Periwinkle Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 191-29 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 211 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 20,1. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 19. og 20. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir slétt svo ekki myndast göt. LEIÐBEININGARA-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstur er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 3, 11, 19, 26, 34, 41, 49 og 56 cm. M: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 58 cm. L: 3, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm. XL: 3, 12, 20, 29, 37, 46, 54 og 62 cm. XXL: 3, 11, 19, 26, 34, 42, 49, 57 og 64 cm. XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 66 cm. ATH: Síðasta af þessum 8-8-8-8-9-9 hnappagötum er fellt af ca mitt í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan til loka. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 211-231-249-269-295-323 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 lykkjur slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 lykkjum slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 201-221-237-257-281-309 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 53-58-62-67-73-80 lykkjur inn frá hvorri hlið = 95-105-113-123-135-149 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir slétt). Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 185-205-221-241-265-293 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 45-50-53-58-63-69 lykkjur slétt (= framstykki), fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 79-89-95-105-115-127 lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg og prjónið þær 45-50-53-58-63-69 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-52-52-54 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 9-7-9-7-9-7 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-16-17-19-20 sinnum (skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni) = 66-72-80-86-90-94 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-45-43-41-40-38 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur, prjónið 58-64-70-76-78-80 lykkjur slétt og fellið af þær 4-4-5-5-6-7 lykkjur sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handvegi = 285-317-341-373-397-425 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Haldið áfram með litnum ljós gráblár og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en kantar að framan eru prjónaðir slétt. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-0-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 281-311-341-371-391-421 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-6 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar eru sett saman er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 27-30-33-36-38-41 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1A er fækkað um 10-0-10-20-20-30 lykkjur jafnt yfir = 271-311-331-351-371-391 lykkjur. ATH: Í stærð S og L er lykkjum fækkað í einingum með natur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 20 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.2A. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 141-161-171-181-191-201 lykkjur í umferð. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram að prjóna kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir að prjóna upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í miðju lykkju í umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá lykkju með prjónamerki í, snúið við, herðið á þræði og prjónið 31-33-35-37-39-41 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 46-49-52-55-58-61 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 76-81-86-91-96-101 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum natur og fækkið jafnframt um 24-40-44-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 117-121-127-133-137-143 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kanti að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Heidi wrote:
Vil veldig gjerne ha oppskrift, kjempefin😍
13.12.2017 - 23:15Birthe Ømark wrote:
Den er virkelig flot - den kunne jeg godt tænke mig at strikke
11.12.2017 - 19:13Margunn Øvrestrand wrote:
Den var NYYYYDELIG
11.12.2017 - 15:17