DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

December Bloom Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-45
DROPS Design: Mynstur li-137
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 9021, rauður múrsteinn

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 82, rauðbrúnn

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 186 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 174 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 10,2.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2-2-3-2-2-3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 113-117-121-129-133-137 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Karisma.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm, aukið út í annarri hverri 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 138-143-148-158-163-168 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-8-8 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 163-169-175-187-193-199 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-12-12 cm, aukið út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 188-195-202-216-223-230 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stroffið mælist 10-10-10-12-13-13 cm – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í 3. umferð (rétta), eru auknar út 15-18-21-25-30-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 203-213-223-241-253-265 lykkjur.
Eftir þessar 4 umferðir er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 19-20-21-19-20-21 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 298-313-328-355-373-391 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-19-23-24-24 cm frá uppfitjunarkanti.

Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorir hlið við miðju að framan.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 18-24-30-32-34-40 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 316-337-358-387-407-431 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21-21-21-25-26-26 cm, aukið út um 13-16-19-22-25-28 lykkjur jafnt yfir = 329-353-377-409-432-459 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð S, M og L – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-28-29 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8-9-14 lykkjur jafnt yfir = 417-441-473 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð XL, XXL og XXXL – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 329-353-377-417-441-473 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar og með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið nú eins og áður yfir fyrstu 52-56-59-65-70-76 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 93-101-107-119-129-141 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 52-56-59-65-70-76 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 209-225-241-265-289-313 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 55-59-63-69-75-81 lykkjur inn frá hvorri hlið. Nú eru 99-107-115-127-139-151 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Prjónið þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 55-59-63-69-75-81 lykkjum frá réttu á prjóni og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón.
Prjónið síðan stroff eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
= 55-59-63-69-75-81 lykkjur. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-17-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir = 72-76-82-90-98-106 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúin lykkja slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið ystu 55-59-63-69-75-81 lykkjur í annarri hlið á stykki á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-17-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir = 72-76-82-90-98-106 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff frá miðju að framan:
UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Setjið þær 99-107-115-127-139-151 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 129-139-149-165-181-197 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 66-70-76-84-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-96-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-14-18-19-20 sinnum = 50-52-56-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 52-56-58-60-62-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.11.2021
Leiðrétting: 2 mynsturtákn hafa verið fjarlægð, þau eru ekki notuð í mynsturteikningunni

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Gunn M Mathiassen wrote:

17 cm fra deling til armer og bol,og til vrangbord nede, kan det være rett. Jakken ser mye sidere ut på bildet. !

05.04.2022 - 21:22

country flag Raffaella wrote:

Buongiorno scusate quando lo schema dice “ Aumentare facendo 1 gettato dopo ogni sezione a rovescio, a sezioni alterne” sezioni alterne intende 1 aumento ogni ferro non più di uno giusto? Grazie

09.03.2022 - 08:33

DROPS Design answered:

Buonasera Raffaella, deve aumentare in una sezione a rovescio, saltare gli aumenti in quella successiva e aumentare in quella ancora dopo, e così via. Buon lavoro!

10.03.2022 - 23:15

country flag Deborah wrote:

Buongiorno scusate ho un problema col campione. Ho provato con i ferri da 3 ma non raggiungo i 10 cm montando 21 maglie dove sbaglio? scusate sono una principiante

04.03.2022 - 16:58

DROPS Design answered:

Buonasera Debora, deve rifare il campione con il numero di ferri che le permette di raggiungere le indicazioni. Buon lavoro!

04.03.2022 - 17:39

country flag Segalen wrote:

Bonsoir. A l empiècement comment on obtient 198 mailles pour la taille S. On continue à augmenter 15 mailles à intervalles réguliers. merci pour votre réponse.

21.01.2022 - 21:39

country flag Segalen wrote:

Bonsoir. A l empiècement comment on obtient 198 mailles pour la taille S. On continue à augmenter 15 mailles à intervalles réguliers. merci pour votre réponse.

21.01.2022 - 21:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Segalen, vous pensiez 298 je présume? on va augmenter comme indiqué dans A.1 autrement dit, on commence A.1 sur 10 mailles et, on augmente 2 m au 9ème rang, 1 m au 15ème rang et 2 m au 21ème rang; quand A.1 est terminé, vous avez: 6 m de bordure devant, 19 fois A.1 (= 19x15=285), la 1ère m de A.1 et 6 m de bordure devant soit: 298 m. Bon tricot!

24.01.2022 - 08:29

country flag Myra wrote:

How many yards or meters is in each skein of Drops Karisma (yarn group B)? Thank you.

19.01.2022 - 08:05

DROPS Design answered:

Dear Myra, Divide the total weight of yarn required for your size by 50 g (= 1 ball Karisma) and multiply it by the yardage/meterage of one ball - read more about DROPS Karisma here and find the list of DROPS stores shipping worldwide here. Happy knitting!

19.01.2022 - 08:59

country flag Yaşar wrote:

I love knit but I need pattern in my language❤️Do you think about Turkish pattern

24.11.2021 - 06:22

DROPS Design answered:

Dear Yasar, thank you very much much for your request, maybe one of our DROPS store could help you in between?

24.11.2021 - 07:58

country flag Welada Albazzaz wrote:

Thank you so much!

13.11.2021 - 10:13

country flag Welada Albazzaz wrote:

Hi.. im knitting december bloom jacket.. and in the diagram explanation there are two symbols for k2tog and ssk but in the diagram these symbols do not exist.. is there a mistake in the diagram? thank a lot

13.11.2021 - 01:11

DROPS Design answered:

Dear Welada, the diagram is just fine, the two symbols are just two eaxtra, which usually standard in these patterns. Happy Stitching!

13.11.2021 - 07:24

country flag Riikka wrote:

Har nu försökt skriva ut detta mönster December Bloom Jacket by DROPS Design flera gånger, men all text kommer inte med, verkar som om den är inlagd liggande, men då accepterar inte min skrivare den. Finns det något annat sätt att få ut mönstret, utan att behöva ha med dator/platta när man stickar.

25.10.2021 - 08:28

DROPS Design answered:

Hei Riikka. Har du trykket på "Skriv ut" ikonen eller hurtigtast Ctrl+P? Bruk "Skriv ut" ikonet og da vil du se at det er stående, men du kan ha andre innstillinger på din printer. Du kan evnt merke alt på siden (Ctrl+A) og så lime det inn i et word dok, men husk da å slette det du ikke behøver å ha med (f.eks alle bildene, hvilken video, reklame osv). mvh DROPS Design

25.10.2021 - 11:26