DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Sorbet

Sett með kjól fyrir börn með blúndukanti og áferðamynstri og tátiljum með blúndu úr DROPS BabyMerino

DROPS Baby 19-19
DROPS design: Mynstur nr BM-022-by-BM-023-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
KJÓLL:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-150-150 (200-200) g nr 15, ljós fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 (40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (60 cm) – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA LJÓS, NR 503: 4 st.

TÁTILJUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Fótlengd: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 15, ljós fjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

KJÓLL:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
--------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.
Fitjið upp 392-420-448 (476-504) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 12 lykkjur og endið með 10 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram í 5-5-6 (6-7) cm frá uppfitjunarkanti. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við einingu með sléttum lykkjum með því að prjóna allar 10 lykkjur slétt þannig (þær 4 lykkjur brugðnar eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt saman þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman.
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 168-180-192 (204-216) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 36-36-32 (28-32) lykkjur jafnt yfir = 132-144-160 (176-184) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki á eftir 66-72-80 (88-92) lykkjum (merkja miðju í hliðum). Stykkið er nú mælt héðan.
Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 2-2-3 (3-3) cm fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki) – sjá ÚRTAKA – með 2-2-2(3-3½) cm millibili alls 5 sinnum = 112-124-140 (156-164) lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-12-13 (16-18) cm. Prjónið nú M.1 yfir allar lykkjur. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm felið af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 32-38-46 (54-58) lykkjur.
Þegar felldar hafa verið af allar lykkjur fyrir handveg er M.2 prjónað yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 24-26-29 (34-39) cm. Fellið nú af miðju 18-22-24 (26-30) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við háls = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á hvorri öxl. Stykkið mælist nú ca 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð.

FRAMSTYKKI:
= 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar búið er að fella af allar lykkjur er prjónað M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðinni er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist ca 21-22-25 (29-34) cm. Fellið nú af miðju 10-14-16 (18-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
= 11-12-15 (18-18) lykkjur. Prjónið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið eins og hægri öxl.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp 48 til 64 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum háls á framstykki á hringprjón 2,5.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan , * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka þar til kantur í hálsi mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið upp 32 til 48 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum háls á bakstykki.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum fyrir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið efst á öxl. Prjónið upp 52 til 84 (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum handveg á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR MEÐ HNAPPAGÖTUM Á FRAMSTYKKI:
Hægri öxl:
Prjónið upp 6-6-6 (8-8) lykkjur með hringprjón 2,5 yfir kant á hálsi innan við 1 lykkju garðaprjón, prjónið síðan 6-7-10 (13-13) lykkjur, af þræði á öxl, prjónið til baka lykkjur og að lokum eru prjónaðar upp 6-6-6 (8-8) lykkjur yfir kant fyrir handveg innan við 1 lykkju garðaprjón = 18-19-22 (29-29) lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2 (3-3) lykkjur jafnt yfir = 20-20-24 (32-32) lykkjur. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram, þar til kanturinn mælist ca 1 cm. Fellið nú af fyrir hnappagötum með því að prjóna þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón.
Vinstri öxl:
Prjónið eins og hægri öxl.

KANTUR FYRIR TÖLUR Á BAKSTYKKI:
Prjónið kant ca 2 til 3 cm á hvorri öxl eins og á framstykki en ÁN þess að fella af fyrir hnappagötum.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í axlir.
----------------------------------------------------------

TÁTILJA:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.
Fitjið upp 122-122-134 (134-146) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Haldið síðan áfram með 2 umferðir stroff 3 lykkjur brugðið /9 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 9 lykkjur slétt til 7 lykkjur slétt með því að prjóna þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til eftir eru 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman = 102-102-112 (112-122) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er fækkað í öllum einingum með 7 lykkjur slétt til 5 lykkjur slétt alveg eins og áður = 82-82-90 (90-98) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 5 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt alveg eins og áður = 62-62-68 (68-74) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 3 lykkjur slétt til 1 lykkja slétt með því að allar einingarnar með 3 lykkjum slétt eru prjónaðar þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir = 42-42-46 (46-50) lykkjur. Haldið síðan áfram með stroff 3 lykkjur brugðiðr/1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5-6-6 (7-7) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 35-39-39 (43-43) lykkjur. Prjónið 6 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Setjið síðan ystu 12-12-12 (16-16) lykkjurnar í hvorri hlið á þráð = 11-15-15 (11-11) lykkjur eftir á prjóni (= efra stykki). Prjónið 4-4½-5 (6-8) cm stroff yfir þessar lykkjur þannig (séð frá réttu): * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur brugðið. Takið síðan upp 10-11-13 (16-21) lykkjur hvoru megin við efra stykki og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 55-61-65 (75-85) lykkjur alls. Prjónið slétt fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 2 lykkjur saman í byrjun og lokin á umferð hvoru megin við miðju lykkjur á tá.
Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af og saumið saman saum undir fæti í ysta lykkjuboga á ystu lykkju. Saumið upp meðfram stroffi að aftan innan við 1 kantlykkju.

