Pink Peony Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð 3 – 14 ára.
DROPS Baby & Children 38-22 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá RÉTTU) Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá RÖNGU) Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka (þ.e.a.s. í skiptingunna á milli kants í hálsi og berustykkis). Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-6-6½-6-6-6½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-104-108-112 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-19-23-23-23-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 115-119-127-127-131-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantar að framan). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt að þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau. 1. prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 23-24-23-23-24-25 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. 2. prjónamerki: Teljið 16-16-22-22-22-22 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. 3. prjónamerki: Teljið 37-39-37-37-39-41 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. 4. prjónamerki: Teljið 16-16-22-22-22-22 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 23-24-23-23-24-25 lykkjur eftir á framstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan, A.2 yfir næstu 18-19-18-18-19-20 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 16-16-22-22-22-22 lykkjur, A.3 yfir næstu 37-39-37-37-39-41 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 16-16-22-22-22-22 lykkjur, A.4 yfir næstu 18-19-18-18-19-20 lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. A.1 sýnir eina mynstureiningu af mynstri. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Athugið að einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út fyrir axlarsæti þannig: Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu þannig að lykkjurnar liggi fallega. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 12-16-20-22-24-26 sinnum = 163-183-207-215-227-239 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1, passið uppá að A.1 passi yfir lykkjurnar frá A.2, A.3 og A.4. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum, mynstur eins og áður á fram- og bakstykki og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Athugið að nú er einungis aukið út á ermum, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-17-15-16-18-19 sinnum = 215-251-267-279-299-315 lykkjur. Stykkið mælist ca 12-16-15-17-19-21 cm frá prjónamerki við háls. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við hver prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Aukið nú út lykkjur á framstykki, bakstykki og á ermum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á bakstykki / framstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-2-2-1-0-0 sinnum = 255-267-283-287-299-315 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 15-17-17-18-19-21 cm frá kanti í hálsmáli. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukningar að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 40-42-45-46-48-51 lykkjur (framstykki), setjið næstu 52-54-56-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 lykkjur undir ermi, prjónið 71-75-81-83-87-93 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 52-54-56-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 40-42-45-46-48-51 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 167-175-187-195-203-215 lykkjur. Prjónið A.1 fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorir hlið við miðju að framan, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1 í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12-12-15-16-17-17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-36-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 203-211-223-235-247-259 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónið frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 34-36-40-44-46-48 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-54-56-56-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-62-64-66-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 5-6-10-13-15-17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 9-10-14-17-19-21 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (27)
Debbie wrote:
So after reading forward I notice it is correct to have 117 from band to band. You should mention that if you include the band stitches the total stitches will be as stated.
04.05.2024 - 20:25Debbie wrote:
I am making the 3rd size. It says I need 127 stitches between band markers but I keep ending up with 117 when I follow the increase in tip1 . Am I reading the pattern correctly?
04.05.2024 - 16:04DROPS Design answered:
Dear Debbi, In the advice you have an EXAMPLE on how to calculate the increases. In the case of this particular sweter and the 3d size you start with 104 stitches, if you take out the button band stitches (5x2), you will have 94 stitches. If you divide this with the 23 stitches you need to increase, you get 4,08. So, you need to increase every 4th sitches, (94:4= 23,5 stitches increase, just make sure you place the increases so you increase 23 stitches and forget/leave out that "half stitch". Happy Knitting.
04.05.2024 - 20:05Veronique wrote:
Bonjour je me demande si il n'y a pas une erreur dans le nombre de mailles entre la taille 3 4 ans et la taille 5 6 ans les écarts semblent énormes pouvez vous m'éclairer svp merci
17.04.2024 - 09:38DROPS Design answered:
Bonjour Véronique, je ne suis pas bien sûre de comprendre de quel écarts vous parlez, mais vous pouvez retrouver toutes les mesures pour chaque taille dans le schéma - retrouvez ici comment lire le schéma des mesures. Bon tricot!
17.04.2024 - 11:17Halina wrote:
Dlaczego schemat pokazuje, aby dziurki wykonywać co ósmy rząd, to jest w rzędach parzystych skoro prawa strona robótki reprezentuje rzędy nieparzyste?
