DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Open Windows

Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með axlarsæti og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-43
DROPS Design: Mynstur vs-089
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 22, rósarvatn

Eða notið:
DROPS Daisy frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-700-750 g litur no 06 púðurbleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 8. og 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í.
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR:
Í fyrstu stuttu umferðum er einungis aukið út á annarri öxlinni, þar sem bara er prjónað fram hjá annarri lykkjunni með prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Síðan er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð, alveg þangað til síðasta umferðin er prjónuð frá röngu til baka að miðju að aftan þar sem aukið er út á hinni öxlinni (= 2 lykkjur fleiri í umferð).

ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón. Berustykkið er fyrst prjónað fram og til baka með stuttum umferðum þar til hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Síðan er prjónað í hring þar til útaukning fyrir axlarsæti er lokið. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig, þar til útaukning fyrir handveg er lokið. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna til loka. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru saumaðar í eins og útskýrt er í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 136-144-144-152-152-160 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Belle eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu og prjónið síðan hringinn þannig: Prjónið A.1 (= 17-18-18-19-19-20 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 102-108-108-114-114-120 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm þar sem það er styst (þar sem bogarnir í kanti snúa niður í stroffi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-10-8-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 114-118-118-122-122-126 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið nú yfir á hringprjón 4.
Nú er settir 2 merkiþræðir og 2 prjónamerki í stykkið. Merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og prjónamerkin eru set í lykkju, þannig:
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði, hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið einn merkiþráð hér (= mitt að framan), hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), nú eru 28-29-29-30-30-31 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka þannig að hálsmálið myndast, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti – sjá STUTTAR UMFERÐIR og ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI áður en þú prjónar áfram.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

STUTTAR UMFERÐIR:
Byrjið við prjónamerki mitt að aftan og prjónið stuttar umferðir í sléttprjóni, fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 og 2: Prjónið þar til eftir eru 27-28-28-29-29-30 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 og 4: Prjónið þar til eftir eru 26-27-27-28-28-29 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 og 6: Prjónið þar til eftir eru
24-25-25-26-26-27 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 7 og 8: Prjónið þar til eftir eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 9 og 10: Prjónið þar til eftir eru 20-21-21-22-22-23 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 11 og 12: Prjónið þar til eftir eru 18-19-19-20-20-21 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 13 og 14: Prjónið þar til eftir eru 14-15-15-16-16-17 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 og 4: Prjónið þar til eftir eru 10-11-11-12-12-13 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 17: Prjónið til baka mitt að framan. Nú er prjónað áfram hringinn.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón, prjónið fyrst fram og til baka þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið síðan áfram hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig:
Aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið er út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl (= 1 lykkja) verður áfram eins.
Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í á hvorri öxl – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Það er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl (= 1 lykkja) verður áfram eins.
Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar falli fallega – sjá LEIÐBEININGAR!
Aukið svona út í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka = 16 lykkjur fleiri hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í.
Nú er stykkið prjónað í hring og útaukning fyrir axlarsæti heldur áfram í hverri umferð 12-12-15-15-18-18 sinnum til viðbótar (= alls 28-28-31-31-34-34 lykkjur fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í á hvorri öxl) = 226-230-242-246-258-262 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 10-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki við hálsmál.

Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig:
Prjónið fyrstu 56-57-60-61-64-65 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= hálft bakstykki), fellið af lykkju frá miðju á öxl, prjónið næstu 112-114-120-122-128-130 lykkjur (= framstykki), fellið af lykkju mitt á öxl, prjónið síðustu 56-57-60-61-64-65 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

BAKSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, prjónið 0-1-2-0-0-1 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til eftir eru 3-4-9-1-7-8 lykkjur, prjónið fyrstu 0-0-6-0-6-6 lykkjur í A.2, 2-3-2-0-0-1 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Síðan eru prjónaðir eins margir hnútar í stykkinu og pláss er fyrir að handvegi – þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónaðir hafa verið 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-7-6-5-5-4 sinnum = 96-100-108-112-118-122 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-17-18-19-18-17 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-3-3-3-5-9 sinnum = 98-106-114-118-128-140 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og ef ekki er pláss fyrir hnút að handvegi, prjónið lykkjur í sléttprjóni). Stykkið á nú að mælast 18-19-20-21-22-23 cm frá prjónamerki. Klippið þráðinn og geymið stykkið og prjónið bakstykkið.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 4 = 112-114-120-122-128-130 lykkjur. Prjónið alveg eins og á framstykki. Þegar útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 98-106-114-118-128-140 lykkjur í umferð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfri allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn = 204-224-240-260-284-312 lykkjur fyrir fram- og bakstykki.
Færið merkiþráðinn hingað – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Setjið prjónamerkin mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 2-3-3-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (þ.e.a.s. mynstrið gengur ekki jafnt upp alla leið umferðina hringinn).
Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm = 196-216-232-252-276-304 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-13 cm frá prjónamerki. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls) – stillið af að prjónaða hafa verið minnst 2 umferðir í sléttprjóni á eftir hnúti í mynstri. Til að koma í veg fyrir að stroffið dragi stykkið saman, aukið nú út um 32-36-38-42-48-50 lykkjur jafnt yfir = 228-252-270-294-324-354 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Nú er stroffið prjónað (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4½ cm. Prjónið nú frá ör í mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist alls 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl (mælt innst við kant í hálsmáli) og niður.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður.
Fitjið upp 62-62-64-60-54-50 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle (það eru fitjaðar upp færri lykkjur í stærri stærðum vegna fleiri útaukninga hvoru megin við ermakúpu). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-1-1-1-1-1 lykkjur 1-4-4-5-8-11 sinnum, síðan í næstu umferð frá réttu, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 lykkjur = 72-76-78-82-84-88 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 4-6-6-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Í stærð M, L og XXXL, er úrtakan endurtekin þegar stykkið mælist 10 cm = 70-72-74-80-82-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 27-25-25-23-21-19 cm.
Setjið eitt nýtt prjónamerki mitt á ermi þannig að það verða 35-36-37-40-41-42 lykkjur á milli 2 prjónamerkja. Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 7-7-7-8-8-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist ca 37-35-35-34-32-30 cm – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls og það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4½ cm. Prjónið nú frá umferð með ör í A.2 umferðina hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið stroff þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 48 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = byrjið í þessari umferð í mynsturteikningu
symbols = hnútur: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman, ekki sleppa lykkjunum af prjóni, heldur prjónið sömu 3 lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman 1 sinni til viðbótar, sleppið að lokum öllum 3 lykkjunum af vinstri prjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 6 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Chris wrote:

Je ne comprends pas les rangs raccourcis. On commence au milieu du dos , on va jusqu'à 29m avant le marqueur et on trouve. On ne fait donc qu'une épaule, un demi devant et un demi dos. Quand fait'on l'autre côté ? C'est pas bien expliqué, pas très compréhensible Merci de m'éclairer

03.04.2024 - 22:27

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, au 1er rang vous tricotez juste la 1ère épaule - il reste 29 m avant le marqueur du milieu devant, tournez et tricotez le tour suivant sur l'envers jusqu'à ce qu'il reste 29 m avant le marqueur du milieu devant et tournez (vous avez laissé 29 m non tricotées de chaque côté du marqueur du milieu devant), et vous avez tricoté les rangs 1 et 2. Tricotez maintenant les rangs 3 et 4 de la même façon jusqu'à ce qu'il reste cette fois 26 m de chaque côté du marqueur du milieu devant (sur l'endroit et sur l'envers) et continuez ainsi en suivant le nombre de mailles indiqué. Terminez par 1 rang sur l'endroit jusqu'au milieu dos et continuez en rond. Bon tricot!

