DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 202-15
DROPS Design: Mynstur ai-175
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-150-150-200 g litur 02, hveiti
50-50-100-100-100-100 g litur 21, sæblár
50-50-100-100-100-100 g litur 28, rauður múrsteinn
50-50-50-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sjávarblár
50-50-50-50-50-50 g litur 27, sægrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 152 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 12,6.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 11. og 12. hverja lykkju og 12. og 13. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 12. og 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni!
3-3-3-3-3-3 cm með lit 02, hveiti
6-6-7-7-7-7 cm með lit 21, sæblár
7-8-8-8-8-9 cm með lit 01, natur
2-2-2-2-2-2 cm með lit 28, rauður múrsteinn
3-3-3-3-4-4 cm með lit 27, sægrænn
7-8-8-8-8-9 cm með lit 02, hveiti
2-2-2-2-2-2 cm með lit 09, sjávarblár
3-3-3-3-4-4 cm með lit 21, sæblár
2-2-2-2-2-2 cm með lit 01, natur
7-7-7-8-8-8 cm með lit 28, rauður múrsteinn
5-5-6-6-6-6 cm (eða að óskuðu máli) með lit 02, hveiti

RENDUR ERMI:
Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni!
4 cm með lit 02, hveiti
6 cm með lit 21, sæblár
8 cm með lit 01, natur
2 cm með lit 28, rauður múrsteinn
3 cm með lit 27, sægræn
8 cm með lit 02, hveiti
1 cm með lit 09, sjávarblár
3 cm með lit 21, sæblár
2 cm með lit 01, natur
8 cm með lit 28, rauður múrsteinn
6-6-6-5-5-5 cm (eða að óskuðu máli) með lit 02, hveiti

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg.
Framstykki og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjón.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum. Ermar eru saumaðar í og prjónaður er kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni og röndum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 152-164-184-200-220-240 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 140-152-168-184-200-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 2-2-3-3-4-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-72-78-86-92-100 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 4-4-6-6-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-72-78-86-92-100 lykkjur eins og áður (= framstykki) og fellið af 2-2-3-3-4-5 lykkjur fyrir handveg. Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 66-72-78-86-92-100 lykkjur. Haldið áfram með rendur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 1-2-2-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 64-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og fellið laust af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 66-72-78-86-92-100 lykkjur. Haldið áfram með rendur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-2-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 64-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm. Í næstu umferð eru miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka með rendur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og fellið laust af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 36-36-40-40-44-44 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-22-24-22-26 lykkjur jafnt yfir = 56-60-62-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið RENDUR ERMI í hring – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið síðan út um L, XL, XXL og XXXL þannig (ekki er aukið út um fleiri lykkjur í S og M): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 8 cm millibili 1-2-2-3 sinnum til viðbótar. Eftir útaukningu mitt undir ermi eru 58-62-66-70-72-78 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur. Þegar stykkið mælist 51-51-50-49-47-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-2-3-3-4-5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í umferð og fellið af næstu 4-4-6-6-8-10 lykkjur.
Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á stuttan hringprjón 5,5 þannig: Haldið áfram með rendur og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum og 1 lykkju 1-1-1-2-4-5 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 56 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni í hvorri hlið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 80 til 92 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bretagne

Chloé, France

DROPS pattern Bretagne and Idun

Paola Stacchetti, Italy

De winter mag komen maar nu nog even niet

@marijkeaubroeck, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Linda Cox wrote:

What should the tension be, it is not on the pattern

06.07.2023 - 08:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cox, you will find the tension on the top of the pattern, together with the sizes, materials (quantity of each color) and needle size. Happy knitting!

06.07.2023 - 10:33

country flag Mc wrote:

Salve, che taglia indossa la modella?

13.12.2021 - 16:16

DROPS Design answered:

Buonasera Mc, solitamente le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!

15.12.2021 - 22:07

country flag Jette wrote:

Luk ind til ærmer, jeg kan ikke få det til at passe - er ikke meget øvet. Hvis jeg lukker 3m. - strikker 86m. -lukker 6m. så har jeg 85 tilbage på bagstykket, stikker 86m. så har jeg 4m. tilbage at skulle lukke af? Selvom jeg gør så der er 3m. tilbage at lukke af så vil der jo være 1m. som “svæver” alene. Vil det ikke være mere rigtigt at efter der lukket de 6 m. at strikke til enden med de 89 m. vende forstykket og så lukke de 3 m. af?

