Ice Dancer |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Aðsniðin peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan með gatamynstri, köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN: Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir lykkjur á kanti að framan, svo að kanturinn dragist ekki saman á hæðina. Prjónið frá réttu í 20. hverri umferð þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt (= hægri kantur að framan), snúið og prjónið til baka. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur eins og áður. Snúið og prjónið 5 lykkjur slétt (= vinstri kantur að framan), snúið og prjónið til baka. Snúið og prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur eins og áður. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með prjónamerki í þannig: Prjónið fram að fyrstu einingu í sléttprjóni og prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í einingu í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hverja og eina af afgang af einingum með sléttprjóni og með prjónamerki í (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um kraga): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 3 lykkjur með garðaprjóni í kanti við miðju að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næst umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur í hverri og einni af 8 einingum með 20-22-24-24-24-24 lykkjum með sléttprjóni þannig: Prjónið fram að fyrstu einingu í sléttprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í þessari einingu í sléttprjóni, prjónið síðustu 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hverja og eina af 7 einingum sem eftir eru í sléttprjóni (= 16 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð (þ.e.a.s. fellið af í byrjun á umferð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: S: 27, 36, 45, og 54 cm. M: 28, 37, 46 og 55 cm. L: 29, 38, 47 og 56 cm. XL: 30, 39, 48 og 57 cm. XXL: 31, 40, 49 og 58 cm. XXXL: 32, 41, 50 og 59 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 323-339-355-391-391-427 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið nú mynstur frá réttu í mismunandi stærðum þannig: Stærð S, M og L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 9 lykkjur), A.3 (= 18 lykkjur), * sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.5 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, A.3 yfir næstu 18 lykkjur, * sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.5, A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stærð XL, XXL og XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), * sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), * sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Allar stærðir: Í fyrstu umferð er lykkjum aukið út í hverri mynstureiningu, útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu (= 17-17-17-21-21-25 útauknar lykkjur) = 340-356-372-412-412-452 lykkjur. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka og í 20. hverri umferð eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1, A.3, A.5 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru A.2 prjónað yfir A.1, A.4 yfir A.3, A.6 yfir A.5 og A.8 yfir A.7 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-6-7-11-8-9 cm byrjar úrtaka í hverri einingu með 20-22-24-24-24-24 lykkjur sléttprjón – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-5-5 cm millibili alls 8-9-9-10-9-9 sinnum = 212-212-228-252-268-308 lykkjur. Eftir allar úrtöku eru 4-4-6-4-6-6 lykkjur í sléttprjóni í hverri einingu í sléttprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í 2.,3.,6, og 7. einingu í sléttprjóni. Þ.e.a.s. 2 miðju einingarnar í sléttprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út í hverri einingu með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-4-2-2 cm millibili alls 1-2-3-3-3-3 sinnum = 220-228-252-276-292-332 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-59-60-61-62-63 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 56-58-64-70-74-84 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-96-108-120-128-148 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 56-58-64-70-74-84 lykkjur í umferð (= vinstra framstykki). Klippið frá. Setjið lykkjur fyrir hægra og vinstra framstykki á sitt hvorn þráðinn og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: = 92-96-108-120-128-148 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-0-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-3-2-3-2 sinnum = 86-86-90-104-110-120 lykkjur. