DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 193-6
DROPS Design: Mynstur ee-635
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á tátiljum: ca 16 - 17 - 18 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
200-250-250 g litur 14, dökk grár
100-100-100 g litur 02, svartur
100-100-100 g litur 01, natur

HEKLFESTA:
14 fastalykkjur á breidd og 17 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Svæðið merkt með gráu hefur nú þegar verið heklað, þetta sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkjurnar/umferðina.

HEKLLEIÐBEININGAR-1 (hringinn):
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.

LITASKIPTI-1:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta fastalykkjan hekluð áður en skipt er um lit þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Haldið áfram með nýja litinn.

LITASKIPTI-2 (skraut):
Heklið keðjulykkju í lok fyrstu umferðar með nýja litnum.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við þegar heklað er fram og til baka):
Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju, loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju.

2 FASTALYKKJUR SAMAN:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá sóla og upp yfir kant. Síðan er heklaður hálfur hringur ofan á tá, þetta er heklað saman með kanti á sóla. Síðan er heklað band, hliðar/bakstykki fram og til baka og kantur að framan við reimarnar. Að lokum er spællinn heklaður og skrautið, gerð er tvinnuð snúar fyrir reim.
Athugið vel litaskipti sem koma jafnóðum inn í stykkið og lesið MYNSTUR að ofan.

SÓLI:
Sólinn er heklaður í hring með byrjun mitt undir sóla.
Heklið loftlykkjuröð með 22-24-28 loftlykkjur (= svæðið er merkt með gráum í mynsturteikningu A.1) með heklunál 5 með litnum svartur.
Heklið síðan í hring (þ.e.a.s. hvoru megin við þessa loftlykkjuröð) þannig:
Heklið A.1a yfir fyrstu loftlykkju, setjið 1 prjónamerki hér (= mitt framan á tá), heklið A.1b yfir sömu loftlykkju, heklið A.1c yfir næstu 20-22-26 loftlykkjur (= 10-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum), heklið A.1d og A.1e yfir síðustu loftlykkju, heklið síðan hringinn á gangstæðri hlið við loftlykkjuröð, þ.e.a.s. heklið A.1f yfir þessar 20-22-26 loftlykkjur (= 10-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 72-76-84 fastalykkjur í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.
ATH: Ef prjónamerkið hefur færst aðeins til, verður að færa þetta merki þannig að það sitjið mitt framan á tá.

KANTUR Á SÓLA:
Kanturinn er heklaður hringinn.
Byrjið næstu umferð mitt á annarri hlið á sóla, þ.e.a.s. byrjið í 18.-19.-21. fastalykkju á undan prjónamerki. Heklað er að tá með litnum natur þannig:
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju.
UMFERÐ 2: Heklið nú venjulegar fastalykkjur í gegnum báða lykkjubogana – heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 3: Heklið nú hálfa rönd í lok umferðar á hæl þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 36-38-42 fastalykkjum, skiptið yfir í svartur – sjá LITASKIPTI og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 36-38-42 fastalykkjum.
UMFERÐ 4: Skiptið yfir í natur og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju= 72-76-84 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið.

OFAN Á TÁ – HÁLFUR HRINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5 með litnum natur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan fram og til baka eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru 20 fastalykkjur í síðustu umferð – klippið ekki frá! Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan (= 10 fastalykkjur hvoru megin við prjónamerki). Fylgið ör í mynsturteikningu, nú er heklað þversum, þ.e.a.s. um umferð á A.2. Heklið A.3 fram og til baka yfir þessar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 7 fastalykkjur í síðustu umferð. Skiptið yfir í litinn svartur – næsta umferð í frágang byrjar hér – frá réttu!

FRÁGANGUR (kantur á sóla og hálfur hringur):
Leggið hálfa hringinn ofan á kantinn á sóla, prjónamerki á hálfa hring á að mæta prjónamerki við miðju framan á kanti.
Þ.e.a.s. byrjað er á 13. lykkju á undan prjónamerki á sóla, heklið 1 umferð með litnum svartur í gegnum bæði lögin eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.4 (= 25 fastalykkjur og 1 loftlykkja sem jafngildir 1 fastalykkju), haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja af 46-50-58 fastalykkjum sem eftir eru á sóla = 72-76-84 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið.

SNÚRA:
Hekluð er lítil snúra sem síðar er hekluð saman með síðustu umferð á hliðarstykki. Heklið fram og til baka með litnum natur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur, snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 loftlykkjum = 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-9: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Klippið frá og festið enda. Geymið snúruna.

