DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Nougat Dreams

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-12
DROPS Design: Mynstur ks-195
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-200-200-225 g litur 42, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið er út um 2 lykkjur við hverja laskalínu þannig:
Prjónið fram að laskalínu, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hverja laskalínu (= 8 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN LASKALÍNU:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn, prjónið slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri).
Á EFTIR LASKALÍNU:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff svona í 4 cm.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið = 132-138-144-150-156-162 lykkjur. Haldið áfram með stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm (alls 7 cm stroff).
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Prjónið þannig – frá ca mitt að aftan: 21-24-27-30-33-36 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ca hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 23 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (lakskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 41-44-47-50-53-56 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína) sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 23 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki)= 128-134-140-146-152-158 lykkjur.
Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið.
Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-16-19-20-24-26 sinnum hvoru megin við laskalínu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 232-254-284-298-336-358 lykkjur í umferð.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 33-38-44-48-55-60 lykkjur slétt (ca hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-58-60-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 68-75-84-89-100-107 lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 48-52-58-60-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-37-40-41-45-47 lykkjur sem eftir eru slétt (ca hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-162-180-194-216-234 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32-36-38-44-46 lykkjur jafnt yfir = 176-194-216-232-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff svona í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-58-60-68-72 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-68-76-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 10-5-2-2-1½-1 cm millibili alls 2-3-4-5-7-8 sinnum = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-17-16-16-15-15 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 58-60-64-66-70-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 23-23-22-22-21-21 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.03.2022
Leiðréttur lykkjufjöldi í kanti í hálsmáli + berustykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Nougat Dreams

Silvia, Germany

Nougat Dreams

Woll-Elli, Germany

Nougat Dreams

Karen, Australia

Nougat Dreams

Sanne Friis Christensen, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Vibeke wrote:

Hej\r\nJeg strikker Nougat Dream, har strikket de 7 cm ribkant og skal begynde på bærestykket, men kan ikke finde ud af om jeg både skal tage ind og ud\r\nJeg strikker str M

27.03.2024 - 12:20

country flag Tina Bonde Spejlsgaard wrote:

Har problemer med str. S. Jeg har fulgt opskriften, og ender samlet set på 232 masker. Men fordelingen stemmer ikke. Jeg får denne fordeling; ryg 57, forstykke, 69, ærmer 2 x 51 + de 4 raglanmasker. Kan I hjælpe? Tak.

29.02.2024 - 16:26

DROPS Design answered:

Hej Tina, du skal dele op ifølge opskriften. 33m bagst, 48 ærme, +6m under ærmet, 68m forstykke, 48ærme, + 6m under ærmet, 35m bagst. 33+6+68+6+35= 148 masker

05.03.2024 - 11:48

country flag Svanhild Dalsbø wrote:

Hei står at det er en endring på denne oppskrifta, får dessverre ikke den opp når jeg klikker på lenka. Finner heller ikke ut hvordan delinga mellom bol og ermer er etter 7mm vrangbord?

05.02.2024 - 10:07

DROPS Design answered:

Hei Svanhild. Dette kommer opp når du klikker på den røde linken: Oppdatert online: 31.03.2022 Rettelse maskeantall under Halskant + Bærestykke. Hva er det du ikke finner ut av etter halskanten/starten på bærestykket / 7 cm vrangbord? Oppgi hviken str. du strikker så skal vi hjelpe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 08:33

country flag Stefania wrote:

Ho letto che il n’di maglie per il collo-sprone è già corretto nel testo, ma a me non tornano i conti. Mi interessa la misura S. Potreste verificare? Grazie!

09.01.2024 - 21:12

DROPS Design answered:

Buonasera Stefania, potrebbe spiegarci cosa non le torna, per poter verificare? Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:30

country flag Lassimouillas Véronique wrote:

Bonjour, Je souhaite réaliser le pull Nougat Dreams avec une laine Drops Air en XXXL. Je suis grande 1,82 je voudrai le faire un peu plus long. D'après mes calculs j'aurai besoin de 4,5 pelotes. Pour rallonger le pull combien dois-je en rajouter ? Merci de votre réponse Véronique

09.09.2023 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lassimouillas, tout va dépendre de la différence de hauteur que vous souhaitez (de combien vous voulez le rallonger); nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, toutefois, votre magasin saura vous conseiller et vous renseigner, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

11.09.2023 - 09:09

country flag Alexandra Marshall wrote:

I cannot get the numbers to work out when I transition from the neck ribbing to the raglan an hope you can help. I'm doing size L, so I cast on 96. Then with the purl section increase I have 144. Then when I do the raglan sectioning I can't get it to work. On the first row, the sections are 27, 23, 47, 23, and 20 stitches with total 8 increases for the raglan and 12 decreases that are made in each section . That makes total 136 stitches (not 140) at the end of the round.

18.05.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marshall, note that you should knit 1 between yarn overs on the raglan: make 1 yarn over, knit 1 (raglan-line), 1 yarn over that's for sure the 4 stitches you are missing. Happy knitting!

19.05.2023 - 08:20

country flag Angelique Vladi wrote:

Je vous remercie

18.04.2023 - 17:07

country flag Angelique Vladi wrote:

"Continuer à tricoter sans augmenter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 19-21-23-25-27-29 cm depuis le marqueur." Ça veut dire 25 cm depuis la première ligne du col? Je suis en train de faire la taille M.

18.04.2023 - 11:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vladi, juste au début de l'empiècement, après les 4 cm du col, on place un marqueur, on va mesurer ces 19-21-23-25-27-29 cm à partir de ce marqueur, autrement dit après ces 4 cm du col. Bon tricot!

18.04.2023 - 14:04

country flag Thivuong wrote:

J’adore votre sites et j’apprécie votre tutoriels vidéos. J’aimerais tellement réaliser ce model , malgré je suis une débutante

24.02.2023 - 14:33

country flag Cristina Bernini wrote:

Non so dove trovare la correzione sul numero delle maglie collo-sprone

12.11.2022 - 23:07

DROPS Design answered:

Buonasera Cecilia, la correzione è già incorporata nel testo: il modello è già corretto. Buon lavoro!

12.11.2022 - 23:48