DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Fjord Mosaic Set

Prjónaðir vettlingar með norrænu mynstri úr DROPS Nepal. Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35 – 43.

DROPS 214-54
DROPS Design: Mynstur ne-329
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
Vettlingar: S/M – M/L
Sokkar: 35/37 – 38/40 – 41/43

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-200 g litur 0500, ljós grár
150-150-150 g litur 8913, ljós blár

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Mál: Ummál: Ca 21-23 cm. Lengd: Ca 24-26 cm.

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100 g litur 0500, ljós grár
50-50 g litur 8913, ljós blár

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: Fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5: Fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

SOKKAR:

STÆRÐ:
35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar: Ca 22-24-27 cm.
Hæð á sokk: Ca 17-17-17 cm.

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-150 g litur 0500, ljós grár
100-100-100 g litur 8913, ljós blár

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: Fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5: Fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.x og A.y).
Sokkar: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.6.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni, nema A.1 sem er prjónað í stroffprjóni.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.6 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.6 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.6 þar til 3-4-4 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.6 þar til 3-4-4 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 9-9-11 lykkjur eru eftir í umferð.

ÚRTAKA (á við um tá á sokkum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Byrjið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með gagnstæðum lit við lykkju með prjónamerki, prjónið lykkjuna með prjónamerki eins og áður, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með gagnstæðum lit á lykkju með prjónamerki. Fækkið lykkjum svona við hitt prjónamerkið (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá úlnlið og upp. Lykkjur eru auknar út fyrir op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar útaukningu fyrir fyrir þumalopi er lokið, eru þumallykkjurnar settar á þráð áður en höndin er prjónuð til loka. Síðan er þumallinn prjónaður.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 36-40 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós blár. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með röndum eins og útskýrt er í A.1.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 40-44 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Afgangur af vettlingum er prjónað í sléttprjóni eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er A.3 prjónað yfir 3 svörtu ferningana í A.2. Aukið út fyrir þumalopi eins og útskýrt er í A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hafa verið auknar út 8 lykkjur í A.3 og A.3 nær nú yfir 11 lykkjur.
Í næstu umferð eru 11 lykkjur í A.3 settar á þráð og fitjaðar eru upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði (fitjið upp með litum eins og útskýrt er í mynsturteikningu) = 40-44 lykkjur. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 8 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11 lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið þessar 11 lykkjur eins og fyrstu 11 lykkjur í fyrstu umferð í A.4 (= framhlið á þumli) – prjónið að auki upp 9 lykkjur í kringum opið fyrir þumal, þ.e.a.s. prjónið upp 2 lykkjur í hverri hlið og 5 lykkjur í 3 lykkjur sem fitjaðar voru upp (þessar 9 lykkjur eru prjónaðar eins og síðustu 9 lykkjurnar í fyrstu umferð í A.4 = bakhlið á þumli) = 20 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.4 hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, eru 4 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Prjónið vinstri vettling á sama hátt og hægri vettlingur, en nú er þumallinn prjónaður í gagnstæðri hlið – sjá mynsturteikningu A.x sem sýnir hvar þumallinn er prjónaður í mynstri. Þegar A.x hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.y til loka.
Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

SOKKUR:
Fitjið upp 50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós blár. Skiptið yfir í litninn ljós grár og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 46-48-50 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 30 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.5, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið – þessar 31 lykkjur eru mitt framan á sokknum, prjónið A.6 yfir næstu 14-16-18 lykkjur, prjónið síðan síðustu lykkju sem fyrstu lykkju í A.6, þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið – þessar 15-17-19 lykkjur eru mitt aftan á sokknum. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum, setjið 31 lykkjur mitt framan á sokknum (þ.e.a.s. lykkjur í A.5) á þráð = 15-17-19 lykkjur eftir fyrir hæl.
Haldið áfram með A.6 fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd á fæti frá.
Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan.

Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.6 yfir 9-9-11 hællykkjur, prjónið upp 8-10-12 lykkjur meðfram hlið á hæl (með litum í A.6), haldið áfram með A.5 eins og áður yfir 31 lykkjur frá þræði mitt framan á sokknum og prjónið upp 8-10-12 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum (með litum í A.6) = 56-60-66 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.5 eins og áður yfir 31 lykkjur mitt framan á sokknum og A.6 yfir þær lykkjur sem eftir eru aftan á sokknum.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 lykkjur framan á sokknum – fækkið lykkjum innan við ystu lykkju í A.6 eins og útskýrt er að neðan (byrjið eftir 31 lykkjur framan á sokknum):
Prjónið fyrstu lykkju í A.6 eins og áður (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, en heldur áfram í litnum ljós blár), prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár, prjónið A.6 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman með litnum ljós grár og prjónið síðustu lykkju í A.6 eins og áður (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, en heldur áfram í litnum ljós blár).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6-6 sinnum í hvori hlið = 48-48-54 lykkjur eftir.
Haldið áfram með A.5 og A.6 eins og áður þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti.
Nú eru eftir ca 4-4-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd, en endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina í A.5.
Prjónið síðan A.6 hringinn yfir allar lykkjur, en stillið af að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur undir fæti.
JAFNFRAMT í 2. umferð er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju í hvorri hlið þannig að það verða 23-23-27 lykkjur ofan á fæti og 23-23-25 lykkjur undir fæti (á milli lykkja með prjónamerki í).
Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA = 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 9-9-10 sinnum = 12-12-14 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-7 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = ljós blár
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með ljós grár, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman með ljós grár (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með ljós grár, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = hér er þumal-opið prjónað, þ.e.a.s. A.3
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn með ljós grár, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 1 lykkja fleiri)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-54

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Mette Marthinsen wrote:

Jeg strikket disse vottene i s/m og m/l, men hvorfor er det ikke to mønster til tommel? Votter i to str, men tommel i en str, det er merkelig. Jeg strikket tommel i m/l på pinne 4,5 for å få den større, men det burde være mønster i to str.

