DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cotswolds Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með laskalínu og gatamynstri, ofan frá og niður. Stærð 0 – 2 ára.

DROPS Baby 43-2
DROPS Design: Mynstur fl-006-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-150-150 g litur 20, ferskjubleikur

DROPS TALA NR 628: 5 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu nákvæmlega eftir kant í hálsmáli.
Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 4½-4½ 5-5½-6 cm millibili.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Á framstykki og bakstykki eru útaukningarnar teiknaðar inn í mynsturteikningu. Á ermum er aukið út þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt.
Í næstu umferð er uppsláttur prjónaður í útaukningu snúinn slétt, svo ekki myndist gat!
Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 10-12-14-16-17 sinnum.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 93-93-93-111-111 lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Flora.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3.

BERUSTYKKI:
Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Í fyrstu umferð frá réttu eru sett 4 prjónamerki í stykkið, aukið út og prjónið mynstur þannig:
Framstykki: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 er prjónað 0-0-0-1-1 sinni, A.3.
Ermi: Setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi).
Bakstykki: A.4, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3.
Ermi: Setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju.
Framstykki: A.4, A.2 er prjónað 0-0-0-1-1 sinni, A.5 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA á ermi - lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 er prjónað 1-1-1-2-2 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermar eins og áður fram til og með 2. prjónamerki, A.4, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram til og með 4. prjónamerki, A.4, A.2 er prjónað 1-1-1-2-2 sinnum, A.5 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið mynstrið á hæðina. Í hvert skipti sem A.3 og A.4 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.2 á hvoru framstykki og 2 mynstureiningar fleiri á bakstykki. Þegar A.3 og A.4 hefur verið endurtekið alls 2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, hefur útaukning verið gerð til loka á framstykkjum og á bakstykki, haldið einungis áfram með útaukningu á ermum eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með mynstur á bakstykki eins og áður, nema án útaukningar.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 189-197-229-255-259 lykkjur í umferð. Nú er mynstrið prjónað þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 7 lykkjur, A.2 er prjónað 3-3-4-5-5 sinnum, 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum, 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 3-3-4-5-5 sinnum, A.5 og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar 5. umferð í A.2 er prjónuð á bakstykki, prjónið slétt yfir fyrstu lykkju í fyrstu mynstureiningu, síðasta lykkjan í síðustu mynstureiningu er prjónuð yfir fyrstu lykkju á ermi.
Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 25-25-31-37-37 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 24-24-30-36-36 lykkjur mynstur eins og áður og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 127-127-151-169-169 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1, prjónið A.2 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.5 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 9-12-13-15-17 cm frá skiptingu, aukið út um 20-20-22-26-26 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 147-147-173-195-195 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff og kant að framan í garðaprjóni í 3 cm. Fellið af. Peysan mælist alls ca 24-28-30-33-36 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 37-41-45-49-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-47-51-55-57 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-2-2½ cm millibili alls 3-5-6-7-8 sinnum = 37-37-39-41-41 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10-12-15-16-22 cm frá skiptingu aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir = 42-42-44-46-46 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm.
Ermin mælist ca 13-15-18-19-25 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Louise-Marie Casseron wrote:

Merci pour votre réponse, je viens de comprendre que je lisais d'une façon incorrecte les explications (je ne tenais pas compte des virgules) toutes mes excuses

04.04.2024 - 13:59

country flag Louise-marie Casseron wrote:

Merci pour votre réponse. Là, je suis au 5ème rang du diagramme (ou il y a des cases noires) .pour les devants pas de problème, mais pour le dos si j'ai bien compris j'ai 3 fois A4 (10+10+10) A2 (6) A3 (7) or je n'ai que 41 mailles alors qu'il en faudrait 43

03.04.2024 - 18:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Casseron, A.4 ne se tricote qu'une seule fois au début du dos, on répète ensuite A.2,et on termine par A.3, les augmentations des raglans sont les jetés au début de A.4 et à la fin de A.3; au 5è!me rang tricotez la dernière maille de A.4 avec la 1ère maille du A.2 suivant, puis la dernière maille de A.2 avec la 1ère du A.2 suivant et la dernière maille du dernier A.2 avec la 1ère maille de A.3; ainsi vous conservez bien le bon nombre de mailles dans chaque diagramme. Bon tricot!

