Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= natur | |
= eyðimerkurrós | |
= lime | |
= sinnep | |
= mosagrænn | |
= 2 lykkjur slétt saman með natur | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Spring Messenger |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og norrænu mynstri með túlipönum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-2 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði örlítið hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið við prjónamerki frá réttu, prjónið 15-16-16-17-17-18 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 30-32-32-34-34-36 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 45-48-48-51-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 60-64-64-68-68-72 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 75-80-80-85-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræðinum og prjónið 90-96-96-102-102-108 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að prjónamerki mitt að aftan. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-93-96-102-105-108 masker lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 21-19-20-22-23-28 lykkjur – sjá ÚTAUKNING = 108-112-116-124-128-136 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð = miðja að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón með litnum natur í 2-2-3-3-4-4 cm, mælt frá prjónamerki mitt að framan – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 108-114-120-126-132-138 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: A.1: Prjónið A.1 alls 18-19-20-21-22-23 sinnum hringinn á berustykki. Þegar 2. umferð í A.1 hefur verið prjónuð, eru 126-133-140-147-154-161 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1 er aukið út um 34-37-40-33-36-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 160-170-180-180-190-200 lykkjur (A.1 er nú prjónað 16-17-18-18-19-20 sinnum hringinn á berustykki. Áður en ör-2 byrjar eru 192-204-216-216-228-240 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-2 er aukið út um 24-28-32-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 216-232-248-264-280-296 lykkjur. A.2: Prjónið A.2 alls 27-29-31-33-35-37 sinnum hringinn á berustykki. Í umferð merktri með ör-3 eru 12-20-16-24-20-28 lykkjur jafnt yfir = 228-252-264-288-300-324 lykkjur. A.3: Prjónið A.3 alls 19-21-22-24-25-27 sinnum hringinn á berustykki. Í umferð merktri með ör-4 eru 12-12-16-24-28-36 lykkjur jafnt yfir = 240-264-280-312-328-360 lykkjur. A.2: Prjónið 4 fyrstu umferðir í A.2, alls 30-33-35-39-41-45 sinnum hringinn á berustykki. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur með litnum natur. Prjónið þar til stykkið mælist 22-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-40-42-46-50-56 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 72-80-84-92-100-112 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið 36-40-42-46-50-56 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-220-244 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar stykkið mælist 19-21-21-21-21-21 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 30-32-35-40-44-47 lykkjur jafnt yfir = 186-204-219-240-264-291 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-54-56-62-64-70 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-64-70-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-6½-3½-2-3-2 cm millibili alls 7-5-8-12-9-11 sinnum = 40-48-48-48-56-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 31-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú er prjónað A.2 alls 5-6-6-6-7-7 sinnum hringinn á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 35-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 8-9-9-9-10-10 lykkjur jafnt yfir = 48-57-57-57-66-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (37)
Pirkkoliisa Juhala wrote:
Hei! Onkohan ohjeessa virhe? Hihan viimeinen vaihe: "Neulo kunnes työn pituus jakokohdasta mitattuna on 35-35-34-32-31-29 cm, ja lisää SAMALLA tasavälein viimeisellä kerroksella 8-9-9-9-10-10 silmukkaa = 48-57-57-57-66-66 silmukkaa." Ainakin minulle hihansuusta tuli aika suuri ja väljä. Usein saman vahvuisesta langoista tehdyissä hihoissa on 40-48 silmukkaa.
27.05.2023 - 08:54DROPS Design answered:
Hei, silmukoita lisätään, jotta joustinneuleesta tulisi löyhempi. Voit halutessasi jättää lisäykset tekemättä. Tarkista kuitenkin, että silmukkaluku on kolmella jaollinen ennen kuin neulot joustinneuleen.
29.05.2023 - 16:46Liliane Maegh wrote:
Wat is recht samen naturel ?
06.05.2023 - 15:00DROPS Design answered:
Dag Lilianne,
Je breit de steken dan samen met de kleur naturel. Het is eigenlijk een beetje overbodig dat 'naturel' erbij staat, want je bent in dat stuk de hele tijd al in het naturel aan het breien.
