DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 166-13
DROPS Design: Mynstur nr li-067
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 56/60 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 8112, ísblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S - M - L
Mál:
Ummál ca 57-63-67 cm
Hæð 22-24-26 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
150-150-150 gr litur nr 8112, ísblár

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

VETTLINGAR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 8112, ísblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 108 l á hringprjóna nr 4 með Lima.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l br, 1 l sl) yfir allar l þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið nú A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm eru sett 9 prjónamerki í húfuna með 12 l á milli prjónamerkja, fyrsta prjónamerkið er sett eftir 12 l (þ.e.a.s. á eftir 1 l sl). Í næstu umf er fækkað um 1 l á undan hverju prjónamerki með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman. Haldið áfram með sl yfir sl, garðaprjón yfir garðaprjón og br yfir br.
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10 sinnum = 18 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist ca 25 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 120-132-141 l á hringprjóna nr 4 með Lima.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið stroff (= 2 l br, 1 l sl). Þegar stykkið mælist 4 cm er A.1 prjónað yfir allar l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm prjónið stroff (= 2 l br, 1 l sl). Þegar stykkið mælist 22-24-26 cm, prjónið 1 umf sl. Fellið af.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 42 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Lima.
Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br) yfir allar l þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið síðan A.2 yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= sl). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki, uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 5 sinnum til viðbótar – aukið út hvoru megin við allar þumallykkjur í hvert skipti, þ.e.a.s. næsta skipti er aukið út hvoru megin við 3 l, síðan í 5 l o.s.frv. – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir alla útaukningu eru 13 þumallykkjur og 54 l alls. Eftir síðustu útaukningu eru þumallykkjur settar á þráð og fitjuð er upp 1 ný l yfir l af þræði = 42 l. Haldið áfram með mynstur, nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 23 cm eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 l eins og áður, setjið 1. prjónamerkið, prjónið 2 l eins og áður, setjið 2. prjónamerkið, prjónið 19 l eins og áður (síðasta l er 1 l sl), setjið 3. prjónamerkið, prjónið 2 l eins og áður, setjið 4. prjónamerkið, prjónið út umf eins og áður. Í næstu umf er fellt af á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hverri umf 7 sinnum til viðbótar = 10 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm.

ÞUMALL:
Setjið 13 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið að auki upp 3 l í kant á bakhlið á þumallykkjum = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5 cm (prufið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm að loka máli).
Prjónið l 2 og 2 slétt saman = 8 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið l 2 og 2 l slétt saman = 4 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að, festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur. Aukið er út fyrir þumal hvoru megin við 22 l í umf (= sl). Setjið prjónamerkin þannig: Setjið 1. prjónamerkið í byrjun umf, prjónið 19 l eins og áður, setjið 2. prjónamerkið, prjónið 2 l eins og áður, setjið 3. prjónamerkið, prjónið 19 l eins og áður, setjið 4. prjónamerkið, prjónið út umf. Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Marit Bøe wrote:

Jeg får ikke fellingene øverst på høyre vott til å stemme med plasseringen av tommelen, og jeg skjønner ikke at det kan stemme at man skal øke på hver side av den 22. masken på venstre vott. Er det den første votten som er venstre vott og den siste som er høyre? Hvorfor skal man i så fall ikke øke på hver side av den første masken på vott nr. 2; ville ikke det bli det samme?

07.04.2024 - 20:11

DROPS Design answered:

Hei Marit. Første vott er høyre vott og der øker du til tommel på begynnelsen av omgangen. Andre vott er venstre vott og for å få tommelen på motsatt side øker du nå ved den 22. masken på omgangen. Da får du tomlene på hver sin side. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 08:02

country flag Laura Campanari wrote:

Per quanto riguarda le spiegazioni del berretto non sono riuscita a capire quali sono le maglie a punto legaccio. Grazie

06.04.2024 - 23:25

country flag Silvia wrote:

Buongiorno, ho eseguito il campione con il filato lima per lo scaldacollo, maglia rasata per avere 21 maglie e 28 ferri in 10 cm ho dovuto usare i ferri 3. Quando sono passata al punto dello scaldacollo però avviando 132 maglie ed eseguendo i punti indicati, coste e fantasia, il lavoro si restringe molto rispetto ai 63 cm indicati per una M. Le maglie mi sembrano calcolate sulla maglia rasata e non sul punto coste che è elastico. Potete darmi spiegazioni? Grazie

09.02.2023 - 13:39

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, non ci sono errori nelle spiegazioni riportate, provi a riconsiderare il suo campione, magari senza volerlo ha applicato un tensione diversa alla lavorazione del motivo. Buon lavoro!

10.02.2023 - 23:57

country flag Maureen wrote:

This is Avery simple pattern that can be adapted for many styles , it’s great to use for all that stash yarn and for donation for those in need

23.02.2020 - 07:22

country flag Eva K wrote:

Kan man sticka mössan i reflexgarn?

17.09.2019 - 09:29

DROPS Design answered:

Hej Eva, om du har ett garn med samma stickfasthet som i mönstret, så går det bra, men det är klart att vi rekommendrar DROPS Lima som modellen är stickat i :)

17.09.2019 - 14:47

country flag Ulrika wrote:

Tycker det är lite knepigt att kontrollera stickfastheten eftersom den är angiven för slätstickning och mönstret är i resårstickning. Gäller stickfastheten för mönstret eller hur ska man tänka?

04.08.2019 - 17:12

DROPS Design answered:

Hej Ulrika, om du gör ett stickprov och får 21m x 28v på 10 cm i slätst så vill du också få till stickfastheten i mönstret till att stämma. Lycka till :)

09.08.2019 - 09:27

country flag Rosi Santana wrote:

Buenos dias, como tejer el punto A1 con agujas rectas para el cuello

07.03.2019 - 09:27

DROPS Design answered:

Buenos dias Rosi! Por el lado reves, el punto en el medio de A.1 esta tejido como 1 reves, primero y tercero punto - derecho sobre derecho y reves sobre reves. Buen trabajo!

09.04.2019 - 07:57

Francesca wrote:

Grazie! Fatto…finito….bellissimo!

01.12.2016 - 18:57

Francesca wrote:

Buongiorno, vorrei capire se nell'esecuzione delle diminuzioni, quando chiede di eseguirle ogni due giri, cosa vuol dire? un giro diminuzioni, un giro senza, un giro diminuzioni? Grazie!

01.12.2016 - 15:25

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Sì è corretto: un giro con diminuzioni e uno senza; uno con e uno senza. Buon lavoro!

01.12.2016 - 15:27

country flag IngegerdRova wrote:

Skön modell på mössan och extra fint med halstuben till

09.06.2015 - 13:23