HLIÐAR/BAKSTYKKI:
Heklið hliðarstykki fram og til baka frá síðustu umferð á kanti. Nú er ekki lengur heklað yfir 18 fastalykkjur við miðju að framan (9 fastalykkjur hvoru megin við prjónamerki að framan).
Heklið nú yfir þær 54-58-66 fastalykkjum – með byrjun frá réttu.
UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2. Heklið með litnum dökk grár. Heklið 2 FASTALYKKJUR SAMAN – sjá útskýring að ofan, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri).
UMFERÐ 2: Endurtakið umferð 1= 50-54-62 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 19-21-25 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 19-21-25 fastalykkjum, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 46-50-58 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Endurtakið umferð = 44-48-56 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16-18-22 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16-18-22 fastalykkjum, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 40-44-52 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: Endurtakið umferð 1 = 38-42-50 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: Endurtakið umferð 1 = 36-40-48 fastalykkjur.
UMFEÐR 8-11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36-40-48 fastalykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í þessa umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
UMFERÐ 12: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 2-1-4 fastalykkjum, * 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 6-7-8 sinnum, endið með 2 fastalykkjum saman (= 8-9-10 fastalykkjur færri) = 28-31-38 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 7-7-10 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur í hverja af næstu 14-16-18 fastalykkjum og 1 fastalykkja í hverja af síðustu 7-8-10 fastalykkjum = 42-47-56 fastalykkjur.
Heklið síðan fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist ca 9-10-11 cm frá prjónamerki.
Næst umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 7-7-10 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur saman alls 14-16-18 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 7-8-10 fastalykkjum = 28-31-38 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð saman með snúru (snúran er staðsett á réttu á tátilju) frá réttu þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 12-13-17 fastalykkjum, leggið snúruna saman og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum í gegnum öll 3 lögin, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 12-14-17 fastalykkjum. Klippið ekki frá!

KANTUR AÐ FRAMAN FYRIR REIM:
Heklið 1 kant niður yfir umferð þar sem er útaukning/úrtaka, þannig: Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð, heklið 1 fastalykkju um næstu umferð *, endurtakið frá *-* meðfram öllum hallandi kantinum, endið með 1 keðjulykkju í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 kant í hinni hallandi hliðinni alveg eins, nema gagnstætt, þ.e.a.s. byrjið neðst með 1 keðjulykkju í fyrstu umferð, endið með 1 keðjulykkju í toppnum á hallandi kantinum. Klippið frá og festið enda.

SPÆLL:
Heklið spæl fram og til baka í 7 fastalykkjum sem heklaðar voru þversum ofan á hálfa hringnum. Heklið með litnum dökk grár.
UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 9 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 11 fastalykkjur.
Endurtakið 2. umferð 0-1-1 sinnum = 11-13-13 fastalykkjur.
Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til spællinn mælist ca 14-15-16 cm. Heklið síðan þannig: * 1 fastalykkja í hverja fastalykkju, snúið og heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri) *, heklið frá *-* alls 2 sinnum = 7-9-9 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

SKRAUT:
Heklið 3 loftlykkjur með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 11 hálfa stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju, skiptið yfir í litinn svartur = 12 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), 1 fastalykkja í fyrsta hálfa stuðul, heklið 2 fastalykkjur í hvern af þeim 11 hálfu stuðlum sem eftir eru = 24 fastalykkjur.
Saumið skrautið með smáu, fallegu spori ca mitt í annarri hlið á hliðarstykki.

SNÚRA:
Gerið eina tvinnaða snúru þannig: Klippið 2 þræði í litnum natur ca 4 metra. Tvinnið þræðina saman þar til taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum loftlykkjubogana alveg eins og gert er með strigaskó, hnýtið slaufu.

Heklið aðra tátilju á sama hátt, en saumið skrautið í gagnstæða hlið á hliðarstykki.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja – þessi loftlykkjuröð er útskýrð í uppskrift. Fyrsta umferðin byrjar við svarta sporöskjulaga tákni
symbols = Umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 2 fastalykkjur í sömu lykkju
symbols = loftlykkjuhringur – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Fyrsta umferð byrjar við punkt í hring
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 fastalykkjur um loftlykkjuhring
symbols = 2 fastalykkjur um loftlykkjuhring
symbols = fastalykkja um ystu fastalykkju í umferð/um loftlykkjuhring
symbols = byrjið hér, heklið í gegnum bæði lögin (= 26 fastalykkjur)
symbols = haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju á kanti (= 46-50-58 fastalykkjur)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Babette Naumann wrote:

Hallo, ich kann nicht gut Häckeln, gibt es diesen schicken Schuh auch als Strickanleitung?\r\nVielen Dank für ihre Mühe, mir zu antworten.\r\nBabette

09.01.2024 - 19:40

DROPS Design answered:

Liebe Babette, dieses Modell haben wir nur zum häkeln; hier finden Sie aber alle unsere Modelle für gestrickte Hausschuhen. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2024 - 09:23

country flag Nathalie De Clerck wrote:

Hallo Hebben jullie ook de geschreven uitleg voor het telpatroon? Ik heb de blauwe sloffen al gehaakt - dewelke eigenlijk dezelfde zijn maar lager, maar er zit wel een verschil op mbt de steken met deze. Alvast bedankt voor de reactie. Groetjes Nathalie

21.05.2023 - 17:38

country flag Elise wrote:

Ik begrijp het vastzetten van de halve cirkel niet. Begin je op de zoolrand met een vast en een losse wat als 1 steek telt? Wanneer ik hier door beide lagen moet haken dan worden mijn sloffen slechts 7 cm breed. De rest is super helder uitgelegd maar hier meer ik echt nog een stuk toelichting.

