DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1132
DROPS Design: Mynstur nr li-059
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
800-950-1050-1150-1250-1400 gr litur nr 7810, mosagrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TALA, Hornatala NR 535: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.10. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: 2 l br saman.
Fækkið lykkjum á undan A.1 þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.1, prjónið 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í vinstri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið sjöttu og sjöundu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 9, 17, 25, 33 og 41 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34 og 42 cm.
STÆRÐ L: 3, 11, 19, 27, 35 og 43 cm.
STÆRÐ XL: 3, 12, 20, 28, 36 og 44 cm.
STÆRÐ XXL: 4, 13, 21, 29, 37 og 45 cm.
STÆRÐ XXXL: 5, 14, 22, 30, 38 og 46 cm.

STUTTAR UMFERÐIR (á við um sjalkraga):
Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir l í garðaprjóni frá miðju að framan þannig:
Í 14. hverri umf er prjónað þannig (byrjið frá réttu): Prjónið yfir allar l í garðaprjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Með þessu þá kemur garðaprjónið ekki til með að dragast mikið saman. Vinstri kantur að framan er prjónaður gagnstætt, þ.e.a.s. stuttar umferðir eru prjónaðir með byrjun frá röngu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka og saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 145-150-158-178-186-206 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima.
Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.6 (skoðið mynstur fyrir rétta stærð), A.4, A.3, 2 l br, 2 l sl, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 4-5-5-9-9-11 sinnum til viðbótar, 2 l br, A.3, A.4, A.5 (skoðið mynstur fyrir rétta stærð), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram og endurtakið 2 fyrstu umf í A.3 – A.6 þar til prjónaðar hafa verið 12 umf. Nú heldur mynstrið áfram frá 3. umf í mynsturteikningu og prjónað er þannig: Prjónið fyrstu 59-59-63-63-67-72 l eins og áður, prjónið næstu 27-32-32-52-52-62 l, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað um 11-8-8-12-12-14 l jafnt yfir í mynstureiningum með br, haldið áfram eins og áður yfir þær 59-59-63-63-67-72 l sem eftir eru = 122-130-138-154-162-178 l. Prjónið 1 umf til baka. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með mynstur, en yfir miðju 16-24-24-40-40-48 l er prjónað A.8. ATH: A.3-A.6 er síðan endurtekið frá ör í mynstri!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af 3-3-3-4-4-4 l í byrjun á 4 næstu umf fyrir handveg = 110-118-126-138-146-162 l. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm prjónið A.7 yfir allar l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 20-20-18-24-22-24 l jafnt yfir í öllum stærðum = 90-98-108-114-124-138 l. Endurtakið A.7 til loka.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið þannig: Prjónið fyrstu 32-36-40-42-46-53 l, fellið af næstu 26-26-28-30-32-32 l, prjónið þær 32-36-40-42-46-53 l sem eftir eru. Síðan er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 31-35-39-41-45-52 l eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 81-85-89-98-102-111 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima.
Prjónið stroff þannig: A.1 (= 12 l), A.2 (skoðið mynstur fyrir rétta stærð), 2 l br, A.3, A.4, A.5 (skoðið mynstur fyrir rétta stærð), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram og endurtakið 2 fyrstu umf í A.2- A.5 þar til prjónaðar hafa verið 12 umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið síðan áfram með mynstur = 73-77-81-89-93-101 l. ATH: Mynstur er síðan endurtekið frá ör! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-46 cm byrjar sjalkragi, JAFNFRAMT er öxlin prjónuð eins og útskýrt er að neðan:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

SJALKRAGI:
Prjónið fyrstu l í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 11 l í A.1, fellið af 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, haldið áfram yfir þær l sem eftir eru í umf eins og áður. Endurtakið tilfærslu á A.1 með 1½ cm millibili alls 0-2-3-3-3-4 sinnum og í hverju cm 26-24-23-24-25-24 sinnum = 26-26-26-27-28-28 l (meðtalin fyrsta l í A.1). Útauknu l við miðju að framan eru prjónaðar jafnóðum í garðaprjóni, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan.