Prjónið aðra tátilju alveg eins.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Francesca wrote:

Mi scuso ma ho ancora difficolta' a comprendere: il diagramma M1 indica due ferri a rovescio e due al dritto e poi si ripetono? Perché dalla spiegazione di M1 sembra essere invece la semplice grana di riso ! Come devo interpretare? Grazie mille.

09.11.2018 - 10:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca, a quale spiegazione di riferisce? Deve seguire la legenda, se lavora in tondo sono due giri rovescio e due giri diritto che si ripetono. Buon lavoro!

09.11.2018 - 11:08

country flag Francesca wrote:

Un consiglio ' quando indica 36-36-32 (28-32) diminuzioni in modo uniforme'...: quale diminuzione si consiglia? 2 insieme al dritto o un'accavallata? grazie!

26.10.2018 - 12:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Può diminuire lavorando 2 maglie insieme a diritto. Buon lavoro!

26.10.2018 - 13:39

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, avrei bisogno di capire.... dopo il primo giro la frase 'Continuare come segue per 5-5-6 (6-7) cm.' si riferisce non a quello che chiede dopo ( 'diminuire 1 m. su entrambi i lati di ogni sezione a dir. ') bensi al giro appena terminato giusto? 10 dr e 4 rov.....sarebbero le pieghe del vestito....non capisco :) grazie per il supporto!

24.10.2018 - 19:13

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, abbiamo modificato il testo, deve lavorare come la parte precedente per la lunghezza indicata. Buon lavoro!

24.10.2018 - 20:23

country flag Betty Maguire wrote:

When you say M1 are you kfb or pulling bar loop for new stitch? I seem to have a problem with doing the 2nd row of M1 using the bar loop. Thanks

29.10.2016 - 18:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Maguire, M1 refers here to the diagram you will find at the bottom of the page, same with M2 - read more about diagrams here. Happy knitting!

31.10.2016 - 10:20

country flag Miri Yawitz wrote:

Hi. I don't understand the instructions. If I start with 160 stiches and I need to decrease 2 stitches every 2 cm for a total of 5 times. Then, I will have left 150 stitches (total decrese of 10 stitches) and not 140 stitches as indicated. I'm stuck right now. Thanks.

16.08.2016 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Yawitz, you've to decrease 1 st on each side of both markers, so 2 dec at each markers, and 4 sts dec on each dec round, for a total of 20 dec sts. Happy knitting!

16.08.2016 - 19:42

country flag Toni wrote:

Hallo, was bedeutet "Die Abnahmen bei jeder 2. re. 4 Mal wiederholen"? Heißt das, man strickt nach einer Runde mit Abnahmen eine Runde li über li und re über re und fährt dann mit Abnahmen fort oder strickt man alle Abnahme-Runden hintereinander weg?

14.09.2015 - 18:31

DROPS Design answered:

Es muss heißen: Bei jeder 2. Rd. Das bedeutet, dass Sie 1 Rd mit Abnahmen stricken, dann wieder eine Runde ohne, dann wieder eine mit, wieder eine ohne usw, bis Sie in 4 Rd abgenommen haben. Es gibt also jeweils eine Zwischenrunde. Der "Vertipper" wird gleich korrigiert.

15.09.2015 - 20:40

country flag Anja wrote:

Ein wunderschönes, süßes Kleidchen, daß leicht und schnell zu stricken ist. Habe aber für Größe 1/3 Monate, wie Anna, ebenfalls 150g Wolle gebraucht.

28.01.2015 - 11:15

country flag Ilona wrote:

Aber dann strickt man noch die letzten beiden rechten Maschen zusammen, hat also,5 Reihen mit Abnahmenund somit 150 Maschen!?!

05.10.2014 - 13:02

DROPS Design answered:

Nein, Sie stricken wie in der Antwort unten beschrieben. Die Abnahmen erfolgen NUR in den Rechtspartien, Sie haben dann 180 M auf der Nadel.

06.10.2014 - 10:03

country flag Marita wrote:

Vielen Dank. Gruß Marita

10.09.2014 - 10:58

country flag Marita Müller wrote:

Hallo, ich habe ein Problem. Ich stricke dieses Babykleid. Habe für die zweite Größe 420 Maschen aufgenommen und habe das Bündchen gestrickt. nach 5 cm habe ich auf beiden Seiten der re.-Partien je 1 Masche abgenommen und dass 4x, dann die restlichen 2 Maschen zusammen gestrickt. Habe jetzt noch 150 Maschen auf der Nadel und nicht wie in der Anleitung 180 Maschen. Was habe ich falsch gemacht? Ich würde mich über eine schnelle Antwort freuen. Gruss Marita

07.09.2014 - 09:46

DROPS Design answered:

Sie müssten in jeder Abnahme-Rd 60 M abnehmen, da Sie ja 30 Rechtspartien haben und in jeder dieser Partien je 2 M abnehmen (am rechten + am linken Rand der Partie: die ersten 2 M der Partie durch Abheben und Überziehen zusammenstricken und die letzten 2 M der Partie re zusammenstr.). Wenn Sie auf diese Weise in insgesamt 4 Rd jeweils 60 M abnehmen, haben Sie insgesamt 240 M abgenommen und müssten auf 180 restliche M kommen.

10.09.2014 - 10:18