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 31-31-32-39-41-46 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, yfir lykkjur á prjóni þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm. Prjónið nú 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, jafnframt er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-58-64-70-74-84 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir kraga – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 8-8-10-10-12-12 sinnum, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið alveg eins og á bakstykki. Þegar öll affelling og úrtaka hefur verið gerð eru 61-61-65-72-77-82 lykkjur á prjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-30-33-33-36-36 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= kragi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-31-32-39-41-46 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur fyrir öxl. Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur fyrir öxl, snúið og fellið af. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir fyrstu 18-18-20-20-21-22 lykkjur, prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 56-58-64-70-74-84 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir kraga – munið eftir ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 8-8-10-10-12-12 sinnum, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu alveg eins og á bakstykki og hægra framstykki. Þegar allar affellingar hafa verið gerðar fyrir handveg og allar útaukningar fyrir hálsmáli eru 61-61-65-72-77-82 lykkjur á prjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-30-33-33-36-36 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= kragi), Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-31-32-39-41-46 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur fyrir öxl, snúið og fellið af. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir fyrstu 18-18-20-20-21-22 lykkjur, prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur. Fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjón. Fitjið upp 52-54-56-58-60-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Lima. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan þannig: 8-9-10-11-12-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.1, 8-9-10-11-12-12 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir A.1 og A.8 yfir A.7. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-3-3-1-1 cm millibili 9-8-5-2-0-7 sinnum og með 4-2-2-2-2-2 cm millibili 1-3-7-11-14-9 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-3-3-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 2-6-7-6-9-10 sinnum, 2 lykkjur 3-1-1-1-3-3 sinnum og 3 lykkjur 2-3-3-4-2-2 sinnum = 24-26-28-28-30-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 55-55-55-54-53-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í. Saumið kraga saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (90)
Mevrouw Van Leeuwen wrote:
De eerste naald beginnen met patroon. Aan het eind hou ik 21 steken over (excl 5 ribbel). En klopt het aantal steken in het patroon wel? A1=10 steken....A3=20 steken... enz. Geteld vanaf de tweede naald in de patronen.
16.03.2024 - 11:18DROPS Design answered:
Dag Van Leeuwen,
Ja, het patroon klopt. A.1 begint met 9 steken en heeft vanaf de 2e naald 10 steken. A.3 begint met 18 steken en heeft vanaf de tweede naald 20 steken.
17.03.2024 - 18:52Tineke Klapwijk wrote:
In mijn berekening kom ik ook uit op die 391 steken, maar in het breiwerk zelf houd ik 20 steken over vóór de bies. Ik neem aan dat ik telpatronen A1 en A7 aansluitend op elkaar moet breien, en niet met een steek ertussen of zoiets. Anders heb je meer dan die 391 steken nodig.
15.03.2024 - 11:52Tineke wrote:
Ik wil maat XL breien. Voor het lijf heb ik 391 steken opgezet. Bij de 5de toer moet ik na de bies afwisselend A1, A7 en stukjes in tricotsteek breien. Als laatste weer 5 steken voor de bies. Voordat ik bij die bies ben heb ik nog 20 steken over op mijn naald, waarvan ik niet snap dat ik die overhoud. Wat heb ik dan fout gedaan?
14.03.2024 - 22:18DROPS Design answered:
Dag Tineke,
Ik heb het uitgerekend en ik kom precies uit met de steken. Na de paragraaf over het lijf (dus waarbij je steken opzet) ga je verder met de paragraaf voor maat XL tot en met XXXL en omdat je maat XL breit, kies je in die paragraaf steeds het eerste getal van de reeks getallen. Op een gegeven moment staan er sterretjes. Wat tussen 2 sterretjes staat, dat brei je in totaal 3 keer. Misschien helpt het om even uit te schrijven in je eigen maat en dan even het aantal steken bij elkaar op te tellen.
15.03.2024 - 10:44Tineke Klapwijk wrote:
Ik wil nou eindelijk dit vest breien, maar ik kom er niet uit. Het antwoord op mijn eerdere vraag hierover heeft me niet geholpen. Ook andere breisters kunnen me er niet bij helpen. We vermoeden dat er een fout in het patroon moet zitten. Ik zou heel graag iemand van Drops willen spreken, om uit te leggen wat het probleem is, en om over een oplossing te kunnen overleggen. Maar ik weet niet hoe ik iemand kan bereiken. Please, help!!
14.03.2024 - 19:39DROPS Design answered:
Dag Tineke,
Wanneer je aangeeft welke maat je wilt breien en waar je precies tegenaan loopt, dan kunnen we je hopelijk beter helpen.