ÖXL:
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af 3-3-3-4-4-4 l frá byrjun 2 næstu umf frá röngu = 67-71-75-81-85-93 l. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm prjónið kraga-l í garðaprjóni og A.1 eins og áður, prjónið síðan A.7 yfir þær l sem eftir eru á prjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-10-13-12-13 l jafnt yfir = 57-61-65-68-73-80 l. Haldið áfram með mynstur til loka.

Prjónið síðan frá réttu þannig:
Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm – stillið af eftir bakstykki – prjónið yfir fyrstu 26-26-26-27-28-28 l áður en þær eru settar á þráð, prjónið síðan 2 umf garðaprjón yfir þær 31-35-39-41-45-52 l sem eftir eru. Fellið af.
Setjið til baka l af þræði á prjóninn. Nú eru prjónaðar stuttar umf í garðaprjóni með byrjun frá röngu þannig: Prjónið yfir allar 26-26-26-27-28-28 l, * 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 13-13-14-14-15-15 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem það er minnst. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið A.10 í stað A.1, A.9 í stað A.2 og A.6 í stað A.5. Munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 59-64-64-69-69-74 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Lima. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 9-10-10-11-11-12 l jafnt yfir = 50-54-54-58-58-62 l. Prjónið nú A.8 innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14-13-8-8-13-11 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með ca 2-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili 20-20-22-22-25-25 sinnum til viðbótar = 92-96-100-104-110-114 l. Þegar stykkið mælist 57-56-55-54-53-50 cm fellið af í byrjun hverrar umf á hvorri hlið: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 1 sinni og 3 l 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fellið af. Ermin mælist ca 60-59-58-58-57-54 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 42 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 2 umf garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir í umf frá réttu = 48 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað mynstur þannig: ATH: Mynstur í A.3 og A.4 byrjar og er endurtekið frá umf 5 í A.3 og A.4! 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3, A.4, A.8, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina. Haldið síðan áfram með fyrstu 6 umf frá ör í mynstri 1 sinni til viðbótar. Prjónið nú og fækkið l þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið næstu 4 l 2 og 2 slétt saman (= 2 l færri), haldið áfram eins og áður yfir næstu 7 l, prjónið næstu 4 l 2 og 2 l slétt saman, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 15 l, prjónið næstu 4 l 2 og 2 slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Skiptið nú yfir á prjóna nr 3,5 og prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l með byrjun frá röngu. Fellið af frá röngu.
Prjónið annan vasa á sama hátt, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í hægri kant að framan. Saumið saman affellingarkant á kraga við miðju að aftan, saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka.
Saumið vasa á framstykki þannig að mynstrið á vasanum sé staðsett yfir mynstri á framstykki. Saumið vasann fínlega í gegnum bæði stykkin yst í l í garðaprjóni í hvorri hlið og á botni á vasanum. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2015
Leiðrétting í mynstri = sl frá röngu, br frá réttu
Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2016
VASAR:... Haldið síðan áfram með fyrstu 6 umf frá ör í mynstri 1 sinni til viðbótar. Prjónið nú og fækkið l þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, prjónið næstu 4 l 2 og 2 slétt saman (= 2 l færri), haldið áfram eins og áður yfir næstu 7 l, prjónið næstu 4 l 2 og 2 l slétt saman, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 15 l, prjónið næstu 4 l 2 og 2 slétt saman, 1 kantlykkja með garðaprjóni. Skiptið nú yfir á prjóna nr 3,5 og prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l með byrjun frá röngu. Fellið af frá röngu. Prjónið annan vasa alveg eins, nema spegilmynd.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.10.2018
Leiðrétting: BAKSTYKKI:..Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með mynstur, en yfir miðju 16-24-24-40-40-48 l er prjónað A.8. ATH: A.3-A.6 er síðan endurtekið frá ör í mynstri! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu, br frá réttu
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = mynstrið er endurtekið áfram héðan (= 5. umf í mynstri)
symbols = 2 l br saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Finnley

