DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Morgan's Daughter

Peysa með köðlum og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.

DROPS 179-3
DROPS Design: Mynstur fl-019
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500-550-600-650-700-750 g litur 07, beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 fyrir stroff á ermum og kant í hálsi með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 3,25. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um handveg):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig og prjónað er ofan frá og niður. Þegar útaukningu fyrir handvegi hafa verið gerðar, eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna til loka.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á stutta hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka, síðan er prjónað í hring á stutta hringprjóna, en skipt er yfir á sokkaprjón eftir þörf.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 31-31-33-33-35-35 lykkjur brugðið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir í A.1 eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. fitjið upp 1 nýja lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru fitjaðar upp 34 nýjar lykkjur fyrir hálsáli í lok síðustu umferðar frá röngu = 77-77-79-79-81-81 lykkjur. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að framan eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slét frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umferðir í A.2 eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er í A.2, þ.e.a.s. fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru hægri og vinstri öxl settar saman við framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI.
Setjið lykkjur frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (þær 34 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á vinstri öxl að framan = miðja að aftan) = 120-120-124-124-128-128 lykkjur.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur), prjónið A.4 (= 38 lykkjur), prjónið A.5 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 17-15-16-14-13-13 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni í byrjun á umferð og á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni í lok umferðar. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-7-7-13-17-21 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 132-142-150-162-178-190 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.6 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í A.6 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar frá röngu eins og útskýrt er í A.6 = 36-36-38-38-40-40 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í A.6 eru fitjaðar upp 48 nýjar lykkjur fyrir háls í lok síðustu umferðar frá röngu = 84-84-86-86-88-88 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið og 3 kantlykkjum í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í A.7 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar frá réttu eins og útskýrt er í A.7 = 36-36-38-38-40-40 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru vinstri og hægri öxl settar saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjurnar frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (48 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á hægri öxl að aftan = miðja að aftan) = 120-120-124-124-128-128 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (byrjið á 3. umferð í A.3, A.4 og A.5 merkt með stjörnu): Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur), prjónið A.4 (= 38 lykkjur), prjónið A.5 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur (þegar A.3, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina frá 3. umferð, endurtakið mynstureiningu með öllum umferðum á hæðina til loka). JAFNFRAMT er aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 17-15-16-14-13-13 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni í byrjun á umferð og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í lok umferðar. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-7-7-13-17-21 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 132-142-150-162-178-190 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður.
Setjið nú framstykki og bakstykki saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá framstykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar), setjið 1 prjónamerki (= í hlið), setjið lykkjur af bakstykki á prjóninn og setjið 1 prjónamerki (= í hlið) = 264-284-300-324-356-380 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 6-7-9-9-11-13 lykkjur garðaprjón, 3-7-7-13-17-21 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón og endið með 6-7-9-9-11-13 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið er næsta umferð prjónuð þannig: ATH. Byrjið umferð 3 lykkjum á undan prjónamerki á hlið, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður og endið með 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm frá öxl (ca 13-14-15-16-16-16 cm frá handveg), aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir það ca 21 útaukningum á hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm eru ca 348-368-384-408-440-464 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð eru prjónaðar lykkjur í hverjum kaðli (bæði kaðlar með 4 lykkjur og köðlum með 2 lykkjum) slétt saman 2 og 2 (á einungis við um kaðla, ekki í brugðnu mynstureiningum eða einingum í sléttprjóni) = ca 294-314-330-354-386-410 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverri lykkju jafnframt sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Öll peysan mælist ca 74-76-78-80-82-84 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 38-40-40-42-48-48 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum, 1 lykkja 7-8-11-13-14-17 sinnum, 2 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinnum og 3-4-6-6-8-10 lykkjur 1 sinni = 80-86-92-98-110-120 lykkjur og stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón hringinn, en yfir miðju 6 lykkjur undir ermi er prjónað A.8. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-1 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-15-18-22-26 sinnum = 58-58-62-62-66-68 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 30-30-29-29-29-27 cm frá prjónamerki (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-23-23-24-22 lykkjur jafnt yfir = 80-80-85-85-90-90 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.8 yfir 6 lykkjur mitt undir ermi, prjónið A.9A þar til 4 lykkjur eru eftir á undan A.8 (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar 5 lykkjur) og endið með A.9B (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stroffið mælist 12 cm er öllum 3 lykkjum fækkað í 2 lykkjur brugðnar með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman í hverri brugðinni mynstureiningu 64-64-68-68-72-72 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stroffið mælist 15 cm (öll ermin mælist ca 53-54-54-55-56-56 cm frá uppfitjunarkanti). Í næstu umferð eru lykkjurnar í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 48-48-51-51-54-54 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 3 eða slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju eins og á fram- og bakstykki. Ermin mælist ca 54-55-55-56-57-57 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn.
Prjónið upp ca 116 til 126 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af á stutta hringprjóna 3. Saumið ermar í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = prjónstefna
symbols = byrjið hér á bakstykki
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Lorna wrote:

I'm stuck on diagram A1. Which side of the diagram are the edge stitches? If they're on the right as the instructions seem to indicate, do I increase before or after working the edge stitches?

