DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Blue Danube

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu og basker / alpahúfu úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-34
DROPS Design: Mynstur nr de-146
Garnflokkur A + A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 09, turkos/fjólublár
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-175-200-225 gr litur nr 24, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 34 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm, eða 17 l og 22 umf sléttprjón með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 stk í allar stærðir.

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50 gr litur nr 09, turkos/fjólublár
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
25 gr litur nr 24, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 34 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 4 – kantur

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GATAMYNSTUR:
Prjónið 1 umf frá réttu þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 10 umf garðaprjón. Endurtakið þessar 12 umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju og út. Stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN og GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Delight og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 14 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram skammhlið og prjónið upp 1 l í hverja l frá uppfitjunarkanti = 143-143-139-135-135-135 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 68-68-66-64-64-64 l sl. Prjónið 3 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist göt). Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 68-68-66-64-64-64 l sl. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist göt). Prjónið síðan GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATH! Ekki er prjónað gatamynstur yfir þær 2 l sem prjónaðar voru slétt á milli uppslátta – þær eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 2 fyrstu umf í gatamynstri, aukið síðan út eins og áður, nú eru 5 l á milli uppslátta – þessi fjöldi eykst eftir því sem útaukning heldur áfram, aukið er út í 4. hverri umf 11-13-15-17-19-21 sinnum til viðbótar (= 6 útaukningar hvert skipti). Uppslátturinn er prjónaður slétt – það eiga að myndast göt. Haldið áfram með gatamynstur og útaukningar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningueru 227-239-247-255-267-279 l í umf. Prjónið nú frá réttu – þannig: Setjið fyrstu 68-68-66-64-64-64 l á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 91-103-115-127-139-151 l = 68-68-66-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af. Setjið til baka 68-68-66-64-64-64 l af þræði á prjóninn, prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 18 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjón meðfram skammhlið = 77-77-75-73-73-73 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 5 l sl (= kantur að framan). Prjónið 3 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat). Prjónið síðan GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATH! Ekki er prjónað gatamynstur yfir þær 2 l sem prjónaðar voru slétt á milli uppslátta eða 5 síðustu l í umf – þær eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 2 fyrstu umf í gatamynstri, síðan er aukið út eins og áður, nú eru 5 l fleiri á milli 2 fyrstu uppslátta og 3 l á milli síðasta uppsláttar og kant að framan – þessi fjöldi eykst eftir því sem útaukning heldur áfram, aukið er út í 4. hverri umf 11-13-15-17-19-21 sinnum til viðbótar (= 3 útaukningar hvert skipti). Uppslátturinn er prjónaður slétt – það eiga að myndast göt. Haldið áfram með gatamynstur og útaukningar. Eftir alla útaukningu eru 119-125-129-133-139-145 l á prjóni. Prjónið nú frá röngu – þannig: Setjið fyrstu 22-24-26-28-30-32 l á þráð, fellið af næstu 29-33-37-41-45-49 l = 68-68-66-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af. Setjið til baka 22-24-26-28-30-32 l af þræði á prjóninn. Haldið áfram í garðaprjóni og stuttum umferðum yfir kraga þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón yfir síðustu 11-12-13-14-15-16 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 12-14-15-16-17-18 cm þar sem hann er minnstur. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 6 umf sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 l sl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, prjónið 24-24-22-20-20 20 l sl. Haldið áfram með garðaprjón þar til prjónaðar hafa verið 18 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið síðan næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverri rönd með garðaprjóni meðfram skammhlið = 77-77-75-73-73-73 l. Næsta umf er prjónið frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 68-68-66-64-64-64 l. Haldið áfram eins og á vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á sokkaprjóna 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili 11-11-12-13-14-14 sinnum til viðbótar = 60-62-66-70-74-76 l. Þegar stykkið mælist 49-47-44-40-38-36 cm fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 54-56-60-64-68-70 l. Nú er fækkað um 1 l í hvorri hlið þannig: Fellið af í 4. hverri umf 0-0-0-2-3-4 sinnum, í annarri hverri umf 16-19-23-23-24-24 sinnum, síðan í hverri umf 4-2-0-0-0-0 sinnum = 14 l. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma. Saumið ermarnar í, þær eru saumaðar eins og laskalína við skáhallandi hliðar á framstykki og bakstykki. Saumið saman op undir ermum. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Stykkið er fyrst prjónað á sokkaprjóna, síðan á hringprjóna.

ALPAHÚFA:
Fitjið upp 18 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið eftir mynstri A.1 (= 6 mynstureiningar á breiddina). Skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 90 l í umf. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l þar til stykkið mælist 21 cm. Fellið af. Notið nál og þráð, saumið saman gatið efst á húfunni. Herðið á þræði og festið vel.

Til þess að fá fallegra form þá er húfan bleytt þegar hún er tilbúin og spennt yfir disk. Látið húfuna þorna á disknum. Endurtakið þetta í hvert sinn sem húfan er þvegin.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (svo að það myndist gat)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Renate Kopmann wrote:

Li. Vordert - Ges.M 139, dann 30 M stilllegen, die nächsten 45 M stricken u über die übrigen 64 M 3 Krausr str, dann abketten. Nach meinem Verständnis sind die 64 M die Seitennaht. Anschließend sollen die 45 + die 30 stillgelegten M wieder auf die Nadel u. abwechselnd sollen über 75 M 2 R stricken/ 2kurze Reihen stricken. Die Reihen gehen über den Raglanärmel?? ich verstehe es nicht. Gibt es eine Zeichnung von dem Vorderteil?

