DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Talvik

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa með norrænu mynstri og dúsk úr DROPS Alpaca.

DROPS 197-10
DROPS Design: Mynstur z-831
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Höfuðmál: 54/56 - 54/56 - 54/56 - 58/60 - 58/60 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 618, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós kamel
50-50-50-50-50-50 g litur 403, millibrúnn

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 618, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós kamel
50-50-50-50-50-50 g litur 403, millibrúnn

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 618, ljós beige
50-50 g litur 100, natur
50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50 g litur 2020, ljós kamel
50-50 g litur 403, millibrúnn

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón /norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir sléttprjón /norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3.
Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6,2.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 6. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Prjónið fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 124-128-136-140-148-152 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er prjónað stroff ( 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-20-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-108-116-120-128-132 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið mynstur A.1 (= 4 lykkjur) alls 26-27-29-30-32-33 sinnum hringinn í umferð. Í umferð með svartri stjörnu í A.1 er aukið út um 20-24-20-24-32-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 228-240-252-264-288-300 lykkjur (meðtaldar 4 lykkjur sem auknar hafa verið út í mynstureiningu A.1).
Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð, JAFNFRAMT í umferð með ör er auki út jafnt yfir þannig:
ÖR-1: Aukið út 24-36-36-36-36-36 lykkjur = 252-276-288-300-324-336 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur = 276-300-324-336-360-372 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út 24-24-24-36-36-36 lykkjur = 300-324-348-372-396-408 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út 12-24-24-24-24-24 lykkjur = 312-348-372-396-420-432 lykkjur.
Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 20 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið prjónað áfram með ljós beige og sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 14-10-14-17-20-14 lykkjur jafnt yfir.
Aukið svona í 4.-4.-5.-6.-8.-8. hverri umferð alls 1-2-2-2-2-4 sinnum = 326-368-400-430-460-488 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 49-54-58-64-70-75 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-129-140-151 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 50-55-59-65-70-76 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 218-238-258-282-308-334 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki nýjar 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 9 sinnum = 254-274-294-318-344-370 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 82-86-94-106-116-122 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 336-360-388-424-460-492 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 10.-8.-6.-6.-6.-4. hverri umferð 7-3-9-5-1-18 sinnum og í 8.-6.-4.-4.-4.-2. hverri umferð 4-12-10-14-20-4 sinnum = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þega stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 120-132 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið mynstur A.3 (= 12 lykkjur) alls 10-11 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 14-14 cm. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós beige. Þegar stykkið mælist 15-15 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 14-17 sinum = 36-30 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 9-8 lykkjur eru eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel.
Húfan mælist ca 24-26 cm.

Gerið dúsk ca 6 cm að þvermáli. Notið 3 þræði í litnum ljós kamel, 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum ljós beige til að gera dúskinn og festið hann síðan á toppinn á húfunni.

Mynstur

symbols = natur
symbols = natur
symbols = ljós kamel
symbols = ljós beige
symbols = ljós brúnn
symbols = millibrúnn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Talvik

Cheryl, United States

Talvik

Antje, Germany

Talvik

Zsuzsa, Austria

Talvik

Bożena, Poland

a Talvik Sweater

Cindy, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Yolande wrote:

Goedenamiddag, ik heb geen rondbreinaald. Graag uitleg hoe ik de muts kan breien met 2 of 4 breinaalden.\r\nAlvast bedankt

31.03.2022 - 16:08

country flag Ulrike Dahlmann wrote:

Ich würde gerne das Modell 'Talvik' in den angegebenen Farben nachstricken. Leider gibt es aber die Farbe 403 mittelbraun nicht mehr. Welche Alternativen gibt es dafür?

29.01.2022 - 09:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dahlmann, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Händler, die besten Farbenmöglichkeiten - auch telefonisch oder per E-Mail anbieten. Viel Spaß beim stricken!

31.01.2022 - 08:46

country flag Belén Chocano Arias wrote:

Hello! In the part of "edge of the neckline" they mention that you should DECREASE 20 POINTS, when in the tips to "knit from top to bottom" they say that you should INCREASE points to place the separating threads. And then in Canesú they say that you have to increase 20 points plus the 4 increased in each lap ... I don't understand, since how am I going to decrease when I have to increase to create the shoulder part, neckline?

26.01.2022 - 20:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chocano Arias, you first work the neck edge with rib for 3 cm, then decrease evenly 20 sts because rib is tightening piece and you will change to larger needles. You then work diagram A.1 increasing on the rows shown in the diagram (= 4 sts increased in every repeat in width in the round) increasing evenly on the row with a star; then work A.2 increasing evenly on the rows wiht an arrow. And then increase evenly more sts in the round. Happy knitting!

27.01.2022 - 08:41

country flag Belén Chocano wrote:

Hola! En la parte de "orilla del escote" mencionan que se debe DISMINUIR 20 PUNTOS, cuando en el tips para "tejer de arriba hacia abajo" dicen que se deben AUMENTAR puntos para colocar los hilos separadores. Y luego en Canesú dicen que hay que aumentar 20 puntos mas lo 4 aumentados en cada vuelta... No entiendo, ya que ¿cómo voy a disminuir cuando debo aumentar para crear la parte de hombros, escote??

21.01.2022 - 20:39

country flag Lena wrote:

Hittar inte garn 403 mellanbrun!

21.12.2021 - 11:53

DROPS Design answered:

Hei Lena. Den fargen er nok utgått fra vårt sortiment. Noen butikker kan ha den inne, men det har vi kke oversikten over. Evnt kan du bytte til en anne farge, f.eks hasselnøtt nr. 9025 (men den er noe lysere enn 403). mvh DROPS Design

21.12.2021 - 14:17

country flag Cointeaux Nicole wrote:

Le coloris drops alpaca 403 n’est plus disponible , quel coloris me conseillez-vous pour le remplacer? Merci

11.11.2021 - 02:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cointeaux, pour toute assistance au choix d'une couleur, merci de bien vouloir vous adresser directement à votre magasin, même par mail ou téléphone, on pourra vous aider plus simplement. Bon tricot!

11.11.2021 - 08:59

country flag Henriette wrote:

Hvorfor må man øke så mange masker før man begynner med borden av bolen?

17.10.2021 - 22:37

country flag Zsuzsa wrote:

I have just knitted this jumper. Very light and still warm, I love it :) but the yarn was very hard to work with. Am I the only one? Whatever I did the stitches remained uneven.

15.08.2021 - 12:32

country flag Poppy wrote:

Thanks I would do that but no cross appearing to click off .

03.08.2021 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Poppy, you will find this black cross on the top corner over the small window (not in the window itself) - hope it will help.

04.08.2021 - 08:01

country flag Poppy wrote:

How do I turn off the drop down Its time to vote. I voted but still its blocking the pattern?

03.08.2021 - 15:11

DROPS Design answered:

Dear Poppy, click on the cross (X) to close this window. Happy knitting!

03.08.2021 - 15:29