04.04.2024 - 08:08

country flag Louise-marie Casseron wrote:

Je veux faire la taille 1/3 mois. On demande de monter 93 mailles, or le premier rang des diagrammes n'a que 92 mailles

31.03.2024 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Casseron, tricotez ainsi: 6 m point mousse, A.1 (= 7 m), A.3 (=5m), 1 m end avec 1 marqueur, 12 m jersey (+ 4 m), 1 m avec 1 marqueur, A.4 (= 6m), 3 x A.2 (= 3x6=18 m au total), A.3 (= 5 m), 1 m end avec 1 marqueur, 12 m jersey (+ 4 m), 1 m avec 1 marqueur, A.4 (= 6 m), A.5 (= 6 m) et 6 m point mousse = 6+7+5+1+12+1+6+18+5+1+12+1+6+6+6=93 mailles (+ les augmentations des manches et des diagrammes). Bon tricot!

02.04.2024 - 14:50

country flag Florine wrote:

Bonjour, Merci pour ce retour. Je ne comprends pas car lorsque l’on calcule le nombre de mailles dans les explications qui précèdent la fin des augmentations, le dernier rang, on a 219m: 6m mousse, A1(7m), 2xA2(2x6m), A3(11m), 41m manche, A4(12m), 7xA2(7x6m),A3(11m), 41m manche, A4(12m), 2xA2(2x6m), A5(6m), 6m mousse Ça donne 219 mailles, ce que j’ai… Alors qu’il est indiqué qu’on doit avoir 197m Merci d’avance

22.03.2024 - 17:52

DROPS Design answered:

Bonjour Florine, tricotez vos 197 mailles ainsi: 6 m bordure, 7 m de A.1, 18 m de A.2, 41 m jersey, 54 m de A.2 (9 fois), 41 m jersey, 18 m A.2 (3 fois), 6 m A.5 et 6 m de bordure, autrement dit, on ne tricote plus A.4 ni A.3 car les augmentations sont terminées. Bon tricot!

02.04.2024 - 08:03

country flag Florine wrote:

Bonjour, Je fais ce modèle pour la taille 1/3 mois. Je me retrouve à l’endroit où toutes les augmentations sont terminées mais j’ai 219 mailles et non 197 comme attendu dans les explications. J’ai pourtant bien ajouté 1 motif de A2 pour chaque devant et 2 pour le dos lors du dernier motif, bien fait mes 12 augmentations pour la raglan, je ne comprends pas Pouvez vous m’aider ? Merci d’avance Florine

22.03.2024 - 14:59

DROPS Design answered:

Bonjour Florine, vous aviez 93 m, vous avez augmenté 4 m pour chaque manche (8 m au total) + 12 x 2 mailles x 2 manches = 48 m + dans les diagrammes pour les devants et le dos: 24 mailles à chaque fois que les 8 rangs des diagrammes ont été faits x 2 motifs en hauteur = 48 augmentations pour le raglan des devants et du dos soit: 93+8+48+48=197 mailles. Bon tricot!

22.03.2024 - 15:26

country flag Sofi wrote:

Bonjour, je fais un 2ans, quand vous dites quand A3 et A4 ont été tricotés 3 fois en hauteur arrêtez les augmentations des devants et dos", on compte le nb de A3 et A4 à partir des côtes ou après la 1ere hauteur de diagramme fait? Merci

19.03.2024 - 11:29

DROPS Design answered:

Bonjour Sofi, vous comptez le nombre de fois que vous avez tricoté les diagrammes en hauteur, soit 8 rangs pour chaque motif en hauteur x 3 = 24 rangs. Bon tricot!