Brian, United States

Finnley

Saša, Serbia

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1132

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (266)

country flag Heidi Nørgaard wrote:

Hej Drops, Jeg strikker Finnley i str. S. Jeg er kommet til ribkanten hvor de 27 masker skal tages ind med 11, så der er 16 masker tilbage. Der står det skal gøres i vrang maskerne, men det er der jo ikke nok vrang masker til? Det kan passe hvis man strikke alle de 2 ret sammen og strikker alle hvor der er 3 vrang sammen således at man strikker 2 vang sammen og 1 normal vrang. Så kommer rib til at være 1 r, 2 vrang over de 16 masker på de 2 sidste pinde i rib?

02.04.2024 - 09:16

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Ja, i str. S er det ikke nok vrangpartier, så du kan gjøre som du skriver, evnt ta en titt på hva som kommer på pinnen etter (A.8) og se om det kan tilpasses noe bedre. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 11:32

country flag Sunniva wrote:

Hei igjen. Nå er det 10 dager siden jeg spurte om hjelp med denne genseren. Er det noen som kan hjelpe meg?

09.02.2024 - 15:56

country flag Sunniva wrote:

Jeg strikker str L. Jeg har strikket vrangborden frem til pinne 12 slik oppskriften sier. Det står strikk 63 masker som før, fell gjevnt fordelt over de vrange partiene på de neste 32m (fell 8 masker), fortsett som før de resterende 63m. På midtpartiet mitt har jeg 36m (2vr,2r *3vr,2r* x6, 2vr).. det står at jeg skal felle 8m over de neste 32 maskene i vrangpartiene.. men jeg har bare 6 vrangpartier. Skjønner ikke hva jeg skal gjøre. Håper dere kan hjelpe meg. På forhånd takk!

29.01.2024 - 15:17

country flag Maria Kassalia wrote:

145-150-158-178-186-206 M (einschl. beidseitig je 1 Rand-M) auf Rundnadel Nr. 3,5 mit Lima anschlagen. Wie folgt im Rippenmuster str: 1 Rand-M KRAUS RECHTS (siehe oben), Muster A.6 (das Diagramm für die gewünschte Größe wählen), A.4, A.3, 2 M li, 2 M re, * 3 M li, 2 M re *, von *-* noch weitere 4-5-5-9-9-11 x wdh, 2 M li, A.3, A.4, A.5 (das Diagramm für die gewünschte Größe wählen), Ich stricke größe L und ist das ,das bündchen ? damit komme ich nicht klar für den anfang

10.01.2024 - 10:55

DROPS Design answered:

Liebe Frua Kassalia, in L stricken Sie so die 158 Maschen für das untere Bündchen: 1 Rand-M kraus rechts, A.6 (= 14 Maschen in L), A.4 (= 10 M) , A.3 (= 36 M), 2 M li, 2 M re, * 3 M li, 2 M re *, von *-* noch weitere 5 x wdh (= 30 Maschen Bündchen), 2 M li, A.3 (= 36 M), A.4 (= 10 M), A.5 (14 Maschen), 1 Rand-M kraus re = 1+14+10+36+2+2+30+2+36+10+14+1=158 Maschen. Die 2 ersten Reihen von den Diagrammen A.3-A.6 wiederholen Sie bis 12 Reihen gestrickt wurden, dann stricken Sie die 3. Reihe von den Diagrammen (mit Abnahmen) sowie Abnahmen wie in der schriftlichen Anleitung erklärt wird = 138 Maschen, die dann mit Muster gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2024 - 15:58

country flag Maria Kassalia wrote:

Hallo liebes team ich komme nicht klar mit dem Rückenteil ist einbischen durcheinender können sie vieleicht etwas besser erklären vielen dank

09.01.2024 - 14:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kassalia, können Sie uns bitte sagen, welches Teil Sie nicht verstehen, welche Größe Sie stricken, usw? So können wir Ihnen besser helfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis.

