DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 203-24
DROPS Design: Mynstur ee-677
Garnflokkur E eða C + C
------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Skóstærð: 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Lengd fótar eftir þæfingu: Ca 22-24-27-30 cm.
Lengd fótar fyrir þæfingu: Ca 27-29-33-37 cm.

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100-100-100-150 g litur 53, ljós grár
100-100-100-100 g litur 85, karrí
50-50-50-50 g litur 46, milli grár

PRJÓNFESTA:
Fyrir þæfingu: 11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Eftir þæfingu: 13,5 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 8.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki. Hliðarnar eru saumaðar saman við miðju að framan áður en prjónaður er upp kantur í kringum opið. Síðan eru hliðarnar saumaðar saman við miðju að aftan áður en tátiljurnar eru þvegnar í þvottavél.

TÁTILJA:
Fitjið upp 4-4-5-4 lykkjur á prjón 8 með litnum karrí og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 6-6-7-6 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 8-8-9-8 lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 10-10-11-10 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 12-12-13-12 lykkjur.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 14-14-15-14 lykkjur.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 16-16-17-16 lykkjur.
UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt og fitjið upp 2-2-3-3 lykkjur í lok umferðar = 18-18-20-19 lykkjur.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 20-20-22-21 lykkjur.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-3 lykkjur í lok umferðar = 22-22-24-24 lykkjur.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 24-24-26-26 lykkjur.
UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, prjónið slétt og fitjið upp 4-4-5-8 lykkjur í lok umferðar = 28-28-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-30-34-36 lykkjur.
UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt.
UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-38 lykkjur.
UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-0-0-3 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-41 lykkjur.
UMFERÐ 17 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt.
UMFERÐ 20 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 23 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 24 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt.
UMFERÐ 26 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 29 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið brugðið.

Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-24-24-25 cm, setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er mitt undir fæti. Prjónið síðan með litnum ljós grár þar til prjónaðar hafa verið álíka margar umferðir í litnum ljós grár hvoru megin við prjónamerki (þannig að tátiljan verði alveg eins á báðum hliðum þegar búið er að ganga frá).

UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 9 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt.
UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 15 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 0-0-0-3 lykkjur og prjónið slétt = 30-32-36-38 lykkjur.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 17 (= rétta): Fellið af fyrstu 0-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 30-30-34-36 lykkjur
UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 28-28-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 20 (= ranga): Fellið af fyrstu 4-4-6-8 lykkjur og prjónið brugðið = 24-24-26-26 lykkjur.
UMFERÐ 21 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 22-22-24-24 lykkjur.
UMFERÐ 22 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-3 lykkjur og prjónið brugðið = 20-20-22-21 lykkjur.
UMFERÐ 23 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 18-18-20-19 lykkjur.
UMFERÐ 24 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-3-3 lykkjur og prjónið brugðið = 16-16-17-16 lykkjur.
UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 14-14-15-14.
UMFERÐ 26 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 12-12-13-12 lykkjur.
UMFERÐ 27 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 10-10-11-10 lykkjur.
UMFERÐ 28 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 8-8-9-8 lykkjur.
UMFERÐ 29 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 6-6-7-6 lykkjur.
UMFERÐ 30 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 4-4-5-4 lykkjur.
Fellið af síðustu 4-4-5-4 lykkjurnar í næstu umferð frá réttu.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá tátiljuna mitt undir fæti (við prjónamerki) og saumið saum mitt á fæti (meðtalinn uppfitjunarkantur og affellingarkantur).
Í kringum opið efst eru prjónaðar upp ca 55-60 lykkjur með litnum dökk grár frá réttu (það er mikilvægt að taka upp nægan fjölda lykkja, svo að stykkið verði ekki stíft).
Prjónið 2 sléttar umferðir. Fellið af. Saumið saum mitt að aftan (A + B) í ystu lykkjubogana.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2021
Mynstrið hefur verið endurstkrifað og er nú í nýjum stærðum, lykkjufjölda og máli.

Mynstur

symbols = hæll mitt að aftan, á að sauma við B

symbols = hæll mitt að aftan, á að sauma við A
symbols = mitt undir fæti, prjónamerki situr hér
symbols = uppfitjunarkantur, byrjið að prjóna hér
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Dorte wrote:

Række 11, hvorfor skal man slå 4 masker op i str. 38-40.? Oh skal man slå op i den anden side på modsatte sutsko? Mvh

13.12.2021 - 22:29

DROPS Design answered:

Hei Dorte. Man legger opp 4 masker i rad 11 for å få den designen tøffelen skal ha og når du er på samme "linje" på motsatt side, skal det felles 4 masker. mvh DROPS Design

14.12.2021 - 13:52

country flag Nellie Lenssen wrote:

Waar vind ik de correctie van Drops patroon 203-24?