19.03.2024 - 15:17

country flag Jacquelien VAsselt wrote:

Ik kom niet uit met het steken aantal dus lukt het Patroontje niet om te breien

11.03.2024 - 16:10

DROPS Design answered:

Dag Jacquelien,

Misschien kun je aangeven waar je precies bent, welke maat je breit en hoeveel steken je overhoudt of tekort komt, dan kunnen we je wellicht beter helpen.

11.03.2024 - 20:39

country flag Sofi wrote:

Bonjour, je vous remercie pour vos explications, c est la 1ere fois que je m attaque à un projet, plus compliqué, vos explications avec le détail du nombre de mailles m aident bien, est ce possible de les avoir aussi à d autresxetapes que celles notées sur le tuto. De plus quand vous dites après les augmentations des devants et du dos, continuer sur le "point ajouré sans augmenter" ça veut dire qu on ne fait que le diagramme A2? Merci

11.03.2024 - 14:56

DROPS Design answered:

Bonjour Sofi, en fait, à chaque fois que vous tricotez les diagrammes en hauteur, vous augmentez 6 mailles soit suffisamment de mailles pour 1 motif de A.2 en plus de chaque côté: vous avez ainsi 11 m dans A.3 et 12 m dans A.4 , au rang suivant = motif suivant en hauteur, vous tricotez 1 x A.2 + A.3 = 5 m au-dessus du A.3 précédent et A.4 = 6 m + 1 x A.2 au-dessus du A.4 précédent. Lorsque les augmentations sont terminées, notez dans le diagramme où vous en êtes et tricotez simplement comme avant, sans les jetés noirs, puis tricotez comme dans le descriptif quand vous avez le bon nombre de mailles. Bon tricot!

11.03.2024 - 15:50

country flag Sofi wrote:

Bonjour, j ai fait la 1ere hauteur du diagramme, au niveau du dos, il est noté ( je fais taille 2ans)1er Rang du diagramme A4 6 fois(6*6mailles), A2 (6mailles), A3 (5 mailles), soit 47 mailles, mais j ai 65 mailles pour le dos qui pour moi correspondent bien au nombre total de la fin du 1er diagramme A4 4 fois (12*4 mailles), A2 6 mailles, A3 11 mailles soit un total de 65 mailles.....je ne comprends donc pas ce que je dois faire.... Merci pour votre retour.

09.03.2024 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Sofi, Lorsque les diagrammes ont été tricotés 1 fois en hauteur, vous avez avoir 47 mailles pour le dos (12 m de A.-1, 4x6 m de A.2 et 11 m de A.3); notez que c'est A.2 que l'on doit répéter pas A.4, autrement dit tricotez: A.4, répétez 6 fois A.2 et terminez par A.3; quand vous avez tricoté les diagrammes 2 fois en hauteur vous aurez alors 59 mailles (12 m A.1, 36 m A.2 et 11 m A.3). Bon tricot!

11.03.2024 - 08:10

country flag Andrea wrote:

Hola. No se en que me estoy equivocando pero para la talla 9 a 12 meses .no me coinciden los puntos al momento de decorar las partes entre mangas frente y espalda.me sobran 4 puntos. Al principio cuando coloco los marcador cada Delantero 18 . Mangas 16. Espalda 29 con las repetic. ..si sumo no da 93...por favor ayúdeme . No se en que me estoy equivocando..muchas gracias por su tiempo.

16.02.2024 - 02:16

DROPS Design answered:

Hola Andrea, los marcapuntos se insertan dentro de puntos. Deberías tener: 18 puntos (delantero), punto con marcapuntos (= 1), 12 puntos en la manga (aumentas 4 puntos para la siguiente fila), punto con marcapuntos (=1), 29 puntos (espalda), punto con marcapuntos (=1), 12 puntos en la manga (aumentas 4 puntos para la siguiente fila), punto con marcapuntos (=1), 18 puntos (delantero). 18+1+12+1+29+1+12+1+18 = 93 puntos, más los 8 aumentos en las mangas = 101 puntos.

18.02.2024 - 20:17