DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 141-39
DROPS design: Mynstur la-011
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd efst: ca 200 cm eftir strekkingu
Lengd við miðju: ca 85 cm eftir strekkingu

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 7120, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – lesið PRJÓNFESTA – að neðan.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PRJÓNFESTA:
Sjalið þarf að vera rakt og strekk í rétta stærð eftir að það er prjónað. Prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað er of laust eða of fast eiga 23 l og 30 umf á prjóna nr 3,5 að vera ca 10 x 10 cm (án þess að strekkja).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er endurtekið eftir miðju-l.

LEIÐBEININGAR - 1:
A.2, A.5 og A.8 í mynstri sýna allaf l svo að það er prjónað slétt eftir kantlykkju í byrjun umf eða slétt eftir miðju-l (séð frá réttu: A.3, A.6 og A.9 sýna 1 mynstureiningu sem endurtekur sig eins mörgum sinnum og hæt er eftir A.2, A.5 eða A.8, þar til eftir standa nægilega margar l fyrir A.4, A.7 eða A.10.
A.4, A.7 og A.10 sýna alltaf l svo að prjónað er slétt á undan miðju-l eða slétt á undan kantlykkju í lok umf (séð frá réttu).

LEIÐBEININGAR - 2:
A.3, A.6 og A.9 sýna 1 mynstureiningu á breiddina – passið uppá að það sé slegið jafn oft uppá prjóninn eins og úrtakan er í einni mynstureiningu svo að lykkjufjöldinn í hverri mynstureiningu sé sá sami.
Sama á við um önnur mynstur, en aukið er út um 1 l í annarri hliðinni svo að mynstureiningin er aukin út um 1 l í annarri hverri umf.

KÚLA:
Kúlan er prjónuð yfir 2 umf.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 lykkjur í 1 lykkju þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 l sl = 7 l. Mikilvægt er að lykkjur verði aðeins lausar (ca 1 cm langar).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þessar 7 l brugðið saman. Ef l frá 1. umf eru ekki nægilega langar og aðeins lausar verður erfitt að prjóna þær saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l sl, prjónið umf 1 í A.1, 1 l sl (= miðju-l), umf 1 í A.1 og 2 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 l sl, 7 l br (= 3 l frá umf 2 í A.1, miðju-l og 3 l frá umf 2 í A.1) og 2 l sl.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 l sl, prjónið umf 3 í A.1, 1 l sl (= miðju-l), umf 3 í A.1 og 2 l sl.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 l sl, 11 l br (= 5 l frá umf 4 í A.1, miðju-l og 5 l frá umf 4 í A.1) og 2 l sl.
Haldið svona áfram með gatamynstur eftir mynsturteikningu. Þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, gatamynstur eftir mynstri A.1 (þar sem aukið er út), 1 l sl (= miðju-l), gatamynstur eftir mynstri A.1 (þar sem aukið er út) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Allar umf frá röngu eru prjónaðar þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið br þar til 2 l eru eftir í umf og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina hefur verið aukið út alls 60 l (= 67 l á prjóni) og mynstrið gengur upp í auka mynstureiningu – þetta gerist sjálfkrafa þegar prjónað er eftir mynstri.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með gatamynstur – Lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2 þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l sl, prjónið A.2, A.3 og síðan A.4, 1 l sl (= miðju-l), prjónið A.2, A.3 og síðan A.4 og endið með 2 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): 2 l sl, prjónið br þar til 2 l eru eftir í lok umf og endið með 2 l sl.
Haldið svona áfram með mynsturteikningu eftir A.2 – A.4 þar til stykkið mælist ca 50 cm við miðju meðfram miðju-l – stillið af eftir eina heila mynstureiningu á hæðina (þ.e.a.s. eftir heilt blað). Nú er prjónað gatamynstur eftir mynstri A.5, A.6 og A.7 á sama hátt þar til prjónuð hefur verið 1 mynstureining á hæðina, prjónið síðan gatamynstur eftir mynstri A.8, A.9 og A.10 á sama hátt þar til prjónuð hefur verið 1 mynstureining á hæðina. Fellið nú laust af þannig: ATH: Það er mjög mikilvægt að fella mjög LAUST af, annars getur kanturinn á sjalinu ekki mótast oddlaga: * Fellið af 2 l (dragið aðeins í l á meðan prjónað er og fellið af svo að hún verði laus), sláið 1 sinni laust uppá hægri prjón, fellið af uppsláttinn *, endurtakið frá *-* út umf.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað í handklæði og pressað til að fá burt enn meira vatn – sjalið kemur til með að vera lítið rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð að fínum þríhyrningi og notið nálar til þess að festa það með. ATH: Meðfram 2 hornréttu hliðunum á sjalinu er sett 1 nál í hverja mynstureiningu beint í miðju-l á milli 2 uppslátta og 1 nál í miðju-l (= neðst niðri í oddinum á sjalinu), dragið aðeins út við hverja nál svo að kanturinn formist í litla odda. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert sinn sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2012
SJAL: UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 l sl, 7 l br (= 3 l frá umf 2 í A.1, miðju-l og 3 l frá umf 2 í A.1) og 2 l sl. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 l sl, 11 l br (= 5 l frá umf 4 í A.1, miðju-l og 5 l frá umf 4 í A.1) og 2 l sl.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = kúla - sjá útskýringu að ofan
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Kirsten wrote:

Jeg har ikke helt forstået hvor de nr som står i strikke tips1 samt nr 2 ikke stå rigtigt da de er helt forkert de skulle nok ændres da mange ikke er klar over hvad der menes

06.06.2016 - 18:28

DROPS Design answered:

Hej Kirsten. De henviser til diagrammerne nederst i mönstret. Laes ogsaa i opskriften og kig nederst paa mönstret.

07.06.2016 - 18:00

country flag Kathi wrote:

Ich komme nicht weiter. Habe jetzt 1x A1 gestrickt und 67M auf der Nadel. Ich wollte jetzt mit A2-4 weiter machen, aber ich verstehe den Satz nicht: Wenn A1 1x in der Höhe gestrickt wurde... und das Muster geht in einem zusätzlichen Mustersatz auf. Was bedeutet das? Irgendwie müssen die Diagramme doch mehrfach gestrickt werden, ansonsten wird das Tuch doch zu klein?

03.04.2016 - 19:18

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, über A.1 stricken Sie dann A.2/A.3/A.4. In A.2 und A.4 sind auch Aufnahmen integriert, so wächst das Tuch weiterhin. Beachten Sie auch den Satz im Stricktipp: " A.3, A.6 und A.9 zeigen 1 Mustersatz, der so oft wie möglich nach A.2, A.5 oder A.8 wiederholt wird, bevor noch genug M für A.4, A.7 oder A.10 übrig sind."

04.04.2016 - 10:15

country flag Lene wrote:

Jeg kan ikke gennemskue hvordan jeg skal fortsætte , når jeg har strikket A2,A3 og A4 1 gang og jeg skal høre brug af strikketipsene. Håber I kan forklare det på en anden måde,så jeg kan komme videre. På forhånd tak

22.09.2015 - 17:50

DROPS Design answered:

Hej lene, Jo du starter med A.5 i kanten, gentager A.6 til du har det antal masker tilbage du skal bruge til A.7. Således strikker du på hver side af midtermasken. God fornøjelse!

23.09.2015 - 15:36

country flag Marjo wrote:

Tijdens het breien moet ik de lengte van het breiwerk meten,het is dus de bedoeling dat ik dat doe terwijl het werk nog niet is opgespannen. Aan de naald is het werk een stuk korter dan platliggend. Hoe meet ik dan voor de juiste lengte??

05.01.2015 - 14:51

DROPS Design answered:

Hoi Marjo. Ja, je meet tijdens het breien. Leg het werk plat en rek een beetje voor het meten. Je kan het werk ook ophouden en meten.

06.01.2015 - 16:44

country flag Antje Schupp wrote:

Ist das hübsch!

10.09.2014 - 19:10

country flag Marja Nordin wrote:

Hej! Nånting stämmer inte med rapport A10, antalet maskor blir för få vartannat varv. Mönstret stämmer i övrigt fram till sista hoptagning före mittenmaskan och andra änden, men sedan fattas det en maska på båda ställen, har gått genom hela varvet, inga andra fel. Fattas det en ökning i beskrivningen?

10.06.2014 - 19:04

DROPS Design answered:

Hej Marja. Diagrammet er korrekt. Du skal strikke det som fölger: A.8 har 1 ökning per gentagelse (du strikker 2e omslag med i A.8, i A.9 forbliver maskeantallet konstant (2 m strikkes vaek + 2 omslag) og i A.10 strikker du som A.8 kun 2 omslag og strikker 1 sammen (= +1 maske).

11.06.2014 - 17:03

country flag Virginie wrote:

Après la maille centrale, dans quel sens faut-il répéter les diagrammes, de droite à gauche ou en miroir de gauche à droite ?

13.04.2014 - 16:45

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, après la m centrale, recommencez les diagrammes comme pour avant la m centrale: de droite à gauche sur l'end et de gauche à droite sur l'env. Bon tricot!

14.04.2014 - 09:16

country flag Albane wrote:

J'ai remplace les nopes de 7 mailles sur deux rangs par 5 mailles sur 5 rangs et le rendu est tres beau.

20.03.2014 - 11:52

country flag Mayaarifi wrote:

Donner moi le diagramme du point s il vous plait pour faire un essaie merci

02.01.2013 - 15:34

Tejersiempre wrote:

Lo realize segun el patron pero no me quedo el borde que muestra la foto del modelo

27.08.2012 - 03:11