DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Melody Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Lima með gatamynstri, norrænu mynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-18
DROPS Design: Mynstur nr li-065
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
450-500-550-550-600-650 gr litur nr 9010, ljós grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 5610, brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-7-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkað er um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar brugðið saman, 2 l br, 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm.
STÆRÐ M: 13, 20, 27, 34, 41, 49 og 57 cm.
STÆRÐ L: 13, 20, 27, 35, 43, 51 og 59 cm.
STÆRÐ XL: 13, 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm.
STÆRÐ XXL: 13, 20, 27, 34, 41, 48, 55 og 63 cm.
STÆRÐ XXXL: 13, 20, 27, 34, 41, 49, 57 og 65 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 221-235-263-277-305-347 l með litnum ljós grár á hringprjóna nr 4 (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, kantur að framan er alltaf prjónaðar með litnum ljós grár og í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan). Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 210-224-252-266-294-336 l, endið á fyrstu l í A.1 og 5 l garðaprjón. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina, í síðustu umf í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 191-201-221-241-271-301 l. Prjónið síðan þannig: 5 l garðaprjón, A.2 yfir næstu 180-190-210-230-260-290 l, endið með fyrstu l í A.2 og 5 l garðaprjón. Prjónið A.2 1 sinni á hæðina, í síðustu umf er fækkað um 10-8-4-0-6-12 l jafnt yfir = 181-193-217-241-265-289 l. Prjónið síðan þannig: 5 l garðaprjón, A.3 yfir næstu 168-180-204-228-252-276 l, endið á 3 fyrstu l í A.3 og 5 l garðaprjón. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 48-51-57-63-69-75 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 85-91-103-115-127-139 l). Haldið áfram með A.3, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l færri), endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 4 sinnum til viðbótar = 161-173-197-221-245-269 l. (ATH! Vegna úrtöku kemur A.3 ekki til með að passa í hliðinni, en sjáið til þess að götin passi miðað við mynstur). Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-4-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 = 181-193-217-241-265-289 l.
Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið síðan af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið síðan af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 77-83-95-107-119-131 l á bakstykki og 44-47-53-59-65-71 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-48-48-48-60-60 l á sokkaprjóna með litnum ljós grár. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.3. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Aukið út með 4-3-2½-2-3-2½ cm millibili 9-12-14-16-12-14 sinnum til viðbótar = 68-74-78-82-86-90 l. Þegar stykkið mælist ca 49-49-48-48-47-47 cm (stillið af að endað sé á sama stað í A.3 eins og á fram- og bakstykki) fellið af miðju 8 l undir ermi fyrir handveg = 60-66-70-74-78-82 l eftir í umf. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 285-309-341-373-405-437 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með A.3 eins og áður, í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 22-22-22-23-24-25 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 0-3-5-6-7-8 sinnum – JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 2-2-3-3-4-4 sinnum (nú eru 269-293-317-349-373-405 l á prjóni) prjónið næstu umf frá réttu þannig: (ATH! Ör í mynstri sýnir miðju á A.4. Teljið út frá miðju þegar byrjað er að prjóna mynstur á framstykki/ermar og bakstykki þannig að mynstrið verði eins í hvorri hlið á hvoru stykki), 5 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 34-37-42-48-53-59 l, fellið af fyrir laskalínu eins og áður – l í laskalínu eru alltaf prjónaðar með litnum ljós grár, A.4 yfir næstu 50-56-58-62-64-68 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 67-73-83-95-105-117 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 50-56-58-62-64-68 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 34-37-42-48-53-59 l, endið á 5 l garðaprjón. Haldið áfram með A.4 og laskalínu. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár og laskalínu eins og áður. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 101-101-117-133-149-165 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf yfir allar l, í fyrstu umf er fækkað um 10-10-16-28-40-52 l jafnt yfir = 91-91-101-105-109-113 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

---------------------------------------------------------
Vettlingar og húfa:
Sjá DROPS 165-19.
---------------------------------------------------------

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2016
Nýtt efnismagn: DROPS LIMA frá Garnstudio 450-500-550-550-600-650 g nr 9010, ljós grár.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu með ljós gráum
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 2 l óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 l sl, steypið 2 óprjónuðu l yfir
symbols = sl frá réttu, br frá röngu með brúnum
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Maartje Van Onselen wrote:

Bij het telpatroon zie ik twee lege vakjes. Kunt u mijnzeggen welke symbolen daarin horen?

