DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 167-4
DROPS Design: Mynstur nr w-578
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
700-750-850-900-1000-1100 g nr 59, ljós bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 34 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í 2 hlutum frá miðju að aftan/miðju að framan. Stykkið er fyrst prjónað í hring, síðan er það prjónað fram og til baka. Fitjið upp og prjónið í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Að lokum eru ermar prjónaðar.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 5 (= 2 l á hverjum prjóni). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breiddina). Þegar fyrstu 21 umf í A.1 hefur verið prjónað, á byrjun á umf að færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf nákvæmlega á undan fyrsta uppslætti í mynstri svo að hún verði eins ósýnileg og mögulegt er. Byrjun umf kemur að lokum að vera mitt í fyrstu mynstureiningu á A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 176 l í umf, stykkið mælist nú ca 15 cm frá miðju, ca 30 cm að þvermáli. Prjónið nú fyrstu umf í A.2 yfir allar l – passið uppá að uppslátturinn verði beint yfir uppslætti frá A.1, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu mynstureiningu (svo að ekki myndist göt), í annarri mynstureiningu er uppslátturinn prjónaður slétt (svo það myndist gat) = 192 l. Haldið síðan áfram að prjóna eftir A.3 yfir aðra , fjórðu, sjöttu og áttundu mynstureiningu af A.2, yfir hinar 4 mynstureiningarnar er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – aukið nú um 8 l í annarri hverri umf eins og sýnt er í A.3.

Haldið áfram í garðaprjóni og útaukningu eins og áður þar til aukið hefur verið út 7-10-12-15-20-25 sinnum í A.3, nú eru 248-272-288-312-352-392 l í umf, endið eftir 1 umf sem prjónuð er brugðið, Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 11-11-12-12-13-13 l á þráð fyrir hálsmál (prjónið þær fyrst), haldið áfram með útaukningu í A.3 og garðaprjón eins og áður þar til eftir eru 11-11-12-12-13-13 l í umf, setjið síðustu 11-11-12-12-13-13 l á þráð fyrir hálsmál (prjónið þær fyrst). Klippið frá. Snúið stykkinu og prjónið áfram fram og til baka. Haldið áfram með útaukningu í A.3 í hverri umf frá réttu, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum. Haldið áfram þar til aukið hefur verið út alls 17-20-24-27-34-39 sinnum í A.3 – nú eru 298-322-352-376-430-470 l í umf og stykkið mælist ca 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju og 50-54-58-62-70-76 cm að þvermáli.
Stærð S-M-L-XL: Fellið af fyrstu 108-117-128-137 l, setjið næstu 82-88-96-102 l á þráð og fellið af síðustu 108-117-128-137 l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 82-88-96 l í kanti að neðan í 8-6-4-2 cm. Fellið af.
Stærð XXL-XXXL: Fellið af þegar öll útaukning hefur verið gerð.
Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið,18-19-20-21-22-23 cm niður frá öxl. Það merkir hvar ermin er saumuð í.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til aukið hefur verið út 14-17-21-24-31-36 sinnum í A.3, nú eru 304-328-360-384-440-480 l í umf, endið á 1 umf brugðið. Stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-36 cm frá miðju og 46-50-54-60-66-72 cm að þvermáli. Prjónið næstu umf þannig: Fellið af 15-15-16-16-17-17 fyrstu l í umf, haldið áfram með A.3 með útaukningu eins og áður þar til eftir eru 15-15-16-16-17-17 l í umf, fellið af þessar l. Klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka þar til aukið hefur verið út alls 17-20-24-27-34-39 sinnum í A.3 – nú eru 298-322-352-376-430-470 l í umf og stykkið mælist ca 25-27-29-32-35-38 cm frá miðju og 50-54-58-64-70-76 cm að þvermáli.
Stærð S-M-L-XL: Fellið af fyrstu 108-117-128-137 l, setjið næstu 82-88-96-102 l á þráð og fellið af síðustu 108-117-128-137 l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 82-88-96 l í neðri kanti í 8-6-4-2 cm. Fellið af.
Stærð XXL-XXXL: Fellið af þegar öll útaukning hefur verið gerð.
Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 18-19-20-21-22-23 cm niður frá öxl. Það merkir hvar ermin er saumuð í.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 32 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili 14-14-15-16-16-17 sinnum til viðbótar = 62-64-68-72-74-78 l. Fellið af þegar stykkið mælist 48-47-46-44-42-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, endið þegar 20 cm eru eftir neðst niðri á fram- og bakstykki = klauf.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 70 til 86 l (meðtaldar l af þræði) á sokkaprjóna nr 5 í kringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Morning Star

Nicole, France

A Star is born!

Angela, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Laurence wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment ne pas avoir de trou au milieu (début du tricot). Merci

06.04.2024 - 01:09

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, vous pourrez passer à la fin un fil dans les mailles du montage pour les resserrer et ainsi fermer le trou, ou bien montez les mailles en rond comme dans cette vidéo. Bon tricot!

08.04.2024 - 07:46

country flag Tanja wrote:

For all those wondering why their knitting has holes in A1: I knitted the yarn overs crossed. The instruction doesn´t say so, but my result looks like in the third picture. It´s only in A2 and afterward in A3 that you have to knit them like a regular stitch.

