DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 19-20
DROPS design: Mynstur nr BM-024-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-100 (100-150) g litur nr 10, turkos

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 (40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 (40 cm) – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA LJÓS, NR 503: 2-2-2 (3-3) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

VESTI / SLIPOVER:
Fitjið upp 136-148-164 (188-196) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fækkað um 24-24-24 (32-32) lykkjur jafnt yfir = 112-124-140 (156-164) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki á eftir 56-62-70 (78-82) lykkjum = mitt í hliðum. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 13-14-15 (18-20) cm. Prjónið nú M.1 yfir allar lykkjur. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 19-20-22 (26-30) cm felið af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 32-38-46 (54-58) lykkjur.
Þegar felldar hafa verið af allar lykkjur fyrir handveg er M.2 prjónað yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT þegar 4 umferðir hafa verið prjónaðar á eftir M.2, eru miðju 6-6-6 (6-6) lykkjurnar felldar af fyrir opi og hvor öxl er prjónuð fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
= 13-16-20 (24-26) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 26-28-31 (36-41) cm. Fellið nú af 6-8-9 (10-12) lykkjur við háls. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við háls = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-30-33 (38-43) cm. Fellið af.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið eins og hægri öxl, nema spegilmynd.

FRAMSTYKKI:
= 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi eins og á bakstykki = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir handveg er prjónað M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í tvöföldu perluprjóni. Þegar stykkið mælist ca 24-25-28 (32-37) cm fellið af miðju 10-14-16 (18-22) lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
= 11-12-15 (18-18) lykkjur. Prjónið áfram í tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-30-33 (38-43) cm. Fellið af.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið eins og hægri öxl nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR MEÐ HNAPPAGÖTUM Á BAKSTYKKI:
Prjónið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur frá réttu á prjón 2,5 meðfram hægri hlið á opi á bakstykki.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 2-3-3 (4-4) sinnum og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist ca 1 cm. Fellið nú af fyrir 1-1-1 (2-2) hnappagötum þannig (frá réttu):
STÆRÐ 1/3 mán: 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið af 2 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón.
STÆRÐ 6/9 + 12/18 mán: 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, fellið af 2 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón.
STÆRÐ 2 + 3/4 ára: 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið af 2 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið af 2 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón.
Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Haldið síðan áfram eins og áður þar til kanturinn mælist ca 2 cm.
Fellið af með slétt yfir slétt og brugðnu yfir brugðið.
Prjónið upp lykkjur og prjónið kant alveg eins í vinstri hlið á opi, en án þess að fella af fyrir hnappagötum.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp 88 til 128 lykkjur (deilanlegt með 4) frá réttu í kringum háls (kantur með hnappagötum á bakstykki er talinn með) á hringprjón 2,5.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 1 cm. Fellið nú af til viðbótar fyrir einu hnappagati yfir hin hnappagötin. Prjónið síðan eins og áður þar til kanturinn mælist ca 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttu yfir slétt og brugðnu yfir brugðið.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið mitt undir handvegi. Prjónið upp 52 til 84 lykkjur (deilanlegt með 4) frá réttu í kringum handveg á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið þar til kanturinn mælist ca 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Eila Nikitin wrote:

Garnmängden till storlek 86/92står 100 g, det går åt 150 g. Har stickat med rätt garn enl mönster.

30.01.2023 - 21:55

country flag Ruth wrote:

Liebes Drops-Team, ich verstehe nicht, wo ich bei der Knopfblende Maschen seitlich aufnehmen soll, denn es ist eigentlich ein runder Halsausschnitt und ich müsste bis zur Schulter hoch aufnehmen. Ein Foto von der Rückseite der Weste wäre wirklich hilfreich. Ich habe 6 Maschen im Rückenteil abgekettet und fast gleich anschließend für die Schulter jeweils die nötigen Maschen. Das ergibt eine „Rundung“, wo ich nirgends seitlich Maschen aufnehmen kann. Wie muss ich das stricken? Lg

07.10.2021 - 16:23

country flag Kathryn wrote:

The shoulder casting off seems confusing. Cast off six towards neckline then cast off one on the neckline on the next row. This would create a loop since one stitch is left on the other side of gap created by cast off. I see others are confused by this too. Please find another way to write this instruction to make it clearer? Thank you

20.09.2021 - 08:42

DROPS Design answered:

Dear Kathry, after you have cast off stitches for neck you continue each shoulder separately, let's say you cast off for neck on a RS row, you then work the right shoulder first casting off at the beg of next row from WS (back piece) = the row starting from neck. When you will work the left shoulder (back piece), you then cast off at the beg of row from WS. Hope this will help, happy knitting!