14.03.2024 - 21:57Debbie wrote:
I have tried knitting the xxxl size 4 different times and cannot get the numbers to work, I am increasing the correct amount of sts, but I am left with 25sts at the end of the row not including the garter stitch bands. Please tell me where I am going wrong, absolutely love this pattern and I am desperate to knit it, many thanks
07.03.2024 - 23:47DROPS Design answered:
Dear Debbie, work as follows: 5 sts in garter stitch, A.1 (= 9 sts), A.7 (= 18 sts), A.1 (= 18 sts), *24 sts in stocking stitch, A.1 (= 9 sts) *, work from *-* 3 times in total, 24 sts in stocking stitch, (33 x 3 = 99 sts), 24 sts in stocking st, A.1 (18 sts), A.7(= 18 sts), A.1 (= 9sts), A.7 ( 18 sts), A.1(18sts), *24 sts in stotcking stitch, A.1 ( 9 sts)*, work from *-* 3 times in total (99 sts), 24 sts in stocking stitch, A.1( 18 sts), A.7 ( 18 sts), A.1 (9 sts), 5 sts in garter stitch. =5+9+18+18+99+24+18+18+9+18+18+99+24+18+18+9+5 = 427 sts. Happy knitting!
08.03.2024 - 08:50Gitte Frandsen wrote:
Er det korrekt at der i opskriften Drops Design 197-25 Ice Danser skal være 5 kantm. a1, a3, (20 m, a1) (x 3) 20m , a5, a1, a3, (20 m, a1) (x3) 20 m a5, a1, 5 kantm. Skal der ikke være 2 x a5 på ryggen og a3 på forstykkerne. Synes det andet virker forkert da a5 er bredere end a3
25.02.2024 - 10:53DROPS Design answered:
Hej Gitte, A.1 er midt bagpå. Du skal have A.5 på den ene side af A.1 og A.3 på den anden side (både A.5 og A.3 består af 18 masker) :)
01.03.2024 - 14:39Kirsti Mäkinen wrote:
Jatketaanko "reunan lyhennetyt kerrokset" myös huivi kauluksessa?
23.02.2024 - 09:09DROPS Design answered:
Kyllä, myös huivikauluksessa neulotaan kyseisiä lyhennettyjä kerroksia.
21.03.2024 - 17:34Tineke Klapwijk wrote:
Mijn vraag gaat over telpatronen A1 en A7. Wat doe ik met de steek 'die er niet is', als een zwart blokje in het patroon? Aan het eind van de eerste toer (maat XL) met de telpatronen houd ik 12 steken over. Zijn dat die 12 keer het zwarte blokje? En hoe los ik dat op?
21.01.2024 - 14:39DROPS Design answered:
Dag Tineke,
Als je het aantal blokjes telt in de breedte van het telpatroon, dan zie je ook dat er geen 18 steken zijn maar, 16 steken. Als je het telpatroon uit zo knippen, dan zou je de zwarte blokjes er ook uit moeten knippen. Dus wanneer je de volgende ste(e)k(en) op de linker naald breit, dan brei je de steek die gelijk na het zwarte blokje komt.
21.01.2024 - 19:39Susanne Striegl wrote:
Wie errechne ich den Wollbedarf?
02.01.2024 - 18:51DROPS Design answered:
Liebe Frau Striegl, die benötige Wollmenge für jede Grösse finden Sie unter dem Kopfteil, zusammen mit den Grössen und Nadeln bzw Maschenprobe, dh in S brauchen Sie z.B.k 750 g DROPS Lima / 50 g das Knäuel = 15 Knäuel. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2024 - 08:23Cornelia Vogelsang wrote:
Könnte ich hiervon einr PDF haben?
01.04.2023 - 11:53DROPS Design answered:
Liebe Cornelia, wenn Sie auf den Button "Drucken" klicken, können Sie sich ein pdf der Anleitung erstellen, wenn Sie in den Druckeinstellungen den Druck als pdf wählen.
06.04.2023 - 08:56