DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Poppies

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og norrænu mynstri og húfu með norrænu mynstri og dúsk úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-28
DROPS Design: Mynstur nr an-029
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni
DROPS ANDES frá Garnstudio
600-600-700-700-800-900 gr litur nr 9020, ljós grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 3740, kórall
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 3755, kirsuber
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 5310, ljós brúnn
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 7120, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 7 – fyrir stroff.

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 9020, ljós grár (45-50 gr)
100-100 gr litur nr 3755, kirsuber (32-35 gr)
100-100 gr litur nr 3740, kórall (19-21 gr)
100-100 gr litur nr 7120, ljós grágrænn (18-20 gr)
100-100 gr litur nr 5310, ljós brúnn (16-18 gr)

Tölurnar í (-) sýna u.þ.b. hversu mörg grömm þarf í hverjum lit ef óskað er eftir að prjóna með afgangsgarni.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 7 (Stærð S/M) eða NR 8 (Stærð L/XL) – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 16 umf með sléttprjóni (Stærð S/M) eða 11 l og 15 umf sléttprjón (Stærð L/XL) verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 6 (Stærð S/M) eða litur NR 7 (Stærð L/XL) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað á berustykki er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist aðeins.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 110-124-138-154-168-182 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 20-22-24-28-30-32 l jafnt yfir = 90-102-114-126-138-150 l. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13-11-12-11-12 cm prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar stykkið mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af þannig að prjónuð sé 1 umf með litnum ljós grár eftir einni umf með “doppum” – prjónið næstu umf þannig: Fellið af 2-3-3-4-4-4 l fyrir handveg, prjónið 41-45-51-55-61-67 l (= framstykki), fellið af 4-6-6-8-8-8 l fyrir handveg, prjónið 41-45-51-55-61-67 l (= bakstykki) og fellið af þær 2-3-3-4-4-4 l sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 24-26-28-28-30-30 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 1 l í umf = 23-25-27-27-29-29 l. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-10-10-11-11-11 sinnum = 41-45-47-49-51-51 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 32-32-31-31-30-30 cm prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATH: Lykkjur með ör í mynstri eiga að passa við miðju l í umf – teljið út hvar umf byrjar. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að prjónuð sé 1 umf með litnum ljós grár á eftir 1 umf með “doppum” – prjónið næstu umf þannig: Fellið af fyrstu 2-3-3-4-4-4 l, prjónið 37-39-41-41-43-43 l og fellið af þær 2-3-3-4-4-4 l sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 156-168-184-192-208-220 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 6-8-4-2-8-0 l jafnt yfir = 150-160-180-190-200-220 l í umf. Prjónið 0-2-2-2-0-2 umf slétt með litnum ljós grár.
Prjónið nú mynstur í hring á eftir mynsturteikningu A.2 – veljið mynstur fyrir rétta stærð og LESIÐ LEIÐBEININGAR (= 15-16-18-19-20-22 mynstureiningar í umf). Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka (endið á eftir umf merktri með ör í réttri stærð) eru 60-64-72-76-80-88 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm upp að öxl.

UPPHÆKKUN VIÐ HNAKKA:
Til þess að fá betra form er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan og prjónið fram og til baka á hringprjóna með litnum ljós grár þannig: Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 10-10-12-12-13-14 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-20-24-24-26-28 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-30-36-36-39-42 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-40-48-48-52-56 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan.
Prjónið 1 umf slétt yfir allar l með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 14-18-22-26-26-34 l jafnt yfir = 46-46-50-50-54-54 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 7 og litnum grágrænn og prjónið 5 umf sléttprjón áður en fellt er LAUST af með sl. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl með litnum ljós grár, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stærð S/M er prjónuð á hringprjóna/sokkaprjóna nr 6 og 7.
Stærð L/XL er prjónuð á hringprjóna/sokkaprjóna nr 7 og 8.
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 54 l á hringprjóna nr 6-7 með litnum ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 4-5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7-8 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 9 mynstureiningar í umf).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir A.3 (stykkið mælist nú ca 15-16 cm), prjónið nú áfram mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar stykkið mælist 20-21 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 9 l á milli prjónamerkja. Haldið áfram með A.4 og fækkið um 1 l eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3 sinnum, síðan í hverri umf alls 2 sinnum = 24 l eftir á prjóni (l sem ekki ganga upp jafnt í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum ljósgrár). Í næstu umf eru allar l prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 með ljós grár = 12 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk með litnum kirsuber ca 10 cm að þvermáli og saumið efst á húfuna.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = kirsuber
symbols = ljós grágrænn
symbols = kórall
symbols = ljós brúnn
symbols = 2 l slétt saman með mynsturlit í mynstri
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl með mynsturlit í mynstri, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Eli Vadset wrote:

Hvordan få kjøpe strikkejakke av denne genseren

12.09.2022 - 12:35

DROPS Design answered:

Hei Eli. For å finne oppskrift på jakken lik denne genseren, ta en titt her: Winter Poppies Cardigan mvh DROPS Design

12.09.2022 - 14:25

country flag Camilla wrote:

Findes der en instruktionsvideo på hvordan man tager ud? Er nået til 10cm på ærmet hvor der står man skal tage 2 m ud. Ved dog ikke hvordan.