26.12.2020 - 10:07

DROPS Design answered:

Dag Elise,

Je begint bij het zwarte vierkantje en haakt dan eerst 1 losse, daarna haak je steeds 1 vaste door beide lagen in elke steek van de zool.

17.01.2021 - 14:01

country flag Franciska wrote:

Ja, we begrijpen elkaar duidelijk niet. Die eerste toer is geen probleem.. ALLE symbolen begrijp ik. Alleen ik begrijp niet hoe ik verder ga met toer, 2 en 3 bijvoorbeeld. Tel ik naar boven in de tekening? Dus als ik in de 4e toer begin, als 2e steek, 2 vasten in 1 steek doe? Hoe kom ik dan weer bij het midden met 2 vasten in 1 steek? Dus toer 4 = 1 losse, 2 v in 1 steek dan 1 vaste in volgende 3 steken elk, dan 2 vasten in 1 steek, want midden?

27.11.2020 - 11:04

DROPS Design answered:

Dag Franciska,

Ne toer 4 is 1 losse, 1 vaste in de steek, 1 vaste in de steek, 2 vasten in de volgende steek (nu ben je in de zwarte lijn tussen A.1a en A.1 b), 2 vasten in de volgende steek, 1 vaste in de volgende steek, 1 vaste in de volgende steek, 1 vaste in de volgende steek (nu ben je bij de zwarte lijn tussen A.1b en A.1 c), A.1c en zo verder met A.1d en A.1 e.

p.s.: Zou het mogelijk zijn om langs te gaan bij een garenwinkel in de buurt, zodat iemand mee kan kijken? Dat werkt wellicht verhelderend.

30.11.2020 - 20:19

country flag Irene wrote:

Uhyggelig vanskelig. Så her blir det ikke tøfler. Finner noe annet

18.11.2020 - 20:58

country flag Franciska wrote:

Dank voor reactie. Die 1e toer had ik. Maar als die af is, hoe kom ik dan bij de 2e. Ik kom uit bij zo'n zwarte stip.. (losse, halve vaste?) daarna 1 vaste in diezelfde steek? En dan dubbele vaste in dezelfde steek? Ga ik een rij verder op de tekening? Dus als ik in de 4e toer begin, als 2e steek, 2 vasten in 1 steek doe? Hoe kom ik dan weer bij het midden met 2 vasten in 1 steek? Dus toer 4 = 1 losse, 2 v in 1 steek dan 1 vaste in volgende 3 steken elk, dan 2 vasten in 1 steek, want midden?

18.11.2020 - 16:34

DROPS Design answered:

Dag Franciska,

Je eindigt de toer met 1 halve vaste in de eerste losse op het begin van de toer en dan begin je met de volgende zwarte ovaal, dus met 1 losse.

19.11.2020 - 10:26

country flag Franciska wrote:

Ik begin bij de zool, maar geen idee hoe. Ik heb 24 lossen.. moet dan A.1a doen. Maar hoe? Begin ik dan met 'een losse, een vaste en dan 6 lossen'? En hoe kan het dat het minder is in de volgende toer van A.1a? Ik begrijp er totaal niets van.. help

12.11.2020 - 12:54

DROPS Design answered:

Dag Franciska,

Je begint bij A.1 a, dus bij de zwarte ovaal in het midden en haakt in de rondte richting links, in de vorm van een cirkel haak je van binnenuit naar de rand toe. Het volgende symbool is dus 1 vaste in de steek en het symbool daarna is 2 vasten in dezelfde steek. Vervolgens ben je bij A.1 c. Deze moet je een aantal keren herhalen (Als je dat gebied in de teltekening uitrekt, zie ook duidelijker de vorm van een schoenzool). Zo ga je verder in de rondte hakend.

18.11.2020 - 13:05

country flag Laura wrote:

Mi piacerebbe questo modello per bebè! Grazie per tutti i vostri bellissimi modelli!

27.01.2020 - 16:15

country flag Angelika wrote:

Hej Hur många varv ska det vara på sulan? Jag får det till 6 varv när jag kollar diagramet. Virkar jag efter beskrivningen för storlek 38/40 får jag mer än 76 fm. Ska jag öka i varje varv och på näst sista varvet? Hur många maskor ska det vara efter varje varv på sulan? Tack på förhand

07.12.2019 - 03:14

DROPS Design answered:

Hei Angelika! Ja, sålen består av 6 omganger. På siste omgang skal det være 76 fastmasker, 6. omgang skal se slik ut: A.1a = 1 luftmaske + 7 fastmasker, A.1b = 8 fastmasker, A.1c = 22 fastmasker, A.1d 8 fastmasker, A.1e = 8 fastmasker, A.1f 22 fastmasker. Dette utgjør 76 masker (inkludert 1 luftmaske). Lykke til!

09.12.2019 - 09:14

country flag Anja wrote:

Had graag dergelijk patroon gehad om te breien.

30.03.2019 - 22:36