Sweet Sorbet |
|||||||
|
|
||||||
Sett með kjól fyrir börn með blúndukanti og áferðamynstri og tátiljum með blúndu úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-19 |
|||||||
KJÓLL: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. -------------------------------------------------------- KJÓLL: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Fitjið upp 392-420-448 (476-504) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 12 lykkjur og endið með 10 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram í 5-5-6 (6-7) cm frá uppfitjunarkanti. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við einingu með sléttum lykkjum með því að prjóna allar 10 lykkjur slétt þannig (þær 4 lykkjur brugðnar eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt saman þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 168-180-192 (204-216) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 36-36-32 (28-32) lykkjur jafnt yfir = 132-144-160 (176-184) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki á eftir 66-72-80 (88-92) lykkjum (merkja miðju í hliðum). Stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 2-2-3 (3-3) cm fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki) – sjá ÚRTAKA – með 2-2-2(3-3½) cm millibili alls 5 sinnum = 112-124-140 (156-164) lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-12-13 (16-18) cm. Prjónið nú M.1 yfir allar lykkjur. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm felið af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar felldar hafa verið af allar lykkjur fyrir handveg er M.2 prjónað yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 24-26-29 (34-39) cm. Fellið nú af miðju 18-22-24 (26-30) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við háls = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á hvorri öxl. Stykkið mælist nú ca 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð. FRAMSTYKKI: = 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar búið er að fella af allar lykkjur er prjónað M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðinni er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist ca 21-22-25 (29-34) cm. Fellið nú af miðju 10-14-16 (18-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 11-12-15 (18-18) lykkjur. Prjónið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð. VINSTRI ÖXL: Prjónið eins og hægri öxl. KANTUR Í HÁLSI: Prjónið upp 48 til 64 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum háls á framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan , * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka þar til kantur í hálsi mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið upp 32 til 48 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum háls á bakstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum fyrir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið efst á öxl. Prjónið upp 52 til 84 (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum handveg á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR MEÐ HNAPPAGÖTUM Á FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Prjónið upp 6-6-6 (8-8) lykkjur með hringprjón 2,5 yfir kant á hálsi innan við 1 lykkju garðaprjón, prjónið síðan 6-7-10 (13-13) lykkjur, af þræði á öxl, prjónið til baka lykkjur og að lokum eru prjónaðar upp 6-6-6 (8-8) lykkjur yfir kant fyrir handveg innan við 1 lykkju garðaprjón = 18-19-22 (29-29) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2 (3-3) lykkjur jafnt yfir = 20-20-24 (32-32) lykkjur. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram, þar til kanturinn mælist ca 1 cm. Fellið nú af fyrir hnappagötum með því að prjóna þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Vinstri öxl: Prjónið eins og hægri öxl. KANTUR FYRIR TÖLUR Á BAKSTYKKI: Prjónið kant ca 2 til 3 cm á hvorri öxl eins og á framstykki en ÁN þess að fella af fyrir hnappagötum. FRÁGANGUR: Saumið tölur í axlir. ---------------------------------------------------------- TÁTILJA: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. Fitjið upp 122-122-134 (134-146) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Haldið síðan áfram með 2 umferðir stroff 3 lykkjur brugðið /9 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 9 lykkjur slétt til 7 lykkjur slétt með því að prjóna þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til eftir eru 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman = 102-102-112 (112-122) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er fækkað í öllum einingum með 7 lykkjur slétt til 5 lykkjur slétt alveg eins og áður = 82-82-90 (90-98) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 5 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt alveg eins og áður = 62-62-68 (68-74) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 3 lykkjur slétt til 1 lykkja slétt með því að allar einingarnar með 3 lykkjum slétt eru prjónaðar þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir = 42-42-46 (46-50) lykkjur. Haldið síðan áfram með stroff 3 lykkjur brugðiðr/1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5-6-6 (7-7) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 35-39-39 (43-43) lykkjur. Prjónið 6 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Setjið síðan ystu 12-12-12 (16-16) lykkjurnar í hvorri hlið á þráð = 11-15-15 (11-11) lykkjur eftir á prjóni (= efra stykki). Prjónið 4-4½-5 (6-8) cm stroff yfir þessar lykkjur þannig (séð frá réttu): * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur brugðið. Takið síðan upp 10-11-13 (16-21) lykkjur hvoru megin við efra stykki og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 55-61-65 (75-85) lykkjur alls. Prjónið slétt fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 2 lykkjur saman í byrjun og lokin á umferð hvoru megin við miðju lykkjur á tá. Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af og saumið saman saum undir fæti í ysta lykkjuboga á ystu lykkju. Saumið upp meðfram stroffi að aftan innan við 1 kantlykkju. Prjónið aðra tátilju alveg eins. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Michelle wrote:
The back neck is confusing. Do you do it all in one across the shoulders or as is, then leave the sides between the neck and shoulder unsewn? Very confusing!
29.10.2011 - 00:38Mille wrote:
Fantastisk! Har dog kun strikket ribstykket forneden i halv størrelse. Man bør også overveje at strikke 3 knaphuller på hver arm i de store størrelser.
07.10.2011 - 16:39Bettina wrote:
Diese Anleitung ist wirklich sehr schön. Ich habe sie selber noch ein wenig verkleinert, weil ich die hier kleinste Größe doch ziemlich Groß fand. Ansonsten sehr süß und gut beschrieben.
14.09.2011 - 09:15Emilija wrote:
I see... So many things that I don't notice (: So for M1 I purl twice, knit twice, right? Because it is the right side all the time...
09.06.2011 - 19:17DROPS Design wrote:
M.1 refers to the chart printed after the pattern text. Vertical repeat is the chart in height, so after finishing 1 repeat of the chart in height.
09.06.2011 - 18:09Emilija wrote:
"Now work M.1 on all sts. After 1 vertical repeat of M.1". What does it mean..?
09.06.2011 - 17:54Drops Design wrote:
Det stemmer! Den mindste størrelse er nu rettet på nettet så mønsteret passer. God fornøjelse!
16.04.2010 - 08:56Pia wrote:
Når du begynder med at strikke perlestrik dvs. 2r 2vr så passer det ikke i den mindste str. Da starter og slutter du med 2r og får derved 4 masker ens. Hvordan har I på Drops fået det til at gå op?
13.04.2010 - 00:30