Nougat Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 191-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,037. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 6 næstu hnappagöt með ca 9-9-9-10-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Það má sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3-3-4-4-5-5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Einnig er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram og prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð við miðju að aftan (= 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið). Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorum enda. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur – lesið LEIÐBEININGAR, þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT eru auknar út lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): ATH: Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í umferð merktri með ör 1 er aukið út um 27-35-31-39-35-43 lykkjur jafnt yfir = 119-131-131-143-143-155 lykkjur. Í umferð merktri með ör 2 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 155-167-179-191-191-215 lykkjur. Í umferð merktri með ör 3 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 191-203-227-239-239-275 lykkjur. Í umferð merktri með ör 4 er aukið út um 34-34-34-34-46-46 lykkjur jafnt yfir = 225-237-261-273-285-321 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir (í síðasta skipti sem A.1 er prjónað í umferð eru einungis prjónaðar 10 fyrstu lykkjur í mynsturteikningu), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í umferð merktri með ör 5 er aukið út um 2-14-14-18-30-18 lykkjur jafnt yfir = 227-251-275-291-315-339 lykkjur. Skiptið yfir í litinn hveiti. Haldið síðan áfram með litnum hveiti, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan- passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.1 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 61-69-77-83-93-101 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-163-179-197-215-233 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka með litnum hveiti, sléttprjóni, 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-6-6 cm millibili alls 3 sinnum = 137-151-167-185-203-221 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-15-17-17-19-19 cm aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 157-171-187-205-223-241 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm aukið út um 11-13-13-15-17-19 lykkjur jafnt yfir = 168-184-200-220-240-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. ERMI: = 47-52-56-57-60-63 lykkjur. Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum hveiti = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-3.-3.-3.-3. hverri umferð 10-12-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-23 cm er aukið út um 1-4-2-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litinn natur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir í litinn hveiti, prjónið 1 umferð stroff eins og áður og fellið laust af með litnum hveiti og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist 35-35-34-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Luisa wrote:
50g farve 01 natur er ikke nok til størrelse XXL (og følgelig heller ikke til XXXL). Der er nok til bærestykket, men ikke til ærmerne. Jeg har strikket forhøjning i nakken, men selv uden den, ville der ikke have været nok.
26.12.2019 - 19:25Hilde Van Durpe wrote:
HALLO bij pijl 4 staat een uitleg die ik niet zo goed begrijp,
03.11.2019 - 10:13DROPS Design answered:
Dag Hilde,
Op de 5e pijl meerder je het aantal aangegeven steken verdeeld op de toer, net als bij de andere 4 pijlen. Daarna staat aangegeven hoe je A.1 breit. (wat door de meerderingen een beetje anders is). Dus je breit 5 voorbiessteken, de laatste steek in A.1 en dan herhaal je steeds A.1, waarbij je op de laatste herhaling van A.1 alleen de eerste 10 steken in patroon breit. Tot slot nog de 5 voorbiessteken.
05.11.2019 - 10:17Sofie wrote:
Hvor mange gram garn skal jeg bruge hvis jeg vil strikke denne cardigan i kun én farve, i str L og XL?
20.10.2019 - 22:09DROPS Design answered:
Hei Sofie. Det har vi desverre ikke oversikten over, men jeg tipper et sted mellom 400-500 garn. mvh DROPS design
21.10.2019 - 13:22Vibeke wrote:
Hei. Jeg har startet på mønsteret, men får det ikke til å stemme. Strikker i str. S og skal da ha 119 masker (minus 5 stolpemasker på hver side) etter 1. økning når mønsteret starter. Hva gjør jeg feil?
28.09.2019 - 23:36DROPS Design answered:
Hej Vibeke, du starter med 92 masker, ved pil 1 tager 27 masker ud jævnt fordelt (over maskerne imellem stolpemaskerne) og har da 119 masker. God fornøjelse!
