DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Echo Mountain Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-17
DROPS Design: Mynstur w-863
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-650-700-750-800-850 g litur 100, ljós þveginn

DROPS TALA NR 522: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun.
Byrjið frá röngu, prjónið þar til 16-16-18-18-20-20 lykkjur eru á prjóni, snúið stykki, herðið á þræði og prjónið þar til 16-16-18-18-20-20 lykkjur eru eftir í hinni hliðinni.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 lykkjur í hinni hliðinni.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 48-48-54-54-60-60 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 48-48-54-54-60-60 lykkjur í hinni hliðinni.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu út umferðina. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka ef óskað er eftir því. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 97-101-105-105-109-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni lykkju = 118-123-128-128-133-138 lykkjur.
Haldið áfram með stroff – ATH. Í fyrstu umferð er uppslátturinn frá útaukningu prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-10-11-15-18-21 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 127-133-139-143-151-159 lykkjur.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið gerð til loka, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.
Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í berustykki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan í 2-3-3-4-4-5 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 16-20-24-30-32-34 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 143-153-163-173-183-193 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 13-14-15-16-17-18 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (án þess að auka út) þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 247-265-283-317-336-355 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 6-8-10-8-5-6 lykkjur jafnt yfir = 253-273-293-325-341-361 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 42-45-48-52-56-60 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 73-79-85-93-101-109 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 42-45-48-52-56-60 lykkjur (framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 169-181-197-213-233-253 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-46-50 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 203-217-237-255-279-303 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 3-5-8-8-9-11 sinnum = 48-48-48-56-56-56 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-30-29-28-26-25 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan gatamynstri og stroffi.
Prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum hringinn á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Haldið áfram með stroff með 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er önnur hver 1 lykkja brugðið aukin út til 2 lykkjur brugðið = 60-60-60-70-70-70 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúna slétt, prjónið 1 lykkju snúna slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni og setjið hana til baka yfir á vinstri prjón, setjið til baka fyrri lyftu lykkjunni snúna á vinstri prjón og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúna slétt, prjónið 2 lykkjur snúna slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

symbols = færið byrjun á umferð um 1 lykkju til hægri (á einungis við um þessa umferð)
symbols = þessi lykkja er ekki til þar sem byrjun á umferð hefur verið færð til
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Elze Ten Berge wrote:

Hey, hoe vertaal ik een patroon?

05.04.2024 - 16:28

DROPS Design answered:

Dag Elze,

Onderaan de materialenlijst en vlak boven de instructies voor het het patroon zie je de taal staan. Klik op het driehoekje ernaast om een andere taal te kiezen.

07.04.2024 - 17:59

country flag Irene Torsvik wrote:

Kunne dere sende denne oppskriften til meg. Lettere for meg å lese den på papir. Har kjøpt garnet tidligere. Tusen takk for hjelpen

04.04.2024 - 12:32

DROPS Design answered:

Hej Irene, det kan vi ikke, men du kan sikkert få hjælp til at skrive opskriften ud i butikken hvor du har købt garnet eller på biblioteket :)

04.04.2024 - 15:39

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, peut-on remplacer les 6 m mousse de bordure devant par 6 m en côtes torses (comme le col)? Et est-ce que ce sera joli? Merci beaucoup pour votre réponse

19.03.2023 - 14:46

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, faites un essai pour voir si cela vous convient, c'est la meilleure façon de le savoir. Bon tricot!

20.03.2023 - 09:05

country flag Pia wrote:

Jeg strikker i str. xl Når jeg er nået til bærestykket bliver jeg lidt forvirret. Jeg har 143 masker på pinden og skal tage 30 masker ud til 173 masker. Når jeg så skal til at strikke mønster A.1 kan jeg ikke få maskerne til at gå op i mønster. Man skal strikke 6 kant masker og så A.1 start med 10 masker som man så skal strikke 16 gange (10x16 = 160) så 6 kant masker og når jeg så regner det samme så er det 172 masker. Hvor skal den sidste maske strikkes.

30.11.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Hej Pia, det lyder til at du har glemt den ene maske inden de sidste 6 kantmasker. Sådan her står det i opskriften: ..... strik første maske i A.1 (uden at tage ud) så mønsteret starter og slutter ens, og afslut med 6 kantmasker retstrik.

01.12.2022 - 14:14

country flag Sabrina wrote:

What does "work A.2 6-6-6-7-7 times in total" (EN) or in DE: "A.2 insgesamt 6-6-6-7-7-7 x in der Runde stricken" mean when knitting the sleeves? Does that mean that I work the first six rows of A.2? Or do I really knit a total of 48 rows (8 rows of A.2 six times) for size M?

02.08.2022 - 12:59

DROPS Design answered:

Dear Sabrina, this means you have to repeat the 8 sts in A.2 a total of 6-6-6-7-7-7 times over the 48-48-48-56-56-56 stitches on the round. Start reading diagram from the right corner on the bottom and read every round towards the left from the first towards the last row. Happy knitting!

02.08.2022 - 13:23

country flag Maria wrote:

Bom dia. Muito obrigada pela resposta, mas desculpe insistir: o canelado das mangas passa a ser uma liga, uma meia, duas liga , uma meia, sempre alternadas? Faz-se como as malhas se apresentam depois do aumento e, deste modo , fica com uma liga e a seguir com duas ligas? tentei ver pela fotografia do modelo, mas não consegui perceber... Muito obrigada.

06.07.2022 - 10:49

DROPS Design answered:

Bom dia, Sim, o canelado do corpo e das mangas passa a ser: 1 malha liga, 1 malha meia, 2 malhas liga, 1 malha meia (repete-se sempre este motivo). Estes aumentos servem para preparar a largura do encaixe. O canelado acaba pouco depois, pelo que se não se consegue ver os aumentos nas fotos. Bons Tricôs!

08.07.2022 - 08:25

country flag Maria wrote:

Boa tarde O modelo é muito bonito e estou a fazê-lo e surgiu-me um problema: nas mangas, quando diz para fazer um aumento de mais uma malha liga para dar 60 malhas, o canelado não coincide, porque passar de ula liga, outra meia para depois de forma alternada fica uma meia e duas de liga. É isso? Muito obrigada

04.07.2022 - 17:34

DROPS Design answered:

Bom dia, Sim, o canelado passa a ter 2 malhas liga. Bons tricôs!

06.07.2022 - 10:00

country flag Cornelia Becker wrote:

Hallo, ich kann im Moment keine Anleitung auf mein Smartphone runterladen! Es erscheinen nur leere Textspalten! Bei den Bildern der Strickobjekte geht das! Woran kann das liegen?

07.06.2022 - 11:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Becker, versuchen Sie den Cache zu leeren und die Cookies zu löschen, sollte es nicht helfen, dann sagen Sie uns bescheid, welche Browser Sie benutzen (seien Sie auch sicher, daß alle update sind). Hoffentlich kann das helfen.

07.06.2022 - 16:39

country flag Carol McMillan wrote:

Is the Knit 1 twisted the same as knit through back loop?

12.05.2022 - 17:51

DROPS Design answered:

Dear Carol, yes, it is. Happy Knitting!

13.05.2022 - 04:04

country flag Carol McMillan wrote:

What is a knit twisted stitch? Do you have an instructions with pictures or video?

12.05.2022 - 17:38