20.09.2021 - 11:25

country flag Karin Meier wrote:

Hallo, ich habe die Anleitung durchgelesen und bin überrascht, dass man am Anfang Maschen abnehmen muss. Normalerweise nimmt man doch Maschen auf nach dem Bund. Ist das richtig so oder ein Druckfehler?

22.07.2021 - 23:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meier, für die gleiche Breite braucht man mehr Maschen, um Bündchen mit Nadeln Nr 2,5 als glattrechts mit Nadeln Nr3 zu stricken, deshalb muss man nach dem Bündchen abnehmen, damit die Bündchen nicht fester ziehen, und so hat man die richtige Breite. Viel Spaß beim stricken!

23.07.2021 - 08:30

country flag Heidi wrote:

Jeg strikker str. 12/18 mdr. Ved halskant står der “strik 88 op til 128 masker (delbart med 4)” - hvad betyder det ? Jeg har prøvet med 116 masker og det kan jeg se er for stort... Jeg forstår simpelthen ikke hvad det betyder, håber i kan hjælpe mig. Hilsen Heidi

12.01.2021 - 17:42

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Du skal strikke opp et maskeantall mellom 88 og 128 masker. Har du strikket den minste størrelsen har nok 88 masker vært passe, men i den største størrelsen passer 128 masker bedre. Men maskeantallet må være delelig med 4 for av vrangborden skal gå opp. Ettersom du syns 116 masker ble for stort, kan du prøve 104 eller 108? mvh DROPS design

18.01.2021 - 14:09

country flag Monica Gyllborg wrote:

Hur stickar man ett sprund vid halskanten mitt bak ska det bara vara på själva halskanten?

10.08.2020 - 19:20

DROPS Design answered:

Hej Monica. Om du ser under BAKST så ser du där hur du ska maska av de mittersta 6 m till sprund när du har stickat 4 v efter M.2. Efter det stickas höger och vänster axel färdig för sig och det är här du senare stickar kant/knappkant. Mvh DROPS Design

14.08.2020 - 09:34

country flag Jana wrote:

Hi there, I just finish this adorable vest, but I'm not sure about those buttons. Where exactly they suppose to be? Or how it should look like? It doesn't make any sense to me... or did I got it wrong? Thank you

28.02.2019 - 05:51

DROPS Design answered:

Dear Jana, the top in buttonned on back piece, the buttons will be sewn on the button band you worked along left side on back piece and will be buttoned into the buttonholes you worked with the button band picked up along right side of back piece. Happy knitting!

28.02.2019 - 09:44

country flag Nadine wrote:

Kann es sein, dass sich im Perlmuster ein Fehler eingeschlichen hat? Müsste es nicht so sein, dass 4. R so wie 3. R gestrickt wird, wenn man in Runden strickt?

21.01.2019 - 14:14

DROPS Design answered:

Liebe Nadine, hier wird man doppeltes Perlmuster stricken, dh 2 Reihe werden gleich - siehe auch dieses Video. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2019 - 16:27

country flag Nadine wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu den Abnahmen für die Arme. In der Anleitung steht: GLEICHZEITIG bei jeder 2. R. gegen das Armloch abk.: 2 M. 4 Mal und 1 M. 1 Mal = 32-38-46 (54-58) M. Bezieht sich das auf jede zweite R. generell oder auf die 2. R des Perlmusters? Bei ersterem würde man dann ja quasi in R2 und R4 des Perlmusters abketten, bei dem anderen nur immer in Muster R2... Da bin ich mir unsicher, wie genau ich das verstehen soll. Immerhin hängt davon ab, wie oft man Perlmuster strickt

23.12.2018 - 20:31

DROPS Design answered:

Liebe Nadine, Sie sollen für das Armlöcher die Maschen am Anfang jeder Reihe (also Hin sowie Rückreihe) abketten, damit 2 M x 4 + 1 M x 1 = 9 M auf beiden Seiten abgekettet wird und 18 M weniger sind. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 08:54

country flag Betina wrote:

Jeg forstår ikke, at der skal strikkes 16 masker op til knappekanten i slidsen på det lille stykke slids - når min kant er færdig er den dobbelt så høj som slidsen, hvor jeg tog maskerne op. Er det en fejl?

14.09.2018 - 21:15

DROPS Design answered:

Hej Betina, hvis slidsen er ca 5 cm så stemmer det med ca 16 masker. Er din slids blevet lidt kortere så kan du ikke slå så mange masker op, du skal have ca 3 masker på pind 2,5 for hver cm slids. God fornøjelse!

20.09.2018 - 10:39