Diamond Rose |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með laskalínu og mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 141-41 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR: Þær 4 l í hverri laskalínu eru prjónaðar með grunnlitnum sem þær eru prjónaðar með í A.2, þ.e.a.s. fyrst með litnum milligrár, síðan með litnum natur og í lokin með litnum ljós grár (sjá mynd). ÚRTAKA (á við um laskalínu): Frá réttu: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fellið af 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman og prjónið 1 l sl. Frá röngu: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l br og 2 l br saman. Fækkið um 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l snúnar brugðið saman og 1 l br. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast kemur laskalínan að verða of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli útröku. Ef prjónað er of laust verður að fækka lykkjum oftar en stendur í útskýringu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 195-213-234-258-291-321 l á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár DROPS Lima. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 7 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 33-35-40-44-49-55 l jafnt yfir í 1. umf = 162-178-194-214-242-266 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 81-89-97-107-121-133 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-10-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 7-7-7-8-8-8 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar = 178-194-210-230-258-282 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm eru felldar af 8-8-8-10-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 81-89-97-105-119-131 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 51-54-54-57-60-63 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum milligrár DROPS Lima. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stoffið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-12-6-9-6-9 l jafnt yfir = 42-42-48-48-54-54 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. Eftir A.1 er prjónað áfram með litnum milligrár. JAFNFRAMT í 1. umf eftir A.1 er aukið út um 1-3-1-3-1-1 l jafnt yfir = 43-45-49-51-55-55 l. Þegar stykkið mælist 11-12-12-11-13-11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili, 11-12-12-13-14-16 sinnum til viðbótar = 67-71-75-79-85-89 l. Þegar stykkið mælist 46-46-46-45-45-45 cm fellið af 8-8-8-10-10-10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við prjónamerki) = 59-63-67-69-75-79 l. Setjið 1 prjónamerki í miðju l í umf (= miðja á ermi). Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-304-328-348-388-420 l. Setjið nú 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Að auki er sett 1 prjónamerki í miðju l á fram- og bakstykki (á ermum er nú þegar 1 prjónamerki í miðju l). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – lesið LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR! ATH: Lykkja með prjónamerki í á fram- og bakstykki, og á ermum á að passa við l með ör í mynstri. Teljið út frá hliðum (þ.e.a.s. að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingunum á milli fram- og bakstykkis og ermum). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – lesið ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR þannig: Á ERMI: Prjónið 1-1-0-1-0-1 umf áður en úrtaka byrjar. Fækkið nú lykkjum í 4. hverri umf alls 4-3-3-3-2-0 sinnum og síðan í hverri umf alls 17-20-22-23-27-31 sinnum (= 17 l eftir á ermi í öllum stærðum). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1-1-0-1-0-1 umf áður en úrtaka byrjar. Fækkið nú lykkjum í 4. hverri umf alls 4-3-0-0-0-0 sinnum, í annarri hverri umf alls 17-20-27-28-25-23 sinnum og síðan í hverri umf alls 0-0-0-0-10-16 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm eru miðju 25-29-29-35-35-39 l settar á þráð fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l alveg þar til úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Eftir alla úrtökur/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 79-83-83-89-89-93 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆKKUN AÐ AFTAN VIÐ HNAKKA: Byrjið við miðju að aftan og prjónið kringum hálsmál á hringprjóna nr 4 með litnum ljós grár, JAFNFRAMT eru prjónaðar upp nýjar l í hvorri hlið við l á þræði að framan og þær 25-29-29-35-35-39 l af þræði eru settar til baka á prjóninn svo að það verða ca 112-120-120-132-132-140 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er l fækkað jafnt yfir til 80-82-84-88-90-92 l í 1. umf. Prjónið nú fram og til baka JAFNFRAMT er prjónuð hækkun að aftan við hnakka þannig – ATH! Í hvert skipti sem snúið er við í miðju stykki er 1. l steypt yfir, herðið á þræði og prjónið áfram. Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til eftir eru 12-13-14-15-16-17 l á undan prjónamerki við miðju að framan, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 12-13-14-15-16-17 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 19-20-21-22-23-24 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 19-20-21-22-23-24 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið og prjónið þar til eftir eru 26-27-28-29-30-31 l á undan prjónamerki, snúi, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 26-27-28-29-30-31 l í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 33-34-35-36-37-38 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 33-34-35-36-37-38 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið að miðju að aftan. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt (hringinn yfir allar l) JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 96-99-102-105-108-111 l. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (93)
Mia wrote:
Ljuvlig! Vilka snygga färger, och perfekt avvägt mönster. Den vill jag absolut sticka!
03.06.2012 - 09:12DeBreiboerderij wrote:
Leuke jonge trui! mooie lange mouwen en kleed prachtig af!
01.06.2012 - 23:14Ingvild wrote:
Fin tidløs modell. Liker fargene.
01.06.2012 - 19:43