Christmas Blossoms |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar jólakúlur úr DROPS Muskat. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1572 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið fyrsta stuðli út með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið fyrstu fastalykkju út með 1 loftlykkja. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu loftlykkju frá byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkju á heklunálinni. Þegar heklað er með tveimur litum, skiptið yfir í nýjan lit þegar síðasti uppslátturinn er gerður og þráðurinn dreginn í gegnum síðasta stuðulinn fyrir næstu kúlu. Að auki leggst þráðurinn, á þeim lit sem ekki er heklað með, yfir lykkjur frá fyrri umferð. Heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. KÚLA: Heklið 4 stuðla um loftlykkjubogann, skiptið yfir í grunnlit og heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður (herðið aðeins á þræði þannig að hann verði þéttur og fallegur og herðið aðeins á kúlunni þannig að hún standi út). LITUR-1: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í bleikur sandur UMFERÐ 3 og 4: bleikur sandur UMFERÐ 5: natur UMFERÐ 6: bleikur sandur LITUR-2: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í ljós sægrænn UMFERÐ 3 og 4: ljós sægrænn UMFERÐ 5: natur UMFERÐ 6: ljós sægrænn LITUR-3: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í pistasía UMFERÐ 3 og 4: pistasía UMFERÐ 5: natur UMFERÐ 6: pistasía LITUR-4: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í mosagrænn UMFERÐ 3 og 4: mosagrænn UMFERÐ 5: perla UMFERÐ 6: mosagrænn LITUR-5: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í muskat UMFERÐ 3 og 4: muskat UMFERÐ 5: perla UMFERÐ 6: muskat LITUR-6: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í granatepli UMFERÐ 3 og 4: granatepli UMFERÐ 5: perla UMFERÐ 6: granatepli LITUR-7: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í vínrauður UMFERÐ 3 og 4: vínrauður UMFERÐ 5: perla UMFERÐ 6: vínrauður LITUR-8: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: muskat UMFERÐ 2: kúlur í muskat, stuðlar í perla UMFERÐ 3 og 4: perla UMFERÐ 5: muskat UMFERÐ 6: perla ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLAKÚLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Jólakúlurnar eru heklaðar í mismunandi litasamsetningum. Allar kúlurnar eru heklaðar í hring frá miðju og út í tvær alveg eins hálfar kúlur. Hálfu kúlurnar eru saumaðar saman eins og útskýrt er í uppskrift og eru síðan fylltar með vatti. Að lokum er hekluð lykkja. HÁLF KÚLA: Lestu LITUR-1 til LITUR-8 í útskýringu að ofan. Byrjið með heklunál 3 og uppfitjunarlit í DROPS Muskat. Heklið 4 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Fylgdu litaröðinni fyrir hverja kúlu, lestu LITASKIPTI og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið mynsturteikningu A.1 hringinn eða fylgdu útskýringu að neðan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju), 5 fastalykkjur um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2. * Heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu/næstu fastalykkju, skiptið yfir á grunnlit og heklið 2 stuðla í sömu fastalykkju *, herklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju efst í kúlu í byrjun á umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul eftir fyrstu kúlu, 3 loftlykkjur (1 stuðull), heklið 1 stuðul í sama stuðul, * 2 stuðlar í næsta stuðul, heklið síðan 2 stuðla saman með því að hekla 1 stuðul í saman stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir kúlu, heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, heklið síðan 2 stuðla í sama stuðul *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, en í síðustu endurtekningunni er endað á undan 2 síðustu stuðlunum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 30 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvern og einn af 4 fyrstu/næstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn og skiptið um lit þegar síðasta keðjulykkjan í umferð er hekluð = 36 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 3 loftlykkjur (1 fastalykkja + 2 loftlykkjur), hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, skiptið til baka yfir í grunnlit og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). UMFERÐ 6: Heklið 1 keðjulykkju um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (1 stuðull), * heklið 2 stuðla saman með því að hekla 1 stuðul um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um næsta loftlykkjuboga, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í stuðulinn fyrir neðan loftlykkjuboga (stuðull frá 4. umferð) heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með að hekla 2 stuðla saman og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 36 stuðlar. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. Heklið aðra hálfa kúlu til viðbótar alveg eins, en þegar A.1 hefur verið heklað til loka er þráðurinn klipptur frá síðustu umferð ca 40 cm frá stykki, þannig að þráðarendinn sé nægilega langur til að sauma bæði stykkin saman með. FRÁGANGUR: Leggið báðar hálfu kúlurnar saman – passið uppá að byrjun á umferð mætist á báðum hálfu kúlunum. Byrjið sauminn við byrjun á umferð og saumið saman bæði stykkin með spori í aftari lykkjubogann í hverri lykkju umferðina hringinn – passið uppá að saumurinn sé ekki of stífur. Skiljið eftir smá op í lok umferðar. Fyllið jólakúluna með vatti og saumið síðan opið saman. Byrjun á umferð er núna mitt undir jólakúlunni. LYKKJA: Haldið jólakúlunni þannig að byrjun á umferð sé mitt undir jólakúlunni. Heklið 1 keðjulykkju mitt á jólakúlunni með sama lit og síðasta umferð á kúlunni, heklið 20 loftlykkjur og festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju mitt á jólakúlunni. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Katarzyna Ziejewska wrote:
Cześć, moja bombka po zszyciu zamiast kuli przypomina jojo. Wygląda na to że po ostatnim okrążeniu połówki zaczęły się spłaszczać. Nie jestem pewna co zrobiłam źle i nie mogę doszukać się błędu. Proszę o pomoc.
07.12.2023 - 16:48DROPS Design answered:
Witaj Kasiu, czy widziałaś nasz film instruktażowy TUTAJ. Pokazuje jak wykonać tą bombkę od początku do końca. Może być pomocy w znalezieniu błędu. Pozdrawiamy!
08.12.2023 - 08:33Danielle LONGCHAMPS wrote:
Bonjour, J aime ce que vous proposez j aimerais en faire chez moi. Que faut-il faire : commander ?
23.12.2022 - 20:00DROPS Design answered:
Bonjour Mme Longchamps, vous pouvez imprimer les explications gratuites à partir de notre site - retrouvez ici la liste des magasins DROPS en France pour commander les fournitures nécessaires (si vous n'avez pas de magasin près de chez vous). Bon crochet!
02.01.2023 - 08:46Anna wrote:
Mega cooler Weihnachtsschmuck - kann man natürlich auch in Frühlingsfarben für den Ostertisch häkeln, finde ich! Super toll :)
05.12.2022 - 11:26Gabriele Abb wrote:
Tolle Anleitung für die Weihnachtskugeln ,die mir gut gefallen und ich finde es super eine Anleitung für Weihnachtskugeln zu haben, wo man auch seine Fantasie spielen lassen kann und die Farben wählen kann die man selbst mag.
02.12.2022 - 17:45