07.03.2022 - 22:26

DROPS Design answered:

Hej Camilla. UDTAGNINGSTIPS: Start 1 m før mærket, slå om, strik 2 ret (mærket sidder midt mellem disse to m), slå om (= 2 m taget ud). På næste omg strikkes omslagen drejet ret så der ikke bliver hul. Mvh DROPS Design

09.03.2022 - 13:52

country flag Alba wrote:

Hola, estoy ya en la fase final de " elevación parte posterior del Escote" hay algún video explicativo de como hacerlo. No entiendo bien cómo hay que realizarlo. Gracias

19.09.2021 - 13:48

DROPS Design answered:

Hola Alba, no hay un vídeo para trabajar esta parte en específico, pero sí hay un vídeo para la técnica usada, las filas acortadas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&lang=es De todas formas, esta parte no es obligatoria; puedes pasar directamente al cuello.

19.09.2021 - 22:24

country flag Kniterella wrote:

I am knitting tbe Winter Poppies jumper, I havre knitted body n sleeves, how do I attach them without underarm holes? I don't like ur Tutorials as there is no audio insteuctions. I looked on YoyTube videod but all are top down yoke jumoers. I don't like top down anything, socks are Ik. Three needle cast off on underarm stitches does not work. I'm really syuck. I would like to finish my jumper after waiting 5 yrs to make.

15.03.2021 - 03:39

DROPS Design answered:

Dear Kniterella, you simply slip the stitches on the same needle. The few stutches cast off will help the sleeve / shoulder sit better, and give yor arm more mobility, these stitches are sewn together after finishing the knitting. Happy knitting!

15.03.2021 - 08:13

country flag Patricia McDermott wrote:

I have printed the pattern for Winter Poppies but the diagram did not print. How can I print off the diagrams. Regards Tricia

05.11.2020 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs McDermott, make sure your printer didn't save previous settings, all pages should be printed. Happy knitting!

06.11.2020 - 08:10

country flag Kniterella wrote:

I have nearly finished the body of jumper, just cast off for sleeves. I’m casting on 2 sleeves at the same time on circular needles, I can’t find a mustard yellow Andes yarn ball, is this yarn discontinued?

03.01.2020 - 15:53

DROPS Design answered:

Dear Kniterella, Andes is not discontinued, but it has never mustard yellow colour. All available colours you can find here. Happy knitting!

03.01.2020 - 18:10

country flag Orysia Zwiryk wrote:

I am knitting up Winter Poppies jumper, but have used other colours. I need some advice on contract colours. I have lt olive skun colour, chestnut red hair. The colours are MC Lt Beige mix 0206 Christmas red Lt Brown Turqupise and Grey Green Are these colours Ok?

04.09.2018 - 22:22

DROPS Design answered:

Deat Orysia. With a MC as light beige your combo sounds great! Do share photos on our Facebook Group when you will have your Winter Poppies jumper done. Happy Knitting!

06.09.2018 - 11:34

country flag Covadonga wrote:

Buenos días, Estoy tejiendo en agujas circulares este jersey. Acabo de empezar el diagrama A1 y me surgen dos dudas. ¿el punto en color magenta se teje en una vuelta o en dos? como en redondo no hay lado del derecho y del revés...Y otra pregunta tengo que arrastra el color magenta en las vueltas que son gris solamente o lo dejo en espera y lo retomo en la vuelta que hay que volver a tejer un puto en magenta? Espero haberme explicado bien con mis dudas. Gracias por anticipado. Covadonga

14.11.2016 - 13:08

DROPS Design answered:

Hola Covadonga. Los puntos color magenta se trabajan solo en una vta. Es mejor ir subiendo el hilo de color magenta para que en el lado revés no queden hilos colgados.

19.11.2016 - 18:14

Andrea wrote:

Ich habe zwei Fragen. 1.In der Anleitung für die Ärmel heißt es, dass man 10xdie Zunahmen machen soll. Soll man bei einer Gesamtlänge von 32cm mit dem Läusemuster beginnen? Ich habe bis dahin erst 7 Zunahmen gemacht. Verändert sich durch die Zunahme nicht die Position des Läusemusters? 2. Wo genau beginne ich mit dem Läusemuster? Erst ab der mittleren Masche der Runde oder muss ich das Muster rückwärts bis zum Rundenanfang rechnen? Vielen Dank für die Hilfe.

05.10.2016 - 18:31

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, A.1 müssen Sie stricken wenn die Ärmel 32 cm misst (1. + 2. Grösse), die Masche mit dem Pfeil in A.1 muss die mittlere Masche der Rand übereinstimmen, die Zunahmen sollen Sie im A.1 stricken, aber passen Sie mal auf, dass die Muster in der Höhe immer anpasst. Hier können Sie lesen, wie man ein Muster in der Mitte plaziert. Hier müssen Sie diese Masche mit dem Pfeil zentrieren.

06.10.2016 - 09:07

country flag Elvira wrote:

Tak for svaret, jeg forstår dog stadig ikke helt det med ærmegabet. Jeg strikker i str. m, og der står at jeg skal lukke 3 af til ærme, strikke forstykket, lukke 6 af, strikke bagstykke, og så lukke de sidste 3 af til ærmet. Så ender jeg da mist i ærmegabet..? Eller har jeg misforstået det fuldstændig?

15.09.2016 - 11:33

DROPS Design answered:

Hej Elvira. Jeg kan se min kollegas svar og jeg er ikke enig med hende. Saa vidt jeg kan se ender du midt i andet aermegab fordi du skal have 6 m i alt til hvert aermegab (3 paa hver side af siden). Men jeg ville evt saa starte med at strikke forstk (uden at lukke af), lukke 6 m af til aermegab, strikke rygstk til 3 för start af omg, lukke 6 m af og saa er du i start af forstk igen med 6 aflukkede m i hver side. Gör som du selv synes er paenest.

15.09.2016 - 11:59