Ice Star Potholders |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður pottaleppur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað sem hringur frá miðju og út, með stjörnum og kúlum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1577 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. 4 STUÐLAR SAMAN: Heklið 1 stuðul um loftlykkjuhringinn, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 stuðla til viðbótar alveg eins, heklið 1 stuðul til viðbótar um loftlykkjuhringinn, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni. KÚLA: Heklið 4 stuðla í lykkjuna fyrir neðan, heklið síðan 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður. 1 STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um toppinn á stuðlahópnum frá fyrri umferð / heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um stuðlakrókinn-tvíbrugðna stuðulinn frá fyrri umferð / heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um fastalykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. ekki er heklað í sjálfan lykkjubogann, heldur í kringum lykkjuna. 2 STUÐLAKRÓKAR-ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR FYRIR BLÚNDU: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í kringum fyrsta/næsta stuðlakrók-tvíbrugðna stuðul frá fyrri umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 þríbrugðinn stuðul um næsta stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. 1 STUÐLAKRÓKUR: Heklið 1 stuðul um toppinn á stuðlakrók-þríbrugðnu stuðlum frá fyrri umferð / heklið 1 stuðul um toppinn á kúlu frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það er hægt að hekla pottaleppinn einfaldan eins og sést á myndinni. Þá er stykkið heklað frá miðju og út. Að lokum er heklaður kantur með krabbahekli og einfaldri lykkju. Það er einnig hægt að hekla pottaleppinn tvöfaldan (með framhlið og bakhlið), þannig verður pottaleppurinn þykkri. Þá eru hekluð 2 stykki í hring frá miðju og út. Framhlið með mynstri og bakhlið án mynsturs. Framhlið og bakhlið er síðan heklað saman með krabbahekli. Að lokum er hekluð einföld lykkja. POTTALEPPUR MEÐ MYNSTRI (framhlið): Byrjið með heklunál 3,5 og Paris. Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið mynstur eins og útskýrt er að neðan, eða heklið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 þannig: Heklið A.1 (byrjun og lok á umferð), heklið síðan A.2 alls 6 sinnum í kringum loftlykkjuhringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Að lokum er heklaður KANTUR og LYKKJA eins og útskýrt er í uppskrift. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, * heklið 4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN um loftlykkjuhringinn – sjá útskýringu að ofan, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, * heklið 1 STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL – sjá útskýringu að ofan, um toppinn á stuðlahópnum frá fyrri umferð, 4 stuðlar um loftlykkjubogann *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í fyrstu/næstu lykkju, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull um fyrsta/sama stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull um næsta stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, 2 stuðlar í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 5: 3 loftlykkjur, * heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu/næstu lykkju, 1 stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðull í stuðlakrók/tvíbrugðinn stuðul, 1 stuðull í næstu lykkju, heklið 2 STUÐLAKRÓKAR-ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR FYRIR BLÚNDU – sjá útskýringu að ofan, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull næstu lykkju, 1 stuðull í stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul, 1 stuðull í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 stuðlar í næstu lykkju *, heklið frá alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, * heklið 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan, um toppinn á kúlunni frá fyrri umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 lykkjum, heklið 1 stuðlakrók um toppinn á blúndunni frá fyrri umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af 3 næstu lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 7: Allar fastalykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann, svo það verði augljós kantur: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, * heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 8: Allir stuðlar og allar kúlur eru heklaðar í aftari lykkjubogann, svo það verði augljós kantur: Heklið 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um næstu lykkju, heklið 2 stuðla í lykkjuna sem var hoppað yfir og 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um sömu lykkju og fyrsti stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull var heklaður um, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 lykkjum, 1 kúla í næstu lykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 lykkjum *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 9: 3 loftlykkju, * hoppið yfir stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 2 stuðlakróka-þríbrugðinn stuðul í horn, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, hoppið yfir stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð, heklið 1 stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 stuðlar í kúlu frá fyrri umferð, 1 stuðull í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 lykkjum *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 10: Allar fastalykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 1 stuðlakrókur um toppinn á blúndu frá fyrri umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 11: Allar fastalykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð = 126 lykkjur + 1 loftlykkja. Þegar þessar 11 umferðir hafa verið heklaðar, hefur A.1 og A.2 verið heklað til loka. KANTUR OG LYKKJA: Byrjið í lykkju yst á pottaleppnum beint yfir kúlu eða beint yfir blúndu í stuðlakrókamynstri. Heklið 1 umferð með krabbahekli, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju frá síðustu umferð á pottalepp, en heklið frá vinstri til hægri (aftur á bak). Nú ertu komin að byrjun á umferð, heklið 20 loftlykkjur fyrir lykkju/hanka, festið lykkjuna með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Klippið þráðinn og festið. POTTALEPPUR ÁN MYNSTURS (bakhlið): Byrjið með heklunál 3,5 og Paris. Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið stuðla eins og útskýrt er að neðan, eða heklið eftir mynsturteikningu A.3 og A.4 þannig: Heklið A.3 (byrjun og lok á umferð), heklið síðan A.4 alls 7 sinnum í kringum loftlykkjuhringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Að lokum er frágangur á stykki gerður eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, heklið 14 stuðla um loftlykkjuhringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, heklið 2 stuðla í hvern stuðul umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 28 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í fyrsta/næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 42 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvorn af 2 fyrstu/næstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvorn af næstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 56 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 5: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 70 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 6: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 84 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 7: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 98 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 8: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 112 stuðlar + 3 loftlykkjur. UMFERÐ 9: 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 126 stuðlar + 3 loftlykkjur. Þegar þessar 9 umferðir hafa verið heklaðar, hefur A.3 og A.4 verið heklað til loka. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR TVÖFALDUR POTTALEPPUR: Leggið bæði stykkin saman og byrjið frá réttu í lykkju yst á pottaleppnum beint yfir kúlu eða beint yfir blúndu í stuðlakrókamynstri. Heklið 1 umferð með krabbahekli í gegnum bæði lögin, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju frá síðustu umferð á báðum pottaleppunum, heklið í gegnum bæði lögin og heklið frá vinstri til hægri (aftur á bak). Nú ertu komin að byrjun á umferð, heklið 20 loftlykkjur fyrir lykkju/hanka, festið lykkjuna með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Elke wrote:
Hallo, ich habe einen Fehler entdeckt: der Mustersatz in der 5. Runde muss mit „je 1 Stäbchen in die 2 nächsten Maschen“ enden und dann wieder von vorn beginnen. Falsch ist, dass in der beschriebenen Anleitung am Ende des Mustersatzes noch 2 Stäbchen in die nächste Masche gehäkelt werden soll. So gehäkelt passt der Mustersatz nicht richtig auf die Vorrunde. In der grafischen Beschreibung ist die 5. Runde richtig dargestellt. Viele Grüße Elke
03.08.2023 - 21:18Gillian McMullen wrote:
Your English translations are very difficult to follow and use names for stitches that are not used in the US. Would you like help with your translations?
10.04.2023 - 21:42Stefanie Messerschmitt wrote:
Perfekte Anleitung. Wunderschönes Ergebnis ! Danke dafür.
20.01.2023 - 05:50