04.04.2024 - 08:30

country flag Sylviane Ruet wrote:

Comment faire les augmentations pour les manches marteau en même temps que les rangs raccourcis puisqu'on s'arrête avant le marqueur de l'épaule ? Une vidéo serait bienvenue... Merci

16.02.2024 - 19:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ruet, tricotez les rangs raccourcis comme indiqué (le nombre de mailles indiqué pour chaque rang est celui qu'il doit rester non tricoté à la fin de chaque rang pour chacun d'eux), et, en même temps, augmentez avant/après la maille avec un marqueur (de chaque côté de la maille de l'épaule) tous les rangs (= sur l'endroit et sur l'envers), cf AUGMENTATIONS-2; lorsque vous aurez tricoté les 17 rangs raccourcis, vous aurez augmenté 16 fois (8 fois pour l'épaule droite et 8 fois pour l'épaule gauche), coupez le fil et reprenez au milieu dos pour continuer en rond. Bon tricot!

19.02.2024 - 07:41

country flag Arnault Jocelyne wrote:

Je ne comprends pas comment commencer les rangs raccourcis en aller retour et EN MEME TEMPS les augmentations. Il y aura un "trou" milieu dos ? La vidéo pour les augmentations est parfaite, mais je ne comprends pas les aller retours.... Merci si vous avez des explications supplémentaires ou une vidéo. Cordialement

12.05.2023 - 09:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Arnault, les rangs raccourcis se tricotent en allers et retours car ce sont des rangs (autrement dit, on ne tricote pas en rond) tricotés alternativement sur l'endroit et sur l'envers: rang 1: sur l'endroit, rang 2 sur l'envers, rang 3 sur l'endroit et rang 4 sur l'envers et ainsi de suite. Vous tricoterez ensuite de nouveau en rond sur toutes les mailles quand le rang 17 est terminé. Bon tricot!

12.05.2023 - 11:24

country flag Cornelia wrote:

Ich verstehe leider A1 nicht. Wann sollen denn 6 Maschen zusammengestrickt werden?

27.03.2023 - 20:00

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, bei der 1. Reihe in A.1 wird man so stricken: *1 M re, 6 M re zusammen, 1 M re*, und von *-* insgesamt 17 bis 20 Mal (siehe Größe) bzw die ganze Runde wiederholen. Bei der 2. Runde strickt man dann: *1 Umschlag, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M li*, von *-* wiederholen = es sind jetzt 6 M in jedem A.1 und insgesamt 102 bis 120 M übrig. Die letzten Reihen A.1 (1 M re, 1 M links) stricken. dieses Video zeigt, wie man das Diagram strickt. Viel Spaß beim stricken!

28.03.2023 - 09:58

country flag Nurse_Jitka wrote:

Nějak nestíhám...70 ok rukáv...ubereme 7x2 oka...máme 42ok? Asi OPRAVDU jsem blondýna a neumím počítat,ale ať se snažím jak se snažím,pod 56 ok se nedostanu...

12.01.2023 - 19:49

DROPS Design answered:

Dobrý den, Jitko, blondýnka možná jste, ale blondýna určitě ne :-) U tohoto modelu je na rukávu fígl, který bohužel není z textu zcela zřejmý (opravíme!): na rukávu jsou 2 značky a ujímat je třeba 1 oko na obou stranách OBOU značek. Tedy v 1 kruh.řadě ujmeme 4 oka, nikoli (jak je obvyklé) 2. Pak už počty sedí. Díky za podnět k návodu a přeji mnoho zdaru při pletení, Hana

13.01.2023 - 12:18

country flag Myriam De Meyer wrote:

Bij beschrijving van de mouwen staat er vanaf de boorsteek: met een pijl in A.2 . Moet dit niet A.3 zijn?

06.09.2022 - 22:10

country flag Josephine wrote:

Popcorn

18.01.2022 - 19:22

country flag Dianne wrote:

Baubles

17.01.2022 - 22:34