17.05.2023 - 17:51Lene Jensen wrote:
Jeg kan ikke få maskeantallet til at stemme efter diagrammet. I str. XL. Når jeg har strikket 1. Hulrække får jeg 20 mønstre. Jeg strikker maskerne sådan 3 ret masker\r\nSlå om 3 retm o.s.v.\r\nOpskriften er meget svær at forstå
22.02.2023 - 10:50Dorothy Howarth wrote:
I am currently knitting design 232/2 aand believe there is a mistake once the yolk is finished. It states that I should continue knitting until there are 24 cms from marker mid front before dividing for body and sleeves. My knitting already measures 29 cms so I believe that instruction is incorrect. Can you please let me know the correct length at this point. Many thanks.
05.10.2022 - 17:14DROPS Design answered:
Dear Mrs Howarth, make sure you get the correct tension in height, ie you should have 22 rows stocking stitch/pattern = 10 cm in height, so that you should have 23 cm on mid front after last row A.2 (= 3 cm stocking stitch + 44 rows (A.1, A.2, A.3, A.2) (= 20 cm)). Happy knitting!
06.10.2022 - 08:13Janneke wrote:
Storlek M a.1- när man börjar med tulpanerna stämmer det inte med bilden. De blir inte mellan hålmönstret - det är ngt som inte stämmer i diagrammet. Jag har 19 motiv av hålmönster för att få rätt antal enl diagrammet när man börjar sticka tulpanerna blev jag tvungen att öka så det blev 190 maskor inte 170 maskor som ni anger.
08.05.2022 - 11:02DROPS Design answered:
Hei Janneke. Hsuk det økes både ved den sorte oval prikken i diagrammet og ved pilene. I str. M har du 114 masker når du skal starte å strikke etter diagram. A.1 = 6 masker og du strikker A.1 19 ganger = 114 masker. På 2. omgang av diagrammet skal det økes 1 maske (oval sort prikk) hver gang du strikker A.1, altså du øker med 19 masker + 114 masker = 133 masker. Når du skal strikke 6. omgang (omgang med pil 1) skal det økes med 37 masker jevnt fordelt = 133 + 37 = 170 masker. Bildet der du ser str. S kan avvike bittelitt siden du strikker str. M. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 12:04Janneke wrote:
Storlek M a.1- Jag har 19 motiv av hålmönster för att få rätt antal enl diagrammet när man börjar sticka tulpanerna blev jag tvungen att öka så det blev 190 maskor inte 170 maskor som ni anger.
06.05.2022 - 23:27Janneke wrote:
Storlek M - när man börjar med tulpanerna stämmer det inte med bilden. De blir inte mellan hålmönstret - det är ngt som inte stämmer i diagrammet.
06.05.2022 - 21:17Espe wrote:
Talla M, cuando tengo 133 p. al comenzar los tulipanes hay que aumentar 37 puntos, pero no coincide los dibujos con los calados cómo viene en el diseño y resulta poco coordinado. En la foto si se ve perfecto. Y en el jersey tulip season(el parecido a éste) también coincide de manera coordinada. Lo he desecho dos veces buscando una armonía
28.04.2022 - 15:57DROPS Design answered:
Hola Espe, el patrón de calados se trabaja dentro del patrón A.1, en las vueltas 2 y 4, y en A.2 en la vueltas 2 y 4 también. Los 37 puntos aumentados se trabajan según el TIP PARA LOS AUMENTOS - son los aumentos para el canesú redondo, no para los calados, por lo que no deberían de afectar al dibujo. Estos se trabajan en las filas marcadas con flechas.
05.05.2022 - 22:41Anita wrote:
Heel raar dat er onder aan de trui- voor de start van het breien van het boord- gemeerderd moet worden. Ik heb hetzelfde aantal steken aangehouden( heb dus niet gemeerderd) en vind het boord nog steeds te wijd. Daar moet iedereen toch last van hebben?
17.04.2022 - 18:49Nora wrote:
Hi, I'm not sure I understand A1 ->1 I'm working on size small. The pattern says to increase 34 sts when I have 126sts - 126/34 as written in increase tip doesn't make an even increase? Then after that the tulips don't align with the increase pattern like it's shown in the A1 chart. I'm I making a mistake somewhere? Thank you for to help :)
04.04.2022 - 22:19DROPS Design answered:
Dear Nora, increase as explained under increase tip - read more here - the tulips won't lined up over the lace pattern as you can see on the picture. Happy knitting!
05.04.2022 - 09:40