December Bloom Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-45 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 186 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 174 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 10,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2-2-3-2-2-3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 113-117-121-129-133-137 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm, aukið út í annarri hverri 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 138-143-148-158-163-168 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-8-8 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 163-169-175-187-193-199 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-12-12 cm, aukið út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 188-195-202-216-223-230 lykkjur. Prjónið áfram þar til stroffið mælist 10-10-10-12-13-13 cm – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í 3. umferð (rétta), eru auknar út 15-18-21-25-30-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 203-213-223-241-253-265 lykkjur. Eftir þessar 4 umferðir er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 19-20-21-19-20-21 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 298-313-328-355-373-391 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-19-23-24-24 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorir hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 18-24-30-32-34-40 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 316-337-358-387-407-431 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-21-25-26-26 cm, aukið út um 13-16-19-22-25-28 lykkjur jafnt yfir = 329-353-377-409-432-459 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð S, M og L – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-28-29 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8-9-14 lykkjur jafnt yfir = 417-441-473 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð XL, XXL og XXXL – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 329-353-377-417-441-473 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar og með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið nú eins og áður yfir fyrstu 52-56-59-65-70-76 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 93-101-107-119-129-141 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 52-56-59-65-70-76 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 209-225-241-265-289-313 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 55-59-63-69-75-81 lykkjur inn frá hvorri hlið. Nú eru 99-107-115-127-139-151 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 55-59-63-69-75-81 lykkjum frá réttu á prjóni og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan stroff eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): = 55-59-63-69-75-81 lykkjur. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-17-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir = 72-76-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúin lykkja slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið ystu 55-59-63-69-75-81 lykkjur í annarri hlið á stykki á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-17-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir = 72-76-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff frá miðju að framan: UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið þær 99-107-115-127-139-151 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 129-139-149-165-181-197 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 66-70-76-84-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-14-18-19-20 sinnum = 50-52-56-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 52-56-58-60-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Julie wrote:
Red robin
05.08.2021 - 08:47