Colorful Winter |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklaðir sokkar með marglitu mynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35–43.
DROPS 172-16 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. Umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Í byrjun hverrar um með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. Umf endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf. Í byrjun hverrar umf með fl er skipt út fyrstu fl með 1 ll. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir l frá fyrri umf, heklað er utan um þráðinn þannig að hann er hulinn og fylgir með hringinn. Passið uppá að þræðirnir sem fylgja með dragi ekki stykkið saman! Fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll, ef síðasti st frá fyrri umf og fyrsti st í næstu umf eru ekki í sama lit er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, 1 kl í 3. ll í byrjun umf, síðan eru heklaðar 3 ll (= byrjun umf). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti á sokk, 1 rúða í mynstri = 1 st. ÚRTAKA-1: Fækkið um 2 st með því að hekla næstu 3 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan 2 næstu st, en þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 fl með því að hekla næstu 2 fl saman þannig: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og aftur að ökkla, síðan er heklað fram og til baka frá miðju aftan á hæl. Að lokum er stroff / leggur heklað á sokkinn í hring. SOKKUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós grár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 6-6-5 fl um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12-12-10 fl. UMFERÐ 3 (og síðan í aðra hverja umf): Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 18-18-15 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 24-24-20 fl. UMFERÐ 8: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 30-30-25 fl. UMFERÐ 10: * 1 fl í hverja af fystu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 36-36-30 fl. Útaukning er nú lokið í stærð 35/37. SÆRÐ 38/40 – 41/43: UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-5 sinnum = 42-35 fl. Útaukning er nú lokið í stærð 38/40. STÆRÐ 41/43: UMFERÐ 14: * 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl. UMFERÐ 16: * 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum JAFNFRAMT er aukið út um 3 fl jafnt yfir = 48 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43. ALLAR STÆRÐIR: = 36-42-48 fl í umf. Heklið A.1 hringinn alls 6-7-8 sinnum – LESIÐ LITAMYNSTUR. 1 rúða í A.1 = 1 st. Heklið 9 umf af A.1. Í síðustu umf af A.1 (þ.e.a.s. umf með litnum kórall) fækkið l þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 24-30-34 st, heklið næstu 3 st saman (= 2 st færri) – LESIÐ ÚRTAKA-1, A.1 yfir næstu 6-6-8 st, heklið síðustu 3 st saman (= 2 st færri = alls 4 st færri í umf) = 32-38-44 st. Stykkið mælist ca 15-16-18 cm. Heklið e.t.v. áfram með 1 st í hvern st með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 15-16-18 cm. Stykkið er heklað áfram með ljós grár. Heklið fl fram og til baka yfir fyrstu 24-30-34 st (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 8-8-10 st í umf). Þegar sokkurinn mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 5-6-7 cm frá skiptingu) setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (= 12-15-17 fl hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er fækkað um 1 fl hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 l á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fl saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 fl færri). Heklið 1 umf án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umf (= 2 fl færri) = 20-26-30 fl. Heklið 1 umf án úrtöku, sokkurinn mælist nú ca 22-24-27 cm frá tá að hæl. FRÁGANGUR: Snúið sokknum, leggið hann saman tvöfaldan og heklið saman hælinn með litnum ljós grár frá röngu með einni umf kl í gegnum bæði lögin. Klippið frá og festið enda. STROFF / LEGGUR: Stykkið er nú heklað í hring, frá saumið við miðju að aftan. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið nú fl-umferð á hæl og st yfir fót með litnum ljós grár þannig: Heklið 15-18-20 st jafnt yfir fl-umferð þar til 2 fl-umf eru eftir, heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í næstu fl-umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í síðustu fl-umf alveg eins, heklið 1 st í fyrsta st yfir fót, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin hann dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 st færri), heklið 2 st saman í hvern og einn af næstu 6-6-8 st yfir fót, heklið 3 st saman þannig: heklið 1 st í síðasta st yfir fót, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í fyrstu fl-umf alveg eins, heklið 1 st í næstu fl-umf, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 st færri). Heklið 14-17-20 st jafnt yfir síðustu fl-umf = 34-40-46 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 2 st jafnt yfir = 36-42-48 st. Heklið síðan A.2 alls 6-7-8 sinnum á breiddina. Í 5. umf er aukið út um 3 st jafnt yfir = 39-45-51 st. Endurtakið útaukningu í umf 8 = 42-48-54 st. Mynstur A.2 er endurtekið þá 7-8-9 sinnum á breiddina. Í umf 13 er aukið út um 3 st jafnt yfir (ATH: Aukið út í mynstureiningu með djúpsævi) = 45-51-57 st. Endurtakið útaukningu í umf 15 = 48-54-60 st. Mynsturteikning A.2 er endurtekin þá 8-9-10 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Yamila wrote:
Tendrán patrón para calcetín o media de elfo o duende para adulto? Gracias
02.08.2020 - 05:43DROPS Design answered:
Hola Yamila. Aquí está la colección DROPS de calcetines y zapatillas: https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=21&lang=es Espero que puedas encontrar el modelo que buscas.
02.08.2020 - 20:01Lauren McRoberts wrote:
Colorful and interesting socks!
12.06.2016 - 01:34