31.03.2024 - 21:22DROPS Design answered:
Witaj Halino, schemat przedstawia wszystkie rzędy robótki, z widokiem na prawej jej stronie. Narzuty są wykonywane w rzędach nieparzystych, czyli na prawej stronie robótki. Na lewej stronie robótki przerabiamy narzuty na lewo. Pozdrawiamy!
31.03.2024 - 21:50Louise wrote:
Bonjour à vous, j’aimerais comprendre le point fantaisie avec les augmentations…je n’arrive pas à suivre le modèle pour avoir les mailles ajourées aux bons endroits…pouvez-vous me donner un exemple en utilisant la grandeur 5/6 ans…Merci à l’avance!
30.03.2024 - 22:29DROPS Design answered:
Bonjour Louise, tricotez simplement les augmentations en jersey jusqu'à ce que vous ayez suffisamment de mailles pour tricoter un motif du point ajouré (vous devez toujours avoir 1 jeté pour 1 diminution dans le point ajouré pour que le nombre de mailles tombe juste). Quand vous augmentez au début du point ajouré, tricotez les nouvelles mailles en lisant le diagramme 1 m en plus à droite, à la fin du point ajouré, tricotez les nouvelles mailles en lisant le diagramme 1 m en plus à gauche et pour le dos, 1 m en plus de chaque côté. Bon tricot!
02.04.2024 - 14:37Marjo wrote:
De knoopsgaten iomenbop het rechter voorpand en dat is dus aan het begin van de naald, niet aan het eind zoals in het patroon staat
01.02.2024 - 21:12Candier wrote:
Bonjour, je ne comprend pas vos explications pour monter les augmentations en même temps des épaules et du dos . Pourtant ce n'est pas d’aujourd'hui que je tricote. Mais la je capte pas Cordialement
21.07.2023 - 15:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Candier, on va d'abord augmenter pour les épaules: 1 maille pour chaque devant et 2 mailles pour le dos (4 m au total à chaque fois) - cf cette vidéo, puis on va augmenter pour les manches: 2 m pour chaque manche (4 m au total); et enfin pour l'empiècement: 1 m pour chaque devant et 2 m pour chaque manche et pour le dos. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!
28.07.2023 - 08:41Raile wrote:
Tõlkimisel on segamini läinud enne ja pärast terminid varruka kasvatamisel: KASVATUSED VARRUKAL: Jätka parempidises koes ja mustriga, tee 5 nööbiliistusilmust mõlemal küljel ripskoes. SAMAL AJAL kasvata järgmisel töö parempoolsel real 4 silmust järgmiselt: kasvata 1 silmus ENNE 1. ja 3. silmusemärkijat ning PÄRAST 2. ja 4. silmusemärkijat. Silmuste arv esi- ja seljaosal jääb samaks, silmuste arv kasvab varrukatel
03.06.2023 - 05:47Estela wrote:
Hermoso!!!! Muchas gracias!!!! Me pareció excelente la explicación ....lo intentaré....gracias!!!!!!!!
19.07.2022 - 15:17Undine wrote:
Es ist wirklich nicht verständlich, wie mit den nicht in A1 passenden Maschen unter den Armen verfahren werden soll. Sie haben nun 2x dieselbe Antwort gegeben, aber es wird nicht klar. Geben Sie doch bitte ein Beispiel für die verbleibenden, rechts zu strickenden Maschen anhand der kleinsten Größe. Werden die Rapporte dort einfach mit weniger rechten Zwischenmaschen gestrickt oder mit mehr rechten Maschen? Bitte genauer erklären.
05.04.2022 - 17:34DROPS Design answered:
Liebe Undine, A.1 stricken Sie wie zuvor bei den beiden Vorderteile und bei dem Rückenteil aber unter den Armen stricken Sie einfach nur glatt rechts. Das Lochmuster muss in der Höhe und in der Breite wie zuvor gestrickt werden, aber am Übergang zwischen Vorderteil und Rückenteil haben Sie kein Lochmuster, nur glatt rechts. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
06.04.2022 - 07:49