13.12.2023 - 06:38

country flag Hanne wrote:

Jeg synes, at der mangler forklaring/video til hvordan man stikker hælen med de lodrette striber, altså jeg ønsker tydeligere forklaring til denne til hælen i "fjord Mosaik"

20.02.2023 - 22:52

DROPS Design answered:

Hej Hanne, du finder forklaringen til hælindtagningen i starten af opskriften, ovenover vanterne :)

23.02.2023 - 15:43

country flag Bettina Moth Kej wrote:

Der er kun Indtagningssymboler på vanterne. Der må mangle udtagningssymbol/ forklaring til timmelfinger udtagning?!?!?!?\r\nHjælp!!!

06.02.2023 - 20:15

DROPS Design answered:

Hej Bettina, udtagningerne er omslagene du finder i diagram A.3 til tommelfingeren - symbolteksten er nu rettet, tak for info :)

08.02.2023 - 07:34

country flag Patricia wrote:

Hello! I am at the heel decrease for my first sock and a bit confused. When I get to 5 stitches remaining, slip one stitch, knit 1, then pass the slipped stitch back over, what do I do with the remaining 3 stitches? Also, how is this decreasing my stitches to 9 on the needle (I currently have 17)? Thanks for sharing so many beautiful, free patterns!

05.02.2022 - 03:02

DROPS Design answered:

Dear Patricia, you turn the work without working the remaining 3 stitches; these are called short rows. You decrease once in each row, but you also stop working 2 or 3 stitches on each row, because you turn before working them, so you will decrease up to 9 stitches faster. Happy knitting!

05.02.2022 - 19:33

country flag Helene Rasmussen wrote:

Der er billede af sokker men ingen opskrift, kun på vanter,men dem er der ikke billede af. Er det ikke en fejl?

11.09.2021 - 01:48

DROPS Design answered:

Hej Helene. Det är opskrift på både sokker och vanter. Först kommer vanter och sedan sokker. Mvh DROPS Design

16.09.2021 - 13:50

country flag Laura wrote:

Buongiorno, Non capisco cosa vuol dire: “ lavorare fino alla lunghezza desiderata, MA FINIRE DOPO MEZZA E UN’INTERA RIPETIZIONE DI A5 IN ALTEZZA”. Cosa vuol dire “mezza e un’intera ripetizione”? Grazie

03.09.2021 - 15:25

DROPS Design answered:

Buonasera Laura, abbiamo corretto il testo, deve lavorare una ripetizione intera del motivo o mezza. Buon lavoro!

04.09.2021 - 21:21

country flag Laura wrote:

Chiedo scusa, ma se lavoro 5 cm dopo aver messo in sospeso le maglie della calza davanti prima di fare le diminuzioni del tallone, poi come faccio a riprendere solo 8 maglie e chiudere il lavoro?

27.08.2021 - 18:36

DROPS Design answered:

Buonasera Laura, deve lavorare 5 cm sulle maglie del tallone, poi continuare A.6 sulle 9 maglie del tallone, riprendere 8 maglie ai due lati del tallone e continuare A.5 sulle 31 maglie in sospeso. Buon lavoro!

29.08.2021 - 22:26

country flag Kathrine wrote:

Jeg strikket vottene etter oppskrift M/L str Vottene passet til min sønn på 9 år! De passet overhodet ikke til meg😡 Mønsteret er helt nydelig, og jeg gledet med til å få meg nye votter

11.04.2021 - 22:18

country flag Friederike wrote:

Danke für die Antwort! Was ich nicht ganz verstehe... Wenn ich in der 1.Reihe das Muster Stricke und gleichzeitig den Raglan zunehme.Stricke ich diese Maschen dann laut Muster ab oder werden die vom Muster ausgenommen?

17.02.2021 - 17:06

DROPS Design answered:

Liebe Friederike, Sie meinen für den Pullover "Fjord Mosaic"? Bei der 1. Reihe bei der Passen stricken Sie die 1. Reihe von den Diagrammen und gleichzeitg nehmen Sie 1 Masche beidseitig von der M mit der Markierung, dh z. B. für die Ärmel in S: 1 Umschlag, 1. Reihe A.1, 1 Umschlag. Bei der 2. Runde stricken Sie diese 13 M wie im Diagram (= Umschläge werden mit perlgrau gestrickt). Bei der 3. Reihe stricken Sie: 1 Umschlag, 3. Reihe A.1, 1 Umschlag, bei der 4. Reihe stricken Sie diese 15 M wie im Diagram gezeigt. (A.2A und A.2C stricken Sie genauso wie bei A.1). Hilft es Ihnen weiter?

18.02.2021 - 08:39

country flag Eva Lodal wrote:

Ifølge forklaringen til diagrammet skal man tage ind på tommelen i stedet for ud ...

03.02.2021 - 16:48