14.02.2024 - 08:08

country flag Hanne Thune wrote:

Kan ikke finde brystmål ? Der står kun diverse størrelser. Men når brystmålet ikke kan findes er det jo svært at finde den rigtige størrelse.

07.12.2023 - 11:05

DROPS Design answered:

Hej Hanne, Brystmålet i samtlige størrelser er 2 x 50-54-58-62-70-76 cm (100 cm i den mindste). Du finder måleskitsen nederst i opskriften. Her finder du også en lektion som beskriver hvordan man læser måleskitsen :)

07.12.2023 - 15:30

country flag Emily wrote:

Based off the pattern and videos, the very beginning looks to have quite a few holes around the middle due to the yarn overs. Photos of those who have done the pattern fully, show this as well. However, the third photo of the leaf flower shows no holes in the very middle from rows 1-9. Why is that? I have tried and cannot seem to get the outcome shown in the third photo. Am I missing an essential element in order to not get holes from the yarn overs in the beginning of the flower middle?

07.11.2023 - 02:17

DROPS Design answered:

Dear Emily, when A.1 (the flower) is done, you work A.2 over the 1st, 3rd, 5th and 7th marker, the yarn overs will be worked twisted on next round to avoid holes; and you then work A.4 over 2nd, 4th, 6th and 8th repeat of A.2 working yarn overs so that they create holes (- corners of piece). Happy knitting!

07.11.2023 - 08:46

country flag Terese wrote:

Håller på med Morning Star. På ett ställe står det: SAMTIDIGT minskas det i varje sida mot halsen på vartannat v så här: 2 m 1 gång och 1 m 2 ggr. Vad menas med det? Ska jag sticka 2 maskor tillsammans 1 gång sedan följt av 2 räta maskor? Jag förstår inte. Mvh Terese

20.10.2023 - 12:45

country flag Ulla Nielsen wrote:

Når jeg har avet strikkeprøven passer det ikke. Der står at du skal bruge for at få 17 m x 34 p retstrik på 10 x 10 cm. Jeg får 17m 10cm og 34 p 22,5 cm. Er det en fejl?

13.08.2023 - 13:58

DROPS Design answered:

Hej Ulla, du kan prøve at gå ½ nummer ned på pinden, men det vigtigste er de 17 masker du har i bredden på 10 cm :)

16.08.2023 - 11:48

country flag Vivian wrote:

Jeg har nu strikket hele mønsteret, MEN har 184 masker - kan det mon have noget med de opslåede 8 masker at gøre?

22.01.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

Hei Vivian. Du skal legge opp 8 masker og så skal du strikke A.1 8 ganger. Når du ser på diagrammet starter det med 1 maske x 8 rapporter og når du har strikket A.1 1 gang i høyden er det 22 masker pr A.1 = 8 x 22 masker = 176 masker. Mulig du har økt 8 masker for mye. Om du setter en maskemarkør mellom hvert rapport har du en bedre oversikt over hvor mange masker du har på hver rapport etter hver omgang. mvh DROPS Design

23.01.2023 - 14:19

country flag Gun-Britt wrote:

Hur är det möjligt med 34 varv på 10 cm? Jag fick 24 varv och 17 maskor på 10x10 cm. Jag använder ert rekommenderade garn Paris och stickor nr 5. Hur får jag nu mönstret att stämma?

02.11.2021 - 14:35

DROPS Design answered:

Hej Gun-Britt, det går flera varv när du stickar rätstickad (än när du stickar slätst) När du stickar din provlapp fram och tillbaka på raka stickor, stickar du rät på alla varv. När du stickar tröjan runt på rundsticka stickas rätst såhär; 1 v rätt och 1 v avigt. Lycka till!

02.11.2021 - 14:59

country flag Gun-Britt wrote:

Hur kan det vara möjligt att få 34 varv rätstickning på 10 cm? På 10 cm så får jag nog 17 maskor men blir 24 varv. Alltså 10x10 cm så ger mig bara 24 varv och 17 maskor på bredden med stickor nr 5. Tar jag mindre stickor så stämmer det ju inte alls med maskantalet. Är det säkert rätt att det ska vara 34 varv som det står i mönstret?Jag använder Paris garnet som ni rekommenderar.Så hur ska jag göra föra att få rätt maskantal o stickgrovlek?

01.11.2021 - 21:17

country flag Petra wrote:

Hallo, wenn ich mit dem Rückenteil fertig bin, habe ich ein Oval und kein Rechteck. Ich stricke Größe XXL. Es ist nicht klar beschrieben, wie es mit den Abnahmen funktioniert. In der Beschreibung wäre es schön, wenn mehr beschrieben wird, was Seitenteile, Schulterteile etc. sind.

21.02.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Liebe Petra, Rückenteil in XXL ist fertig wenn alle Zunahmen fertig sind, dann ketten Sie alle Maschen ab. Da Sie immer in den jeweiligen 4 Ecke 2 Maschen zugenommen haben, haben Sie eine Vierecke. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 09:06