Pink Maze |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Nepal með marglitu mynstri.
DROPS 172-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. umf endar með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, haldið eftir fyrstu fl með 1 ll. umf endar með 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn í þeim lit sem ekki á að hekla með lagður yfir l frá fyrri umf, heklað er utan um litinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. Passið uppá að þræðirnir dragi ekki stykkið saman! Fyrsti st kemur í stað 3 ll, um síðasta st frá fyrri umf og fyrsta st í næstu umf er í mismunandi litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, 1 kl í 3. ll í byrjun umf, heklið síðan 3 ll (= byrjun umf). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir liti á húfu, hálsskjóli og vettlingunum. 1 rúða í mynstri = 1 st. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 ST SAMAN (á við um vettlinga): Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 st í sömu ll alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN (á við um vettlinga): Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig. * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 5 ll með litnum hindber með heklunál nr 4,5 og tengið saman í hring með einni kl í fyrstu ll. Heklið síðan í hring og eftir mynstri A.1 – LESIÐ LITAMYNSTUR, þannig: UMFERÐ 1: Heklið 14-15-16 st um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 28-30-32 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42-45-48 st. UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56-60-64 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 70-75-80 st. UMFERÐ 6: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 4 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 84-90-96 st. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið síðan áfram með 1 st í hvern st og mynstri A.1 eins og áður (= 14-15-16 sinnum á breiddina). Í síðustu umf í A.1 er aukið út um 0-2-0 st jafnt yfir = 84-92-96 st. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 17 cm. Heklið síðan A.2 (= 4 st) alls 21-23-24 sinnum á breiddina. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (stykkið mælist ca 25 cm) heklið 0-0-2 umf með litnum hindber. Snúið stykkinu (þ.e.a.s. heklað er frá röngu), heklið 1 fl í hvern st með hindber. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 25-25-27 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Heklið 96-103 ll með heklunál nr 5,5 með litnum hindber og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 84-90 st. Heklið A.3 alls 14-15 sinnum hringinn – LESIÐ LITAMYNSTUR. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 5., 8. og 10 umf er aukið út um 12 st jafnt yfir = 120-126 st. Í hvert skipti sem aukið er út, endurtakið A.3 alls 2 sinnum oftar á breiddina. Í 12. og 19. umf er aukið út um 6-12 st jafnt yfir = 132-150 st. Í hvert skipti sem aukið er út, endurtakið A.3 alls 1-2 sinnum oftar á breiddina. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, snúið við (þ.e.a.s. heklið frá röngu), heklið 1 fl í hvern st með litnum millibleikur. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 32 cm. KANTUR: Heklið 1 kant í ll-umf efst í hálsi með litnum dökk fjólublár. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja ll sem þar sem st voru heklaðir í fyrstu umf. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. VETTLINGUR: Heklið 33-39 ll með heklunál nr 4,5 með litnum hindber og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af fyrstu 5-4 ll, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 30-35 st. Heklið A.4 alls 6-7 sinnum hringinn – LESIÐ LITAMYNSTUR. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 10 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið síðan áfram með litnum ljós grár. Í næstu umf er aukið út um 1 st fyrir þumal hvoru megin við fyrsta st í umf (= 2 st fleiri) – aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. Endurtakið útaukningu hvoru megin við þessa l í hverri umf alls 5 sinnum = 40-45 st (þumallykkjur = 11 st). Stykkið mælist ca 17 cm alls. Heklið 1 kl í hvern og einn af 11 fyrstu st (= þumallykkjur) í byrjun umf, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern st, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 29-34 st og 1 ll í umf. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st og í ll í lok umf eru heklaðir 3 ST SAMAN- sjá útskýringu að ofan = 30-35 st. Heklið A.5 alls 6-7 sinnum hringinn. Eftir 6 umf í A.5 er heklað og l fækkað þannig – sjá mynstur: UMFERÐ 7: * Heklið fyrstu/næstu 2 st saman (= 1 st færri – LESIÐ ÚRTAKA, heklið 1 st í næsta st, heklið næstu 2 st saman (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* alls 6-7 sinnum = 18-21 st. UMFEÐR 8: * Heklið 1 st í næsta/fyrsta st, heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 6-7 sinnum = 12-14 st. UMFERÐ 9: Heklið alla st 2 og 2 saman = 6-7 st. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l efst á vettlingnum, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Heklið með litnum ljós grár. UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu af 11 þumallykkjur, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern af 10 st, * heklið 2 st til viðbótar um ll aftan við þumal *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 14 st. UMFERÐ 2-3: Heklið 1 st í hvern st = 14 st. Mátið vettlinginn, nú er eftir ca 1 cm til loka á þumli. Heklið e.t.v. 1 umf til viðbótar með 1 st í hvern st. UMFERÐ 4: Heklið 2 og 2 st saman = 7 st. UMFERÐ 5: Heklið 2 og 2 fl saman – LESIÐ 2 FL HEKLAÐAR SAMAN. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l efst á þumli, herðið að og festið vel. KANTUR: Í kringum ll-umf í byrjun á vettling er heklaður 1 kantur með litnum hindber frá röngu þannig: Heklið 1 fl í hverja ll þar sem st voru heklaðir í fyrstu umf, þ.e.a.s. ekki er heklað í ll þar sem hoppað var yfir í fyrstu umf. Klippið frá og festið enda. Heklið annan vettling, en útaukning fyrir þumal er gerð hvoru megin við síðustu l í umf, þá er ekki heklaðar kl yfir fyrstu 11 l. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Loes wrote:
Ik mis de symbolen voor de kleuren
20.07.2019 - 10:36DROPS Design answered:
Dag Loes,
De symbolen staan er wel bij. Mogelijk dat de afbeeldingen tijdelijk niet goed geladen werden door je browser. Hopelijk is het inmiddels gelukt.
22.07.2019 - 11:06Anita Stassen wrote:
Volgens mij klopt het telpatroon A1 van DROPS 172-9 niet ik mis hier hokjes buj het begin van het patroon voor de murs
03.12.2016 - 20:13DROPS Design answered:
Hoi Anita. Het klopt wel. Je herhaalt het telpatroon over de st op de toer. In toer 1 heb je 14, 15 of 16 stk om de ring = 14, 15 of 16 herhalingen van het patroon. Toer 2 heb je 28-30-32 stk = 14, 15 of 16 herhalingen van het patroon in de rondte. Enzovoort.
06.12.2016 - 15:25Rebecca Gibbs wrote:
So beautiful and cheery what a wonderful way to brighten some ones winter. what is even better is what a perfect idea for a Christmas gift for one that is loved! a perfect way to give them a warm hug each time they put it on.
15.06.2016 - 05:56Lauren McRoberts wrote:
One of my favorites! Love the colors and that it is a complete set. Please include!
12.06.2016 - 01:27