29.01.2019 - 20:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kopmann, welche Grösse stricken Sie und wie weit haben Sie jetzt gestrickt?

05.03.2019 - 12:30

country flag Melanie wrote:

Guten Tag, verstehe ich das richtig, dass bei den Zunahmen am Rückenteil so vorgegangen wird: die Maschen die zwischen den Umschlägen liegen werden immer um 2 Maschen erweitert: also 1. Zunahme: 1 U, 1 re, 1 U, 2 re, ..., dann 2. Zunahme: 1 U, 3 re, 1 U, 2 re, ..., dann 3. Zunahme 1 U 5 re, 1 U, 2 re, ..., dann 4. Zunahme 1 U, 7 re, 1 U, 2 re, 1 U, 7 re,. ... usw. aus den 7 werden dann 9, dann 11 .... usw Herzlichen Dank

13.09.2018 - 15:12

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, ja genau, wie dieses Video zeigt - es muß auch immer 2 Maschen in der Mitte sein. Viel Spaß beim stricken!

13.09.2018 - 15:29

country flag Brigitte Beutler wrote:

Wo finde ich bitte den Hinweis auf den Farbwechsel - wie im gezeigten Modell - und ob er mit 2fädigem Kid Silk gestrickt wird?

30.04.2018 - 15:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beutler, die Jacke wird mit 1 Faden von jeder Garnqualität (= 1 Faden Delight + 1 Faden Kid-Silk) gestrickt. Delight und Kid-Silk gehören beide zur Garngruppe A, damit können Sie Delight durch 1 Faden Kid-Silk ersezten (und dann mit 2 Fäden Kid-Silk stricken). Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden damit helfen, eine neue Farbe herauszufinden. Viel Spaß beim stricken!

30.04.2018 - 15:43

country flag Karen Payne wrote:

Is there any way of getting help with this pattern? I'm an experienced knitter, but have reached an impasse with the pattern and can't get any further as I just don't understand it?

09.03.2018 - 23:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Payne, there is a video showing how to work the beginning of back piece see it here. Happy knitting!

12.03.2018 - 11:07

country flag Karen Payne wrote:

This pattern has got me absolutely stumped and I am an experienced knitter. I am having problems with the eyelet pattern. I am working on the back piece, and am doing the first full eyelet row. Up the side is OK, but the instructions for the eyelet pattern over the top part where there already are increasing eyelets from a previous row is very unclear and I just don\\\\\\\'t understand it.

09.03.2018 - 23:21

country flag GRIMAL wrote:

Bonjour, j'ai réalisé ce gilet, aussi joli à porter qu'agréable à tricoter ! cependant, les quantités préconisées sont trop importantes : pour une taille M, j'ai utilisé moins de 6 pelotes de delight (au lieu de 7) et 3 pelotes de kid silk (au lieu de 6 ! ). Mais bravo pour le modèle :)

10.01.2017 - 16:54

country flag Fabienne wrote:

Désolée mais vous ne me donnez aucune solutions..... Vous me souhaitez bon tricot mais hélas, en suivant à la lettre la vidéo je n'y arrive pas..... Je vous dis que c'et IMPOSSIBLE avec beaucoup de mailles !!!! J'ai acheté la laine et je ne peux pas pas faire ce modèle !!!!!

09.01.2017 - 10:55

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, pour toute assistance personnalisée à la réalisation de votre ouvrage, vous pouvez vous adresser au magasin où vous avez acheté votre laine ou bien au forum DROPS. Bon tricot!

09.01.2017 - 13:26

country flag Fabienne wrote:

Avant toute chose j'ai regardé la vidéo "comment commencer le dos", mais la vidéo est réalisée avec une petite cinquantaine de mailles, hors avec 130 mailles sur l'aiguille circulaire les choses sont bien différente !!!!!! Je n'arrive pas a tricoter un rangs complet, arrive un moment ça coince au point de ne plus pouvoir avancer.... Je ne vois vraiement pas comment faire....

08.01.2017 - 21:35

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, la vidéo montre simplement la technique, la façon dont on va procéder dès le début, quelque soit la taille et le nombre de mailles. Suivez bien les indications pour votre taille et suivez en même temps les augmentations (jetés) tout en suivant la vidéo. Bon tricot!

09.01.2017 - 09:27

Alexandra wrote:

On sleeves pattern: After the mid 6 sts are cast off, we have to work right and back rows, not cirlular! And we have to make dec on the each side of the piece. Correct?

21.04.2016 - 20:18

DROPS Design answered:

Dear Alexandra, that's right, after you have cast off the 6 sts mid under arm continue back and forth dec 1 st on each side ie at the beg and at the end of row every 4th row/ every other row / every row - see size. Happy knitting!

22.04.2016 - 09:08

Darlene Sinclair wrote:

I don't see the pattern for the collar?? Please advise and thank you.

29.03.2016 - 04:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sinclair, the collar is worked over the 22-32 sts you slipped on a st holder - see at the end of "left front piece", the last 3 lines. Happy knitting!

29.03.2016 - 11:02