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 195-213-234-258-291-321 l á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár DROPS Lima.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 7 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 33-35-40-44-49-55 l jafnt yfir í 1. umf = 162-178-194-214-242-266 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 81-89-97-107-121-133 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-10-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 7-7-7-8-8-8 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar = 178-194-210-230-258-282 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm eru felldar af 8-8-8-10-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 81-89-97-105-119-131 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 51-54-54-57-60-63 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum milligrár DROPS Lima.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stoffið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-12-6-9-6-9 l jafnt yfir = 42-42-48-48-54-54 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. Eftir A.1 er prjónað áfram með litnum milligrár. JAFNFRAMT í 1. umf eftir A.1 er aukið út um 1-3-1-3-1-1 l jafnt yfir = 43-45-49-51-55-55 l. Þegar stykkið mælist 11-12-12-11-13-11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili, 11-12-12-13-14-16 sinnum til viðbótar = 67-71-75-79-85-89 l. Þegar stykkið mælist 46-46-46-45-45-45 cm fellið af 8-8-8-10-10-10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við prjónamerki) = 59-63-67-69-75-79 l. Setjið 1 prjónamerki í miðju l í umf (= miðja á ermi). Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-304-328-348-388-420 l. Setjið nú 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Að auki er sett 1 prjónamerki í miðju l á fram- og bakstykki (á ermum er nú þegar 1 prjónamerki í miðju l).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – lesið LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR! ATH: Lykkja með prjónamerki í á fram- og bakstykki, og á ermum á að passa við l með ör í mynstri. Teljið út frá hliðum (þ.e.a.s. að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingunum á milli fram- og bakstykkis og ermum).
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – lesið ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR þannig:
Á ERMI: Prjónið 1-1-0-1-0-1 umf áður en úrtaka byrjar. Fækkið nú lykkjum í 4. hverri umf alls 4-3-3-3-2-0 sinnum og síðan í hverri umf alls 17-20-22-23-27-31 sinnum (= 17 l eftir á ermi í öllum stærðum).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1-1-0-1-0-1 umf áður en úrtaka byrjar. Fækkið nú lykkjum í 4. hverri umf alls 4-3-0-0-0-0 sinnum, í annarri hverri umf alls 17-20-27-28-25-23 sinnum og síðan í hverri umf alls 0-0-0-0-10-16 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm eru miðju 25-29-29-35-35-39 l settar á þráð fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l alveg þar til úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Eftir alla úrtökur/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 79-83-83-89-89-93 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆKKUN AÐ AFTAN VIÐ HNAKKA:
Byrjið við miðju að aftan og prjónið kringum hálsmál á hringprjóna nr 4 með litnum ljós grár, JAFNFRAMT eru prjónaðar upp nýjar l í hvorri hlið við l á þræði að framan og þær 25-29-29-35-35-39 l af þræði eru settar til baka á prjóninn svo að það verða ca 112-120-120-132-132-140 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan.
Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er l fækkað jafnt yfir til 80-82-84-88-90-92 l í 1. umf. Prjónið nú fram og til baka JAFNFRAMT er prjónuð hækkun að aftan við hnakka þannig – ATH! Í hvert skipti sem snúið er við í miðju stykki er 1. l steypt yfir, herðið á þræði og prjónið áfram.
Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til eftir eru 12-13-14-15-16-17 l á undan prjónamerki við miðju að framan, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 12-13-14-15-16-17 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 19-20-21-22-23-24 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 19-20-21-22-23-24 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið og prjónið þar til eftir eru 26-27-28-29-30-31 l á undan prjónamerki, snúi, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 26-27-28-29-30-31 l í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 33-34-35-36-37-38 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 33-34-35-36-37-38 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið að miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt (hringinn yfir allar l) JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 96-99-102-105-108-111 l. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2012
ERMI: Fitjið upp 51-54-54-57-60-63 l á sokkaprjóna nr 3 með milligráu.

Mynstur

symbols = litur natur
symbols = litur ljós grár
symbols = litur milligrár
symbols = litur bleikvínrauður
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (93)

country flag Veronica wrote:

Hej! Hur är denna tröja i modellen/storleken? Jag är bredare över höfterna, säg M/L och överkropp S. Vilken storlek kan jag välja? I A-formade klänningar väljer jag S. En annan fråga, kan jag ändra från raglanärm till "vanlig" där oket går i ett? Tycker det är fint när mönstret hänger ihop. Vad är enklast att sticka? Jag är nybörjare på tröjor. Hälsningar Veronica

24.03.2022 - 10:57

DROPS Design answered:

Hej Veronica: Se på måttskissen längst ner på mönstret och välj den storlek du tycker passar bäst utifrån de måtten. Du kan göra om mönstret och sticka "vanlig ärm" men det kräver att du gör om mönstret själv så det enklaste är att bara följa mönstret som det står med raglanärm. Mvh DROPS Design

25.03.2022 - 14:25

country flag Noora wrote:

Täytyykö korotus niskassa tehdä? Jos haluaa jättää sen tekemättä niin vaikuttaako se esimerkiksi kaula-aukon tiukkuuteen?

07.03.2022 - 11:44

country flag Gabriela wrote:

Hola! Una aclaración por favor: cuando dice “disminuir a cada 4ta vuelta” ¿significa que hay que tejer 3 vueltas y disminuir en la 4ta? O tejer 4 vueltas y disminuir en la siguiente? Gracias!

