DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Morning Hush

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-11
DROPS Design: Mynstur z-980
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 9024, dökk blush

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 232-244-252-264-268-280 lykkjur aðeins stíft á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca og prjónið þannig:

UMFERÐ 1: * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn fyrir framan, prjónið 1 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn fyrir aftan stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti.

Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 116-122-126-132-134-140 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-1-0-0-1-1 lykkju í umferð = 117-123-126-132-135-141 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 alls 39-41-42-44-45-47 sinnum berustykkið hringinn.
Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 351-369-420-440-495-517 lykkjur í umferð. Prjónið áfram alveg eins án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 17-27-8-36-13-27 lykkjur jafnt yfir = 368-396-428-476-508-544 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 55-60-64-70-77-84 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 74-78-86-98-100-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 110-120-128-140-154-168 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 74-78-86-98-100-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 55-60-64-70-77-84 lykkjur í sléttprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig.
Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 240-260-280-304-336-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-64-70-76-84-92 lykkjur jafnt yfir = 300-324-350-380-420-460 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 74-78-86-98-100-104 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-88-98-110-114-120 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-16-17-18 sinnum = 70-72-76-78-80-84 lykkjur.
Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-34-33-31 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 86-88-94-96-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 42-40-40-38-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja

symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Aspevoll Torild Foss wrote:

Jeg strikker Morning hush. Spørsmål i oppskriften str L, ang " Bærestykke": Strikk A1, totalt 42 omganger. Men i mønsteret A1 er det bare 32 omganger. Er det 10 omganger til mellom A1 og A2 hvor mønsteret i A1 strikkes uten å øke? Tenker da at mønsteret blir "skakt" uten den regelmessige økingen - hva er rett her? Mvh Torild

28.01.2024 - 09:25

DROPS Design answered:

Hei Toril. Etter halskanten har du i str. L 126 masker på pinnen og du skal nå strikke A.1 42 ganger / 42 rapporter av A.1 som består av 3 masker. 3 masker x 42 rapporter = 126 masker. Når du har strikket A.1 1 gang i høyden (A.1 1 gang i høyden = 32 omganger), skal du ha 294 masker på pinnen og du skal nå strikke etter A.2. A.2 = 7 masker x 42 rapporter = 126 masker og du strikker da A.2 over A.1 42 ganger. Når du har strikket A.2 1 gang i høyden (26 omganger) skal du ha 420 masker på tråden. Nå strikkes det videre til arbeidet måler 15 cm fra merket i halsen. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 11:23

country flag Anna wrote:

Buongiorno, grazie per i vostri modelli meravigliosi e chiari. Il bordo del collo doppio non mi viene bene, possibile che il secondo giro debba iniziare con una maglia a rovescio e non a diritto come invece è scritto nelle istruzioni?

21.09.2023 - 11:11

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, il 2° giro inizia con 1 maglia rovescio. Buon lavoro!

22.09.2023 - 23:43

country flag Anita Ström wrote:

Trevlig modell

08.08.2023 - 14:41

country flag Anja wrote:

Mistä löydän M koon rinnanympäryksen mitan? En löydä/ osaa lukea sitä.

23.05.2023 - 17:08

DROPS Design answered:

Hei, rinnanympäryksen mitta löytyy ohjeen alapuolella olevasta mittapiirroksesta. Koon M rinnanympärys on 100 cm.

23.05.2023 - 19:10

country flag Jocelyne wrote:

Bonjour, même question que ma question d’hier : est-il possible de faire une rehausse sur le modèle 215-16, pour éviter d’avoir une encolure trop dégagée à l’arrière ? Merci par avance, bonne journée Jocelyne

06.03.2023 - 07:04

DROPS Design answered:

Bonjour, vous trouverez la réponse ci-dessous - pour un résultat optimum, si vous n'êtes pas sûre de vous, choisissez de suivre les explications telles quelles, vous aurez ainsi une encolure similaire et le même résultat que sur la photo. Boon tricot!

06.03.2023 - 10:43

country flag Jocelyne wrote:

Bonjour, est-il possible de faire une rehausse sur ce modèle (comme sur le modèle 236-2) sans préjudice pour la suite du tricot ? Merci par avance Jocelyne

05.03.2023 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Jocelyne, vous pouvez probablement utiliser la même base des rangs raccourcis de l'autre pull car l'échantillon est le même, tricotez ensuite la réhausse soit en jersey, soit en point fantaisie (avant l'augmentation de A.1 (= 1 m jersey, 2 m point mousse) pour que A.1 tombe juste par la suite) pour qu'elle soit peut-être un peu moins visible, il vous faudra peut-être essayer pour voir ce qui vous convient le mieux. Bon tricot!

06.03.2023 - 10:04

country flag Line Pallesgaard wrote:

Hej. Jeg har et spørgsmål til diagram A1. Der står i opskriften af man skal strikke diagram A1 (for str. XL er det 44 omgange) Men diagram A1 viser kun 32 omgange. Hvad skal jeg så strikke de sidste 12 omgange? Måske bare springe direkte til diagram A2 eller strikke de sidste 12 omgange som den sidste i diagram A1? Hilsen Line

09.02.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Hej Line, de 44 omgange er hvor mange gange du gentager A.1 rundt på pinden (på bærestykket) og altså ikke 44 omgange i højden :)

10.02.2023 - 11:42

country flag Karin wrote:

Hallo, Ich stricke den Pulli mit einem anderen Garn in Gr. M. Ich bin nun mit der Passé (A2 fertig gestrickt bis 14cm) fertig und habe festgestellt, dass der Pulli wohl etwas zu weit wird, wenn ich nun ab dem glatt rechts gestrickten Teil nochmals 27 M. aufnehmen muss. Ich überlege mir, ob ich auf Gr. S wechsle und daher 1 Masche abnehme, damit ich von jetzt 369 M. auf 368 M. komme. Wie seht ihr das? Vielen Dank!

01.02.2023 - 08:45

DROPS Design answered:

Liebe Karin, stimmt Ihre Maschenprobe? Wenn Sie 26 Maschen x 34 Reihen glatt rechts = 10 x10 cm haben, dann bekommen Sie die richtigen Maßen für M wie in der Maßskizze, sonnst sollen Sie mit Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen, damit Sie die richtigen Maßen bekommen. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2023 - 09:03

country flag Birte wrote:

Hej Jeg syndes det er svært at strikke dobbelt halskant, da jeg syndes der er for mange masker og syndes ikke man skal strikke den med/sammen på et tidspunkt

28.01.2023 - 13:44

DROPS Design answered:

Hei Birte. Du kan fint strikke med bare en enkel halskant og gjøre de tilpassninger som trengs. Denne genseren er strikket med en dobbelt halskant og det er mange som liker det og vi prøver å tilpasse alle ønsker. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 12:03

country flag Henny wrote:

Ik brei graag top down, maar is er ook een patroon met een perfecte hals, die moet nl achter veel hoger zijn, zit anders voor geen meter

14.11.2022 - 15:19

DROPS Design answered:

Beste Henny,

Sommige patronen hebben een verhoging in de hals, maar de meesten inderdaad niet waardoor er geen verschil zit tussen het voor- en achterpand. Je zou een aantal verkorte toeren aan de achterkant kunnen breien om het achterpand te verhogen.

14.11.2022 - 20:25