DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Afternoon in Provence

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, gatamynstri, blöðruermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-5
DROPS Design: Mynstur z-1023
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 09, ljós lavender

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn á ermum í mynstri eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni.
ATH: Þegar útaukning á ermum fer frá annarri hverri umferð til 4. hverrar umferðar, þá kemur mynstrið ekki til með fylgja lengur mynsturteikningu. Passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt á hæðina.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 lykkjum með merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (í mynstri kallast þessar lykkjur laskalínulykkjur og laskalínulykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan.
FRÁ RÖNGU:
UPPSLÁTTURINN ER PRJÓNAÐUR Á UNDAN LASKALÍNULYKKJU ÞANNIG:
Prjónið uppsláttinn snúinn í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
UPPSLÁTTURINN ER PRJÓNAÐUR Á EFTIR LASKALÍNULYKKJU ÞANNIG:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
FRÁ RÉTTU:
UPPSLÁTTURINN ER PRJÓNAÐUR Á UNDAN LASKALÍNULYKKJU ÞANNIG:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
UPPSLÁTTURINN ER PRJÓNAÐUR Á EFTIR LASKALÍNULYKKJU ÞANNIG:
Prjónið uppsláttinn snúinn í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið fram og til baka jafnframt því sem fitjaðar eru upp fleiri lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan. Þegar prjónað hefur verið yfir allar lykkjur í hálsmáli, er stykkið prjónað í hring ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjunum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur teknar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 62-62-64-70-70-74 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 4 merki og 1 merkiþráð í stykkið þannig: Merkin og merkiþráðurinn er sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu, merkiþráðurinn sýnir miðju að aftan.
Teljið 1 lykkju (tilheyrir framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-14-15-15-17 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 13-13-14-15-15-17 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það er 1 lykkja eftir í umferð á eftir síðasta merki (tilheyrir framstykki).

UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan.
Þegar lykkjur eru prjónaðar, prjónið þær í mynstri þannig: Prjónið sléttprjón á framstykki og bakstykki (á milli 2. og 3. merkis og á milli 4. og 1. merkis) og prjónið MYNSTUR á ermum – lesið útskýringu að ofan (mynsturteikning A.1 er prjónuð á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

PRJÓNIÐ FRAM- OG TIL BAKA ÞANNIG:
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið sléttprjón og mynsturteikningu A.1 eins og útskýrt er að ofan, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 72-72-74-80-80-84 lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga):
Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina – lesið útskýringu í LASKALÍNA að ofan), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 74-74-76-82-82-86 lykkjur.
UMFERÐ 3 (rétta):
Prjónið sléttprjón og mynsturteikningu A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 84-84-86-92-92-96 lykkjur.
UMFERÐ 4 (ranga):
Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 86-86-88-94-94-98 lykkjur.
UMFERÐ 5 (rétta):
Prjónið sléttprjón og mynsturteikningu A.1, aukið út fyrir lasaklínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 16-16-18-20-20-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 110-110-114-122-122-130 lykkjur.
Eftir UMFERÐ 5 hefur verið aukið út alls 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar og HÁLSMÁL hefur nú verið prjónað til loka. Klippið þráðinn.
Síðan er stykkið prjónað frá miðju að aftan, færið þess vegna lykkjurnar á vinstri prjóni fram að merkiþræði mitt að aftan yfir á hægri prjón.

BERUSTYKKI:
Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt að aftan, haldið áfram í sléttprjóni á bakstykki / framstykki og A.1 á ermum. Að auki heldur útaukning áfram fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan.
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar í annarri hverri umferð 10-8-13-24-19-23 sinnum til viðbótar (aukið er út alls 13-11-16-27-22-26 sinnum ásamt útaukningu sem var gerð þegar stuttar umferðir voru prjónaðar) = 190-174-218-314-274-314 lykkjur. Útaukning fyrir lasklínu er nú lokið í stærð XL og berustykkið mælist ca 25 cm í XL mælt mitt að aftan.
Í öðrum stærðum er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. Í stærð XL skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er aðeins neðar.

STÆRÐ S, M, L, XXL og XXXL:
Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einingis út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur).
ATH: Þegar aukið er út í 4. hverri umferð á ermum, passið uppá að gatamynstrið passi yfir hvert annað á hæðina.
Aukið svona út 10-14-10-8-6 sinnum (5-7-5-4-3 sinnum á ermum). Á eftir síðustu útaukningu eru 250-258-278-322-350 lykkjur í umferð og berustykkið mælist ca 21-23-24-27-29 cm mælt mitt að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTIN FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
= 250-258-278-314-322-350 lykkjur. Prjónið fyrstu 38-41-43-48-51-55 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki), setjið næstu 49-47-53-61-59-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 76-82-86-96-102-110 lykkjur í sléttprjóni (framstykki), setjið næstu 49-47-53-61-59-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-43-48-51-55 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-184-196-216-232-252 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón fram að fyrri merkiþræði, umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina, þannig að það myndast klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 84-92-98-108-116-126 lykkjur. Prjónið nú fram og til baka.
Í fyrstu umferð (ranga) byrjar stroffið jafnframt því sem aukið er út um 29-33-35-39-41-45 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 113-125-133-147-157-171 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt – munið eftir útaukningu) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 49-47-53-61-59-65 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-57-65-73-73-81 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í miðju á 8-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með A.1 hringinn á erminni. ATH: Passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 4-3-5-8-6-8 sinnum = 49-51-55-57-61-65 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-35-34-34-33-31 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan stroffi.
Í næstu umferð byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 9-9-7-7-5-3 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 58-60-62-64-66-68 lykkjur, prjónað er þannig:
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5, prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 44-43-43-42-41-39 cm frá skiptingunni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 92-92-96-104-104-112 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 og stillið lykkjufjöldann af þannig að laskalínulykkjurnar haldi áfram sem sléttar lykkjur (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli og að það sé oddatala á milli hverra laskalínulykkja, þannig að stroffið gangi upp hringinn í hálsmáli.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það á að myndast gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Jacky Schipper wrote:

Heb vraag gesteld over verdelen van voor_en achterpand en mouwen, maar het is me al duidelijk

25.02.2024 - 20:20

DROPS Design answered:

Dag Jacky,

Dankjewel voor de terugkoppeling. Mooi dat je nu verder kan; veel breiplezier!

28.02.2024 - 20:26

country flag Jacky Schipper wrote:

Ik snap de verdeling niet , ik heb slechts 4 steken voor het voorpand ( in tweede steek markeerdraad, dit hoort bij rechter voorpand), 15 steken mouw, 2 keer 13 voor achterpand en dan weer 15 mouw, 2 steken over voor linkervoorpand. Het is geen vest dus snap linker en rechtervoorpand niet en ik heb bijna geen steken voor het voorpand (totaal 4 als ik de markeerdraad steken mee tel. Klopt dit???

23.02.2024 - 20:40

country flag Melanie wrote:

Toller pullover und endlich eine Anleitung mit keinen ausgeleierten Ärmeln und Kragen

13.02.2024 - 11:29

country flag Roberta wrote:

This is definitely going to be my next project!!Beautiful!

13.02.2024 - 09:33

country flag Rybka wrote:

Orchid Whispers

21.01.2024 - 14:28

country flag Nonne wrote:

Lilac

21.01.2024 - 13:24

country flag KAROLINA wrote:

SWEET ESCAPE

21.01.2024 - 11:25

country flag Aurore wrote:

Champ de lavande

20.01.2024 - 14:54

country flag Irene wrote:

Lillà

19.01.2024 - 14:12

country flag Lynda Kuit wrote:

Triangular breeze

19.01.2024 - 10:01