09.11.2021 - 00:13

DROPS Design answered:

Dag Nellie,

In de online patronen zijn de correcties al verwerkt. Als je een gedrukte versie hebt van voor de datum van de correctie, dan is het nog niet in de gedrukte versie verwerkt.

10.11.2021 - 16:19

country flag Nellie Lenssen wrote:

Waar vind ik de correctie van patroon Drops 203-24 ? Het oorspronkelijke patroon klopt niet.

09.11.2021 - 00:11

country flag Hannah wrote:

På varv 11 i storlek 35/37 lägger man upp 2 maskor i slutet =28 maskor. Men på varv 12 ska man lägga upp 3 nya maskor och få 30st totalt. 28+3=31 inte 30st. Vilket ska man ha?

05.09.2021 - 16:33

DROPS Design answered:

Hej Hannah. Det var ett skrivfel i den svenska översättningen som nu har rättats, det ska vara 2 maskor i den minsta storleken. Tack för info! Mvh DROPS Design

06.09.2021 - 08:15

country flag Anne wrote:

Jeg synes ikke jeg kan læse hvordan “snuden” af tøflen skal lukkes. Overdelen og hælen er beskrevet men ikke foran ved tæerne. Eller regner I den med som en forlængelse af overdelen? ¯\_(ツ)_/¯

28.03.2021 - 23:55

DROPS Design answered:

Hei Anne. Du avslutter ikke ved tærne, men speilvendt av slik du startet. Arbeidet strikkes frem og tilbake i ett stykke. Ta gjerne en titt på målskissen og strikkeretningen, ta også en titt på begynnelsen på videoen på hvordan denne tøffelen skal monteres, da ser du det kanskje lettere. mvh DROPS design

07.04.2021 - 14:08

country flag Rébecca wrote:

Hallo, am Anfang der Anleitung wird die Länge des Schuhs vor Filzvorgang mit 48cm in der größten Größe angegeben. In der Skizze am Ende der Anleitung werden 37cm als Maß für die Länge angegeben. Welche Angabe ist die richtige? Danke.

12.01.2021 - 22:16

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, es sieht von der Maschenanzahl nach allen Zunahmen, daß die Maße in der Skizze sind die richtige, unser DesignTeam wird die Anleitung noch mal prüfen und korrigieren. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2021 - 07:12

country flag Lotta wrote:

Hej! Jag stickar bara i en färg och förstår inte riktigt vad som ska hända mellan varv 30 och varv 1. Har du något varvantal eller mått innan jag börjar på varv 1 igen? Med vänlig hälsning, Lotta

28.12.2020 - 16:01

DROPS Design answered:

Hej Lotte, efter de første 30 pinde strikker du glatstrik til arbejdet måler 22-24-24-25 cm. God fornøjelse!

07.01.2021 - 13:32

country flag Katarina wrote:

Hej! Jag har stickat klart en toffel nu i storlek 42/44. Det står att längden ska vara 48 cm innan tovning. Min toffel är ca 37 cm lång otovad. Jag har följt mönstret till punkt och pricka samt har använt det garn och stickor som rekommenderats. Stickfastheten stämmer. Vad har jag gjort för fel? Mvh Katarina

03.12.2020 - 10:01

DROPS Design answered:

Ifall stickfastheten stämmer borde även måttet stämma. Du har väl kommit ihåg att sticka fältet i ljusgrått mitt under foten?

07.12.2020 - 18:26

country flag Liz Kehoe wrote:

I would like to make these slipper socks in knitting without felting them . How could I do this? Or is there a pattern I could use? Thank you for your help. Liz

24.10.2020 - 22:59

DROPS Design answered:

Dear Liz,this slipper might be similar, and only knitted, without felting, but then ypu van find a number of knitted slippers on our site with a quick search like this . Happy Knitting!

24.10.2020 - 23:11

country flag Aka-Bikki wrote:

Hej, jeg har vasket dem med bomuld 40 grader, og brugte opskriften til str. 35/37. Efter vasken er de lidt for stor, hvad skal jeg gøre?

31.05.2020 - 15:08