12.09.2021 - 11:13

DROPS Design answered:

Hej Jette. Det är för att du ska få starten av varvet mitt i sidan vi gör på detta sätt. Du har 184 m, lukker 3 m, stickar 86m, lukker 6 m, stickar 86 m och lukker 3 m. Den sista maskan som "svävar" drar du bara igenom tråden i som vanligt vid avslut. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 08:11

country flag Dina wrote:

Waarom is het moeilijk om de patronen te begrijpen hoe lees je een patroon

17.01.2021 - 15:08

country flag Dina wrote:

De mouw is nu 46 cm lang hoe nu verder dat begrijp ik niet

15.01.2021 - 21:20

DROPS Design answered:

Dag Dina,

Als je op een hoogte van 46 cm bent, ga je gewoon verder alleen je breit nu de eerste naald tot er 2-2-3-3-4-5 steken over zijn voor de markeerdraad. Dan kan je de volgende 4-4-6-6-8-10 af en brei je de mouw verder heen en weer, waarbij je steken afkant aan beide kanten zoals aangegeven in het patroon.

17.01.2021 - 11:30

country flag De Man wrote:

Meerder twee steken onder de mouw wat bedoelen ze

10.01.2021 - 15:36

DROPS Design answered:

Dag De Man,

Bij tip voor het meerderen bovenaan staat aangegeven hoe je 2 steken meerdert onder de mouw. Dit wordt aan beide kanten van de markeerdraad gedaan.

17.01.2021 - 13:05

country flag Lisa wrote:

Vielen Dank für die Antwort, meine Frage bezog sich allerdings auf die Angaben der Armkugel. Nehme ich zuerst in 4 Reihen je 2 Maschen zu Beginn und anschließend in 2 Reihen 1 Masche zu Beginn ab, nur um dann wieder zu Beginn jeder Reihe 2 Maschen abzunehmen? Oder nehme ich jetzt zu Beginn und Ende jeder Reihe ab? Vielen Dank!

08.01.2021 - 17:20

DROPS Design answered:

Liebe Lisa in der Größe S, M und L sollen Sie 2 Maschen am Anfang der 4 nächsten Reihen (= 2 Maschen beidseitig) abketten, dann 1 Masche am Anfang der 2 nächsten Reihe abketten. Dann ketten Sie 2 Maschen am Anfang jeder Reihe bis die Ärmel 56 cm mist (beachten Sie, daß Sie genausoviele Maschen beidseitig abgekettet haben), dann ketten Sie 3 Maschen am Anfang der 2 nächsten Reihe und ketten die restlichen Maschen ab. Viel Spaß beim Stricken!

11.01.2021 - 06:53

country flag Lisa wrote:

Meine Frage bezieht sich auf die Abnahmen an den Ärmeln, habe ich sie folgendermaßen richtig verstanden: Zuerst nehme ich 2 Maschen je Reihe (sowohl Hin- als Rückreihe) an je einem Ende ab. Danach 1 Masche je Reihe und anschließend 4 Maschen (also je 2 am Anfang und Ende von jeder Hin- und Rückreihe). Schlussendlich noch jeweils zu Beginn einer Hin- und einer Rückreihe 3 Maschen abketten und in der folgenden Reihe die verbliebenen Maschen abketten. Vielen Dank!

27.12.2020 - 00:29

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, Sie nehmen zuerst 2 Maschen siehe ZUNAHMETIPP (gilt für die untere Ärmelmitte): dann in XL nehmen Sie noch 2 Mal 2 Maschen in jeder 8 cm - dann für den Armkugel stricken Sie bis 3 Maschen vor Ende der Runde bleiben, und die nächsten 6 Maschen abketten (= 3 M vor der Ende der Runde + 3 Maschen nach dem Anfang der Reihe). Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 09:21

country flag Deman wrote:

Ik vind het schandalig dat ik nog niks gehoord heb van jullie hoe gaat de kop mouw hoe moet dat

20.12.2020 - 22:30

country flag De Man wrote:

Ik heb een bericht gestuurd nog niks ge hoord ik ben bij de armschaten hoe gaat het verder

10.12.2020 - 15:24

DROPS Design answered:

Dag De Man,

Het bericht stond bij de algemene opmerkingen, vandaar dat het niet als vraag was opgemerkt.

Vanaf de armsgaten zou je het lijf inderdaad met rechte naalden kunnen breien in plaats van heen en weer met de rondbreinaald.

22.12.2020 - 11:40