10.01.2024 - 08:51

country flag Arlene wrote:

For the left front piece that is to be worked reversed: Does this mean instead of A1 through A5 it should be A10 through A6 ( A10, A9, A8, A7, A6)? Thank you in advance - Arlens

06.01.2024 - 22:54

DROPS Design answered:

Dear Arlene, as indicated: Work as right front piece but reversed. I.e. work A.10 instead of A.1, A.9 instead of A.2 and A.6 instead of A.5. A.3 and A.4 are worked as before and not replaced by A.7 and A.8. You also need to change the order of the charts: start with A.6 and finish with A.10 (since you are working from the opposite side). Happy knitting!

07.01.2024 - 18:38

country flag Angel Adriana wrote:

Buena noche; Cómo ensamblo el cuello de chal en el escote de la espalda? Agradezco estos bellos diseños que han compartido. DROPS Extra 0-1132 Diseño DROPS: Patrón No. li-059

17.12.2023 - 03:36

DROPS Design answered:

Hola Angel, el cuello chal se trabaja en el delantero y es lo suficientemente largo como para cubrir la espalda. A la hora de ensamblar, unes las dos mitades del cuello chal por sus borde de remate. Una vez unido, unes la parte del cuello chal que no está en el delantero al borde del cuello en la espalda. En los siguientes videos puedes ver algunas formas de cómo trabajar y coser el cuello: https://www.garnstudio.com/video.php?id=434&lang=es y https://www.garnstudio.com/video.php?id=1687&lang=es

18.12.2023 - 00:00

country flag Linda B wrote:

Betreft Finnley vest L: wilt u alstublieft mijn vraag van 22 oktober jl. beantwoorden zodat ik het vest verder kan breien. Alvast hartelijke dank en groet.

26.10.2023 - 13:57

country flag Linda B wrote:

Goededag, ik brei het Finnley vest L voor de tweede keer, de sjaalkraag heb ik de eerste keer los gebreid en daarna aangenaaid. Ik brei het nu volgens patroon met de 26 meerderingen en minderingen. Klopt het dat er tot aan de schouders waar A7 begint er maar 13 ribbelsteken voor de kraag zijn gebreid (met evenveel minderingen na A1). Ga ik tijdens het breien van A7 door met de meerderingen en minderingen totdat ik 26 kraagstenen heb? Ik hoor het graag van U. Alvast dank.

22.10.2023 - 06:40

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Vanaf een hoogte van 40-41-42-43-44-46 cm begin je met de sjaalkraag (zoals beschreven onder het kopje 'SJAALKRAAG'), dus komen er steeds meer steken bij voor de kraag en minder voor het pand, door het meerderen en minderen naast A.1. Een stukje later, namelijk bij een hoogte van 53-54-55-56-57-58 cm, begin je met A.7 (dit staat onder het kopje 'SCHOUDER'). Je gaat dan gewoon door met het meerderen en minderen voor de sjaalkraag. Ik weet niet precies hoeveel steken je hebt, maar 13 zou wel kunnen kloppen.

26.10.2023 - 19:52

country flag Linda B wrote:

Goededag, ik brei het Finnley vest maat L maar wil de voorpanden breder maken vanwege een buikomvang van ca 113 /114 cm. Ik ben bang dat de voorpanden van maat L te krap zijn zodat het vest niet dicht kan. De voorpanden voor maat XL zullen weer te wijd zijn. Hoeveel extra cm's kan ik toevoegen aan de voorpanden om ze goed sluitend te maken. Hartelijke dank voor uw reactie.

03.10.2023 - 15:48

DROPS Design answered:

Dag Linda,

De omvang van maat L in dit patroon is 112 cm en het materiaal rekt natuurlijk ook een beetje mee. Ik denk dat je zelf het beste in kunt schatten hoeveel cm erbij moet...

05.10.2023 - 06:43