01.10.2019 - 15:31Annarosa wrote:
Vorrei fare questo cardigan in tinta unita con filato A+A per una taglia M quanto filato dovrò ordinare per ogni capo di filo A? Grazie fin d’ora per la cortese risposta.
30.04.2019 - 14:00DROPS Design answered:
Buongiorno Annarosa. A questo link trova le indicazioni utili per sostituire i filati. Per ogni ulteriore aiuto, può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
30.04.2019 - 14:11Marit wrote:
Når jeg skal øke i str.S, første gang til 119 masker, er da stolpene iberegnet her. Eller blir det 119 masker pluss 10 masker til stolpene? Mvh. Marit
03.02.2019 - 12:26DROPS Design answered:
Hei igjen Marit. Stolpemaskene teller alltid med i det totale maskeantallet, hvis ikke vil dette stå sepesifisert. Husk at du ikke skal øke i stolpemaskene. God fornøyelse.
07.02.2019 - 08:30Marit wrote:
Hei. Når jeg legger opp til str. S, skal jeg da legge opp 92 masker pluss 10 masker til stolpene? Får ikke mønsteret til å stemme, når jeg begynner på det. Mvh. Marit
03.02.2019 - 12:17DROPS Design answered:
Hei Marit. De 92 maskene du legger opp er inklusive stolpemaskene. dvs at du har 5 stolpemasker i hver side, og 82 masker mellom. God fornøyelse.
07.02.2019 - 08:25Mette Marboe wrote:
Jeg kan simpelt hen ikke få ærmerne til at blive rigtige. De bliver alt for korte og alt for stramme, når jeg følger opskriften. Selve trøjedelen passer fint, men ærmerne er mindst 15 cm. for korte, og med 40 masker i den sidste del, bliver det meget stramt. Jeg strikker den i Air-garn og i str. L. Håber at I kan hjælpe mig venlig hilsen Mette Marboe
31.01.2019 - 10:39DROPS Design answered:
Hei Mette. Ermene på denne genseren er nok litt korte, som du også kan se på målskissen nederst på siden. Når du begynner på ermet har du 64 masker på pinnen, som tilsvarer ca 40 cm rundt. I løpet av ermet skal du felle til du har 40 masker = ca 25 cm rundt. Dette målet skal være rundt håndleddet, men om ditt erme er 15 cm for kort kan det kanskje være derfor det også er for stramt? Strikk gjerne erme lenger før du strikker A.2, og fell med flere omgangers mellomrom. Om du likevel tror det blir for stramt kan du selvfølgelig felle ferre ganger (påse at maskeantallet er delelig med 4, så det går opp i A.2). God fornøyelse.
31.01.2019 - 13:27Eliz wrote:
Hello, I have just completed the elevation at the back of the neck with a knit row, ready to start the diagram A.1. Since my next row is the wrong side, should I treat Row 1 of the diagram A.1 as the wrong side and use purl stitches, or purl one row first before I start A.1? This is my first fair Isle knitting but the cardigan is fo beautiful that I just have to try it! Thank you.
18.01.2019 - 15:57DROPS Design answered:
Dear Eliz, work one more row from WS over all stitches so that diagram will be start with 1st row from RS. Happy knitting!
18.01.2019 - 17:22Broux wrote:
Bonjour Après les premières augmentations on a 155 mailles pour la tailles XXL ce chiffre n'est pas divisible par les 12 mailles de A1 . Ça ne tombe pas juste est-ce normal ou y-a-t-il une erreur?
16.01.2019 - 11:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Broux, tout à fait, A.1 se tricote ainsi: 5 m de bordure devant, on commence ensuite par la dernière m de A.1, on répète ensuite les 12 m de A.1 (= par ex 12 x 12 = 144 m) et on termine par 5 m de bordure devant soit: 5 + 1 + 144 + 5 = 155 m. Bon tricot!
16.01.2019 - 13:06