DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Crushed Walnuts

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-16
DROPS Design: Mynstur ab-112
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-350-350 g litur 2020, ljós beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. (mynsturteikning A.5 til A.6 á við um stærð XL, XXL og XXXL).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim 73 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 24,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 24. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 23. og 24. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-10-8½-9-9-9½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-90-96-99-102-105 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með A.2 yfir síðustu 7 lykkjurnar.
UMFERÐ 2: Prjónið A.2 yfir fyrstu 7 lykkjur, * 1 lykkja snúið brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúið brugðið, A.1 yfir síðustu 7 lykkjur.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3-4-6-7-12-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 90-94-102-106-114-122 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúið brugðið og kantur að framan er prjónaður eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan eins og áður í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur og aukið út þannig:
FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 19-20-22-23-25-27 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.2 yfir síðustu 7 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru 128-134-146-152-164-176 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 129-134-149-154-164-179 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL er aukið út um 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður til) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í sléttprjóni og 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-9-10 cm aukið út þannig:
ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.4 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-24-27-28-30-33 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.2 yfir síðustu 7 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, eru 175-182-203-210-224-245 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 174-184-204-212-224-248 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út).
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-16-16-18 cm, prjónið svona mismunandi eftir stærðum:

STÆRÐ S, M og L:
Prjónið nú mynstur og aukið út þannig:
ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, A.4 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 32-34-38 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.2 yfir síðustu 7 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 238-252-280 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni með kantlykkjum að framan eins ogáður þar til stykkið mælist 20-22-24 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið nú mynstur og aukið út þannig:
ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.5 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 33-35-39 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.2 yfir síðustu 7 lykkjurnar.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 278-294-326 lykkjur í umferð. Prjónið 1umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 280-294-329 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL er aukið út um 2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður til). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-24 cm, prjónið þannig:
FJÓRÐA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, prjónið 13-10-14 lykkjur sléttprjón, A.6 yfir næstu 7 lykkjur, 22-14-21 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 28-25-28 lykkjur eru eftir í umferð, A.6 yfir næstu 7 lykkjur, 14-11-14 lykkjur sléttprjón,A.2 yfir síðustu 7 lykkjur.
Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 298-320-351 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælst 26-28-30 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 39-41-45-48-51-56 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-76-84-90-99 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 39-41-45-48-51-56 lykkjur (= framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-172-186-200-212-235 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu aukið út um 13-14-18-19-22-23 lykkjur jafnt yfir = 171-186-204-219-234-258 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: A.1 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, A.2. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: A.2 * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, A.1. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-67-69-74-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-5-2-2-1½-1 cm millibili alls 4-4-7-7-8-10 sinnum = 48-52-53-55-58-62 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni þar til ermin mælist 25-24-22-20-19-17 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-1-2-1-1-2 lykkjur jafnt yfir = 48-51-51-54-57-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 28-27-25-23-22-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = 1 lykkja snúin slétt (prjónað er frá réttu)
symbols = 1 lykkja snúin brugðið (prjónað er frá röngu)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Linda Harrison wrote:

I like this pattern and also Blue Glaze (Pattern no ai-332). Are they similar shaped patterns? The main difference I can see is that Blue Glaze has saddle shoulders. Is this correct? It is hard to see what sort of shoulders Crushed Walnuts has because of the yarn used. Thanks

14.12.2023 - 19:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Harrisson, correct, Blue Gaze has saddle shoulders while this one has a round yoke. The tension is also different on both patterns and measurements too, this one for example is somewhat wider (see measurement chart). Happy knitting!

15.12.2023 - 08:13

country flag Patricia wrote:

Je ne trouve pas le nombre de pelotes nécessaires pour faire les modèles (par exemple en XL) ?

20.01.2022 - 13:55

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, vous trouverez toujours toutes les quantités nécessaires pour chaque taille sous l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille L 250 g DROPS Alpaca Bouclé/50 g la pelote = 5 pelotes Alpaca Bouclé. Bon tricot!

20.01.2022 - 17:17

country flag RoyalCanin wrote:

Прошу прощения, что вмешался... Но мне очень близка эта тема. Могу помочь с ответом. Пишите в PM.

05.07.2021 - 04:42

country flag Karen wrote:

Skal økningene i A3 og A 4 utgjøre et mønster, slik atdet skal bli en rad med hull, eller skal kastet strikkes vridd på vrangen så det ikke blir hull?

25.06.2021 - 12:00

DROPS Design answered:

Hei Karen. Når diagrammet viser en oval sirkel mellom 2 masker lages det 1 kast om pinnen. På neste pinne strikkes kastet vrang, slik at det blir hull. mvh DROPS design

28.06.2021 - 13:10

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, nella sezione COLLO, quando dice "Alla fine delle coste, lavorare 1 ferro diritto dal diritto del lavoro in cui aumentare ecc", si intende che anche le 7 maglie del bordo devono essere lavorate a diritto? Grazie.

29.03.2021 - 09:37

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, può lavorare le maglie del bordo come prima. Buon lavoro!

30.03.2021 - 00:03

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, ho fatto una domanda ieri ma ho risolto da sola.

23.03.2021 - 13:44

country flag Barbara wrote:

Buonasera, ho difficoltà a capire i diagrammi A3 e A4. I gettati sono consecutivi? In A3, per esempio, faccio diritto, gettato, gettato, diritto, diritto? Oppure diritto, gettato, diritto, gettato, diritto, diritto? Grazie.

22.03.2021 - 19:20

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, in A.3 deve lavorare diritto, gettato, diritto, gettato, diritto, diritto. Buon lavoro!

23.03.2021 - 18:17

country flag Marianne wrote:

Heilt nyyydelig

14.02.2021 - 01:40

country flag Santos wrote:

Love the softness of te material. with soft colour and soft touch.

10.01.2021 - 08:18

country flag Karin wrote:

Namensvorschlag: Herbstjacke

09.01.2021 - 10:39