31.01.2019 - 15:51

Denise Livingston wrote:

I do not understand how to knit vertically at the end of certain rows. Can you please help me with this. Thank you, Denise Livingston

30.03.2018 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Livingstone, when pattern says to repeat A.1 or A.2 one time vertically, just work diagram row ater row over all sts on the needle (except the 5 front band sts on each side). Start reading diagram from the bottom corner on the right side and read from the right towards the left from RS and from the left towards the right from RS. You can insert marker to mark each diagram and check pattern in each repeat. Happy knitting!

03.04.2018 - 07:59

country flag Birgit Drescher wrote:

Hej, (Min str) Slå 347 m op Strik 2 p retstrik. Forsæt således – fra retsiden: 5 m retstrik A1 over de næste 336 m afslut med første m i A1. og 5 retstrik. Strik A1 en gang i højden, på sidste p i A1 justeres m antallet til 301 m. Men der er da ikke nogle masker at justerer, de er jo taget ind på første pind i mønster A1, da der ikke er noget omslag til at opveje de masker der bliver taget ind. Er det mig der er helt forkert på den. MVH Birgit

19.11.2017 - 16:03

DROPS Design answered:

Hej Birgit, når du er færdig med A.1 har du taget 2x24 m ind. 347 - 48 m = 299 m. Du justerer nu til 301. God fornøjelse!

05.12.2017 - 14:54

country flag Ada wrote:

Ik heb het vest gebreid van garen drops Belle en effen. Het is prachtig geworden en draagt heerlijk!

21.05.2017 - 22:23

country flag Giovanna wrote:

Ciao volevo sapere se lo sprone può essere eseguito continuato, in tondo perché non amo le parti del raglan visibili. Mi sarebbe piaciuto un disegno non spezzato. Grazie

18.01.2017 - 18:50

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna. Nello sprone ci sono delle diminuzioni per il raglan, che andrebbero a modificare il motivo a jacquard. E’ per questo motivo che il disegno viene spezzato evidenziando le linee del raglan. Buon lavoro!

18.01.2017 - 21:35

country flag Ingeborg Heggelien wrote:

Jeg holder på å strikke denne jakken nå. Er veldig godt fornøyd med hvordan fremgangsmåten er forklart, supert! Og garnfargene er veldig fine. Men det blir for lite garn av den lys grå fargen ser jeg, 1-2 nøster faktisk, det er litt synd :-(

23.10.2016 - 20:14

country flag TALLEMANT wrote:

Die angegebene Menge reicht nicht aus. Es fehlten 2 Knäuel in grau. Es ist ärgerlich, denn ich musste nachbestellen, und habe dadurch zweimal Versand bezahlen müssen.... Sonst ist die Jacke schön, die Wolle auch, lässt sich auch wunderbar stricken. Nur unten rollt sich die Jacke, ich denke, dass mehr Reihen kraus rechts am Anfang richtig wären.

23.10.2016 - 15:45

country flag Ann Dorit Kammersgaard wrote:

Jeg har lige strikket denne cardigan. Desværre måtte jeg købe tre ekstra nøgler af den grå. Strikker jævnt, så det er meget med tre nøgler.

04.04.2016 - 18:26

country flag Rosine wrote:

Le modèle est très joli, mais la quantité indiquée en gris clair est insuffisante : en taille M, il faut 500 gr.

13.12.2015 - 13:48

DROPS Design answered:

Bonjour Rosine, aviez-vous bien le bon échantillon et conservé la tension indiquée de 21 m x 28 rangs jersey pour 10 x 10 cm? Merci.

14.12.2015 - 10:24

country flag Veronika Bäckström wrote:

Hej jag har försökt att börja på det här mönstret 6ggr och varje gång när jag kommer till tredje raden i A1 fattas det maskor. Så jag analyserade det hela och inser att det måste vara omslag i början och slutet av det första mönstervarvet? För att det ska stämma. Man gör ju en minskning i varje spets och om man inte gör omslagen fattas det mååånga maskor. Tänker jag rätt? Med vänlig hälsning Veronika

09.10.2015 - 08:27

DROPS Design answered:

Hej, Det är 14 m på första varvet i A.1, men pga minskningen på första varvet, har du bara 12 m på följande 11 varv (dvs 9 m mellan varje "spets") kom ihåg de 2 omslagen mellan varje spets från varv nr 3. Lycka till!

09.10.2015 - 14:10