DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Swing by Spring

Prjónaður kjóll úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, blaðamynstri og stuttum blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-2
DROPS Design: Mynstur vs-074
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um pils):
Aukið út til skiptis fyrir og á eftir hverju prjónamerki (þ.e.a.s. fyrsta útaukning er gerð á undan hverju prjónamerki, önnur útaukning er gerð á eftir hverju prjónamerki o.s.frv.).
Aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri alls).
Aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki þannig:
Prjónið að prjónamerki, prjónið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri alls).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hlið á kjól):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-100-104-108-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.1 er lokið, eru 200-200-208-216-280-300 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 4-4-4-4-6-6 cm frá prjónamerki.
Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 8-8-8-8-10-10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 er lokið, eru 275-300-312-351-392-420 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-14-14-17-19-19 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. alls 16-16-17-20-22-22 cm frá uppfitjunarkanti).
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-84-88-99-116-126 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 167-184-200-223-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-12-12-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 83-92-100-111-128-138 lykkjur á framstykki og 84-92-100-112-128-138 lykkjur á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 151-168-184-207-236-256 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Prjónið 9-10-11-12-13-16 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 19-21-23-26-30-32 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 9-11-12-13-13-16 lykkjur slétt.
Aukið út um lykkjur fyrir pilsi þannig:
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING!
Aukið út til skiptis á undan og á eftir hverju prjónamerki í hvert skipti sem aukið er út í 6. hverri umferð alls 15 sinnum = 271-288-304-327-356-376 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar pilsið mælist 56-57-56-57-58-59 cm (nú eru eftir ca 8-8-11-11-11-11 cm að loka máli, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-0-6-3-4-4 lykkjur jafnt yfir = 272-288-310-330-360-380 lykkjur.
Prjónið síðan A.3 umferðina hringinn (= 34-36-31-33-36-38 mynstureiningar með 8-8-10-10-10-10 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 408-432-434-462-504-532 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING!
Kjólinn mælist ca 86-89-92-95-98-101 cm.

ERMI:
Setjið 62-66-68-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-74-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 12-11-10-8-7-5 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 54-58-66-74-78-82 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist ca 17-16-15-13-12-10 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2 + mynsturtákn.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 9 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónuð var í af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist stórt gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónuð var af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
symbols = prjónið 7 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Swing by Spring

@garnprat, Norway

Swing to Spring

Kristin Morsund Meling, Norway

Swing by Spring

Zsófi - Antha Knits, Hungary

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Yulia wrote:

Hi, a question on the body section. What does it mean by increase alternately before and after every marker on every 6th round? Is it right if I do 1 row increase before marker (i.e. 8 sts increase) and 1 row increase after marker? Also is the count of every 6th round include the 2 rounds which I have increase of 8 sts each i.e. work in stockinette 4 rounds before the next increase?

03.07.2023 - 15:55

DROPS Design answered:

Dear Yulia, correct, the first time you will increase before each marker (increasing 8 sts on the round); then the next time you will increase after each marker (increasing 8 sts on the round) and repeat these, alternately before and after each marker. Increase like this: *Work 1 round with increase, 5 rounds without increase*, and repeat these 6 rounds. Happy knitting!

03.07.2023 - 16:03

country flag Yulia wrote:

Hi, do you have a video to work on dividing body and sleeve?

29.05.2023 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Yulia, sure, in this video we show from time code approx. 06:52 how to divide body and how to cast on new stitches for sleeve - and this lesson shows also from picture 9 how you will divide piece - both are for a raglan, but the same technique will be used with a circular yoke. Happy knitting!

30.05.2023 - 11:14

country flag Yulia wrote:

Hi, I am working on Yoke section up to the point dividing body and sleeves. After slipping stitches for sleeve, there are numbers of cast on on needle. Which needle does this refer to? The stitch holder for sleeve or needle on body? Thanks.

28.05.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Yulia, you cast on stitches for the side under the sleeve, so they are in the needle for the body and used as a placeholder for the location of the sleeves while you work the body. Happy knitting!

28.05.2023 - 18:58

country flag Yulia wrote:

Hi, on the neck edge: 1. How to switch to circular needle 4 mm from 3 mm? Moving all the stitches all doing another round of K1P1? I tried to move the stitches but having difficulty cause they are thight. 2. Where is the beginning of round mid back to insert 1 marker?

19.05.2023 - 18:12

DROPS Design answered:

Dear Yulia, when you start working A.1 in the yoke, which is the next row after the rib, you will start changing the needle size. You will be working with the 3mm needle on your left hand, from which you are working and slipping the stitches and a 4mm needle on your right hand, where you will have the new stitches. The beginning of the round is where you start working the round (which will be the mid back of the piece). That is, when you cast on 100 stitches, the beggining of the round would be the space between stitch 100 and stitch 1. Happy knitting!

21.05.2023 - 19:14

country flag Marie wrote:

Hej, jag vill sticka den här klänningen men utan hålmönstret i A2 och A3. Hur gör jag då för att få rätt ökningar?

16.03.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Hej Marie, du er nødt til at lave antal udtagninger ifølge diagrammet, så du får dem på de rigtige pinde :)

17.03.2023 - 09:00

country flag Anna Procházková wrote:

Dobrý den, nedaří se mi k návodu zobrazit a stáhnout diagramy, můžete mi je ev. poslat emailem? Předem děkuji, s pozdravem Procházková

19.04.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Dobrý den, Anno, opravili jsme vysvětlivky u schématu a nyní by již mělo být plně k dispozici. Ať se vám hezky plete! Hana

20.04.2022 - 07:04

country flag Lisbeth Friberg wrote:

Hei jeg finner diagrammet til S i A1 og A3 men ikke S i A2

08.04.2022 - 15:38

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth, A.2 i størrelse S er på toppen av diagrammene, på høyre siden. God fornøyelse!

11.04.2022 - 07:16

country flag Lisbeth Friberg wrote:

Hvor er diagrammet til A2 i small. Har spurt før men ikke fått svar

07.04.2022 - 13:07

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, det ligger øverst til højre på siden, lige under diagramforklaringen :)

08.04.2022 - 08:58

country flag Lisbeth Friberg wrote:

Hvor er diagrammet til S A2 ?

30.03.2022 - 09:53

country flag Lisbeth Friberg wrote:

A2 9 masker i samme maske men det er avmerker bare 7 i diagrammet . Hvordan skal jeg lese det ?

24.03.2022 - 16:23

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth, Ruten med åpen stjerne er å strikke 9 masker i samme maske. God fornøyelse!

28.03.2022 - 06:57