19.02.2022 - 23:52

DROPS Design answered:

Hola Gabriela, hay que tejer 3 vueltas y disminuir en la 4ta. Saludos!

20.02.2022 - 18:59

country flag Corell Anki wrote:

Diamond Rose (li-018) Förstår inte riktigt hur jag ska minska i oket? Jag är van att man brukar se det på mönstret. Kan jag få hjälp? Tack

06.02.2022 - 08:53

DROPS Design answered:

Hej, du minskar på vart annat varv i varje RAGLAN-övergång mellam ärm och bol, se hur du gör i MINSKNINGSTIPS (RAGLAN) i början på mönstret, precis under INSTRUKTIONER - lycka till :)

08.02.2022 - 11:33

country flag Elisabeth Depuiset wrote:

Bonjour, suite à votre réponse du 1-11, pouvez vous m'aider pour les diminutions raglan de la taille M Merci pour votre réponse

12.11.2021 - 19:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Depuiset, en taille M vous allez diminuer pour le raglan au même rythme pour les manches et le dos /devant, autrement dit, vous diminuez 8 mailles à chaque fois soit: 3 fois tous les 4 tours puis 20 fois tous les 2 tours. Bon tricot!

15.11.2021 - 08:58

country flag Elisabeth Depuiset wrote:

Bonjour, Je suis en difficulté pour les diminutions du pull Diamond Rose... En effet, j'ai bien compris où se situent les diminutions des manches, de chaque côté des marqueurs à savoir 4 diminutions à chaque fois puisqu'il y a 2 diminutions à chaque manches, mais je ne comprends pas où se trouvent les diminutions dos et devant ? Merci beaucoup pour votre aide. Très cordialement

28.10.2021 - 13:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Depuiset, vous avez 4 lignes du raglan. On diminue 1 maille de chaque cote de cette ligne. A chaque fois 1 diminution appartient a la manche et la deuxieme au dos ou au devant. Vous diminuez au total 8 mailles par tour. Les diminutions pour les reglans sont fait a une frequence differente sur les manches et sur le dos et devant. Si vous avez un probleme, dites-moi votre taille. Bon tricot!

01.11.2021 - 17:57

country flag Susanne wrote:

Hej. Jeg har fundet en opskrift som jeg godt vil strikke. Er det muligt at købe alt det man skal bruge her altså pinde, garn ol. Sådan man har det hele på en gang. Vh Susanne

08.10.2021 - 09:38

DROPS Design answered:

Hej Susanne. Du köper garnet via en forhandler , och gör du det i en webshop så får du lägga allt du trenger i handekurven. Du kan också ringa en forhandler och beställa om du hellre vill det. Mvh DROPS Design

08.10.2021 - 11:27

country flag Aranzazu Sánchez Martínez wrote:

Acabo de leer su respuesta y sigo sin entender. Si dejo los 35 apartados y hago las disminuciones para el escote al recuperar los 35 me quedan 2 enormes agujeros en el delantero, entonces ,¿como se hace.?

09.05.2021 - 22:01

DROPS Design answered:

Hola Aranzazu. Los agujeros se forman porque la tensión de los hilos entre los puntos en espera y primeros disminuciones es demasiado floja. Se puede solucionar con un par de puntadas por el lado revés de la labor o trabajando las partes de las uniones más tenso.

16.05.2021 - 18:02

country flag Arancha Sánchez wrote:

Hola Buenos días.Tengo prácticamente hecho el jersey pero tengo un problema. Cuando dice al llegar a 56cm deslizar 35 pos,serían 35 para delantero y 35 para espalda? Estos puntos se tejen o se dejan apartados?no entiendo como hacer los remates del escote si los puntos los tengo en otra aguja. Y tampoco entiendo lo de la elevación del escote de la espalda. Podrían ayudarme? Me parece un jersey divino y me da rabia no saber seguir. Gracias.

04.05.2021 - 06:30

DROPS Design answered:

Hola Arancha, se deslizan los 35 puntos centrales para el delantero. Estos puntos se dejan en espera hasta trabajar la cenefa del cuello. Tienes un vídeo explicativo bajo el patrón sobre como trabajar la elevación del escote en la espalda.

09.05.2021 - 20:08

country flag Katja wrote:

Toinen kysymys, tuossa aikaisemmin olikin kysytty raglankavennuksista L koossa. Itse teen XL. Eli jos ne täytyy tehdä samoilla kerroksilla niin hihassa on ensin joka 4.krs yhteensä 3 x mutta etu/takakappaleessa tämä on 0 kertaa. Eli aloitetaanko hihoissa ensin joka 4 kerros sen kolme kertaa ja muualla aloitetaan suoraan tuolla joka 2 kerros kavennuksella? Hihoissa tehdään kavennus yhteensä 26 kertaa ja etu/takakappaleessa 28 kertaa. Eikö niitä pitäisi olla yhtä paljon?

18.02.2021 - 13:19

DROPS Design answered:

Koossa XL teet hihan kavennukset ja samalla aloitat etu-/takakappaleen kavennukset, ja teet ne heti joka 2.kerros. Miehustassa ja hihoissa kavennetaan eri määrä silmukoita.

05.05.2021 - 16:49