08.05.2024 - 01:10

DROPS Design answered:

Hi Lorna, You only have 3 edge stitches at the side, so working from the right side on the left front shoulder. you start the row by working A.1 and finish the row with 3 edge stitches. Work A.1 as shown in the diagram, without increases for the first 10 rows, then cast on the correct number of stitches for the neck at the end of each row from the wrong side, as described in the text, continuing A.1 as shown in the diagram and finishing the row with 3 edge stitches. Hope this helps and happy knitting!

08.05.2024 - 06:53

country flag Winnie Henriksen wrote:

Jeg har løst problemet.

16.04.2024 - 20:45

DROPS Design answered:

Hej Winnie, dejligt at høre :)

17.04.2024 - 11:32

country flag Winnie Henriksen wrote:

? Jeg har strikket mønstret en gang i højden jeg forstår ikke hvordan jeg skal få snoningerne til at passe \r\nDer er 5 glatstrikning men nu bliver der 7 kan det være rigtig ?

16.04.2024 - 14:42

DROPS Design answered:

Hej Winnie, vi ser at du har løst problemet :)

17.04.2024 - 11:32

country flag Hanna Queren wrote:

Für die Armausschnitte auf der Vorderseite soll ich die Zunahmen mit einem Umschlag in der Hinreihe machen. Den Umschlag soll ich in der Rückreihe links-verschränkt stricken (Zunahme-Tipp 2), wodurch er ja in der Hinreihe als rechte Masche erscheinen würde. Ist das so richtig? Die Maschen in der Hinreihe sind ja ansonsten linke Maschen.

09.09.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Queren, die Zunahmen für die Armausschnitten werden glatt rechts gestrickt, so werden die Umschläge bei der nächsten Reihe links verschränkt gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

11.09.2023 - 09:16

country flag Janet Bodner wrote:

Is there an English version of the pattern? It is so lovely!

16.02.2022 - 15:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bodner, sure there is, click on the scroll down menu below the picture and choose either English (UK-cm) or English (US-inch). Happy knitting!

17.02.2022 - 10:49

country flag Anja wrote:

Ich verstehe nicht, was bei dem Symbol mit dem schwarzen Diagonalfeld über zwei Maschen gemeint ist: "1 Masche auf die Zopfnadel hinter die Arbeit legen, 1 Masche rechts, 1 Masche rechts von der Stricknadel". Was passiert denn mit der Masche, die ich auf der Zopfnadel habe? Was für eine Masche ist gemeint mit "1 Masche rechts von der Stricknadel"? Ist das ein Schreibfehler und dabei vielleicht die Zopfnadel gemeint? Vielen Dank für Ihre Hilfe! Viele Grüße

04.01.2022 - 12:16

DROPS Design answered:

Liebe Anja, ja genau, es war so gemeint, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2022 - 12:34

country flag Catherine Badrick wrote:

I have started knitting pattern 179-3. It is so differnt knitting from the top down! I have completed the two fromt shoulder and joined them into one but I am puzzled about the next instruction. When it gets to the armhole increases is the measurement given taken from the shoulder at the very start or should it be from the neck edge.? I took the measurement from the start of the shoulder and have started to increas from that but it appears to me this may give a very small and tight armhole.!

31.10.2021 - 12:42

DROPS Design answered:

Dear Catherine, unless stated that you need to measure from a specific marker stitch, you should always measure from the starting/cast on row. The length of the armhole can be modified and made longer. The armhole should measure from 19 cm (for the smallest size) and, in case you need to make it longer, you would need to modify the width of the sleeve too. Happy knitting!

31.10.2021 - 19:51

country flag Kym Ware wrote:

Do you have a chart that shows the sizes in cm as I'm not sure which size to make.

15.07.2021 - 05:41

DROPS Design answered:

Hi Kym. You can find a chart with all measurement in cm in all sizes at the bottom of the pattern. Happy knitting!

15.07.2021 - 08:59

country flag Mich wrote:

Hi, is the last row knitted for the front and back piece ( before the body is knitted) a wrong side or right side row? Thanks for all your help! You’ve been very helpful...much appreciated!

06.04.2021 - 02:22

DROPS Design answered:

Dear Mich, when you put the stitches together for the body, and knit the body, you do that from the right side (thus the last back and forth knitted row should be the wrong side). Happy Knitting!

06.04.2021 - 08:25

country flag Mich wrote:

Hi, when knitting the body in the round, how does that affect the stitches? Diagrams A3/4 & 5 are to be worked from side to side (wrong and right side) In the round it’s wrong side only. Help! :-) thanks Mich

06.04.2021 - 00:58

DROPS Design answered:

Dear, Mitch, all the diagrams show every stitch as you see them from the RS, so when you knittem on the round, always knit every row from right to left, as it is seen on the diagrams. The order of working the diagrams are given in the pattern. Happy Knitting!

06.04.2021 - 01:55